Morgunblaðið - 27.06.1971, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚNl 1971
COOOOOO OOOOO C
c
c
c
COOOOOOOOOOOC
43
það ekki i gamla daga? Hun
skeminti sér enn ágætlega.
Mary var svo sólbrennd, aS
hún sýndist ekki eins föl og hitt
fólkið, en það voru þreytu-
hrukkur við augun og munninn.
Hún hafði hamazt meira en flest
hitt fólkið.
—, Þetta er rétt hjá þér
Holly, þetta ætti að vera
mögulegt. En þú ættir að fara
upp, Nancy og vita, hvem-
ig henni Joybétíe Thomas líður.
Joybelle var nú orðin þarna
ein eítir af öllu ffóttafólkinu úr
storminum. Nancy fann hana
sitjandi uppi í rúminu, horfandi
kring um sig, eins og ráðþrota.
Hún hlaut að vera alveg ný-
vöknuð. Hún starði á Nancy,
rétt eins og hún hefði aldrei
séð hana fyrr.
— Hvar er ég? Nancy fannst
hún eitthvað kannast við þessa
spurningu, og hafði stund-'
um velt þvi fyrir sér,
hvort nokkur manneskja segði
hana í raun og veru. En nú
vissi hún, að þetta var eðlileg-
asta spuming, sem hugsazt gat.
Joybelle hafði verið tekin upp
meðvitundarlaus eða svo til,
undir tré og svo vaknað aftur í
herbergi, sem hún hafði aldrei
séð áður.
— Þú ert í sumarhúsinu hans
Carmody dómara. Lögregian
fann þig liggjandi undir tré. Þú
hlýtur að hafa dottið með höfuð-
ið á stein, eða þá eitthvað hef
ur fokið i höfuðið á þér. En
MiUiveggjaplötur
Hjóð- og hitaeingrara, spónlagðir báðum megin.
Þykktir: 4 cm og 7j cm.
Hagstætt verð. — Upplýsmgar í símum 20032 og 20743.
íslenzkl heimili í New York
óskar eftir reglusamri, barngóðri stúlku frá 1 september til
aðstoðar við heimilisstöf og barnagæz.u. Góðir frítímar. Ágætt
tækifæri fyrir stúlku, sem áhuga hefur á einhvers konar námi,
t. d. enskunámi við háskóla í New York.
Nánari upplýsingar bréflega hjá
Halldóri Þormar.
114 Melhorn Road,
Staten Island, N Y. 10314.
U.S.A.
Laugavegi 26 — Sími 15186
Hollenzku
korselettin
koniin
aftur,
í hvítu
og húðlit,
nieð og
án
renniláss.
Verð frá kr. 965.
lympí
annars viæðist allt í lagi með
þig-
Jafnskjótt sem Nancy fór að
tala, þekkti Joybelle hana aftur
og ofurlít.ill roði færðist yfir
fölt andJitið. Hún Lagðd hönd-
ina varlega á fleiðrið á enndnu.
Hún vildi reyna að vera virðu
Leg og hlédræg, en það tókst
ekki betui’ en svo. Nancy hélt
áfram að tala til þess að koma
henni úr þessum vandræðum.
- Ég komst elkki tiQ þeiss
að þvo þér, nema rétt i
fra.man. Það var komið hingað
með svo margt fleira fóik. Það
var orðin hreinasta hjálparstöð
hérna. Og ef þú vU'lt baða þig
núna, færðu ekki nema kalt
vatn. Rafmagnið er farið af.
Joybelle tók að brölta fram
úr rúminu, en sá þá, að hún
var ailsnakin og flýtti sér að
breiða ofan á sig aftur.
Nancy rétti henni baðslopp. —
Ég ætla að fara og sjá, hvort
fötin þín eru orðin þurr. En
fyrst skuium við athuga,
hvort baðherbergið er í lagi.
Þegar hún sneri kranan-
um var vatnið sem kom líkast
leðju, en svo varð það smám
saman hreint. Joybelle elti
hana. Þegar vatnið var orðið
hreint, fór Nancy inn í hitt bað-
herbergið þar sem hún hafði
hengt rennvot föt stúlkunnar.
