Morgunblaðið - 13.02.1971, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.02.1971, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1971 13 Við opnun hinnar lúthersku útvarpsstöðvar Eþíópíu. Keis- arinn í miðju heilsar dr. Sigurd Aske lengst til vinstri og dr. C. Fry lengst til hægri. stóra kirkju," sagði hann. „Hér í nágrenninu eru nú 45 söflnuð ir. Fyrir fjórum árum var hér enginn sofnuður." Þegar við komum til kirkju- staðarins, voru mætt nokkur hundruð manna, og komust ekki nærri allir inn. Sjambú hét eþíópski trúboðinn, sem ásamt trúbræðrum hafði áunn- ið flest af þessu fólki fyrir Krist. Hann var þegar farinn að hlýða yfir í kristnum fræð- um, bæði þá sem átti að skíra og ferma. Það var dásamlegur viðburð ur, að fá að vera þarna við- staddur. Rúmur tími var tek- inn til spurninga og samræðna, enda farið yfir meginatriði kenningarinnar, frá sköpunar- sögunni til endurkomu Guðs sonar. Ekki stóð á greinargóð- um svörum. Minni þessa fólks bregzt ekki, hafi það aðeins iært. Það var hrífandi að virða þennan stóra hóp trúnema fyr ir sér: Börn og unglinga, karla og konur á bezta aldri, gamal menni með bogin bök. Allt þetta fólk, hafði frá bernsku- árum lifað í ótta við illa anda, (animisma) og Satan, sem það dýrkar, fjötrað hörðum viðjum heiðinna siðvenja og hjátrúar. Nú var óttinn horfinn, fjötr- arnir leystir og andlitin ljóm- uðu af nýrri gleði. Albert Schweitzer lýsti þessu kraftaverki þannig: „Ég var í hlekkjum hörðum, þú, Herra, leystir m:iig.“ — Þau oirð lýsa því betur en nokkur önn- ur, hvað kristindómurinn er hinum frumstæða manni. 1) Sbr. bók S.E. biskups: Al- bert Schweitzer. — 1955. Að athöfninni lokinni neyttu um 300 manns heilagrar kvöl máltíðar. Þá hófst lokasamvera með vitnisburðum, bæn og söng. Enginn virtist hugsá til heim ferðar, fyrr en farið var að skyggja. Allir voru fótgang- andi. Sagt var að margir ættu fjögurra klukkustunda gang heim til sín, og mundu lenda í biksvörtu myrkri. Heimamenn á staðnum héldu áfram að syngja „hinn nýja söng“. Hve lengi veit ég ekki. Stuttu fyrir síðustu áramót birtist í norskum blöðum grein um kristniboð og kirkju meðal afriskra þjóða, í löndum sunn- am eySimerkurinmiair, Sahaira, — en þau nefndi David Livingstone „Svarta megin- landið". Þar eru íbúar líkiega a.m.k. 200 milljónir. Yfirskrift greinarinnar var: „Verður Afríka kristin heims- álfa árið 2000?“ — en undir- skrift: Sigurð Aske. Dr. Sigurd Aske er maður sem mark er tekið á, ekki ildum, að talið var, að mjög hefði dregið úr áhrifum og út- breiðslu kristinnar trúar í Afríku. Hins vegar var fullyrt að á móti hverjum einum blökkumanni, sem gerðist krist- inn, snerust þrettán til Múham- eðstrúar. „Mikið var gert úr því, að vestrænt kristniboð þætti fram andlegt og kröfuhart við trú- nema. Múhameðskt trúboð væri afrískt, en. ek'ki útienit. Það væri vægt í kröfum, leyfði fjöl- kvæni að vissu marki, keon-di auðlærða trúarsiði. Því verður ekki neitað að Múhameðs- trú þefur orðið mikið ágengt í sunnanverðri álfunni, en þó ekki nálægt því eins mikið og kristniboðí. Fjölgun kristinna manna er hlutfallslega meiri en fólksf jölgun í þessum löndum." „Ég gerði mitt ýtrasta til að afla mér ábyggilegra upplýs- inga um þessi mál. Auk þess, sem ég sá og heyrði, hef ég stuðzt við nýjustu útgáfu al- þjóðlegrar skýrslugerðar: „The World Christian Handbook." Sjálfstæðir söfnuðir hafa Sigurbjörns Einarssonar bisk- ups: „Albert Schweitzer" For- lag Setberg 1955.). „Hver sem kynnist hugar- heimi frumstæðra manna og þekkir óttann, hræðsluástand- ið, sem þeir eru í . . . getur aldrei framar efazt um, að oss ber að gera allt, sem unnt er, til þess að losa þá við þessi hiinduirvitni .. . þótt óttinin við ill álög og galdra sé mikill, er hræðslan við anda ennþá meiri bölvaldur i lífi svertingja. Er þar bæði um að ræða náttúru- anda og anda framliðinna. Þeir menn einir, sem hafa séð þessar