Morgunblaðið - 08.06.1971, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNl 1971
Ingjaldur Tómasson;
Hvernig kjósa skal
ÞAÐ er vart hugsandi, að nokk-
ur andlega heill íslendingur,
sem kominn er á kosningaaldur,
þurfi langan tíma til umhugs-
unar um það, hvernig kjósa
skuli til Alþingis i vor. Allir
landsmenn hljóta að viðurkenna,
að allt timabilið síðan vinstri
stjórnin féll, hafa orðið hér á
landi stórstígari efnahagsbreyt-
ingar til batnaðar en nokkurn
tíma hefir áður þekkzt. Islenzk-
ur iðnaður er að verða sam-
keppnisfær við erlendan á mörg-
um sviðum. Skipasmiðar eru nú
að mestu framkvæmdar hér
heima. Fallvötn og jarðhiti hafa
verið beizluð til framleiðslu á
ódýrri orku, svo við getum orð-
ið samkeppnisfær við önnur
lönd með allan útflutningsiðnað.
Allur iðnaður nýtur góðs af þess
um dásamlegu ómenguðu hvítu
kolum okkar, og -þá ekki sízt
frystiiðnaðurinn, bæði sjávarút-
vegs og landbúnaðar. Af stóriðju
höfum við árvissar fastar tekj-
ur, sem fara ört váxandi. Þar
að auki höfum við af henni
mjög miklar óbeinar tekjur,
sem dreifast um allt efnahags-
kerfið til stórbættrar afkomu
þjóðarinnar.
17. júní
íslenzkir fánar,
blöðrur, stráhattar, fíltliattar, rysler o.fl.
Heildsölubirgðir:
FESTI
__________ Frakkastíg 13 ■— Símar 10590—10550.
Af þessu tilefni langar mig að
segja eftirfarandi sögu:
Tveir bændur á Suðurlandi
bjuggu þannig, að lönd þeirra
lágu saman og bæjarlækur skipti
löndum. Þessi lækur var vel fall-
inn til virkjunar og hefði vel
nægt báðum. Annar bóndinn fer
þess á leit við hinn, að þeir
virki lækinn í félagi, svo að fyr-
irtækið yrði fjárhagslega hag-
stæðara báðum. Hinn bóndinn
tekur þessu fjarri; segir að
virkjun læksins verði ekki
gróðavegur. Lækurinn sé búinn
að renna svo „frá árilstíð" og
spurning hvort ekki sé óguðlegt
að vera nokkuð að snerta læk-
inn. Hinn bóndinn snýr heim
vonsvikinn, hugsar mikið um
þetta mál, og tekur ákvörðun
um að freista þess að virkja að-
eins fyrir sig. Þessi virkjunar-
framkvæmd gekk jafnvel betur
en bóndi hafði þorað að vona.
Næsta haust var virkjunin full-
gerð. íslenzkt afl lýsti upp hvert
einasta hús úti og inni. Öll hús
hituð og allar heimilisvélar
gengu fyrir sama afli. Þar við
bættist, að ekki þurfti að flytja
rándýra olíu og kol um mjög
langan veg. Það er alveg víst
að ég hefði ekki viljað standa
i sporum nágrannans, þegar
stöðin komst í gang, sitjandi í
hálfgerðu myrkri og kulda. Þess
skal getið að þessi bóndi, sem
vildi frekar nota rándýra er-
lenda orku en innlenda, sem var
við bæjarvegg, flosnaði bráðlega
upp af jörð sinni. Hvorn bónd-
ann hefðir þú, lesandi góður,
valið til forustu? Ég get ekki
neitað því að núverandi stjórn
hefur gert ýmislegt sem ég á
erfitt með að skilja. T.d. hinn
mikli fjáraustur til hinna. væg-
ast sagt vafasömu skóla og
æskulýðsmála, meðan ellihrumt
fólk og öryrkjar, sem ekkert
getur unnið, á óhjákvæmilega
erfitt að hafa til daglegra þarfa.
Vonandi verða þessi mál leiðrétt
innan tiðar. En þegar við ber-
um saman kosti og galla núver-
andi stjórnar, þá eru kostirnir
svo yfirgnæfandi, að gallarnir
hverfa í skuggann. Hvernig get-
ur nokkur maður látið sér detta
i hug, að þeir menn og flokkar,
sem eru í stjórnarandstöðu, og
geta aldrei annað bæði milli
kosninga og fyrir kosningar, en
staðið í stöðugu stórrifrildi,
bæði innbyrðis og út á við, eins
og illa vandir rakkar, ættu að
koma sér saman eftir kosning-
ar um stjórn landsins. Ég er
sannfærður um, að Guð vors
lands forðar þjóðinni frá því að
bíta í svo gallsúrt epli. Það
SOL-
BRÚN
ÁN
SÓLBRUNA
mm
SEA
&SKI
3UNTAM LO tiOH
John Lindsay hf.
