Morgunblaðið - 05.05.1971, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. MAl 1971
BIFREIÐASTJÓRAR
Viljum ráða 2 reglusama og
gætna bifreiðastjóra.
Bifreiðastöð Steindórs sf.
Sími 11588.
HÚSMÆÐUR
Stórkostleg lækkun á stykkja
þvotti 30 stk. á 300 kr. Þvott
ur sem kemor í dag, tilbúinn
á morgun. Þvottahúsið Eimir,
Síðumúla 12, sími 31460.
IBÚÐ ÓSKAST
Óska að taka á leigu 14. maí
litla 2ja—3ja berb. íbúð. —
Uppl. í síma 33116.
HESTUR TIL SÖLU
8 vetra, hálf taminn.
Sími 66294 eftir kl. 7 e. h.
BARNGÓÐ OG ÁREIÐANLEG
kona eða stúlka óskast til
að gæta 6 ára drengs, helzt
í Vesturbænum. Uppi. í síma
12341 .eftir kl. 7 næstu kvöld
VOLVO '55
til sölu, ódýrt. — Vélsmiðja
Guðmundar Bjarnasonar,
Ásgarði, Garðahreppi,
sími 51691.
TIL SÖLU TRILLUBATUR
3 tonn með tínuspili og dýpt
armæli. Sími 93-2067 eftir kl.
7 á kvöldin.
HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGR.
Tek að mér að plæja mat-
jurtagarða. Sími 50482.
HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGR.
10—30% afsláttur af öWum
vörum verzlunarinnar.
Verzlunin Nína, Strandg. 1.
HÚSEIGENDUR
Þéttum eftirfarandi: stein-
steyp-t þök, asbest þök, þak-
rennur, svalir, sprungur í
veggjum. — Verktakafélagið
Aðstoð, sími 40258.
VINNUSKÚR
Stór vinnuskúr óskast. Uppl.
í síma 19860 og 18367.
VIL KAUPA
milliliðalaust 2ja—3ja herb.
íbúð. Margt kemur til greina.
Uppl. í síma 34396.
ISLENZK FRlMERKI
laus eða af bréfi, kaupast
gegn góðri staðgreiðslu af
sænskum safnara.
Rektor Robert Rosén,
87030 Nordingrá, Sverige.
EGG TIL SÖLU
Get afgreitt 100 kg. af eggj-
um, vikulega. Uppl. gefnar á
símstöðinni Eyrarkoti, Kjós.
TILVONANDI KENNSLUKONU
vantar 2ja—3ja herb. ibúð
sem fyrst. Er með eitt barn.
Fyrirframgreiðsla ef óskað er
Uppl. í srma 18134 og 84659.
Skip
kom
af
hafi
Skip kom af hafi,
hlaðið dýrum farmi
Fegurstu djásnum
fræða vorra.
Skip kom af hafi,
hlaðið dýrum farmi
Frábærum góðhug
frændaþjóðar.
Skipskoman glæsta
geymast mun um aldir
þakkarrúnum skráð
í þjóðar vorrar hjörtu.
Richard Beck.
FRÉTTIR
Þarna sitja saman tveir góðir
vinir suður í Eþíópíu. Guðlaug-
ur Gislason og innfæddur vinur
faans. Myndin er tekin fyrir nokkr
imi árum.
Kristniboðsflokkur KFUK
heldur sína árlegu samkomu
fimmtudaginn 6. maí kl. 8.30 í
húsi KFUM og K við Amtmanns
stíg. Kristniboðsþáttur: Frú Her
borg Ólafsson. Lesið bréf frá
Ásalugu í Gidole. Hugleiðing:
Séra Jónas Gíslason. Einsöngur.
Allir velkomnir. Gjöfum til
kristniboðsins veitt móttaka.
Kvennadeild Borgfirðinga-
félagsins
Hin árlega kaffisala og skyndi-
happdrætti verður í Lindarbæ 16.
mai. Þeir sem vilja gefa muni
komi þeim eða hringi til Krist-
ínar, Leifsgötu 7, simi 25287, Mar
grétar, Sólvallagötu 7, sími 14842,
Svanborgar, Mávahlíð 3, sími
24689, Sigríðar, Stigahlíð 36, simi
30372, fyrir laugardag 8. mai.
Kvenfélagið Hrönn
heldur fund í kvöld kl. 8.30 að
Bárugötu 11. Myndasýning, m.a.
myndir frá skemmtifundi Hrann-
ar í rnarz.
Kvenfélagið Seltjöm
Skemmtifimdur verður haldinn í
Félagsheimilinu í kvöld kl. 8.30.
