Morgunblaðið - 08.06.1971, Page 16

Morgunblaðið - 08.06.1971, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8, JÚNl 1971 ’vestufi" Pakistan Eritrea Súdan Eþiópia Ceylon Mosambiqu* Portúgaiska Guinea Guinea S „, Aus Pakis -AMERIKA EINS og lieimsfréttir bera með sér er víða ófriðarástand í heiminum. Sums staðar er um hreinar stórstyrjaldir að ræða eins og t.d. í Indókína. Annars staðar eru minnihátt- ar átök, sem ekki eru eins mikið í fréttum, og má þar nefna Afríkuríkin Angola og Mosambique. Upplýsingarnar, sem hér fara á eftir, eru engan veginn tæmandi; það er víðar barizt í heiminum, en þar er í flestum tilfellum um að ræða slíkar smáskærur, að ekki þótti taka því að hafa þær með. Upplýsingamar, sem hér fylgja, eru unnar úr „Janes Weapon Systems“, „World Military Balance“ frá Institute for Strategic Studies, „New York Times Encycloperdic Alm- anac“, „Keesings Contemporary Archives“ og „Treaties and Alliances of the World“. — ót. Átakasvæði í he ANGOLA 1 portúgölsku nýlendunni Angola, eru íbúar um 5,3 mill- jónir. Þar er enginn her, en setuliðssveitir frá Portúgal. Ástandið þar er svipað og í öðr- um portúgölskum nýlendum, fá- tækt, sjúkdómar, menntunar- skortur og enn meiri skortur á mannréttindum. Þrælkunar- vinna tíðkaðist þar til 1962 (tíðkast enn í Mosambique og víðar) þegar Sameinuðu þjóðim ar fordæmdu það sem þær köll- uðu nýlendustrið Portúgal í Angola. Sú fordæming kom til vegna uppreisnar sem frelsisfylking gerði árið 1961, en portúgalskt herlið bældi niður með misk- unnarlausri hörku. Síðan hefur verið háður skæruhemaður gegn portúgölum, en þar sem uppreisnarmennirnir eru litt þjálfaðir og illa búnir vopnum, eru þau átök sjaldnast það mik- il að þau komi í heimsfréttun- um. CEYLON Á eynni Ceylon á Indlands- hafi eru rúmlega tíu og hálf miM-jóm íbúar og eru flestir þeirra Búddatrúar, eða um 64%. Að undanfömu hafa stjórnvöld átt 1 höggi við vinstrisinnaða uppreisnarmenn. Þeir eru það fá mennir og illa vopnum búnir að mest hefur verið um skæruhern- að og ekki komið til stór- orusta, enda virðast átökin vera að fjara út. Herafli Cey- lin er samanlagt um 8,600 manns, þar af 5,300 í iandher, 1.700 í sjóher og 1.600 i flugher. Ekk- ert stórskotalið er til, en i flug hernum eru alls 36 vélar, þar af 12 brezkar Provost æfingaþot- ur sem búnar eru vopnum. Bret- ar og Indverjar hafa veitt stjórn Ceylon stuðning í baráttunni við skæruliða, og það hafa Sovét rikin einnig gert, sent þangað MiG þotur og flugmenn. Talið er að skæruliðar njóti helst stuðnings frá N-Kóreu og Kina, og aðstoð Sovét til komin af því að þau vilja ekki að þessir aðil- ar nái of miklum áhrifum á þessu svæði. Fréttir af bardög- um hafa verið fremur óljósar, og ekki er gerla vitað um mann- fall. Ceylon er í varnarbanda- lagi við Indland og Bretland. ETHIOPIA-ERITREA íbúar Ethiopiu eru um 22,5 milljónir. Samanlagður herafli er 34 þúsund menn, þar af 30 þúsund i landhernum, 900 i sjó- hernum og 3000 í flughernum. Herinn hefur yfir að ráða 4 stór skotaliðssveitum, nokkrum létt- um skriðdrekum og brynvörð- um bifreiðum. Sjóherinn saman stendur af nokkrum litlum eft- irlitsskipum og tundurskeytabát um og yfirmennimir eru flestir brezkir, franskir eða indversk- ir. Flugherinn á alls 100 vélar, að flutningavélum meðtöldum, en stríðsvélarnar eru flestar af bandarískri gerð, léttar orrustu og æfingaþotur. Nokkrar þeirra eru þó af SAAB gerð, og frá Svíþjóð. Ethiopia hefur löngum átt í erfiðleikum með héraðið Eritreu sem var ítölsk nýlenda (íbúar 1,8 milljón). 1952 kom það und- ir stjórn Ethiopiu, en hélt sjálf- ræði sínu og fána. Ethiopia seildist þó smám saman til meiri yfirráða og 1962 varð Eritrea eitt af þrettán héruðum lands- ins, og laut algerri stjórn. Árið 1956 var Frelsisfylking Eritreu stofnuð og hlutverk hennar er að fá aukið sjálfræði eða jafnvel algert sjálfstæði fyr ir héraðið. Skæruhernaður var hafinn i litlum mæli, en hefur haldið áfram að magnast og i desember 1970 var lýst yfir neyðarástandi og herlögum i Eri treu. Uppreisnarmennimir fá vopn og vistir frá Sýrlandi, írak, Suður-Yemen, Libyu og Sudan. Þeir eru þó fámennir og mega sín lítils nema í minnihátt- ar skæruaðgerðum. Fulltrúar frelsisfýlkingarinnar héldu því fram að flugherinn hefði gert árásir á þorp og bæi, en stjórn Ethiopiu neitaði þvi og bauð fréttamönnum frjálsar ferðir um héraðið til að kynna sér ástand- ið. Litlar fréttir hafa borizt af bardögum í Eritreu að undan- fömu, en þó eiga sér stað smá- skærur milli hermanna stjórn- arinnar og skæruliða frelsis- fylkingarinnar. GUINEA OG PORTÚ- GALSKA GUINEA 1 Guineu búa 3,570 þúsund manns. Samanlagður herafli er um 5000 menn, þar af 4,800 i landher. Hinir 200 skiptast milli nokkurra . eftirlitsbáta sjóhers- ins og örfárra MiG véla flug- hersins. Guinea hefur átt í skær um við Portúgölsku Guineu, en það er portúgölsk nýlenda með rúmlega hálfa milljón íbúa. Portúgal hefur þar mikið setu- lið. 1 desember í fyrra var gerð tilraun til innrásar í Guineu, en henni var hrundið. Rannsóknar- nefnd frá Sameinuðu þjóðunum sem fór á staðinn, komst að þeirri niðurstöðu að Portúgal bæti ábyrgð á innrásinni. Síðan hefur verið heldur hljótt um þessi lönd, en þó hefur öðru hvoru komið til átaka. Guinea er í varnarbandalagi við Sovét rikin, sem nú eru að styrkja varnir landsins með því að senda þangað flugvélar og her- gögn. MOSAMBIQUE 1 portúgölsku nýlendunni Mosambique, eru ibúar rúmar sjö milljónir. Her er enginn í landinu nema portúgalskar setu liðssveitir, en mikil átök hafa orðið á milli þeirra og Frelsis- fylkingar Mosambique. Fátækt, sjúkdómar og menntunarskortur hrjá mjög ibúa Mosambique, og portúgalska stjórnin gerir næsta lítið til að bæta úr þvi. Frels- isfylking Mosambique hóf skæruhernað árið 1964, og þótt Portúgal sendi mikinn liðsauka til landsins, hefur ekki tekist að brjóta hana á bak aftur. Fréttamenn eru illa séðir gest ir í landinu, og því fréttir það- an af skornum skammti. Þær fréttir sem þrátt fyrir það tekst að smygla út fyrir landamærin, segja ófagrar sögur af ástand- inu þar. Höfuðstöðvar Frelsis- fylkingarinnar eru í Dar-Es- Salam, í Tanzaníu, og veitir það land og nokkur önnur afriku ríki uppreisnarmönnum óopin- bera aðstoð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.