Morgunblaðið - 25.09.1970, Blaðsíða 10
MOROUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 25. StBPT. 1970
«r
Trúbrot og unglinga-
landsliðið í Tónabæ
1 KVÖLD, föstudagskvöld,
verður haldinn í Tónabæ fjáröfl
unardansleikur til styrktar ungl
ingalandsliðinu í knattspyrnu,
en það fer í nóvembermánuði til
Bretlands til að leika tvo lands-
leiki. Á þessum dansleik skemmt
ir hljómsveitin Trúbrot, en einn
ig verður diskótek og skemmti-
atriði. Hljómsveitin Trúbrot er,
sem kunnugt er, skipuð miklum
knattspymumönnum. Rúnar Júl
íusson var eitt sinn vaiinn í ís-
lenzka landsliðið, en gat ekki
leikið með, þar sem hann var á
ferð um landið með Hljómum til
að leika á dansleikjum. Gunnar
Þórðarson hefur sýnt ótviræða
hæfileika í íþróttinni, skoraði
eitt sinn mark með höfðinu i leik
gegn úrvalsliði Lúðrasveitar
Reykjavíkur í Laugardalshöll-
inni. Magnús og Ólafur eru báð-
ir léttir á sér og leiknir með
knöttinn, og þess vegna er hljóm
sveitin Trúbrot sjálfkjörin til að
leika á styrktardansleik ungl-
ingalandsliðsins.
Stofnþel
Hljómsveitin Stofnþel var
stofnuð í ágústmánuði s.l. Nafn-
ið er greinilega rammíslenzkt og
að sögn höfundar útleggst það
eitthvað á þessa leið: „Þel“ er
íslenzk merking enska orðsins
„feeling", en „stofn“ má hvort
sem er tákna upphaf eða undir-
stöðu. Það er nú það.
Liðsmenn hljómsveitarinnar
eru, talið frá vinstri: Gunnar
Hermannsson, bassaleikari,
Magnús Halldórsson, orgelleik-
ari, Herbert Guðmundsson, söngv
ari, Kristmundur Jónasson,
trommuleikari, og Sævar Árna-
son, gítarleikari — allt í allt,
hljómsveitin „Byrjunartilfinn-
ing“. Tónlistin, sem hljómsveitin
flytur af hvað mestri innlifun, er
ættuð frá hljómsveitunum Ten
Years After og Free, hljómsveit
um, sem eiga miklu fylgi að
fagna í Bretlandi og víðar, og
telja þeir félagar i Stofnþeli
þessa tónlist eiga góðan hljóm-
grunn meðal íslenzkra unglinga.
Plantan
áður. Já, fólkið á böllunum hlust
ar orðið meira á hljómsveitirnar
en áður.“
Páll var áður Trommuleikari í
Sextett Ólafs Gauks. Eru þetta
ekki mikil viðbrigði að vera far
inn að spila í „bítlahljómsveit" á
ný?
„Jú, að sjálfsögðu. Þegar mað-
ur spilar i hinsegin hljómsveit,
hlýtur maður að dragast aftur
úr. En ég vonast til að ná því
upp aftur fljótt. Þetta eru ágæt-
ir strákar í hljómsveitinni og
samstaðan er alger. Við höfum
æft í tæpan mánuð, dag eftir
dag, og við stefnum áð því að
gera sem bezta hljómsveit úr
okkur. Við verðum að standast
kröfur fólksins".
Hljómsveitin Plantan er nú að
hefja leik sinn á ný eftir nokkurt
hlé. Hefur henni bætzt nýr liðs-
maður, Kristján Erlendsson, sem
leikur á saxófón og klarinett, og
með tilkomu hans hefur hijóm-
sveitin í æ ríkari mæli snúið sér
að ílutningi tónlistar í jass-rokk
stíl, tónlistar hljómsveitanna
Blood, Sweat & Tears og Chi-
cago. Einnig flytur hljómsveitin
önnur góð og vinsæl dægurlög
og leggur þá áherzlu á góðar
raddanir, en fjórir liðsmanna
hennar geta sungið og syngja
mikið. Það, sem helzt háir hljóm-
sveitinni, er tímaskortur til æf-
inga, en liðsmenn hennar eru
annað hvort í vinnu eða skóla-
námi frá morgni til kvölds. En
áhuginn er ódrepandi — allt
fyrir tónlistina.
