Morgunblaðið - 30.12.1970, Síða 32
lESIO
DDCLEOR
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1970
|UoirjC!'wnWíií>l?>
nucivsmcDR
<Í^~*224S0
Jólasalan:
Innansveitarkronika
Laxness metsölubókin
Salan svipuð og í fyrra að magni til
MORGUNBLABIÐ sneri sér i
gær til forstöðumanna fjögurra
bókaverzlana í Reykjavik, og
spurði þá um jólasöluna að þessu
sinni, og hvaða bækur hefðu
seizt bezt. Bar bóksölunum yfir-
leitt saman um að salan núna
Steinþórs frá Hala, Leikföng
dauðans, Góði dátinn Svejk, Með
vorskipunum — bók Sverris
Kristjánssonar og Tómasar Guð-
mundssonar, Getið í eyður sög-
unnar eftir Svein Víking, og
Læknar segja frá.
Hjá Lárusi Blöndal voru þess-
ar bækur söluhæstar: Innan-
sveitarkronika Laxness, Leik-
föng dauðans eftir McLean, Nú,
Nú, -— bók Steinþórs frá Hala,
Ágúst á Hofi, Utan frá sjó eft-
ir Guðrúnu frá Lundi, Góði dát-
inn Svejk, Maðkar i mysunni eft
Framh. á bls. 31
hefði verið áþekk að magni og
i fyrra, og í öllum þessum verzl
unum seldist Innansveitarkron-
ika Laxness mest. Má fullvíst
telja, að hún sé metsölubókin á
ísienzkum bókamarkaði núna.
1 bókabúð ísafoldar var almest
sala í Innansveitar kronikunni.
Aðrar bækur, sem vel seldust að
þessu sinni, voru: Leikföng dauð
ans eftir McLean, London svar-
ar ekki, Barnard læknir, Sam-
ferðamenn eftir Jónas Jónasson,
Eiginkonur læknanna eftir
Slaugter, Utan frá sjó eftir Guð-
rúnu frá Lundi, Maður og mold
eftir Sóley i Hlíð og Af heljar-
sióð eftir Björn Blöndal.
Hjá Bókabúð Braga skáru sig
sérstaklega úr hvað sölu snerti:
Innansveitarkronikan, Ágúst frá
Hofi, Nú, Nú, æviminningar
Hætta á varanlegum
heymarskemmdum
vegna sprenginga
— NÚNA síðustu dagana
hafa þegar leitað til mín
nokkrir sjúklingar, bæði börn
og fullorðnÍT, með eyrnaverk,
suðu fyxir eyrum og heyrnar
skemmdir eftir sprengingar á
götum borgarinnar, sagði Erl-
ingur Þorsteinsson, læknir, í
samtali við blaðið í gær.
— Sérstök ástæða er til að
vekja athygli á því, að mikil
hætta er á varanlegum heyrn
arskemmdum, ef sprenging
verður næ-rri eyra, sagði Er-
lingur. Venjulega höfum við
á heyrnardeild Heilsuverndar
stöðvarinnar fengið marga
Framh. á bls. 31
íslenzkir varðskipsmenn:
Mega skoða erlend
skip utan lögsögu
— samkvæmt nýrri reglu-
gerð um fiskveiðieftirlit
iid til að skoða skip annarra
samningsríkja.
Að því er Island varðar annast
Landhelgisgæzlan eftirlit þetta.
Erlendur Valdimarsson, ÍR, — íslandsmethafi í kringlukasti og
sleggjukasti — var í gær kjörinn „íþróttamaður ársins 1970“ af
samtökum íþróttafréttamanna. Auk sæmdarheitisins fékk Erlend-
ur hina veglegu verðlaunastyttu samtakanna til varðveizlu í eitt
ár. Þetta er i fimmtánda sinn sem Samtök íþróttafréttamanna
kjósa „íþróttamann ársins“. (Ljósm. Mbl.: Kristinn Ben.)
Óskað aðstoðar
almennings í baráttu
gegn neyzlu fíknilyf ja
í>rír menn komnir heim, sem kynnt hafa sér
baráttuaðferðir yfirvalda erlendis
GEFIN hefur verið út reglugerð
um alþjóðlegt fiskveiðieftirlit ut
an langhelgi og fiskveiðilögsögu.
