Morgunblaðið - 30.12.1970, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUÐAGUR 30. DBSBMBER 1970
7
í>ann 23. ágúst voru gefin sam
an í hjónaband í Háteigskirkju
af séra Jóni Þorvarðssyni, ung-
frú Borghildur Jónsdóttir og Eð
varð Bjarnason. Heimili þeirra
er að Austurbrún 4.
Ljósm.st. Gunnars Ingimars.
Suðurveri
Á aðfangadag opinberuðu trú-
lofun sína, ungfrú Sigfríður Lár
usdóttir Víðilundi 11, Garða-
hreppi og Reynir Kristinsson
Sigluvogi 16 Rvík.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sina ungfrú Sigrún Guðmunds-
dóttir, flugfreyja, Bogahlið 8 og
Jón Steinar Guðmundsson, verk-
fræðinemi, Hæðargarði 2.
Á jóladag voru gefin saman i
hjónaband i Þingeyrarkirkju af
Leikrit Ibsens Sólness byggingameistari, hefur hlotið mjög lofsam-
legavdóma. Aðalhlutverkin eru leikin af Rúrik Haraldssyni, sem
ieikur Sólness og Kristbjörg Kjeld leikur ungu stúlkuna Hlldu.
Leikstjóri er sem kunnugt er Gísli Halldórsson. Næsta sýning
Ieiksins verður í kvöld miðvikudaginn 30. desember og verður
það síðasta sýning leikhússins á þessu ári.
Myndin er af Rúrik og Kristbjörgu í hlutverkum sínum.
Fnunkvæmdastjórí óskost
Æskulýðsráð Reykjavlkur óskar ettir að ráða framkvæmda-
stjóra fyrir TÓNABÆ.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs Frí-
kirkjuvegi 11, sími 21769.
Umsóknarfrestur til 15. janúar 1971.
Þetta er
aðaltek j ulind
okkar
Hjálpuöum 1100 manns með
sjúkrahjálp síðast liðið ár
Formaður Hjálparsveitar skáta, Tryggvi Friðriksson, með
félögum sínum að selja fiugelda.
„Hailó, er þetta hjá Hjálp-
arsveit skáta í Reykjavík?"
„Já, hvað liggur yður á
lijarta?“
„Mig langaði að tala við
sveitarforingjann.“
„Tryggvi Friðriksson sveit-
arforingi hér.“
„Góðan daginn, Tryggvi.
Mig langaði til að fræðast um,
hvemig sala ykkar á flugeld
um gengur, en mér skilst að
þessi flugeldasaia sé ykkar
helzta tekjulind til þess að
hægt sé að reka hjálparsveit-
ina.“
„Já, óhætt er að segja það,
án hennar gætum við ekki
starfað. Kostnaðurinn við
rekstur sveitarinnar nemur
um 700.000 krónum á ári, og
af þvi fáum við ekki í opin-
bera styrki nema 15 af hundr-
aði. Þetta er allt sjálfboða-
liðsvinna, en kostnaður er
samt mikill við rekstur bif-
reiða og viðhald tækja, svo
að nokkuð sé nefnt."
„Hafið þið tekið þátt í mörg
um leitum á árinu?“
„Þær eru óvenju fáar, eða
um 10 talsins, oft hafa þær
verið fleiri. Svo höfum við
séð um sjúkravörzlu á manna
mótum, og alls munu það vera
um 1100 einstaklingar, sem
við höfum aðstoðað á árinu.“
„Hvemig hagið þið sölunni
á flugeldunum? Hvar getur
fólk hitt ykkur?“
„Auðvitað erum við í Skáta
búðinni á Snorrabraut, en
einnig í Volvoumboðinu við
Suðurlandsbraut, og það má
gjarnan geta um það, að um-
boðið var svo vinsamlegt við
okkur, að leggja hreinlega
niður starfsemi sína í heila
viku, svo að við gætum feng
ið afnot að húsnæðinu endur
gjáldslaust. Það var mikið
vinarbragð. Nú, og svo selj-
um við úr bilum sveitarinnar
í Breiðholtshverfi, í Vesturbæ
á Hagamel, í Háaleitishverf-
inu og niðri í miðbæ, og við
vonum bara að Reykvíkingar
sýni það í verki, að þeir
kunni að meta starf sveitar-
innar með því að kaupa af
okkur flugelda, og mega þeir
þá búast við enn auknu
starfi."
„Jæja, Tryggvi, ég þakka
upplýsingarnar og óska ykk-
ur góðs gengis, bæði með söl
una og hið mikla nauðsynja-
starf ykkar í þjónustunni við
ailan almenning. Vertu bless-
aður.“
„Já, vertu blessaður, og
þökk fyrir góðar óskir."
