Morgunblaðið - 08.06.1971, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 08.06.1971, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8 JÚNÍ 1971 25 Tillaga Reykj avíkur f und Umræður um gagnkvæma fækkun í herliðum eftir sigur Nixons í öldungadeild inni og ræðu Brezhnevs Varsiórbandalagrð Sovétriktn 3.305.000 (182.500 I A-Þýzkalandl. 16.500 I PðHsndl, 50.000 ( Tékkósló vakiu, 36.500 i UnfO'erJalandl). Austur-Þýzkaland 129.000 Pólland 242.000 Tékkðalóvalda 168.000 Unffverjaland 101.000 Rúmenia 181.000 Búlffaria 149.000 'l TILLÖGUR ráðherrafund- ar NATO í Reykjavík í júní 1968 þess efnis, að dregið verði gagnkvæmt úr herstyrk í Evrópu, hafa komizt á dagskrá á nýjan leik, bæði eftir sigur þann er Nixon forseti vann í öldungadeildinni á dögun- um, þegar felld var tillaga Mansfields öldungadeildar- manns um einhliða helm- ingsfækkun í bandaríska herliðinu í Evrópu, og eftir áskoranir sovézkra forystumanna þess efnis, að hafnar verði undirbún- ingsviðræður til þess að kanna möguleika á fækk- un herliðs í Austur- og Vestur-Evrópu. Fréttaritarar benda á, að allt sé á huldu um möguleika á samkomulagi um að fækk- að verði í herjunum og er á það bent að Nixon forseti hafi komizt svo að orði, að slíkt samkomulag gæti orðið janvel ennþá flóknara en til- lögur þær sem fram hafa komið um samkomulag um takmarkanir á smíði og fjölda gereyðingarvopna. Lengi hefur verið talið, að Atlantshafsbandalagið mundi setja það skilyrði fyrir sam- komulagi um fækkun í her- liði, að viðunandi lausn fyndist á framtíð Berlínar, en nú er það haft eftir emb- ættismönnum í Briissel, að ekkert slíkt skilyrði verði sett. Hins vegar eru Banda- ríkin og önnur aðildarríki At lantshafsbandalagsins ekki reiðubúin að taka þátt í ráð- stefnu þeirri um öryggismál Evrópu, sem Rússum og að- ildarlöndum Varsjárbanda- lagsins er mikið kappsmál að haldin verði, fyrr en viðun- andi árangur hafi náðst í um ræðum þeim um Berlínarmál ið, sem nú standa yfir. A það er lögð áherzla, að hvers kon ar könnunarviðræður um fækkun herja megi ekki spilla fyrir viðræðum um Berlínarmálið eða samskipt- um Austur- og Vestur-Þjóð- verja. RÆBA BREZHNEVS Áhugi Rússa á viðræðum um fækkun herja kom fram í ræðu þeirri, er Leon- id Brezhnev flokksritari hélt í Grúsíu á dögunum, og síðan hefur Alexei Kosygin forsæt- isráðherra komizt svo að orði, að Sovétríkin muni gera “zr allt sem í þeirra valdi standi til að komast að samkomu- lagi, ef Vesturveldin sýni „verulegan áhuga á að gera raunhæfar ráðstafanir í þessa átt.