Morgunblaðið - 05.09.1971, Síða 22

Morgunblaðið - 05.09.1971, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1971 Við gluggann eftir sr. Árelius Níelsson Y Hundrað börn á einu ári HAFIÐ þið séð þrjár stórar bekkjardeildir koma fram á ganginn í stórum skóla að lokinni kennslustund? Hafið þið séð móður, sem kastar sér í angist yfir slcis- að barn sitt, sem liggur ná- fölt og meðvitundarlaust á börum, sem ekið er inn á sjúkrastofu í stórum spítala? Hafið þið komið inn í eina slíka sjúkrastofu og litið til barnanna, sem liggja 1 alls konar „strekki" og stelling- um eftir eina slysahelgi í borg? Getið þið hugsað ykkur all- an hópinn úr þrem stórum kennslustofum, meira og minna slasað fólk, axlarbrot- ið, fótbrotið, jafnvel með op- in innýfli, œpandi af kvölum eða algjörlega meðvitundar- laust í blóði sínu liggjandi á götunni? Hafið þið séð andlit föður, sem læknir flytur boðskap með þessum orðum: „Nei, því miður, sonur þinn mun aldrei fá mátt i fæturna framar. Mænan hefur skadd- azt og hann mun aldrei geta gengið.“ Og hafið þið nokkurn tima orðið samferða presti, sem verður að fara inn á heimili, þaðan sem systkinahópur lagði af stað syngjandi glað- ur að morgni og segja eða öllu heldur hvisla náfölum vörum: Þau koma aldrei heim aft- ur. Biilinn lenti í ægilegum árekstri og enginn Ufði af. Þau hafa látizt strax? Nei, þið hafið ekki séð neitt af þessu, sem betur fer, segið þið. Og þið hugsið: „Annað eins gerist aðeins í styrjöld- um einhvers staðar úti í heimi." Það er þó ekki svo. Þetta eru börnin, sem vísindaleg og þá um leið óhrekjandi stað- reynd taldi að slasazt hefðu og slasast mundu á þessu ári, sem yfir gengur bara hérna á Islandi í umferðinni. Árið 1971, samkvæmt áætlun sér- fræðinga og athugun. Og hver telur þá og vegur tárin, óttann, vonimar og vonbrigðin, angist og þján- ingu foreldra og ástvina þeirra barna, sem hafa slas- azt, misst heilsu ef til vill ævi- langt eða dáið eftir misjafn- lega langan tíma í meðvitund- arleysi og þrautum? Það getur enginn talið né vegið. Og þetta er aðeins á einu ári hjá þessari fámenn- ustu þjóð heimsins. Og þetta eru aðeins börnin, sem hafa slasazt í umferð- inni. En það slasast líka marg ir fullorðnir. Og það eyði- leggjast einnig mikil verð- mæti, en sleppum þvi. Bíllinn er að verða bani mannsins á margan hátt, ógn- valdur og eiturbyrlari, eyði- leggjandi efnahag og pen- ingagengi. Og svo er fárazt yfir þvi, að fólk kunni ekki umferðar- reglur og þar sé aðalorsökin. Jú, sjálfsagt er það orsök að einhverju leyti og vissulega þarf að vera meiri og mark- vissari umferðarfræðsla handa börnum. Og það hefur verið unnið þar að umbótum bæði af lögreglu og skólum og meira að segja í safnaðar- starfi hér í borginni. En vankunnáttan er ekki aðalorsök aukinna slysa í um- ferðinni. Þar eru of hraður akstur og kæruleysi ökumanna áreiðan- lega mestu og verstu orsak- imar. Varla kemur það kvöld, að ekki séu t.d. bifreiðar, sem ekið er i ljótum leik um aðal- götur borgarinnar með ofsa- hraða og ískrandi hemlum meira að segja eftir aðal- göngustræti fólksins Austur- stræti og inn í vinkilbeygjur Aðalstrætis. Þessi ljóti leikur sýnir flestu öðru betur það algjöra skilningsleysi, sem ríkir hjá mörgum gagnvart því böli, sem slysin valda. Og sannar- lega þyrftu að vera til regl- ur, sem gæfu leyfi til að sekta slíka ökumenn, sem oftast eða nær alltaf eru ungl- ingar, umsvifalaust háum sektum, þegar þeir eru sann- ir að sök fyrir augum veg- farenda. Fjárútlát virðist hið eina sem gildir. „Þar sem fjársjóður þinn er mun og hjarta þitt vera.