Morgunblaðið - 18.11.1970, Qupperneq 17
MORGÖN'BJLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVBMiBER 1970
17
l»aff má segrja að stúdentar séu hugmyndaríkir, og er þess
skemmst að minnast þegar það komst í tízku hjá þeim að
keppast um hve mörg:um mætti troða inn í Volkswagen-bifreið
eða símaklefa. Nýjasta fyrirbrigðið vestan hafs er kossakeppni,
þ. e. tímalengd kossins. Á Iaugardag settu þau Jim Holloway
og Ronnie Beck, sem stunda nám við Hartford háskólann
í Bandaríkjunum, nýtt „heimsmet“ í þessu fagi, og stóð koss-
inn í 13 klukkustundir og 45 mínútur. Fyrra „metið“ var
12 klukkustundir.
Öll „börn“ verða að fá mjólkina sína, og á það jafnvel við um flóðhesta. Þessi hér á mynd-
inni er þriggja mánaða og býr í dýragarðinum í Columbus í Ohio-ríki.
Andrei Gromyko utanríkisráðherra Sovétríkjanna átti einka-
fund með Páli páfa VI. á föstudag í Páfagarði. Var myndin
tekin þegar páfi afhenti ráðherranum minnispening í tilefni
hcimsóknarinnar.
Fréttamyndir
Hér sést kirkjugarðurinn í Colombey í Frakklandi, og var myndin tekin eftir að kista Charles
de Gaulles fyrrum forseta Frakklands var grafin þar í fyrri viku. Gefið var frí i öilum skól-
um bæjarins og gengu skólabörnin fylktu liði framhjá gröfinni.
Lítið hefur verið um nýjar myndir af Mao Tse-tung formanni
kínverska kommúnistaflokksins að undanförnu, en þessi var
tekin í Peking á laugardag. Sýnir hún Mao formann bjóða
Yahya Khan forseta Pakistans velkominn til borgarinnar.
Iljónin hér á myndinni heita Maria Addolorata og Pietro Casalini. Þau eru itölsk og bæði
41 árs. Heldur frú Maria á 32. barni þeirra hjóna, telpu, sem var dagsgömui þegar myndin var
tekin á föstudag. 15 barnanna eru á lifi.