Morgunblaðið - 08.06.1971, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR & JÚNÍ 19T1
31
.i
ísl. yfirmaður vefnað-
ariðnaðar Tanzaniu
Hafa verið gerðar áætlanir
um að koma á laggirnar 17
slíkum miðstöðvum í helztu
héruðum landsins, auk útibúa
og söluskrifstofa á smærri
stöðum.
Með því að setja allar
greinar vefnaðariðnaðarins
undir eina stjórn og verk-
smiðjur allar undir eftirlit og
umsjón sama aðila er ætlun
in að reyna að auka vefnaðar
framleiðsluna í þéim greinum
þar sem markaður er fyrir
hendi en draga úr offram-
leiðslu á ósöluhæfri og of-
framleiddri vöru. Einstakir
framleiðendur hafa til þessa
haft tilhneigingu til þess að
FYRRI hluta ársins 1970 var
sett á stofn í Afríkuríkinu
Tanzan íu samband fyrirtækja
er lúta að vefnaðariðnaði
landsins. Réð það til sín fram
kvæmdastjóra frá Islandi,
Inga Þorsteinsson, sem fyrr
á árum var kunnur íþrótta-
maður og setti á sínum tíma
upp nælonsokkaverksmiðju á
Akranesi.
Samband þetta, sem
skammstafað er NATEX, heyr
ir undir Þróunarstofnun
Tanzaníu. Er það nú þegar
orðið stærsti söluaðili vefnað
arframleiðslu landsins og er
fyrirhugað, að það sjái í fram
tíðinni um alla sölu á hvers
konar vefnaðarvarningi, sem
framleiddur er í Tanzaníu.
Ennfremur er sambandinu
ætlað að hafa yfirumsjón með
öllum útflutningi og innflutn
ingi á sviði vefnaðariðnaðar-
ins, ákveða vöruverð, hafa
eftirlit með gæðamati, ákveða
hvað framleitt er og hvar,
sjá um öflun markaða innan
lands og utan og stjóma dreif
ingu til smásöluverzlana í
Tanzaníu.
Aðalbækistöðvar NATEX mw—"- k' C. '
eru í höfuðborginni, Dar Es Meðfylgjandi mynd var ekin, þegar fyrsta sölumiðstöð NATEX var opnuð við Nkrumah-
Salaam, og þar var nýlega stræti í Dar Es Salaam. Sá sem klippir borðann, er P. Bomani, viðsikpta- og iðnaðarmáia-
opnuð mikil sölumiðstöð. — ráðherra Tanzaníu, en að baki honum stendur Ingi Þorsteinsson.
sinna fyrst og fremst þörfum
þeirra svæða, sem næst þeim
hafa verið og hafa þá lítið
getað sinnt framleiðslu til út
flutnings. úr þessu á að bæta
með tilkomu NATEX.
Til þessa hefur Tanzanía
einkum flutt út vefnaðarvör
ur til Bandaríkjanna, Kanada,
Bretlands og Svíþjóðar, auk
Afríkuríkjanna Kenya og Ug
anda, en nú er unnið a£
krafti að því að koma fram
leiðslunni á aðra markaði.
Mikil áherzla er á það
lögð við landsmenn — ekki
sízt kven fólkið — að nota.
heimagerða vefnaðarvöru, þar
sem hún er fyrir hendi og
byggja upp eigin tízkuiðnað
er byggist á þjóðlegum arfi,
fremur en láta vestræna tízku
frömuði teygja áhrif sín til
Tanzaníu.
Ingi Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri NATEX, er
sem fyrr sagði gamalreyndur
íþróttamaður og hefur hann
unnið ötullega að því að
koma á fót alls konar íþrótta
iðkun meðal starfsliðs NA-
TEX. Meðal annars hefur
hann stofnað knattspyrnufé-
lag. Liðið, sem hefur á að
skipa m.a. tveimur landsliðs
mönnum, æfir reglulega tviav
ar í viku. Þá er fyrirhuguð
þjálfun liða í tennis, körfu
bolta. og fleiri greinum. —
Ennfremur hefur Ingi hafið
útgáfu fréttabréfs NATEX,
sem sérstaklega er ætlað að
kynna starfsliðinu starfsemi
og markmið sambandsins og
einstakra greina þess.
-SADAT
Framliald af bls. 27.
vegabréfsáritana fyrir Egypta,
sem fram að þeim tíima höfðu
ekki getað farið úr landi. Með
brottvikningti Gomaa kippti
Sadat forseti burtu einni traust
ustu máttarstoð ríkisstjórnar-
irtrtár.
Hitt fylgdi í kjölfarið. Að
kvöldi fimmitudagsins 13. maí
voru forsetanum afhentar
lausnarbeiðnir fimm ráðherra,
þar á meðal hermálaráðiherr
ans, Fawzi hershöfðingja, og
Sami Sharaf, forsetaritara,
skuggalegs náunga, sem virð
ist hafa haft flesta þræðd í sín-
um höndum. Tveimur mínútum
eftir að forsetasnum voru af-
hentar lausnarbeiðnirnar var
skýrt frá þeim i Kairó-útvarp
inu, og á eftir voru iei'kin her-
göngulög. Forsetinn leit á þetta
sem tilraun til þess að blekkja
þjóðina og telja henni trú um,
að stjórnin og þar með talinn
forsetinn hefði misst völdin.