Þau voru nú ekki orðin vei þuirr
en Nancy vissi, að Joybelle
mundi heldur vilja fara i þau
rök en þiggja föt aí henni. Hún
rétti fötin inn í baðherbergið.
Þegar þú ert búin að klæða
þig, skaltu koma niður og fá
morgunmat. Það er verið
að reyna að elda hann á arnin-
um rétt eins og í skógarferð.
Meðan hún stóð úti fyrir dyr-
unum þarna, heyrði hún í Holly,
sem sagði henni að koma niður
og borða. Þeim hlaut að hafa
tekizt eldamennskan á arninum
sæmiiega. - Ég kem eftir
nokkrar mínútur, kallaði hún á
mót.i.
Joybelle kom nú út úr bað-
herberginu, í kjól, sem var
meira og minna útataður og
kruklaður, en hún hafði greitt
sér og í annarri hendi hélt hún
á tösku, sem hafði fundizt hjá
henni — þetta var rauður plast-
poki, sem virtist það eina, sem
hafði ekíki lent úti í felJibyl. Það
hliutu að hafa verið snyrti-
vörur í honum, því að hún var
með roða á vörunum og fleiðrið
á enninu var að nokkru hulið
af andlitsdufti.
Ég verð að hringja tii hans
Andy, sagði hún.
— Það er ekki hægt. Síminn
er iíka úr sambandi.
Hverjir eru þarna niðri?
spurði Joybelie.
— Engir nema mamma og
Holly Norton og frú Risley,
ráðskonan. Carmody dómari og
Rick Armstrong eru einhvers
staðar úti að hjálpa. Alilir, sem
geta staðið á fótum eru að
hjálpa. Þú hefur enga hug-
mynd um, hvað þú hefur verið
heppin.
Jú, það hef ég. Þið hafið
verið mjög góð við mig
og þakka þér fyrir það.
Þakklátsemi var nú ekki
Joybelle sérlega eðlileg, enda
kom þakklætið með nokkurri
tregðu. Ég vil nú ekki svara
neinum spurningum heldur
ieysa frá skjóðunni og Ijúka
því af.
Nancy fann ilrninn af fleski
og kaffi, og langaði að fara að
borða, en hún sá eymdarsvip-
inn á Joybelle. Hún gekk rneð
henni inn í svefnherbergið aft-
ur og þær settust báðar á óum-
búið rúmið. Nancy beið.
Joybelle virtist eiga bágt með
að hefja máls.
Ég verð að hringja til hans
Andy, vegna þess, að . . . við
gi'ftum okkur fyrir tveimur dög-
um.
Hún þagnaði og beið eftir, að
Nancy segði eitthvað, sem gæti
gert hana vonda, en Nancy
sýndi ekkert af sér annað en
áhuga.
Ég hitti nú ekki oft fólk-
ið mitt, en mér finnst ég verða
að segja því frá þessu, Andy
hefur fengið góða atvinnu i Col-
TOT
Cospeá
— Skyrturnar eru þvegnar, en það fór of niikið st-ífelsi í vatnið.
umbus og við erum að flytja
okkur þangað. Ég fæ þar líka
vinnu og við ætlum bæði að
vinna en mér fannst ég verða
að segja foreldrum mínum frá
þessu — og þar var Andy á
sama máli. Hann ók mér því
þangað í kjörbúðarbílnum.
Hann flytu.r vörur í búðina
hérna á hverjum degi. Hann má
nú ekki flytja farþega, svo að
ef þú vilt kæra hann, þá gerðu
svo vel!
Nancy hélt aðeins áfram að
sýna áhuga, og Joybelle lét svo
Wtið að roðna en ekki svo lítið
að beiðast afsökunar. Hún hélt
áfram.
- Ég fékk far í báti eftir
vatninu að fossinum. Það
er situtt þaðan að bænum þeirra.
Maðurinn lofaði að sækja mig
aftur, eftir tvo kluklcutíma.
Mamma og pabbi urðu vond.