Liðsmenn Plöntunnar eru:
Kristján Erlendsson, saxófónn og
klarinett, Guðni Sigurðsson, org
el og trompett, Viðar Jónsson,
gítar, Þórður Þórðarson, tromm-
ur og Guðmundur Sigurðsson,
bassi.
LOGAR
1 mörg ár hefur verið starf-
andi í Vestmannaeyjum hljóm-
sveitin Logar, en að sjálfsögðu
hafa alltaf annað slagið orðið
einhverjar breytingar á áhöfn-
inni. Nú er hljómsveitin að fara
af stað aftur eftir stutt hlé og
er þannig skipuð: Frá vinstri:
Ólafur Bachmann, trommuieik-
ari, Ingi Hermannsson, söngvari,
Henrý Erlendsson, bassaleikari,
Helgi Hermannsson, gitarieikari
og Guðlaugur Sigurðsson, orgel-
leikari. Ólafur trommari var áð-
ur í Mánum frá Selfossi, en er
nú fluttur til Eyja. Helgi Her-
mannsson var „Logi“ fyrir nokkr
um árum og er nú byrjaður
aftur.
Hljómsveitin er að æfa upp ný
lög og gömul af fullum krafti,
en þar sem hljómsveitin er sú
eina í Vestmannaeyjum, verður
hún að geta leikið allfjölbreytta
tónlist — frá gömlu dönsunum
allt til villtustu framúrstefnu-
tónlistar. Eyjamenn eru hrifnir
af sínum mönnum og fjölmenna
þess vegna alltaf í „Höllina" a
laugardagskvöldum, þegar Log-
ar leika þar.
Nú er í undirbúningi útgáfa
tveggja laga plötu með ieik
Loga, og er það Svavar Gests,
sem hefur gert samning þess efn
is við Loga. Lögin verða líkleg-
ast bæði af erlendum uppruna,
en ekki hafa þau þó verið valin
ennþá. Þegar Logar koma svo
yfir til „meginlandsins" tii að
hljóðrita þessi lög, hyggjast þeir
leika á dansleikjum fyrir inn-
fædda. Vonandi verður þess
ekki langt að bíða.
Fí-fí + Fó-fó — furðulegt
nafn. Fí-fí og Fó-fó eru tvær
litlar mýs — gervimýs — og þær
eru eins konar vörumerki hljóm
sveitarinnar. Liðsmenn hennar
eru, frá vinstri: Hlynur
Höskuldsson, orgel, Páll Val-
geirsson, trommur, Kári Jónsson,
gitar, Gunnar Jónsson, söngur,
og Ólafur „Muður“ Sigurðsson,
bassi. „Muður?" Já, þekkið þið
ekki gamla stefið „Ólafur muð-
ur, ætlarðu suður?“ úr þjóðsög-
unni? Ekki? Jæja, en þetta við-
umefni hefur hann tekið upp
sjálfur og stendur við það.
Hljómsveitin er undir miklum
áhrifum frá ensku hljómsveit-
inni Blodwyn Pig og kemur til
með að leika nokkuð af lögum
þeirrar hljómsveitar, en hins veg
ar þeim mun minna af lögum af
vinsældarlistunum, þessar svo-
kölluðu „commercial" tónlist.
Hvers vegna? Trommuleikarinn,
Páll Valgeirsson, verður fyrir
svörum:
„Okkur leiðist að spila svoleið
is músik. Og það sakna hennar
vafalaust færri en ætla mætti.
Þróaða tónlistin, eins og sú, sem
Blodwyn Pig flytur, er stöðugt
að sækja á og fólkið hlustar orð
ið meira á svoleiðis tónlist en