Morgunblaðið - 16.04.1971, Page 1
32 SIÐUR
85. tbl. 58. árg.
FÖSTUDAGUR 16. APRIL 1971
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Lóan er komin
i \9 morgni annars í páskum,
■ munu fyrstu lóuhóparnir hafal
' sést við Reykjavík. Er i
I bændur á Álftanesi gáðu till
| veðurs sáu þeir að lóan var i
. komin um öll tún. „1 einni 1
svipan fannst manni sem'
fvorið væri komið til okkar, (
| hér á Álftanesinu," sagði |
i Kristjón Kristjánsson, bif- i
reiðastjóri forsetans, við 1
ÍMbl. (Ljósm. Sv. Þorm.).
Úrgangsefnum varpað
í Norðursjó
Osló, 15. apríl — NTB
NORSKA blaðið Aftenposten
skýrir frá því í dag, að einhvern
næstu daga nitini flutningaskip-
ið „Hudsons Stream“ varpa um
1.500 tonnum af úrgangsefnum í
Kröfur Alsír
óaðgengilegar
- segja Frakkar og slíta samninga-
viðræðum um lausn olíudeilunnar
París, 15. apríl, AP, NTB.
FRANSKA stjórnin ákvað í dag
að slíta samningaviðræðum við
Mikið
drukkið
1 Osló, 15. april — NTB —
IMIKILL f jöldi Oslóarbúa var
| handtekinn í kvöld fyrir
I ölæði. Um 8 leytið voru allar
fangageymslur lögreglunnar,
I yfirfullar, og var þá gripið til 1
| þess ráðs að láta þá lausa, (
| sem færastir voru um að i
koma sér heim. En Adam var '
f ekki lengi í Paradís, þvi klukk
(an tíu i kvöld voru allir klef-
lnr þéttsetnir á ný. Lögregl-
[ an getur engar skýringar gef-
'ið á þessari aukningu í um-
) ferðinni um drykkjumanna-
k klefana.
Alsír um lausn olíudeilunnar
milli landanna og tók það
fram, að nýjar kröfur Boumedi-
enns forseta gerðu allar frekari
viðræður tilgangslausar. En í
yfirlýsingu frönsku stjórnarinn-
ar var það forðast að láta deil-
una valda slitum á stjórnmála-
sambandi milli Iandanna, því að
þar var tekið fram, að Frakk-
land hefði eftir sem áður áliuga
á því að leggja sitt af mörkum
til iðnvæðingar Alsír og á því
menningar- og tæknisamstarfi,
sem samningar höfðu áður verið
gerðir um milli landanna.
Þessi viðbrögð af hálfu
frömsku stjónttarim'nar eiga sér
stað í kjölfar þess, að Alisir á-
kvað skaðabæt'ur samkvæmt
síruu sjálfdæmi fyrir þjóðnýt-
ingu að hlufa á olíutfélögum
Frakka í Alsir. Á þriðjudagintn
lét Boumedienne hækka verðið
á olíunni og gerði það kuntnugt,
að endi yrði bundinn á allar
Framhahl á bls. 14.
Norðursjóinn rúmum 12 sjómíl-
um út frá ósum Thames-árinnar,
vestan við Kentish Knock. Segir
blaðið að hér sé um að ræða
upphafið að mestu skipulögðu
dreifingu úrgangsefna á sjávar-
botninn, og óttast að ráðstöfunin
geti haft alvarlegar afleiðingar
fyrir fiskveiðar i Norðursjó.
Það er skipafélagið John Hud-
son & Co Ltd. í Birmingham sem
stendur að flutningum úrgangs-
efnanna, og hefur brezka land-
búnaðar- og matvælaráðuneytið
ekkert við þá að athuga. Fyrir-
húgað er að skipafélagið safni
árlega um 375 þús. tonnum af úr-
gangsefnum víða í Bretlandi og
sökkvi þeim við Kentish Knock.
Segir brezka ráðuneytið að norð-
og suðlægir straumar á þessum
slóðum dreifi úrgangsefnunum
jafn óðum yfir stór svæði, og
tekur fram, að í úrgangsefnun-
um verði engin eiturefni eða
efni, sem geti haft langvarandi
skaðleg áhrif. Bendir Aftenpost-
en hins vegar á, að frá Kentish
Knock dreifist úrgangsefnin yfir
beztu veiðisvæði Norðmanna í
Norðursjó sunnanverðum.