Þau halda, að úr þvi að ég er
gift, muni ég hætta að senda
þeim peninga. Og sannast að
segja sagði ég þeim, að svo væri.
Ég nenni ekki að fara að segja
þér frá þeim, því að þú mund-
ir ekki skilja það. Ég stóð ekki
við hjá þeim nema kluikkutíma
og beið svo hjá fossinum. Mað-
urinn kom ekki, og ég sá, að
óveðrið var að nálgast. Ég hélt
að þefta væri bara rigning og
lagði af stað kringum vatnið.
Ég vonaðist til að ná i síðasta
áætlunarvagninn. Ég hef sjálf-
sagt gert ykkur mikið ömak —
óviljandi — og Andy fer að
verða hræddur um mig. Ef þú
bara vissir, hvað aumingja
drengurinn hefur átt við að
stríða . . .
Nú var ailiri þolinmæði lokið
hjá Nancy.. — Vertu ek'ki með
þessa vitleysu. Hann hefur ekki
átit neitt við að striða umfram
alla aðra. Ég er fegin, að hann
hefur fengið góða vinnu og að
þú er gift — ef þú hefur verið
að sækjast eftir því. Komdu nú
og fáðu að borða. Það fer eng-
inn að spyrja þig neins.
Nú vor-u þau öll í eldhúsinu
að borða kolbrunnið flesk og
ilila steikt egg, ásamt brauði og
kaffi. Sumt af brauðimt
var brennt en annað al-
veg hvitt, en kaffið var gott og
ajildr virtust láta sér þetta vel
lika.
Holly og Mary heilsuðu Joy
bélle og spurðu um tóðan henn-
ar, en enginn spurði neins frekar.
Joybe.Ee Thomas var tekin eins
og hver annar sjáJfsagður
þáttur í þessari martröð,
sem fólkið hafði þurft að þola.
Ég vildi, að það væri ein-
hvern veginn hægt að halda
þessu heitu, sagði frú Risley.
Dömarinn hlýtur alveg að fara
að koma. En það er að minnsfa
kosti til nóg kaffi.
Báðir mennimir kornu og virt-
ust alveg uppgefnir. Gefið
þið mér bara kaffisopa, sagði
Phil, — og svo ætila ég í rúmið.
Ég er ekki eins ungur og hann
Riok. En fyrst þarf ég að segja
ylckur dáiítið. Hann beindi orð-
unum að Nancy en horfði á
JoybeEe. Mary fór með honum
inn í stofuma.
- Ég ætla að prófa þennan
mat, sagði Rick. Hann
maatti Wta verr út til þess að ég
vildi hann ekki.
Nú var komið gott útsýni yf-
ir vatnið og þau gátu virt fyrir
burt frá ys og |>ys.
ganialli hefð tiúna.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Nú ættirðu að reyna að komast eitthvað
Nautið, 20. apríl — 20. mai.
I»að er einskis nýtt að reyna að hanga í
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Háttvísin borgar sig. I»ú sérð ekki eftir iðjuseminni.
Krabbinn, 21. júní — 22. júií.
Reyndu að gera eitthvað got.t í kringum þig núna.
Ljónið^S. júlí — 22. ágúst.
Reyndu að njóta frjálsræðisins og sleppa kreddununi.
Meyjar, 23. ágúst — 22. septeniber.
I»að eru margir, sem þarfnast þín núna. Lít.tu í kringum þig.
Vogfin, 23. september — 22. október.
Þeir, sem eru fullir grunsemda gagnvart þér gera vart við sig.
Sporðtlrekinn, 23. október — 21. nóvember.
I»ú fíerð tækifæri til að tjá þig í dag.
Kogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Þú skalt endilega halda fram rétti þínum í dag. Ekki er
seinna vænna.
Steingeitin, 22. desember — 19.
Þú vcrður að leggja hart að þér
janiiar.
í dag, og reyndu að sinna því.
Vatnsbcrinn, 20. janúar — 18. fcbrúar.
Vinir og vandamcnn gera þér lífið leitt.
Kiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
t v iskarnir, 19. februar — 20. marz.
/ Reyndu að fara í skemmtiferð með ættingjum og vinum.