Morgunblaðið - 31.10.1971, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1971
35
Dr. Amþór. Garðarsson við ra nnsóknir í Þjórsáarverum.
ráníuglum og tófum. Þá eru
þarna gífurlegar gulstarar- og
mýrarstararengjar. Þessar teg-
undir eru sennilega mjög nær-
íngarríkar og hugsanlega nær'-
ingarmeiri en víðast annars
staðar vegna áburðar frá gæs-
inni. Við þurfum því að vita
hvaða plöntur gæsin etur, af
hverju hún etur þessar tegund
ir, hve mikið hún etur, livað
hún tekur fyrir á hver jum tíma
og hverju hún skilar landinu
aftur. Og að því erum við að
■vinna. Þetta hvort tveggja, frið
sældin og fæðan, getur verið
það, sem heldur uppi stofnin-
um þarna.
— Hvað gera gæsirnar þá,
ef þær hafa ekki lengur þetta
land?
— Það er kannski aukaatriði
hvað þessar gæsir gera. Aðal-
atriðið er að það er nokkurn
veginn öruggt að kaffær-
ing Þjórsárvera mundi koma i
veg fyrir að um 3/4 hlutar heiða
gæsastofnsins geti tímgazt og
það má búast við að fækkun-
in í stofninum nemi sem næst
þessum hluta.
— Hvað þarf gæsastofninn
að vera stór, til að lifa af ?
— Um það er erfitt að segja.
Til eru gæsastofnar, sem fara
niður í 10 þúsund fugla. Og
sumar tegundir hafa farið enn
neðar. Ne-Negæsin á Hawaii
fór niður í 10—20 fugia. Og
nú er verið að reyna að ná
henni upp aftur i andagörðum.
— Nú er talað um að eyjar
muni standa upp úr vatninu,
jafnvel þó stærsta lónshug-
myndin verði að veruleika.
Gætu gæsirnar lifað þar ?
— Þær eyjar yrðu yfirleitt á
landi, sem nú er ógróið. Hæstu
öldurnar þama eru uppblásnar
núna. Og 25 þúsund gæsir
þurfa mikla beit. Hætt er við,
að þó þær verpi á eyjunum, þá
verði mikil vanhöld á ungun-
um. Raunar eru alltaf geysileg
vanhöld á ungum hjá heiða-
gæsinni. Eggin eru að meðaltali
4% í hverju hreiðri og eftir
mánuð eru ungarnir orðnir
tveir á par að meðaltali. Ung-
arnir þurfa sjáifsagt tiltölu-
lega snemma eggjahvíturíka
fæðu, þó þeir séu feitir þegar
þeir klekjast. Líklegt er að
flóarnir séu mjög mikilvægir
fyrir þetta fyrsta vaxtarskeið.
Og einnig fyrir fuglana, eftir
að þeir fella fjaðrirnar. Geld-
fuglinn er yfirleitt farinn þá.
Hann fer upp úr miðjum júní
til Grænlands og fellir fjaðr-
irnar þar, en kemur svo aftur í
september. Síðan koma þeir
svo til að verpa í Þjórsárver-
um. Tilgangurinn með rann-
sóknum okkar, er einmitt að fá
að vita hvað allar svona hreyf-
ingar merkja, og hvers vegna
gæsinni þykir bezt að vera í
Þjórsárverum.
— Hafið þið komizt að nið-
urstöðu á einhverju sviðá?
— Við erum búnir að afla
gagna um fæði gæsarinnar á
hverjum tíma, frá því í april
og fram í september. Það er
svipað því sem búazt hefði
mátt við. Um tímgunartímann
og fjaðrafellingartímann þarf
fæðan að vera auðug af pro-
teinum og fosfór. Fuglarnir
eru mjög viðkvæmir á varp-
stöðvunum. Fæðan verður lík-
lega að vera mjög næringar-
rík, þannig að viðkoman sé
a.m.k. jöfn dauðsföllunum,
annars verður fækkun í stofn-
inum. Þegar gæsán svo fer úr
verunum, þá er hún reiðubúin
tfl að fara yfir í hvaða fæðu
sem er, bara að það sé maga-
fylli — fæðu, sem hún þrifist
ekki af yfir varptimann. Lík-
legt er að stofnstærðin tak-
markist af dauðsföflum yfir vet
urinn, en ef viðkoman breyt-
ist, horfir málið öðru visi við.
— Hvað er þá næsta skrefið í
rannsóknunum ?
-— 1 vetur vinnum við
að þvi að koma niðurstöðum
saman. Fyrir liggur feikilega
mikil innivinna. Við kom-
um með fulia frystikistu af
efni. Við erum með mikið af
sýnisHornum af gróðri, sem
þarf að skilja sundur í teg-
undir og magasýni, sem þarf að
efnagreina o.fl.
— Og í vor?
— Þá vitum við á hverju gæs
in lifir yfir sumarið og hvaða
tímabil skipta mestu máli fyr-
ir afkomu stofnsins. Við vitum
þá hvemig við eigum að hegða
okkur næsta sumar, hvar á að
setja niður beitárreiti og þess
háttar. Næst förum við á siaö-
inn í maíbyrjun, til að athuga
hvað gerist fyrir varptímann,
t.d. hve þungar gæsirnar eru
þegar þær koma og hvernig
beit er háttað á þessum tíma.
Svo er landið sjálft fróðlegt. “
Þjórsárver eru þéttasta gæsa
byggð í heimi. Gæsabyggðirn-
ar sem rannsakaðar eru í Kan
ada, eru til dæmis 10 sinnum
dreifðari. Vera gæsanna í
Þjórsárverum hefur áhrif á
allt. Efnaskiptin eru mjög hröð
þarna. Efnarás i gróðri og jarð
vegi er hugsanlega hraðari
þarna en á öðrum sambærileg-
um svæðum. Reiknað er með 2-
gr. af gæsasaur á fermetra. Það
gerir 20 kg á hektara. Hann er
að eyðast allt sumarið og lik-
legt að það hafi áhrif á gróður
inn. Þá eru þarna iindasvæði
og mikið af lindavatni er nið-
ur um öll verin og það gæti
verið steinefnaríkt. Líkur eru
á því að allt lífkerfið þarna
starfi með nokkuð einstæðum
hætti. Það í sjálfu sér er næg
ástæða til þess að reyna í
lengstu lög að forða þessu
svæði frá eyðileggingu.
Mitt verkefni er að mestu
bundið við að rannsaka hvað
fer í gæsina og hve miklu hún
skilar, sagði Arnþór að lokum.
Svo taka jarðvegsfræðingar
við og athuga hve lengi efnin
eru að eyðast. Þegar við höf-
um það, þá held ég að við vit-
um hve mikils virði Þjórsár-
verin eru fyrir heiðagæsina.
En ekki hve mikils virði þau
eru að öðru leyti. — E.Pá.
Síðasta sending ai þessam vinsælu ódýru
motor- og kafíistellum (92 stk.) seldist upp
VORUM AÐ FÁ NÝJA SENDINGU - ÞÁ SÍDUSTU FYRIR JÓL
— Sendum í pósthröfu um lond ullt —
HAMBORG
Hafnarstrœti 1 — Bankastrœti II - Klapparstíg
1 stellunum eru eftirfarandi stykki:
Matarstell Kaffistell
12 matardiskar 12 bollapðr
12 djúpir diskar 12 undirskálar
12 millidiskar 12 desertdiskar
12 ávaxtaskálar 1 kaffikanna
2 steikarfðt 1 sykurkar.
1 sósukanna 1 rjómakanna.
1 lokfat
1 kartðfluskál.