Morgunblaðið - 10.02.1971, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1971
24
. . 9 . .
Okkar á milli sagt, þá var ég
svo vitlaus að veita honum
■gjaldfrest og eins og er, skuldar
hann mér tuttugu pund. Ég má
teljast heppinn ef ég sé nokk-
um tíma túskilding af því.
— Þannig er mál með vexti, að
undanfarið hef ég alltaf selt
honum skothylki. Hann fékk
ailtaf Popinjay, sem eru miklu
ódýrari. Þau eru sæmilega góð
og ég sel bændunum hérna í
kring mikið af þeim. En ég hef
alls ekki Nimrod, þar sem þau
þau eru of dýr handa
mínum viðskiptamönnum. Ein-
stöku sinnum hef ég pantað þær
samkvæmt sérstakri beiðni, en
það er orðið langt siðan ég hef
gert það. Og áreiðanlega hef ég
engin á verkstæðinu.
— Þér eruð alveg viss um, að
þér hafið ekki selt hr. Glapt-
horne þessa tegund?
— Alveg hárviss. Og jafn-
viss um, að enginn annar í borg-
inni hefur gert það heldur. Það
eru ekki nema þrír, sem hafa
leyfi til að selja skothylki og
það eru járnvörusalar, sem hafa
ekki nema ódýrustu tegund-
irnar. Ég þori að veðja, að eng-
inn þeirra hefur svo mikið sem
heyrt Nimrod nefnd á nafn. Þau
eru fagmannategund ef þér
skiljið hvað ég á við.
Það er væntanlega ekkert,
sem bendir til, að þessi hylki
séu of sterk fyrir þessa byssu?
sagði Jimmy.
— Nei, alls ekki, sagði hr.
Newsham með áherzlu. —
Sennilega hefa þær minni þrýst-
ing er Popinjay, og það hefur
verið hleypt af mörg hundruð
skotum af þeirri tegund, að því
er ég veit.
— En er ekki mögulegt, að
hylkið hafi verið skakkt hlaðið
og þess vegna sprungið?
— Vísindamenn munu segja
yður, að það sé hugsanlegt, að
múrsteinn hoppi upp í loftið af
sjálfsdáðum. Og ég hugsa, að
það sé álika mögulegt, að Harris
& Bayley hlaði skothylki
skakkt. En þó að við fyndum
eingöngu Nimrod i töskunni, þá
er ekki þar með sagt, að hann
hafi ekki haft einhverjar aðrar
í töskunni líka.
— Ég hef leitað í vösum hans
og fann þar engin skot-
hylki, sagði Appleyard.
— Hann getur hafa verið bú-
inn með þau öll áður en hann
byrjaði á Nimrod. Þér hafið
veiðitöskuna hans héma. Hvað
er í henni.
— Tvær akurhænur og ein
kanina svo að hann hlýtur að
hafa hleypt af að minnsta kosti
þremur skotum áður en byssan
sprakk.
— Þér ættuð að láta mig hafa
akurhænurnar og kanínuna til
þess að rannsaka. Það hljóta
næstum að vera einhver högl í
þeim, og við getum þá
borið þau saman við högl-
in úr Nimrod-skothylkjunum.
Verði þau eins, er það hér um
bii sannað, að hr. Glapthórne
hefur notað eingöngu Nimrod.
En verði það ekki, verðum við
að álykta, að hann hafi líka
haft öðruvísi skothylki með sér.
— Það er ekki nema líklegt,
sagði Appleyard, — en eru
nokkur skothylki til, sem
mundu sprengja byssu svona?
Byssusmiðurinn hristi höfuð-
ið hægt en einbeittlega. — Nei,
þau eru ekki til. Það gæti eng-
inn fengið mig til að trúa, að
nokkurt skot gæti sprengt svona
vandaða byssu, ef rétt er að
öllu farið. Og hvað sem segja
má um hr. Glapthome, þá
kunni hann að minnsta kosti að
fara með byssu og nota hana.