“ í ræðum þeirra komu fram nokkur ný atriði, sem talið er að geti bætt horfur á samkomulagi. Mikilvægast er talið, að álykta megi að Rúss ar séu reiðubúnir að ræða fækkun herja á öðrum vettvangi en hinni fyrirhug- uðu öryggismálaráðstefnu, og ef til vill án þess að örygg- ismálaráðstefna fari fram áð- ur en viðræður um gagn- kvæma fækkuo hefjast. Hing að til hafa Rússar hvatt til þess að gagnkvæm fækkun Herafli NATO ogVarsjárbandalagsins -é~ NATO Baiidariklii t.WZJSU (310.000 i Kvrópu) Kanada M.S25 (3.S00 f Kvr6pu) fsland mjclnn Norejfur 41.000 Bretlaml (63.000 í Vestur I vzkalandl og Vestur Bi rlin) Danniörk Kfolland Bolpii Lúxemborg Ve8tur-I»ýzkaland 466.000 Frakkland (30.000 i Vostiir-Þýzkaíandl ojf Vestur-Berlín) Italía 413.000 Grikkland 159.000 Tyrkland 477.500 1‘ortiigal 1*5.500 Herstyrkur NATO í Vestur-Evrópu er 1.105.000 menn, en herstyrkur Varsjárbandalag’sins í Austur-Evrópu 1.235.000 menn. Þessar tölur ná ekki til alls herliðs aðildarlanda banda- laganna, seni sýnt er á kortinu. Herstyrkur Bandaríkjanna, 2.802.314 menn, er samkvæmt tölum bandaríska vamarmálaráðuneytisins frá 31. marz. Allir aðrar tölur eru frá Herfræði stofnuninni í London og eru frá árinu 1970, verði á dagskrá slíkrar ráð- slífnu. Þá er talið mikilvægt, að Rússar einskorða ekki yfir- lýsingar sínar um gagn- kvæma fækkun við „erlend- an“ herstyrk, eins og Varsjár bandalagið gerði í yfirlýs- ingu, sem gefin var út í júnt í fyrra. Loks er á það þent, að Rússar hafi vakið athygH^ á tillögu um fækkun í herj- um í Mið-Evrópu án þess þó að nefna Mið-Evrópu á nafn. Þannig er talið, að Rússar muni eiga erfiðar með en áður að fækka í herliði sínu í Mið-Evrópu og efla síð an herlið sitt í Suðaustur- og Norðaustur-Evrópu, sem er þegar mjög öflugt. Atlants- hafsbandalagið hefur óttazt slika endurskipulagingu sov- ézka herliðsins síðan Rússar minntust fyrst á gagnkvæma fækkun. RÓMARYFIRLÝSINGIN NATO hefur unnið að áætl un um gagnkvæma og jafna fækkun herja siðan svo kölluð Rómaryfirlýsing var gefin út um málið fyrir einu ári. Samkvæmt yfirlýsing- unni var utanríkisráðherra ít alíu falið að koma skoðunum Vesturlanda á framfæri við ráðamenn í Kreml og kanna viðbrögð Varsjárbandalagsins eftir diplómatískum leiðum. Rúmlega 20 viðræðufundir við aðildarlönd Varsjárbanda- lagsins voru haldnir um mál- ið á síðasta ári, en ekkert já- kvætt kom fram fyrr en Brezhnev hélt ræðu sína á iögunum. Afstöðu Atlantshafsbanda- iagsins í hugsanlegum viðræð um um að dregið verði gagn kvæmt og jafnt úr herstyrk í Evrópu er lýst þannig; 9 Gagnkvæm fækkun verð ir að samrýmast öryggishags munum beggja aðilja. Það táknar, að Rússar verða að kalla heim herlið til jafns við bandarískt herlið, sem flutt verður frá Þýzkalandi. Framhald á bls. 30 ÞETTA GERÐIST í APRÍL 1971 H ANDRITIN HEIyAl Fullgildingarskjöl um afhendingu íslenzkra handrita í dönskum söfn um voru undirrituð í Kaupmanna höfn 1. apríl_ — Danskt her- skip kom síðan með fyrstu hand- ritin, Konugsbók Eddukvæða og Flateyjarbók, til Reykjavíkur 21. apríl og voru þau afhent við há- tíðlega athöfn. — Þúsundir manna söfnuðust saman á hafnarbakkan um við komu liandritanna (2.—24). alþingi Skýrsla utanríkisráðherra um utan ríkismál (1). Umræður um Kennaraháskólafrum varpið (2) Útvarpsumræður um landhelgismál ið 2. 7). Umræður um fyrirhugaða Svartár- virkjun (6). Kennaraháskólafrumvarpið sam- þykkt (7). Forsætisráðherra á Alþingi: Staðan I iandhelgismálinu aldrei sterkari (7). Lanrfhelgistillaga ríkisstjórnarinnar samþykkt (8) Tillaga um bann við tóbaksauglýs- ingum samþykkt (8). Alþingi slitið. Hafði 309 mál til meðferðar. 77 ný lög samþykkt (8). VEDUR OG FÆRD Fjallvegir víða ófærir vegna snjóa (4). Hríðarveður víða um land (18). Færð á vegum víða góð 25) ÚTGERÐIN Heildarbolfiskaflinn frá áramótum 96 þús. lestir (•). Engin páskahrota syðra (14). MiktU afli berst á land á Norður- laadi (LS). Frystur humar, rækja oig hórpu- diskur flutt út fyrir 566,2 millj kr. 1970 (16). Mikill afli berst til Eskifjarðar (17). Afli að glæðast sunnanlands (18). Steindautt í netin sunnanlands (21). Japanskur togari á íslandsmiðum (25) Afli eykst hjá Grindavíkur- og Sandgerðisbátuim (29). Góður afli trollbáta (30). FRAMKVÆMDIR Loftleiðir opna nýja bílaleigu (1). Búnaðarbankinn opnar nýtt útibú í Mosfellssveit (1). Nýtt íþróttahús tekið í notkun I Hafnarfirði (1, 15). Vatnsveituframkvæmdir fyrir 44 millj. kr. á Akureyri í sumar (8). Kópavogur fær vatn frá Hitaveitu Reykjavíkur (17). Nýjum 115 lesta báti hleypt af stokkunum í Skipasmíðastöð Marsel íusar Bernharðssonar á ísafirði (17). 600 símanúmera aukning í Kópa- vogi (17). Nýjar og öflugar heitavatnsæðar finnast við boranir að Reykjum í Mosfellssveit (18) Samningur milli Akureyrarbæjar og heilbrigðisyfirvalda um mikla stækkun Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (18). Slippstöðin á Akureyri afhendir tvo báta, Arinbjörn RE 54 og Sigur berg GK (24). Bæjarstjórn Akureyrar samþykkir að ráðist skuli í nýja vatnsveitu (29). Mæðraheimili opnað að Sólvalla- götu 10 í Reykjavík (30). MENN OG MALEFNI Svanbjörn Frímannssort sicipaður seðlabankastjóri (8). Helgi Bergs, verkfræðiugiur. skip aður bankastjóri við Landsbanikana («L Jón Kristinsson íslandsmeistari í skák (14) Danski rithöfundurinn Thorkild Hansen í heimsókn (15). Argentiska skáldið Jorge Lois Borg es heimsækir ísland (15). Jón Skúlason, forstjóri símatækni deildar Landssímans, skipaður póst- og símamálastjóri (21). Sadruddin Aga Khan, yfirmaður flóttamannastofnunar SÞ, í heimsókn (22). Guðmundur Pálmason, forstöðumað ur jarðhitadeildar Orkustofnunar, ver doktorsritgerð við Háskóla íslands (27). Sigríður Þorvaldsdóttir hlýtur Menn ingarsjóðsverðlaun Þjóðleikhússins (27). FÉLAGSMÁL Eðvarð Sigurðsson endurkjörinn formaður Verkamálafélagsins Dags- brúnar (1). Jón Snorri Þorleifsson endurkjðr- inn formaður Trésmiðafélags Reykja- víkur (1). Þórður Þorkelsson endurkjörinn formaður Knattspymufélagsins Vals (1). Þórisós h.f. semur við starfsmenn um kaup og kjör (1). Gunnar J. Friðriksson endurkjör- inn formaður Félags ísl. iðnrekenda 2. 