hörmungar í nærsýn, skilja að það er skylda vor, að flytja frumstæðum nýja lífs- skoðun, er losi þá við hugar- óra, sem gem þeiim lífið svo kvalafullt. I þessu tilliti mundu jafnvel stækustu efa- semdamenn verða vinir kristni- boðsins. Skólamenntun nægir ekki. Kristindómurinn leys- ir þessa menn úr viðjum óttans. Þeir vita síðan að ör- lög vor allra eru í hendi sama kærleiksríka föður. - m : M x ": -• ‘ V 1 \ Bamingjusöm kristin móðir — eþíópsk. David Livingstone, erkióvinur arabískra þrælakaupmanna er úr afríkönsku listasafni. aðeins í heimalandi hans, Noregi. Hans nafn er kunnugt víðast um lönd, þar sem um kristindómsmál er fjallað. Hann var hér á landi fulltrúi á þingi Lútherska heims- sambandsins 1964. Dr. Sigurd Aske vann manna mest að því, að Lútherska heimssambandið reisti fyrir tíu árum útvarpsstöðina „Rödd fagnaðarerindisins" í Eþíópíu, á hæsta stað Austurhorns Afriku. Þegar keisari Eþiópíu opnaði stöðina 1960, var Jóhannes Ólafsson þar viðstaddur og sendi Morgunblaðinu frétta- pistil. Dr. Sigurd Aske hefur verið aðalframkvæmdastjóri og útvarpsstjóri stöðvarinnar æ síðan. Samstarfsmenn hans eru nú 220, flestir Eþiópar. Dr. Sigurd Aske hafði verið nokkrar vikur í Noregi, og brá sér þaðan til Afríku. Eftir þá ferð skrifaði hann þessa grein: „Afríka kristent konti- nent aar 2000?" „Ég er nýkominn frá Afríku. Mér til mikillar undrunar, en ennþá meiri gleði, hef ég sann- færzt um, að ömurlegar spár manna frá því fyrir tíu árum, um framtíð kristindóms og kirkju í Afríku, hafa reynzt f jarstæða. Um og eftir 1960 var það haft eftir öruggum heim- myndað með sér kirkjufélög og hafa tekið yfir allar húseignir hins útlenda kristniboðs. Kristniboðarnir eru i ráðum með þeim, sem eru í þjónustu hinnar kristnu afrísku kirkju. Jafn ör og vöxtur kristinna safnaða nú er, má geta nærri hvílíkur vandi þeim er á hönd- um, sem hafa umsjón með nýj- um og fjölmennum söfnuðum, lítt þroskaðra meðlima. Þar er aðkallandi nauðsyn sálgæzla, aukin uppfræðsla yngri sem eldri. Þetta hefst og ótal margt annað, með náinni samvinnu kristnfbofSs og saímaða. Skólair kristniboðsins, líknarstofnanir og fjölmiðluiniaritæki. Þama er mikil þörf fyrir starfslið, „sí- auðugt i verki Drottins". Á kristniboðsstöðvunum eru enn sem fyrr stofnanirnar, sem svara til þarfa hins þríþætta starfs: Skólar, — sjúkraskýli og/eða sjúkrahús og samkomu- hús. Þetta svarar einnig til brýnustu þarfa þess fólks, sem verið er að vinna fyrir. 1 stuttri og ófullkominni blaðagrein, er aðeins hægt að gefa ófullkomna hugmynd um þá miklu hluti, sem nú eru að gerast í Afríku. Því skal að lokum vitnað til orða Albert Schweitzers, um neyð frum- stæðra manna í Afriku, og úr- ræði til hjálpar. (Úr bók verður á vegi þeirra. Myndin A.S. segir á hrifandi hátt frá sjúkliingi, seim hamin skair upp: 1 því að hann vaknar, þreif- ar hann eftir hendi minni og vill ekki sleppa henni aftur . . . Þá fer ég að segja honum og öðrum, sem þarna eru hjá, að það sé Jesús Kristur, sem hafi boðið doktornum og konu hans, að fara til Agóve, og að hvítir menn í Evrópu hafi gefið okk- ur það, sem við þurfum til þess að geta lifað hér og stundað sjúka . . . Við sitjum saman hvítir menn og svartir, og lifum sannindi orðanna: „Þér eruð allir bræður" Matt. 23,6. Það skortir talsvert á að A.S. hafi notið fullrar viður- kenningar sem kristniboðs- læknir. Ég tel það miður farið. Kristniboðar eru ekki allir steyptir i sama móti, fremur en aðrir. A.S. var í orði og verki sannur, en að visu sérstæður- kristniboði. Albex-t Schweitzer ævisaga. „Mikla gleði hef ég haft af því að predika. Mér fannst það blátt áfram dýrðlegt, að flytja orð Jesú og Páls mönnum, sem aldrei höfðu heyrt þau fyrr." Sem túlka hafði hann tvo svarta kennara á kristniboðs- stöðinni, þeir þýddu orð hans á mál Galóa og Pahúin-manna, á sitt máiið hvor.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.