Morgunblaðið - 05.01.1972, Síða 12

Morgunblaðið - 05.01.1972, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR 1972 Vítavert ábyrgðarleysi stjórnvalda í ávana- og fíknilyf jamálum Eftir Kristján Pétursson, deildarstjóra Þar sem ég mun fyrstur manna hafa vakið athygli opin- berra aðila á neyzlu Cannabis efna og Lysergic (LSD) hér á landi, tel ég rétt og skylt að skýra þjóðinni frá gangi þess- ara mála. Það athafna- og ábyrgðar- leysi, sem einkennt hefur aðgerð- ir, bæði fyrrverandi og núver- andi dómsmálaráðherra í þessu alvarlega máli, svo og dóms- málaráðuneytisins, er þess eðl- is, að ekki verður lengur hjá því komizt, að þjóðin fái að vita hverjir það eru, sem bera ábyrgðina á því vítaverða að- gerðaleysi, sem einkennt hefur þessi mál frá upphafi. Hinir fjöl mörgu foreldrar ungmenna og aðrir, sem eiga um sárt að binda vegna þessa vandamáls, eiga fullan rétt á aðstoð hins opin- bera, þar sem vandamálið er þjóðarinnar í heild. Ég leyfi mér að vona, að þessi grein megi verða til þess, að almenn- ingur láti þessi mál meira til sín taka, en hingað til og for- dæmi það ábyrgðarleysi, sem stjórnvöldin hafa sýnt í þessum málum. Ég mun rekja sögu þess ara mála i stórum dráttum, jafn framt skýrslu til dómsmálaráðu neytisins um sama efni. Á árinu 1969 framkvremdi ég lauslega athugun á neyzlu ávana- og fíkniefna i Reykja- vik og á Suðurnesjum, en þá athugun framkvæmdi ég sem áhugamaður og ekki samkvæmt tilskipunum dóms- eða lögreglu yfirvalda. Sú könnun leiddi þegar í ljós, að allstór hópur ungmenna hafði þá neytt Cannabisefna og LSD, sérstaklega þau, sem dval ið höfðu í Danmörku, Englandi og USA. Ég taldi þessa þróun svo al- varlega, að rétt væri að skýra strax dómsmálaráðuneytinu og landlækni frá þessu. Þann 7. okt. 1969 lét ég þessum aðilum í té skýrslu þar að lútandi, jafn- framt átti ég viðræður við Sig- urð Sigurðsson landlækni og Jón Thors, deildarstj. í dóms- málaráðuneytinu um þetta verð andi vandamál. Nefndir menn gáfu allgóð fyr irheit um aðgerðir af hálfu sinna ráðuneyta, en hins vegar varð reyndin sú, að ekkert var aðhafzt af hendi ráðuneytanna fyrr en 26. febr. 1970, þegar nokkrum embættismönnum var falið að stofna til samstarfs- hóps, til þess að ræða við sam- tök æskufólks og annað áhuga- fólk um vandamál i sambandi við neyzlu ávana- og fikniefna. Samstarfshópnum var falið að stuðla að því að viðhorf æsk- unnar til þessara vandamála skýrðust og að leita skyldi sam ráðs og samstarfs um viðbrögð gegn þeim hættum, sem af þessu kynni að stafa. Þá var samstarfshópnum heimilað að afla skýrslna og upplýsinga að þessu lútandi hjá embættis- mönnum og stofnunum. í sam- starfshópinn voru tilefndir pró fessor Þorkell Jóhannesson, Jón Thors, deildarstj., Örlygur Geirsson, ftr., Ólafur Jónsson tollgæzlustj. og Kristinn Ólafs- son, ftr. lögrelgustj. í Reykja- vík. Aliir þeir, sem samstarfs- hópinn skipuðu, voru opinberir starfsmenn, því varð að sam- komulagi að ráða áhugasaman starfsmann til að vinna að gagnasöfnun og varð Pálmi Fri mannsson stud. med. ráðinn til þessa starfa. Einnig var ákveð- ið að ég starfaði með samstarfs hópnum sem ráðunautur, vegna þeirrar gagnasöfnunar, sem ég hafði unnið að. