Morgunblaðið - 08.06.1971, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.06.1971, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNl 1971 Haukur Benediktsson, framkvæ mdastjóri; þjónusta á s j úkr ahúsum — og hjúkrunarkvennaskortur Erindi þetta flutti Haukur Benediktsson á fundi Sam- taka heilbrigðisstétta fyrir nokkru. Það er meira einkennandi fyr- ir okkur íslendinga en a.m.k. nágranna okkar, að þegar við uppgötvtim að eitthvað er að og þarf að betrumbæta, skiptast við brögðin i tvö horn. Annað hvort þegjum við þunnu hljóði eða við fáum málefnið svo á heilann að annað kemst ekki að og gjarn an forðumst við að líta á málið í heild, þótt viðfangsefnið sé aðeins brot af stórri heild. Við afgreiðum það síðan svo hraust- lega að það snarast á hinn veg- inn. Þetta á ekkert frekar við um sjúkrahús en annan rekstur. Við höfum öll heyrt um það, að á tímabili voru byggð svo mörg frystihús, að aðeins einn bátur fannst til að fiska fyrir hvert þeirra og fleira mætti tína til í því sambandi. Það málefni sem hér er til um- ræðu, þ.e. sjúkrahúsmálin, eru svo margslungin, að ég tel nauð synlegt að afstaða til einstakra þátta þeirra sé tekin í fullu samræmi við þá heild, sem þau eru hluti af. Sjúkrahúsrekstur á Islandi stendur frammi fyrir því vanda- máli, að hagnýta sér þá feikna þróun, sem orðið hefur í heim- inum á sviði heilbrigðismála, og getur gert okkur færari til að veita sjúkum hjálp og tryggja heilbrigði þegnanna. Tii þess að ná árangri á þessu sviði þarf fjöimargar greinir sérmenntaðs fólks og við hlítandi starfsaðstöðu fyrir það, og svo að sjálfsögðu fjármagn til að standa straum af starfsem inni. Þróaðar þjóðir eyða all miklum hluta þjóðartekna sinna til þess að sinna þessu verkefnL Víða er það um 6% þjóðartekna og fer stöðugt vaxandi, mönnum til mikiilar hrellingar. Sú stað- reynd hefur ekki orðið til þess að menn dragi úr heilbrigðis- þjónustunni, heldur beita menn kröftum sínum að því að gera starfsemina hagkvæmari. 1400 — 1500 MILLJóNIft Það má lengi deila um það, hve mifclu fjármagni við höfum efni á að fóma til þessara hluta, en ég hefi tekið mér til hugg- unar mið af því, að meðan heild arútgjöld til sjúkrastofnana á Islandi nema ekki nema um hetoningi þeirrar upphæðar, sem landsmenn verja til að gera við einkabíla sina, og reka, höf- um við efni á þessum útgjöld- um. Þó er engan veginn víst að allir séu á sama máli. Reikna ég þá með því að rekstur bíls kosti árlega um 120 þús. kr. eins og komið hefur fram opinberlega og að einkabílar séu 30 þúsund. Það gerir 3.600 mil'lj. en rekstrarkostnaður allra sjúkra- stofnana á Islandi er áætlað- ur um 14-1500 milljónir á þessu árL Sú ábyrgð, sem hvilir þyngst á okkur, sem að þessum málum störfum, er að f jármagn þetta sé skynsamlega hagnýtt. Það fjármagn, sem við misnot- um, er ekki aðeins tapað held- ur hindrum við um leið að aðrir njóti þeirrar þjónustu, sem þeir eru í brýnni þörf fyrir, en fá ekki. Ein meginforsenda þess, að hagnýta skynsamlega fjármagn sem varið er til heilbrigðismála, er að samræmi sé milli fjárfest- ingar þ.e. bygginga og tækja- búnaðar annars vegar og sérmenntaðs fólks til að hagnýta þessa aðstöðu til fulls. Síðasta áratuginn eða jafnvel tvo, höfum við hamrað á þvl, að okkur vantaði sjúkrahús. Þess vegna höfum við byggt sjúkra- hús í þó nokkrum mæli. En höfum við nokkuð skipu lagt eða tryggt okkur að þessl sjúkrahús yrðu hagnýtt á full- kominn hátt, með hliðsjón af þeirri verktækni, sem við blas- ir hvarvetna hjá nágrannaþjóð- unum. Að vísu stækkuðum við hjúkrunarkvennaskólann þó nokkuð fyrir fáum árum, þótt hann sé farinn að minnka aftur. Haukiir Benediktsson Skipulagt nám meinatækna hófst fyrír 4-5 árum fyrir for- göngu yfirlækna rannsókna- deilda Landspítala og Borg- arspítala og fjárstuðnimgi þeirra sjúkrahúsa. Þá er upptalið, nema það sem einstakar stofnanir hafa ver ið að basla við á menntunarsviði fyrir starfsfólk sitt. Nú höfum við sem sagt upp- götvað að okkur vantar hjúkr unarkonur, til þess að reka þessi sjúkrahús, sem við höfum byggt, og eru í byggingu og nú viljum við mennta fleiri hjúkr- unarkonur. Það blasir við okkur sú staðreynd, að loka verður sjúkradeildum am.k. á stærri sjúkrahúsunum, vegna þess að ekki er hægt að fá staðgengla til sumarafleysinga. Svo til ógjörningur er að setja nýjar deildir af stað og ekkerf má út af bera, þá lamast starfsemin. Hér verður að gera róttækar ráðstáfanir til úrbóta. En það er ekki létt verk, og úrbætur eiga