Vissulega má vera, að hér hafi
verið á-ferðinni tilraun tií þess
að steypa honum af stóli. Sam-
eiginleg lausnarbeiðni svo
margra ráðherra hlaut að vera
áhrifarík. Nasser forseti hafði
valið þessa menn og aðra, sem
síðan hafa verið reknir eða
hafa sagt af sér, til þess að
byggja upp Egyptaland eftir
ósigurinn i júní 1967. Að-
alskyssa þeirra var að umgang
ast Sadat eins og viðvaninig, að
hal'da að hann væri valdalaus
Ieikbrúða. Þegar hann sýndi
otvíræð merki þess, að hann
viídi stjórna eftir eigin höfði,
héidu þeir að þeir gætu verið
án hans. Þeir hafa komázt að
raun um, að minnsta kosti
í svipinn, að þeir höfðu á
röngu að standa.
Forsetinn hefur ekki aðeins
skipað nýja menn í þeirra stað
hann hefur hreinsað til í ráðu-
neytum þeirra. Menn gædd-
ir töluverðum hæfileikum en
takmarkaðri trúmennsku hafa
orðið að víkja. Allir, sem eitt-
hvað komu nálægt útvarpstii-
.kynningunni og hergöngulög-
unum, sem leikin voru 13. maí,
hafa misst atvinnuna, hversu
lítil sem hlutdeild þeirra hefur
verið og ómerkileg. Forsetinn
hefur lýst yfir þvi, að gengið
sé í garð nýtt tímabil einstakl-
ingsfrelsis, að lokið sé sknahler
unum (nema ef fyrir liggi leyfi
sakadómara), haldin hefur ver-
ið táknræn brenna á hlustun-
artækjum — þar á meðal hafa
ugglaust verið þau tæki sem
forsetinn fullyrðir að fundizt
hafi á skrifstofu hans — og
að endir hafi verið bundinn á
aðrar andstyggilegar ráðstafan
ir, sem varðveita öryggi einræð
isstjórnar. Þetta er ánægjuleg
tilhugsun, og múgurinn í Kairó
fór út á göturnar til þess að
láta í l'jóis hrifningu sina.
En er eitthvað hæft í þessu?
Sadat forseti kveðst hafa haf-
izt handa um að eyða „gömlu
valdamiðstöðvunum.“ Lausn
hans í bráð er sú að samneina
öil völd í eigin höndum. Þeg-
ar bezt lætur er ekki auðvelt
að vera vinsæll valdhafi í
landi, þar sem of margt fólk er
á of litflu ræktanlegu landi. Og
tímarnir eru langt frá því að
vera eins og bezt verður á kos-
ið, þegar engin lausn er sjáan-
l'eg, og ef til vilfl e'kki möguleg,
á hernámi Israelsmanna á Sinai
skaga. Menntaðir Egyptar eru
vissulega þreyttir orðnir á
klunnalegri og oft harðhentri
leynilögreglu, sem hefur rainn-
sakað starfsemi þeirra um ára-
bil En ástandið gæti' verið
verra — til dæmis eins og
ástandið í Irak — og hættan
er sú, að Sadat forseti einangr-
ist og reynd að stjórna eftir eiig
in geðþótta. Hann hefuf lofað
frjálsræði, en hann hefur einn-
ig hótað að „rnala" andstæðing-
ana. Svona hrjúft orðalag er
ekkert nýmæli í Egyptalandi;
vonandi eru þetta aðeins orð.
(Economist)
Raðhús til sölu
Til sölu er 9 herb. raðhús í Fossvogi ca. 190 ferm. að
flatarmáli. Húsið er ekki alveg fullklárað, en vel ibúðarhæft.
Verð aðeins kr. 3,2 millj. Útb. 2—2,2 miWj.
Nánari upplýsingar í síma 31283.
Bifvélavirki
eða maður vanur bílaviðgerðum óskast.
AUSTIN-þjónustan, sími 38995.
Hofnfirzhir mólnrameistnrar
Tilboð óskast í málun húsanna nr. 4—12 við Krókahraun,
Hafnarfirði. Verklýsing liggur frammi í húsinu nr. 6 við
Krókahraun.
Tilboðin óskast send afgreiðslunni fyrir 15. júni n.k.
HÚSEIGENDAFÉLAGIÐ.
Krókahraun 4—12, Hafnarfirði.
0,
Ballina
NÝ
[j- BRAGi ! Æ R I V I AFBRA' ÐS 1 GÐS i
L f/EKNI A
»••••••
■:•>
# Stiglaus, elektrónisk hraðastilling # Sama afl
á öllum hröðum # Sjdlfvirkur tímaroft # Tvöfalt
hringdrif # öflugur 400 W. mótor # Yfirólags-
öryggi # Hulin rafmagnssnúra: dregst inn í vél-
ina # Stdlskól # Beinar tengingar allra tækja.
&a/tííáír-
HAND-hrærívél
Fæst með standi og
skál. öflug vél með
fjölda tækia.
STÓR-hrærívél
650 W. Fyrir mötu-
neyti, skip og stór
heimili.
Bai/enip
VANDAÐAR OG FJÖLHÆFAR HRÆRIVÉLAR
Hræra • Þeyta • Hnoða • Hakka • Móta • Sneiða
Rífa • Skilja • Vinda • Pressa • Blanda • Mala
Skræla • Bora • Bóna • Bursta • Skerpa
♦ SlMI »44 20 + SVIHJROATA lO •
\