SlM! 26400
ætti ekki að þurfa að minna
þjóðina á, að þótt sósíalísku
flokkarnir reyni með hinum
ótrúlegustu tilburðum að draga
inn sinar kommaklær nú rétt
fyrir kosningar, þá verða þær
fljótar að birtast að kosningum
loknum. Það getur enginn neit-
að því, að siðustu tvö kjörtíma-
bil hefir Sjálfstæðisflokkurinn
haft stjórnarforustuna og tekizt
það með meiri ágætum en dæmi
eru til um nokkra aðra ríkis-
stjórn. Helzt mætti likja henni
við fyrstu stjórn Hannesar Haf-
steins. Enda neitar því enginn,
að stjórnarforustan hefir byrjað
að framkvæma hugsjónir Hann-
esar Hafsteins um notkun fall-
vatna og stóriðju, og borið þær
fram til sigurs með miklum
myndarbrag, þrátt fyrir mjög
rætna mótstöðu „sósal“-aftur-
haldsins í landinu. Þetta nú-
tíma „sósíal“-afturhald er í eðli
sínu svipað og afturhaldsöflin
sem æstu bændur til símamót-
mælanna frægu, sem munu
hljóma í hugum Islendinga um
alla framtíð, sem ljót draugs-
rödd aftan úr forneskju. Ég er
viss um að Sjálfstæðisflokkurinn
kemur sterkari út úr þessum
kosningum en hann er nú, enda
er það höfuðskilyrði fyrir áfram
haldi velmegunar og framfara.
Það er líka skylt að þakka Al-
þýðuflokknum sinn góða þátt í
stjórnarsamstarfinu, auk fjöl-
margra góðra mála sem hann
hefir komið í framkvæmd fyrir
íslenzkt verkafólk fyrr og síðar.
Mér finnst margt bénda til þess,
að hann eflist í kosningunum.
Ingjaldur Tómasson.
Brenndir fingur
— og brostnar vonir
STJÓRNARANDSTAÐAN hefur
nú í fáti hent frá sér kosninga-
bombu sinni, landhelgismálinu,
og má segja að það sé heldur í
fyrra lagi, enda er mér ekki
grunlaust um að hálf illa hafi
tfl tekizt og fingurbruni af
hlotizt og hugsjónirnar sviðnað
og þar af leiðandi ónothæfar.
Og það vil ég ráðleggja ykkur
stjórnarandstöðumenn að aðgát
skal höfð í meðferð púðurs.
Annars bjóst ég við að kosn-
ingabomba okkar yrði kröft-
ugri. Nú, það kann að vera að
þetta sé nóg, þvi að öðrum kosti
hefði ávérki ykkar orðið meiri.
Ekki gat hjá því farið að manni
yrði hugsað aftur í tímann, þeg-
ar Framsóknarflokkurinn og Al-
þýðubandalagið kynntu sig í
sjónvarpinu. Alþýðubandalagið
með sinn mikla styrkleika og
sönnnu föðurlandsást, já það
mikla, að hinn stóri andans
jöfur, Magnús Kjartansson, vill
nú varlá orðið líta til austurs.
Já, tímarnir breytast og menn,
irnir meira. Og svo þegar Fram-
sóknarmenn fóru að tala um
sjómannskjörin. Leyfist mér
sem hef starfað sem sjómaður i
29 ár að spyrja: Hver voru við-.
brögð ykkar, þegar við sjómenn
irnir fórum fram á áhættuþókn-
un á stríðsárunum, þegar sigl-
ingar með ísvarinn ftsk gjörðust
sem ótryggastar. Munið þið eft-
ir viðbrögðum flokks ykkar i
því máli? Ef svo er ekki skal
ég segja ykkur þau. Áhættu-
þóknunin, er við sjómennirnir
fórum fram-á var svarað á-þann
veg, að hræðslupeningar skyldi
hún kallast. Og svo komið þið
fram fyrir alþjóð og ætlið að
telja háttvirtum kjósendum trú
um, að þið berið hag sjómanna
fyrir brjósti. Nei, því trúir eng-
inn sjómaður eða þeirra fjöl-
skyldur. Nú, svo er það Alþýðu-
bandalagið, eina stoð og stytta'
hins vinnandi manns. Ég þori að
ÓJafur Vigfússon.
fullyrða, að þar er lævi bland-
in umhyggja. Að sjálfsögðu
nota þeir þessa umhyggjutuggu
alltaf fyrir kosningar og ef þarf
að koma af stað verkfalli. Og
ég leyfi mér að halda því fraiy
að landhelgin væri komin i 12
mílur, þótt Lúðvíks Jósefssonar
hefði ekki notið við. Ég hef áð-
ur skýrt frá því hverja ég telji
afstöðu Sjálfstæðisflokksins og
mun ég því ekki ræða það frek'
ar hér. Nú með raforkuverðið til
Straumsvíkur, er Stefán' Jóns-
son talaði um, má óhætt telja
að hann hafi byggt á heldur
völtum forsendum.
Svo voru varnarmálin mjög
ofarlega i hálsi Alþýöubanda-
lagsmannanna. En mætti ég
spyrja: Úr hvaða flokki var sá
maður, er talaði um það á Al-
þingi 1945, að við Islendingar
ségðum hinum þá tapandi þjóð-
um stríð á hendur? Ég kynni
þéim þökk, serrí vildi fræða mig
þar um.
Ólafiir Vigfússon,
llávallagötu 17, Reykjavík.
Tilboð óskost
í OPEL CARAVAN STATION 1700 .áwj. 1964, skemmdan
eftir árekstur. Selst til niðurrifs. Bífreiðin er til sýnis að
Bílaverkst. Hlíðartúni, LágaTfelli, Mosfetssveit, sími 66216."
Tilboð leggist inn á sama ^stað.
Einnig er til sölu. á sama stað SKÓÐA OCTAVIA 1962 og
FOPD PICK UP árg. 1967.
4f
Fró Gogniræðskólo Keilovíkur
Innritun nemenda í 3, 4 og 5 bekk næsta vetur, fer fram
í skólanum 7,—10. júní kl. 9—12 og 2—4. Nauðsynlegt er
fyrir alla þá sem voru í skólanum á liðnum vétri og hyggjast
haida þar áfram námi, að tryggja sér skólavist.
FRÆÐSLURAÐ KEFLAVÍKUR.