4). Þórir Jónsson endurkjörinn formað ur Skíðasambands íslands (14). Ráðstefna um geðheilbrigðismál (1T). Ólafur K. Guðmundsson endutlcjör inn formaður Bindindisfélaigs öku- manna í Reykjavík (16). Flokksþing Framsóknarflok.ksins haldið í Reykjavík. Ólafur Jóhannes- soa endurkjörinn formaður (16,—dö). Benedikt Blöndal, hrl., kosinn for- maður Lögimannafélagsins (22) Gunnar Snorrason kosinn formaður Félags kjötverzlana (22). 19. landsfundur Sjálfstæðisflokks- ins haldinn í Reykjavík. Jóhann Haf- stein kjörinn formiaður og Geir Hall grímsson varaformaður (27.—30.) Bæjarstjórn Akureyrar óskar eftir verzlunarskóla á Akureyri (28). Magnús Magnússon, prófessor, end urkjörinn formaður Fuglaverndunar félags íslands (30). BÓKMENNTIR OG LISTIR Sýning á málverkum Finns Jóns- sonar frá 1921—1925 (3). 182 íslenzk listaverk á sýningu í Danmörku (6). Rithöfundar samþykkja hugmynd menntamálaráðherra um fyrirlesara 1 nútímabókmenntum (7). Leikfélag Kópavogs sýnir söngleik inn Hárið (7). íslenzkir rithöflundar gera tillÖg ur um starfsemi norrænu þýðingar- miðstöðvarinnar (7). Brekkukotsannáli Laxness kvik- myndaður á íslandi (7). Drífia Viðar heldur málverkasýn- ingu (8). Kammerkór unglinga frá Bielfeld í Þýzkalandi syngur hér (8). Skólakór Rogers High School í Newport ,í Connecticut syngur hér (8) Árbók Ferðafélags íslands um Kjal veg. rituð af Hallgrími Jónassyni, komin út (8). Griski píanistinn Nicolas Contant inidis leikur hjá Tónlistarfélaginu (16) Leiikfélag Reykjavikur sýnir „Máv inn“ eftir A P. Chekov (17). Hafsteinn Austmann heldur mái verkasýningu í ReykjavLk (16). Rjögnvaidur Sógurjónsaoc^ píanó- leikari, leikur einleik með Sinfóníu h-ljómsveit íslands (28). Pólýfónkórinn heldur tónlcika í Landakotskirkju (29). Gunnar Kvaian, cellóleikari, hlýt- ur góð urrumæli í Kaupmannahöfn (29). Þjóðleikhúsið sýnir söngleikinn Zorba (30) Óx viður af Vísi, drög að sögu dagblaðsins Visis, eftir Axiei Thor- steinsson (30). SLYSFARIR OG SKAÐAR Guðmundur Kristjánsson, húsvörð ur í Mýrarhúsaskóla, 64 ára, bíður bana í bílslysi (2). Vélbáturinn Mímir ÍS 37 strandar undir Óshlíð (3, 4). Rúnar HaOdal Halldórsson, stuni. theol, 23 ára, bíður bana í bíislysi (6) Bragi Ingólfsson, 19 ára ferst á miðunum um borð í Baldri EA lð)4 (6). Vélbáturinn Andri KE 5 ferst og með honum þrír menn. Fjórir bjarg ast (8, 14) Vélbáturinn Sigurfari SF 5« ferst í Hornarfjarðarósi og með honuni átta menn. Tveir komust lífs af (18, 20). íbúðarhúsið að Fremri-Hlíð Vopnafirði brennur (18). Brezki togarinn Caesar H226 strand ar á Arnarnesi við ísafjarðardjúp (24 —30.) íbúðarhúsið að Suðurlandsbraut 104 eyðileggst í eidi (27). ÍÞRÓTTIR Halldór Guðbjörnsson. KR. sigraðt í víðavangshlaupi KR (6). Brynhildur Ásgeirsdóttir, Á. varð ísiandsmeistari í fimieikum kve«ma og Herbert Halldórsson, Á. í f«m-| leikum karia (6).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.