“ Alltaf fjölgar þeim, sem teknir eru ölvaðir við akstur. En það er önnur sönnun þess, hvernig kæruleysið gref- um um sig í vitund fjöldans og tillitsleysi gagnvart heilsu og lífi annarra er yfirgnæf- andi. Unglingar fá alltof snemma ökuleyfi. Langflest slys verða hjá ungu fólki, sem fer of seint af stað og ætiar sér of stuttan tíma til áfangastaðar. Það er dýr mínúta, sem sviptir annan lifi eða heilsu. En framúrakstur er alltaf réttlættur með orðunum: „Ég þurfti að flýta mér.“ En í framúrakstri verða flest slys. Sama má segja um örygg- isbönd eða belti. Það verður að flýta sér svo mjög að nokkrar sekúndur þykja töf, þegar komið er í bifreiðina, og þvi verður sú töf vanrækt að gröf. Auðvitað mátti búast við auknum slysum eftir að hægri handar akstur hafði náð tökum. En samt er þetta meira en nokkurn af þeim svartsýnustu gat grunað. En ekki verður þar Eiftur snúið nú. Það verður því að hefja hið erfiða hlutverk, sem í því felst að kenna fólki til- litssemi og nærgætni, kurteisi og biðlund, sem gildir bæði í umgengi og umferð. Ekkert annað ráð er til. En þar verður að beita öllum til- tækum aðferðum og þá ekki sízt í uppeldi og fræðslu. Lög þurfa lika að koma til. Færa aldurstakmark öku- manna vægðarlaust upp til tvitugsaldurs og beita sekt- um við þá sem sýna kæru- leysi og grimmd. Það er grimmd að láta sig líf og heilsu samferðarfólksins minna skipta en nokkrar mín útur eða sekúndur þess, sem fer of seint af stað í nám, starf eða stefnumót. Hundrað særð börn, lemstr uð, slösuð eða látin er alltof stór hópur á einu ári á frið- artímum hjá fámennri þjóð, til þess að horfa á án þess að finna til né láta sig það nokkru skipta. Árelíus Nielsson. t Bróðir, mágur og föðurbróðir okkar, George S. Magnusson, lézt í Berlín 26. ágúst sl. John S. Magnusson, Edda S. Stefánsdóttir Magnusson, John S. Magnusson yngri, Stefán G. Magnusson. t Kristín S. Þorleifsdóttir, Bergstaðarstræti 46, andaðist 2. sept. á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Jarðarförin fer fram frá Dóm- kirkjunni þriðjudaginn 7. sept. kl. 10,30. Aðstandendur. t Útför Ingibjargar Sigurðardóttur, frá Byggðarholti, verður gerð írá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 8. sept. kL 3 e. h. Jón Guðmundsson. t Faðir okkar, Ingibergur Hannesson, frá Hjálmholti, Vestm.eyjum, andaðist á Hrafnistu 3. sept. Jarðarförin auglýst síðar. Börnin. t Innilegar þakkir tíl allra, sem auðsýndu samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, ÁSTU MÖLLER, Ægissiðu 92. Viglundur Möller. 1 .......................... t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför litla drengsins okkar, EGGERTS GARÐARS HILMARSSONAR. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Bama- spítala Hringsins fyrir einstaka umönnun í velkindum hans. Karolina Smith, Hilmar Th. Magnússon. — Skrípaleikur í Saigon Framhald af bls. 16. hann og Thieu segi af sér og bráðabirgðastjóm undir for- sæti t.d. forseta þingsins ann ist framkvæmd kosninganna. SiðferðiLegt markmið Bandaríkjamanna, segir New York Times, að hafi frá u:pp- hafi verið að sjá svo um að Suður-Vietnamar fái tæki- færi til að velja sér eigin stjórn. Þessar forsetakosning ar séu prófsteinn á það, hvort þessi stefna sé dæand til að mistakast. Fari svo, standi ekkert í vegi fýrir því að Bandaríkjamenn hætti með öllu íhlutum í Viet- nam og kalli heim allan sinn her. t Þökkum hjartanlega auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför, Þorvaldar Böðvarssonar, Þóroddsstöðum, Hrútafirði. Gróa M. Oddsdóttir og f jölskylda. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför, Ragnhildar Jónsdóttur. Fyrir hönd vandamanna, Bjarni Þ. Bjarnason. — Sigrí5ur Magnúsdóttir Framhald af bls. 32. mest hafa farið á námskeiðið í Belgiu til að æfa þau, því þar þurftu söngvararnir að hafa tiltæk 25 Ijóð. En hún ætlar að halda hér tónleika núna meðan hún er heima, hefur þó ekki ákveðið söngskiránia, því að hún kvaðst eiga ákaflega erfitt með að blanda saman ljóðasöng og óp eruarium. í vetur hefur Sigríður verið í skóla í Vinarborg, og við að safna ljóðum og óperum á söngskrá sina, og fyrir fram- tíðina. Nú færi að sjá fyrir endann á náminu, sagði hún. Enn er hún þó ekki tilbúin til að ákveða framtíðina og þvi frestaði hún tilboðS um að syngja fyrir tónleikastjórarun I Dusseldorf núna í Belgíu, með ráðningu þar í huga. — Ég á ýmislegt eftir að læra, sagði hún. Og í vetur fæ ég að gera ýmislegt í Vínarborg. Ég fæ að syngja með hljómsveit og karlakór rapsodíur eftir Brahms og næsta vor að halda sjálfstæða ljóðatónleika í Vín arborg. Sigríður sagði að keppnin í Gent í Belgíu hefði verið í tónleikaformi, þannig að allir keppendur sungu. Fyrstu verð laun voru tónleikahaldið á Listahátíðinni, sem fyrr er sagt, önnur verðlaun voru veitt belgískum söngvara og þriðju ungum og efnilegum söngvara og voru það peninga verðlaun. Þarna voru tvennir Ijóðatónleikar. Meðal annarra söngvara voru óporusöngkona frá Metropolitan Zilis Gara og söngvarinn Peter Zeres. 1 x 2 — 1 x 2 (24. leikvika — leikir 28. ágúst 1971) Úrslitaröðin: 21x — x22 — llx — lxx 1. vinningur 11 réttir—178.500,00krónur. Nr. 5078 (Hafnarfjörður) 2. vinningur 10 réttir — 5.800,00 krónur Nr. Nr. Nr. Nr. Nr. 241 1630 2972 3414 6600 Nr. 18868 Nr. 19993 (Akranes) (Akureyri) (Eyjafjörður) (Hvolsvöllur) (Reykjavík) (Reykjavík) Nr. 23077 Nr. 23364 + Nr. 31808 + Nr. 34295 + Nr. 34806 nr. 37717 (Reykjavík) (Reykjavík) (Raufarhöfn) + naflaus. Kærufrestur er ti'l 20. september. Vinningsupphæðir geta lækk- að, ef kærur verða teknar ti Igreina. Vinningar fyrir 24. leik- viku verða póstlagðar eftir 21. september. Handhafar nafnlausra seðla verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Get- rauna fyrir greiðsludag vinninga. GETRAUNIR — Iþróttamiðstöðin — REYKJAVlK.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.