Ping-
pong
þíðan
Washington, London, 15. apríl
— AP-NTB
RÁÐSTÖFUNUM kínverskra og
bandarískra yfirvalda til að bæta
sambúð ríkjanna og „þíðunni“ i
Peking varðandi aukin sam-
skipti við vestræn ríki hefur ver-
!ð vel fagnað víða um heim.
Þannig segir til dæmis kanad-
íska blaðið „The Montreal Gaz-
ette“ að velviljinn, sem kínversk
yfirvöld hafa sýnt vestrænum
gestum sínum tindanfarna daga
sé „kertaljós, sem logar skært í
myrkri kalda stríðsins. Ef þetta
er ríkjandi andi í Kína í dag, er
sannarlega ástæða til að gleðj-
ast.“
Meðal vestrænu gestanna í
Kína er 15 manna sveit banda-
rískra borðtennisleikara og þrír
bandarískir fréttamenn. Var
bandaríski hópurinn i dag í
heimsókn í Shanghai og sat
fagnað íþróttasambandsins þar í
borg. Yang Shing Ya, formaður
iþróttasambandsins, flutti ávarp
við þetta tækifæri og sagði, að
Kinverjar fögnuðu komu Banda-
rikjamannanna, og að koma
þeirra væri „tákn þeirrar vin-
áttu, sem við vonum að nái til
allrar bandarisku þjóðarinnar".
Bandaríska sveitin heldur heim-
leiðis á laugardag.
Snemma í morgun var ætlun-
in að opna símasamband milli
Kína og Bretlands, en það hefur
legið niðri undanfarin 22 ár.
Nokkrar tafir urðu á opnun sam-
bandsins vegna útvarpstruflana,
en þegar fyrsta símtalið hófst,
voru skilyrði mjög góð. William
Hardcastle, frétamaður BBC,
varð fyrstur til að ná símasam-
Framhald á bls. 14.
Sendiráðsmönnum
vísað úr landi
Sakaðir um samvinnu við
uppreisnarmenn á Ceylon
Colombo, Ceylon, 15. apríl — AP
HAFT er eftir áreiðanlegum
heimildum i Colombo að Ceylon-
stjórn hafi ákveðið að vísa öllu
starfsliði sendiráðs Norður-
Kóreu úr landi. Eru sendiráðs-
starfsmennirnir sakaðir um sam-
linnii við vinstrisinnaða upp-
reisnarmenn á eyjunni, og stuðn
ing við samtök uppreisnar-
rnanna, sem kennd eru við kúb-
anska byltingarleiðtogann heitna
Che Guevara. Hefur öflugt lög-
reghilið umkringt sendiráð Norð-
nr-Kóreu í höfuðborginni, og er
talið að starfsliðið fari úr landi
á næsta sólarhring.
Þrátt fyrir brottvísun sendi-
ráðsmannanna er talið ólíklegt
Framhald á bls. 24.
Svíar bregðast hart við gegn
erlendum ofbeldishópum
Júgóslavneski sendiherrann látinn
Stokkhólmi 15. apríl.
Frá Hrafni Gunnlaugssyni.
JÚGÓSLAVNESKI sendi-
herrann, Vladimir Rolovic,
lézt í nótt kl. 1.48 að sænsk-
um tíma á Karólinska-sjúkra
húsinu í Stokkhólmi. Dauði
sendiherrans kemur fæstum
á óvart, því að læknar töldu
frá upphafi, að vonlaust væri
að bjarga lífi hans. Sárin,
sem hann hlaut við innrás
Króatanna tveggja í sendi-
ráð Júgóslavíu í Stokkhólmi
í síðustu viku, voru ólæknan
leg frá upphafi. Sendiherr-
ann fékk þrjár kúlur í höf-
uðið og tókst læknum aldrei
að fjarlægja eina þeirra.
Títo, Júgóslavíuforseti, sem
var náinn vinur Rolovic, og
barðist með honum gegn nas
istum á stríðsárunum, brast
i grát, er honum var tilkynnt
símleiðis í nótt um lát Rolo-
vic og varð einkaritari for-
setans að ljúka samtalinu.
Lögreglan óttast nú mjög,
að blóðug átök á milli Serba
og Króata í Svíþjóð muni
fylgja í kjölfarið og í dag
hélt yfirmaður ríkislögregl-
Framhald á bls. 14.