Morgunblaðið - 17.12.1970, Blaðsíða 5
MORÖUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1970
5
YÐUR AÐ SEGJA þá þurfum við ekki lengur að auglýsa Nú-Nú, bókina
sem aldrei var skrifuð, minningar Steinþórs á Hala, og Hið guðdómlega sjónarspil, endur-
minningar Hannesar Jónssonar. Þessar bœkur seljast jatnóðum. — Jafnóðum og hvað og hvað? —
Jafnóðum og þœr koma úr bókbandinu lesandi góður! Um að gera að tryggja sér eintak strax!
Bókin segir frá ungum efnispilti, sern
hlýtur í arf eftir forríkan frænda
sinn heil 10 sterlingspund, en auðinn
allan, ef hann kvænist ákveðinni að-
alsmær innan árs.
Ungi maðurinn lendir í ýmsum
skemmtilegum ævintýrum, að ekki
sé meira sagt. Er rændur aleígunni
og berst við allskonar glæframenni
og ræningja.
Frelsar unga stúlku úr klóm óþokka
og lendir, fyrir misskilning, í útistöð-
um við réttvísina.
•ár Reynir af alefli að forðast stúikuna,
sem honum yar ætluð frá upphafi.
A Höfundurinn leiðir lesendur sína um
völundarhús ástar og afbrýði, þannig
að unun er að lesa og spenna og
eftirvænting helzt bókina á enda.
BJÖRN J. BLÖNDAL
A HELJARSLÓÐ
Nýjar
bækur
frá
Bóka-
útgáfu
GuðjónsÚ
GUÐJÓNÓ )
Hallveigarstíg 6a
Sími 15434
Yötn og veiðimenia, uppár Árnessýslu, ný bók eftir
Guðmund D-aníelsson í ritsafninu um íslenzku veiði-
árnar.
Áin er lifandi vera, hver og ein og fiskar hennar,
fuglar, grös og bakkahríslur gæða •h'an.a sérstæðum
persónuleika. Rithöfundurinn sem skilur líf hennar
og sögu hinum dýpri skilningi, vígir lesandann inn
í sóiufélag hennar.
Áður eru komnar út í þessúm flokki bækurnar:
ELLIÐAÁRNAR og DUNAR Á EYRUM ÖLFUSÁ
OG SOGIÐ. Hér er nú þegar á boðstólum ritsaín,
sem hentar öllu öðru betur til gjafa handa veiði-
mönrtum og náttúrudýrkendym. -
Eins og fyrri bækurnar þá njóta Vötn og veiðimenn
þess að höfundur er ekki aðeins ritsrtillingur, heldur
einnig ástríðufullur stangarveiðimaður og unrtandi
hins ómálga lífs.
Kjörin bók til að þreyja við þorrann og góuna.
Skáldsagá eftir Björn J. Blöndal, karlmannlega
fyndin bók um heilsubótarför og sjúkrahússvist borg-
firzka bóndans Ófeigs Ófeigssonar. Fyrsta spítala-
bókin þar sem veikindin verða kímileg, dauðinn allt
að því skoplegur og læknarnir vægast sagt broslegir.
Enginn hefur látið út úr sér önnur eins býsn af
skoplegu pípi á heljarslóð og Ófeigur bóndi Ofeigsson.
Björn J. Blöndal varð frægur rithöfundur af veiði-
mannabókum sínum, frumlegum, fyndnum, nærfæm-
um og gæzkuríkum náttúrulýsingum þar sem fiskar
landsins, fuglar og ferfætlingar voru hafnir í hásæti.
Á Heljarslóð er skáldsaga um manninn, sem eigi
gengur haltur meðan báðir fætur eru jafnlangir, og
kann þá gömlu þjóðlegu nauðvörn að gera hið grát-
lega broslegt.
Þessi undarlega saga er sem sagt eins íslenzk og
framast verður á kosið. Hún er sérkennilegt ritverk
og hugvekja öllum þeim, sem bágt eiga með að sjá
kátlegu hliðina á alvörunni.
Á Heljarslóð er enn ein vinargjöf frá Birni J.'
Blöndal til íslenzkra lesenda.
HNEYKSLI
•& Þessi æsispennandi bók fjallar um
ástir og ævintýri ungrar stúlku, sem
er bæði fögur og rík, en grípur til
þess óyndisúrræðis að skrökva því
að foreldrum sínum að hún sé gift
manninum, sem þau vilja að hún
eigi.
•&■ Ungi maðurinn fellst á að hylma yfir
með söguhetjunni, en ætlar að launa
henni lambið gráa, og kenna henni
mannasiði, en heldur gengur það
brösugt.
->V Er nú ekki að sökum að spyrja, að
það hendir þau bæði, sem hvorugt
vildi; þau verða ástfangin hvort af
öðru, og auðvitað án þess að gera sér
grein fyrir því, að þarna er á ferð-
inni gagnkvæm ást, hvorki meira né
minna.
'k Vitaskuld berjast þau bæði einarð-
lega gegn örlögum sínum, eri árang-
urslaust, og allt fer vel að lokum.
A Þetta er góð bók og skemmtileg.