Eiginmenn velkomnir með fé-
lagskonum.
GAMALT
OG
GOTT
Orðtak Þorleifs Repps (d. 1857):
Aldrig at gaa paa Accord med
Sletheden. (Ljáðu þig aldrei tii
þess, sem ljótt (ilt) er). Christ-
en Berg (f. 1829, d. 1891), stjórn
málamaðurinn danski, tók upp
orðtak Repps nær orðrétt.
Opt má á dauðan ljúga og á
blindan bera. (Gizur biskup
Einarsson 1540—1548. í Add
British Mus. ll,250.4to).
Sýning Þórdísar á Seltjarnarnesi
Þórdís Tryggvadóttir opnaði mál verkasýningu í anddyri fþrótta-
hússins á Seltjamamesi, og sýnir þar 18 myndir, scm ailar em
til sölu. Sýningin stendur til 16. maí og er opin dagiega frá kl.
4—10. (Sv. Þorm. tók myndina).
DAGBÓK
Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar, sem setur von
sína á Drottin, Guð minn.—Sálmarnir,146,5.
I dag er miðvikudagur 5. maí og er það 125. dagur ársins 1971.
Eftir lifa 240 dagar. Tungl fjærst jörðu. Árdegisháflæði kl. 3.07.
(Úr Islands almanakinu).
Næturlæknir í Keflavík
4.5. Guðjón Klemenzson.
5.5. Jón K. Jóhannsson.
6.5. Kjartan Ólafsson.
7., 8., og 9.5., Arnbjörn Ólafss.
10.5. Guðjón Klemenzson.
AA-samtökin
Viðtalstími er í Tjamargötu
3c frá kl. 6- 7 e.h. Sími 16373.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 75,
er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið daglega frá kl. 1.30—4.
Inngangur frá Eiríksgötu.
Mænusóttarbólusetning fyrir
tullorðna fer fram í Heilsuvemd
arstöð Reykjavíkur á mánudög-
um frá kl. 5—6. (Inngangur frá
Barónsstíg yfir brúna).
Ráðgjafaþjónusta
Geðverndarfélagsins
þriðjudaga kl. 4—6 síðdegis að
Veitusundi 3, sími 12139. Þjón-
ostan er ókeypis og öllum heim-
U.
Frá Ráðleggingastöð
kirkjimnar
Læknirinn verður fjarverandi
um mánaðartima frá og með 29.
marz.
Náttúrugripasafnið
Hverfisgötu 116, 3. hæð
(gegnt nýju lögreglustöðinni).
Opið þriðjud., fimmtud., laug-
ard. og sunnud. kl. 13.30—16.00.
Orð lífsins svara í sima 10000.
Svartfugl
Flestir mimu sammála um að skáldsagan Svartfugl eftir Gunnar
Gunnarsson sé ein stórbrotnasta skáldsaga, sem rituð hefur verið
á íslenzka tungu. Sagan hefur verið þýdd á 14 timgumál og
hlotið miklar og verðskuldaðar vinsældir í öllum þeim löndum,
sem hún hefur komið út í. Nú gefst íslenzkum leikhúsgestum
kostur á að sjá söguna á leiksviði Þjóðleikhússins, með mörgum
af okkar þekktustu leikurum í helztu hlutverkimum. Örnólfur
Árnason hefur samið leikritið eftir sögunni, en Bendikt Árna-
son er Icikstjóri. Leikurinn hefur verið sýndur 11 sinnum hjá
Þjóðleikhúsinu. Næsta sýning verður á fimmtudagskvöld. Mynd
in er af Gunnari Eyjólfssyni og Herdísi Þorvaldsdóttur í hlut-
verkum síniim.
SÁ NÆST BEZTI
Séra Páll Pálsson, sem starfar hjá Loftleiðum, kennir líka við
Menntaskólann í Reykjavik.
Nýlega þegar sr. Páll kom i tíma, höfðu nemendurnir teiknað
tvær myndir á töfluna. Var önnur af George Brown, en hin af
sr. Páli og voru þær furðulega líkar.
Sr. Páll leit á myndirnar, benti síðan á myndina af Brown og
sagði: „Hann má bara vel við una“!!
PENNAVINIR
Mrs. Eva Krutein,
474 Arbramar,
Pacific Palisades,
Ca. 90272,
U.S.A.
óskar eftir pennavinum á Is-
landi. Frúin hefur áhuga á tón-
list, náttúrufegurð og kynnum
milli þjóða. Ennfremur heíur
hún mikinn áhuga á ferðalög-
um og vill gjarnan stofna til
kynna sem gætu leitt til gagn-
kvæmra heimsókna.