Morgunblaðið - 01.04.1971, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1971
>
Mjl BÍLALEIGAJV
ÆJALUIt"
Hfflim
BILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
VW SendiferSabifreiJ-VW 5 manna-VW svefraapi
VW 9 manna-Landrover 7manna
IITIA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
BÍLALEICAN
Bliki hf.
Lækjargata 32, Hafnarfirði.
Sími 5-18-70
KVÖLD- OG HELGAR-
SlMAR 52549 — 50649
NÝIR BlLAR
•3^—bilqsglq
GUÐMUNDAR
Bergþóruqötu 3
Símar: 19032 — 20070
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar,
Guðlaugs Þorlákssonar,
Guðmundar Péturssonar,
Axels Einarssonar,
Aðalstræti 6, III. hæð.
Simi 26200 (3 línur)
Svarið er:
Ms. Hekia
fer 7. þ. m. austur um land í
hringferð. Vörumóttaka í dag,
á morgun og á mánudag til
Hornafjarðar, Djúpavogs, Breið-
dalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Fá-
skrúðsfjarðar, Reyðarfj.,, Eski-
fjarðar, Norðfjarðar, Seyðisfjarð-
ar, Borgarfjarðar, Vopnafjarðar,
Þórshafnar, Raufarhafnar, Húsa-
víkur, Akureyrar, Siglufjarðar,
Ölafsfjarðar og Norðfjarðar.
0 Sovézkir fimmmenn-
ingar reknir frá
Mexíkó: Höfðu lært
hermdarverk
Jan Eriksson skrifar:
„ Velvakandi!
Morgunblaðið skýrði frá því
um daginn, að fimm starfsmenn
sovézka sendiráðsitns í Mexíkó-
borg hefðu verið gerðir raekir
út úr ríkinu. Blaðið kallar
þessa njósnara fimmmenniriga,
og þykir mér það vera orðið
vel að sér í rússneskri ætt-
fræði.
Brottreksturinn er talinn
standa í sambandí við hand-
töku nítján innlendra konrmún
ista, sem höfðu iært undirróð-
ursstarfsemi og framkvæmd
hryðjuverka í Moskvu og Norð
ur-Kóreu. t>ess er ennfremuir
getið, að sendiherra Mexíkós í
Moskvu hafi verið kallaður
heim. Starfsmenn sendiráðs
Mexíkóa í Moskvu séu þrír til
fjórir, en aftur á móti séu
starfsmenn sovézka sendiráðs-
ins I Mexíkóborg hvorki fleiri
né færri en tuttugu og fimm.
0 Sovézka sendiráðið í
París
Þetta leiðir hugann að skil-
merkilegri frásögn, sem Tómas
Karlsson, ritstjóri Tímans,
öutti fyrir nokkru í útvarps-
þættinium „Frá út!löndum.“
Þar sagði hann frá helzta
stjómmálahneyksli vetrarins í
Parísarborg, sem varð, þegar
háttsettur embættismaður
frönsku ríkisstjórnarinnar
kallaði austur-evrópsikiu sendi-
ráðin í París njósnarahreiður.
Muni ég rétt, sagði embættis-
maðurinn að um fjöruti'u
manns ynnu í franska sendiráð
inu í Moskvu, en um fjögur
hundruð Rússar voru í sov-
ézka sendiráðinu í Paris. Þetta
segði auðvitað sína sögu.
0 Sovézka sendiráðið í
Reykjavík: Stórfurðu-
leg útþensla
Málflutningur þessa franska
embættismanns var laus við
alla móðursýki. Hann skýrði að
eins frá staðreyndum með vit-
und og vilja yfirboðara sinna,
sem þykir víst nóg komið.
Þess vegna vænti ég, að ég
undirritaður verði ekki vænd-
ur um of mikla Rússahræðslu,
(en þannig er vaninn að af-
greiða þá, sem skýra frá hrein
um staðreyndum um Sovétrík
in og sósíalismann), þótt ég
bendi Isíendingum á, að i aug-
um útlendinga, sem víða
þekkja til, er útþensla sov-
ézka sendiráðsins og fylgistofn
ana þess í Reykjavík stórfurðu
leg.