— Fr.S.
Tveggja
mínútna
símtal
Auglýsing
um nýtt eyðublað tyrir
aðflutningsskýrslu
Ákveðið hefur verið að taka í notkun nýtt eyðublað fyrir
aðflutningsskýrslu frá og með 1. janúar 1971. Er það af staðal-
stærðihni A 4 og verður áfram í þremur mismunandi gerðum
eins og verið hefur, þ. e. almenn gerð í fjórriti. eyðublað fyrir
póstaðflutningsskýrslu í fjórriti og aðflutningsskýrslueyðublað
fyrir tollvörugeymslu í sexriti. Þess skal getið, að aðflutnings-
skýrslueyðublaði fy'gir nú viðaukablað, sem nota ber, ef í
sendingu eru það margir vöruliðir, að henni verða ekki gerð
skil á einu blaði.
Skv. ákvæðum í reglugerð nr. 257/1970, um gerð og af-
hendingu aðflutningsskýslu til tollmeðferðar, skal aðflutnings-
skýrslu skilað vélritaðri og útreiknaðri tii fulls, en um annan
frágang og útreikning skýrslunnar vísast til skýringa á bak-
hlið eyðublaðsins.
Skv. heimild í 17. gr. laga nr. 1/1970 um tollskrá o. fl„
getur tollyfirvald neitað að taka við skjölum til tollmeðferðar,
ef aðflutningsskýrslueyðublað er ekki rétt og nákvæmlega
útfyllt, tilskilin gögn ekki afhent eða öðrum settum skilyrðum
ekki fullnægt. Er því brýnt fyrir innflytjendum að vanda gerð
aðflutningsskýrslna, enda munu toilyfirvöld ganga ríkt eftir
því, að kröfum um frágang þeirra sé fullnægt-
Frá ársbyrjun 1971 verður aðflutningsskýrslu á eldra eyðu-
blaði ekki veitt viðtaka.
Fjármálaráðuneytið, 29. desember 1970.
Auglýsing
um ritun auðkennisnúmers innflytj-
anda á aðflutningsskýrslu
Frá og með 1. janúar 1971 skulu innflytjendur tilgreina
auðkennisnúmer sitt á aðflutningsskýrslu, samkvæmt því,
sem ákveðið er í reglugerð nr. 258/1970. Einstaklingur, sem
flytur inn vöru, skal tilgreina nafnnúmer sitt samkvæmt þjóð-
skrá á aðflutningsskýrslu, en aðrir aðilar — þar á meðal firmu
í einstaklingseign — rita fyrirtækisnúmer sitt samkvæmt fyrir-
tækjaskrá Hagstofunnar.
Sérhver einstaklingur á að hafa tiltækt nafnnúmer sitt sam-
kvæmt þjóðskrá, en að því er varðar hið sérstaka auðkennis-
númer samkvæmt fyrirtækjaskrá, var það tilkynnt hlutaðeig-
endum á framtalseyðublaði til söluskatts í nóvember síðast-
liðnum, enda telja svo að segja allir vöruinnflytjendur fram
til söluskatts.
Fjármálaráðuneytið, 29. desember 1970.
Prófarkalesari
Röskur maður getur fengið atvinnu sem prófarkalesari við
dagblað nú þegar.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist
afgr. Mbl. fyrir 4. janúar merkt: „Athugúll — 6821",
Atvinna
Stórt iðnfyrirtæki í Reykjavík óskar nú þegar eftir manni eða
konu til skrifstofustarfa í nokkra mánuði. Verzlunarskóla-
eða hliðstæð menntun áskilin.
Umsóknir sem greini frá aldri, menntun og fyrri störfum
sendist Félagi íslenzkra iðnrekenda Lækjargötu 12 (Iðnaðar-
bankahúsinu) fyrir 8. janúar nk.
ÁRNAÐ HKÍLLÁ
60 ára er á morgun, gamlárs-
dag, frú Valgerður Þorsteinsdótt
ir, Sunnuhvoli Hvammstanga.
Hún verður stödd á heimili dótt-
ur sinnar Mánagarði, Hvamms-
tanga á afmælisdaginn.
séra Stefáni Eggertssyni ungfrú
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir og
Grétar Árnason. Heimili þeirra
er á Þingeyri.
Laugardaginn 26. desember
voru gefin saman í hjónaband
af séra Þorsteini Björnssyni ung
frú Sigrún Benediktsdóttir,
stúdent, Safamýri 48 og Gísli
Einarsson stud. med. Breiðagerði
6. Heimili þeirra er:
Volrat Thamsgatan 14/5441
412 78 Göteborg
Sverige.
Sólness byggingameistari