— Hvernig skýrið þér það þá,
að byssan hefur án alls vafa
sprungið? spurði Appleyard.
— Ég get alls ekki gert mér
neina grein fyrir því, sagði hr.
Newsham. — En hitt veit ég fyr-
ir víst, að eitthvað óvenjulegt
hefur þarna gerzt. Ég hef oft
séð sprungnar haglabyssur en
enga eins hroðalega sprungna
og þessa. Venjulega springur
svo sem þriggja þumlunga rifa í
hiaupið, en þama er ekki ein-
asta hlaupið alveg rifið frá,
heldur hefur það rifnað eftir
endilöngu. Þetta hlýtur að hafa
verið alveg óvenjulegur kraft-
ur.
—Ef þér vilduð nú skemma
byssu á sama hátt, hvernig
munduð þér þá fara að þvi?
spurði Jimmy.
Þessi spurning hneykslaði all-
an kunnáttumannssmekk hr.
Newsham.
— Það gæti ég aldrei hugsað
mér að gera, hrópaði hann með
hryllingi. — Ég get ekki hugsað
álriavöru
markaður
HVERFISGÖTU 44
EIJTARWR
ERU
KCOMWR
Álnavörumarkaður
HVERFISGÖTU 44
Lokað í hádeginu kl. 11,30 — 13.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Nú er vel hægt að taka áhættuna at smáævintýrum.
Nautið, 20. apríl — 20. niaí.
Keyndu að leita tegurðarinnar i öilu, sem þú tckur þér íyrir hend
ur í dag.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júni.
Láttu ekki smáatriðin fara í skapið á þér. Reyndu að halda frið
inn og gleymdu að hefna þín, það er affarasælast til frambúðar.
Vertu góður við fjölskyldu þína.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Einhver vinnufélaga þinna færir þér fréttir. sem henta þér vel.
Ef þú kemur þér ekki undan trúnaði cinhvers, vcrðurðu að taka
afleiðingunum af þvi.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Allt er bezt i hófi i dag. Gott er að meðtaka loforð þótt efnd
irnar séu með ýmsu móti.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Þú skalt gjarnan sinna fólki með natni, ef þér líkar það toetur,
jafnvel láta eitthvað af hendi rakna, stórt eða smátt.
Voffin, 23. septeniber — 22. oktöber.
í dag hittirðu margt fólk, sem þú hefur ekki séð lengi, og
færð ýmsar fréttir. í kvöld er ekki ólíklegt, að þú hafir einhverja
ástæðu til að gera þér glaðan dag.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Með smávegis smekkvísi og lipurð, geturðu losnað úr slæmri
klipu.
Boffmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Treystu eindregið á sjálfan þig og leggðu til atlögu við vanda-
málin sem fyrst.
Steingeitin, 22. desember — 19. janíiar.
Eðlisávísun þín er allsterk núna og þér hættir dálítið til að
ofgera öllu, sem þú kemur nálægt. Reyndu að breyta alveg um
stefnu, þar sem þess gerist þörf. Þú heyrir ýmislegt, sem þú verður
að halda leyndu.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Gerðu ekki ráð fyrir neinu. Þú skalt endilega sýna fólkl og
sanna tilfinningar þínar í garð þess, og lofa ekki neinu ncma þú
sért viss um að geta staðið við orð þín.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Reyndu að fá aðstoð við vinnuna framan af degi, og síðan er
þér óhætt að taka upp léttara hjal og láta fólkið njóta þess, sem
það hefur liðsinnt þér.
||| ÚTBOÐ Ifl
Tilboð óskast um sölu á 4300—6900 tonnum af asfalti
til gatnagerðar,
Otboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri.
Tiiboðin verða opnuð á sama stað föstudaginn 5. marz n.k.
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
NÝJAR KÁPUR í DAG
Bernharð Laxdal, Kjörgarði