Sendiráð Sovétrikjanna á Is
landi er langsamlega f jölmenn
asta sendiráðið í Reykjavík.
Sendiráð Bandarlkjanna er t.d.
eins og dúkkuhús í sarnan-
burði. Mannfjöldinn í sovézka
sendiráðinu er svo mikill, að
útilokað er, að viðskipti ía-
lenzka og sovézka rikisins rétt
læti hann. Sé eingöngu litið á
diplómataskrána, kemur auðvit
að í Ijós, að sovéZkir rikisborg
arar með diplómatísk réttindi á
Islandi eru mikiki fleiri en all-
ir aðrir diplómatar. En sagan
er ekki öll sögð með þvi. Önn
ur sendiráð, til dæmis hið
bandariska, hafa marga íslend
inga í þjónustu sinni, — við
skrifstofustörf, afgreiðslustörf,
akstur, þjónustu, hreingeming-
ar o.s.frv. Það gera Rússar
h/ins vegar ekiki. Þeii flytja
aUt starfslið sitt inn með sér.
Eins og menn vita, er það al-
gengt, þegar upp kemst um
njósnir sovézkra sendiráða, að
aðalnjósnararnir séu í lágum
stöðum í sendiráðunum.
0 Sovézkar njósnir á
Islandi
Þegar upp hefur komizt
um sovézkar njósnir á íslandi,
hafa meðaÞháttsettir menn að
visu aðallega verið flæktir í
málin, en ekki liágt sett starfs-
fólk, muni ég rétt.
Mér finnst, að Islendingar
eigi að athuga sinn gang í
þessum efnum. Það er alveg
augljóst, að áihugi Sovétríkj-
anna á íslandi hefur auikizt
aiveg gifurlega á alilra siðustu
árum, af hverju svo sam það
er. Ég gæti látið mér koma til
hugar, að Rússar geti ekki
gleymt hernaðarlegu mikilvægi
ÍSlands, minnist fámenni þjóðar
innar og geðjist vel að and-
varaleysi hennar og almennu
kæruleysi um öryggismál.
Hver veit, nema einhvern tima
komist vinstri stjóm tiil valda,
sem strunsi með ísland út úr
A11 antsh a fis ba nda 1 a g inu og segi
vamarsamningum upp við
Bandaríkin? Þá er hægur eftiir
leikurinn. Létt verk yrði að
finna ástæðu til „aðgerða" á
Islandi, til þesis „að tryggja ör
yggi Ráðstjórnarrikjanna og
hinnar islenzku þjóðar sjálfr
ar.“
• Hann er ekkert að
hrella okkur
Með þessum skritfum mínum
ætla ég mér ekíki að hræða líf-
tóruna úr vinum mínum og
frændum á Islandi; aðeins
benda þeim á staðreyndir, sem
stinga útlendinga í augun, eink
um þegar þeir verða varir við
mjög einikernnilegt andvara-
leysi um mestá sjálfstæðismál
hverrar þjóðar, ekki sízt mátt-
lítillar smáþjóðar: öryggi henn
ar og vernd gegn yfirgangi
annarra. Það er engin smáræð
iáheppni að hafa fengið Banda
ríkin til þess að tryggja ör-
yggi landsins á grundveili
NATO-sáttmálanis, og munu
vísit rnargar smáþjóðir öfunda
Islendinga af því að hafa feng
ið eitt öflugasta ríki veraldar
til þess að ábyrgjast sjáilfstæð
ið og þar að auki ríki, sem
þeir geta fullkomlega treyst til
þess að blanda sér ekki í innan
ríkismál sín. En það er eins og
margir Islendingar kunni
ekki að meta þetta einstæða
happ nýfrjálsrar smáþjóðar og
veigri sér við að nefna hlut-
ina réttum nöfnum I þessu sam
bandi.