sér langan aðdraganda. Jafnvel þingmenn fyllast fídonskrafti og heimta úrbætur. Dagbiöðin eru full aif „haz- ar“ fréttum um, að fækkað hafi í hjúkrunarskólanum, á sama tíma og skortur sé á hjúkrun- arkonum við spítalana og upp- lýsa að nemendum hafi fækkað úr 230 í 210. Nú myndu þingmenn og blaða menn sennilega álykta sem svo, að ef fjöigað yrði í skólanum upp í fulla tölu, þá væri allt klappað og klárt, og ég gæti bezt trúað því að yfirvöld heil- brigðis- og menntamála myndu trúa því og kannski við llka STARFSFERILL HJÚKRUNARKVENNA. En er það svo? Það er hugs- anlegt, en við vitum bara ekk- ert um það. Ég persónulega dreg það mjög i efa. Kjartan Jóhannsson, verk- fræðingur, gerði árið 1967 at- hugun á starfsferli hjúkrunar- kvenna, sem útskrifazt höfðu frá 1933-1966. Samkvæmt þess- ari athugun hverfa 34% útskrif aðra hjúkrunarkvenna frá starfi sama árið og þær eru út- skrifaðar, 60% hafa horfið frá starfi að tveim árum liðnum, en um 18% komið aiftur til starfa innan 20 ára. Jafngildir það þvi, að úr hverjum árgamgi séu 32,7% starfandi á hverjum tíma. Ég skal ekki fullyrða hvort þessi athugun gefur algjörlega rétta mynd af ástandinu. Það mætti hugsa sér að ef litið væri á t.d. síðustu 10 árin í stað 33 ár eins og skýrslan tekur yfir hefði myndin breytzt. En ég tel, að I framhaldi af þessari athugun mætti gera spá 10 ár fram í tímann, svo að við fengjum meiri vitneskju um hvað gera þarf, en önum ekki alveg út í bláinn eins og hingað tll. Þarf hér að koma til athug- un á væntanlegri fjölgun sjúkra rúma á tímabilinu, breytingu á rekstri stofnana, sem fyrir eru, styttri vinnutima o.fL oJL sem máli skiptir. Er mér kunmugt um að Heil- brigðismálaráð Reykjavíkur- borgar hefur beint svipuðum til löguim til hlutaðeigandi ráðu- neyta. Jafnframt þvi sem unnið yrði að framtíðarlausn þessara mála Borgarspítalinn í Reykjavík. teldi ég nauðsynlegt að fram færi athugun á því hvort hægt væri að skipuleggja störf hjúkr unarkvenna þannig, að þær yrðu losaðar frá ýmsum störf- um sem aðrir gætu innt af hendi umdir þeirra stjóm, og þannig teygt úr nýtingarmögu- leikum stofnananna þar til úr rætist. ÞJÓNUSTA SJÚKRAHÚSA Ég fer ekki lengra út í þesSa sálma að sinni, en mig langar til að viikja að þjónustu sjúkra- húsa á breiðara grundvelli. Það þarf fleiri starfshópa til að reka sjúkrahús en hjúkrunarkonur. Ég las það í bandarisku sjúkra- húsatímariti fyrir nokkru að sér menntað starfsfólk (para- medical staff) skiptist í 73 grein ir í nútíma sjúkrahúsrekstrL Hvað höfum við margar teg- undir sérmenntaðs starfsfólks í íslenzkum sjúkrahúsum? Hvað um fjölda slíkra starfs- manna.? Hvað um löggjöfina um mennt un þeirra? Hver á að mennta þá? Þessum spurningum er fljótt svarað. Auk hjúkrunarkvenna, ljós- mæðra og sjúkraliða getum við nefnt, að til séu sjúkraþjáHfar- ar, meinatæknar, röntgentæikn- ar, félagsráðgjafar, sálifræð- ingar, iðjuþjélfarar, diet-sér- fræðingar, bókaverðir og e.t.v. einhverjir fleirL Flestar þessara mikilvægu starfsgreina eru þó svo fámenn- ar, að það minnir mann helzt á geinfugla eða skinnhandrit. Það getur ekki farið fram hjá neinum, sem vill ihuga þessi mál, að það felst ekki sparnað- ur í því, að vera laus við það sérmenntaða fólk, sem þarf til þess að reka sjúkrahús eftir viðurkenndri uppbyggingu, allra sízt, þegar búið er að byggja þau. Þeir, sem borið hafa saman sjúkrahúsa „statistik" hér á landi og í nágrannalöndunum, reka fljótt augun 1 það, að með- allegudagafjöldi sjúklinga hér á landi er miklu hærri en þar. Það liggja að sjálfsögðu margar ástæður til þess, en ég efa ekki að skortur á sérmemnt- uðu starfsfólki á hér stóran þátt L Það getur verið mannlegt að grafast fyrir um það, og veita sér jafnvel upp úr þvi, hverjum þetta sé allt að kenna, en ekki er það stórmannlegt né liklegt til árangurs. Verum samimála um það, að það kemur margt til og kannski eigum við sjálf nokkra sök. Samtök heilbrigðisstétta eru ung og það væri verðugt verkefni fyrir þau að leggja sitt lóð á vogarskálamar til að þoka þessum málum áleiðis. Að mínu áliti er eríiðasti þröskuldurinn, sem þarf að yf- irvinna sá, að sannfæra þá, sem með fjánmálin fara, um að þeir hafi efni á að veita fé til þess- ara menntunarmála. Það er orð- ið svo rótgróið í þeim að fram- leiða stúdenta, að þeir eiiga erf- itt með að yfirgefa þann leiik. NÆSTU VERKEFNI. En áður en á það reynir, þarf að rannsaka þessi mál og Framh. á bls. 30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.