Regiurnar heimila m.a. íslenzk-
um eftirlitsmönnum að skoða
skip annarra samningsrikja, að
þvi er segir í fréttatilkynningu
frá Dóms- og kirkjumálaráðuneyt
inu. Fréttatilkynningin fer hér á
eftir:
Nýlega hefur verið gefin út
reglugerð um alþjóðlegt fisk-
veiðieftiriit utan landheigi og
fiskveiðilögsögu. Reglur um eft-
irlit þetta eru byggðar á ályktun
6 ára
drengur
— fyrir bíl
SEX ára drengur, Magnús Ingi
Stefánsson, til heimilis að Kárs-
nesbraut 93, Kópavogi, meiddist
á höfði, er hann varð fyrir bíl á
Háaleitisbraut í hádeginu í gær.
Magnús litli var lagður ir«n í
Borgarsjúkrahúsið og í gær-
kvöldi var liðan hans sögð eftir
atvikum.
Magmjús var á leið vestur yfir
eystri brauit Kringtomýrar-
brautar, þegar slysið vairð. Tveir
bflar höfð-u niumið staðar til að
hleypa drenginum yfir götuna,
þegar sá þriðji kom fram mieð
þeim og varð drentguriimi fyrir
ihanium.
Norðaustur-Atlantshafs fiskveiði-
nefndarinnar, sem starfar sam-
kvæmt alþjóðasamningi um fisk
veiðar á norðausturhluta Atlants
hafs. Meginefni reglna þeirra,
sem í reglugerðinni felast, er eft-
irfarandi:
Eftirlitið er framkvæmt af eft-
irlitsmönnum fiskveiðieftirlits
þeirra ríkja, sem aðilar eru að
alþjóðasamningnum.
Skip þau, sem eftirlitið annast,
skulu hafa uppi sérstakan fána,
og eftirlitsmenn skulu bera sér-
stök skilríki.
Eftirlitsmenn mega fara um
borð í skip utan fiskveiðilögsögu
og gera þær athuganir, sem þeir
teija þörf á, þ.á.m. athuga afla
og veiðarfæri. Reglurnar taka
til þess svæðis, sem alþjóðasamn
ingurinn tekur til.
Reglurnar heimila eftirlits-
mönnum frá öðrum samnings-
ríkjum að skoða íslenzk skip, og
islenzkir eftirlitsmenn hafa heim
ÞRÍR menn frá lögreglu og toll-
gæzlu eru nýlega komnir úr
kynnisferð frá Englandi, Dan-
mörku, Svíþjóð og Noregi, þar
sem þeir kynntu sér aðgerðir yf-
irvalda þar til þess að fínna og
koma í veg fyrir dreifingu fíkni-
lyfja og þá sérstaklega canna-
bis eða liass. Þeir þremenningar,
sem utan fóru, eru Kristinn Ólafs
son, aðalfulltrúi lögreglustjórans
í Reykjavik, Kristján Pétursson,
deildarstjóri I tollgæzlunni á
Keflavíkurflugvelli, og Sigurður
Sigurðsson, varðstjóri í tollgæzl-
unni í Reykjavík. Þeir ræddu í
gær við biaðamenn nm för sína,
en á fundinum voru einnig Jón
Thors, deildarstjóri í dómsmála-
ráðuneytlnu, og Ólafur Jónsson,
tollgæzlustjóri.
• HIiNDAR LEITA AÐ
HASSI
Þeir þremenningar fóru fyrst
utan til Englands og fylgdust
með störfum tollgæzlu og lög-
reglu á báðum flugvöllunum við
London, Heathrow og Gatwick,
svo og við höfnina í London. Þá
heimsóttu þeir Scotland Yard og
kynntust helztu aðferðum þeirr-
ar stofnunar i baráttunni gegn
dreifingu fíknilyfja. Einnig komu
þeir í þjálfunarstöð, þar sem
Labrador-hundar eru þjálfaðir í
hassleit og hefur tekizt að ná
undraverðum árangri í þjáifun
þeirra. Sérhver hundur er þjálf-
aður með ákveðnum manni og
getur ekki unnið nema með hon-
um. Var þeim félögum m.a. sýnt
hvernig cannabis eða hass var
falið í herbergi einu og á
Framliald á bls. 31.
Frá blaðamannafundinum í gær:Talið frá hægri: Kristinn Ólafsson, aðalfulltrúi lögreglustjórans
I Reykjavík, Kristján Pétursson, deildarstjóri í tollgæzlunni á Keflavíkurflugvelli, og Sigurður
Sigurðsson, varðstjóri í tollgæzlunni í Reykjavík.