0 Hræðileg sjón fyrir
sanna Vesturbæinga
Nógu margt ætti samt að
vera til þess að minna íslend-
inga á návist sovézka heioms-
veldisins, og nógu mikið ættu
þeir að hafa lesið 1 mannkyns
sögu siðustu fimmtíu ára til
þess að vita, við hverju má bú
ast úr austanáttinni. Reykvík-
ingar hljóta a.m.k. að hafa tek
ið eftir hinum geysdlegu húsa-
kaupum sovézka sendiráðsins
á síðustu árum.
Það hlýtur að vera ömurleg
sjón fyrir gamla Vesturbæinga,
sem ganga frá landnámsbæjar-
stæði Ingolifs í Aðalstræti upp
á Landakotshæð að sjá rússn-
esk feitabolluandlit gægjast
fram undan svo að segja
hverri gardínu alia leiðina.
0 Þorir Velvakandi ekki?
Jæja, Vetvakandii sæll, meira
hefur nú teygzt úr þessu en
ætlumin var, og væri þó raun-
ar hægt að skrifa um þetta
miklu lengra mál. Það yrði þá
e.t.v. löng og leiðinleg analýsa
(skilgreining), þar sem sleppt
væri óviðurkvæmilegu tali um
affituvandamál erlendra sendi-
ráðsstarfismanna. Ætld þú þorir
annars að birta þetta? Rússar
eru alira manna hörundssárast
ir. Þeir eru siklagandi. Sömu
sögu mun vera að segja hér og
í Sviþjóð og Bandarikjunum
og aUs staðar annars staðar,
að aldrei má segja neitt ljótt
um sovézka sendiráðsstarfs-
menn, án þess að upp sé rok-
ið til handa og fóta og farið
að kvabba og kvarta, klaga
og kæra hjá viðkomandi utan-
ríkisráðuneytum. Þettá er skilj
anlegt, því að þeir þekkja ekki
frjálsa biaðaútgáfu og halda,
að ráðuneyti beri ábyrgð á
bílöðunum. Þetta er sama sag-
an og um sósíalista yfirleitt:
þeir vilja komast upp með það
að svívirða, rógbera og hund-
Skamma hvem sem er og hvað
sem er í hinum frjál'su kapítal
istaríkjum. En um leið og orð-
inu er haMað á þá sjálifa,
hlaupa þeir vælandi undir
næsta pitefald og æpa: Það var
verið að hrekkja miig! Engir
standa oftar i klögumálum
vegna skrifaðs eða talaðs orðs
en einmitt þeir kommúnistar í
frjáTívum þjóðfélögum, sem þeir
viilja svo auðvitað eyðileggja.
Ég ætla^að vona, að þú birt
ir þetta. Ástæðan til bréfsins
er sú, að ég vil vekja athygli
hinna hálí-sofandi IslLendinga á
hinum einkennilega áhuga Sov
étstjómarinnar á högum ykk-
ar.
Með beztu kveðjum,
Jan Andreas Eriksson."
— Velvakanda finnsit þesisi
áhugi ekkert einkennilegur,
heldur sjálifsagður frá sovézku
sjónarmiði. Hitt væri einkenni-
legt, tækju menn atonennt
ekki ef.tir þessu, eins og bréf-
ritari virðist óttast.
TIL ALLRA ATTA
L0FTLEIDIR
Nemendur Varmalandsskóla
Nemendomót Húsmæðraskólans ú Vnrmnlandi
verður haldið sunnudaginn 16. maí 1971. Þátttöku skal tilkynna eigi síðar en 7. maí til Nönnu
Tómasdóttur, Blönduósi sími 4155, Grétu Finnbogadóttur Reykjavík, simi 30319 og Helgu
Helgadóttur Borgarnesi, sími 7350 og 7201.
Ferð með Sæmundi frá Umferðamiðstöðinni kl. 8 f.h. 16. maí.
Geymið auglýsinguna. NEFNDIN.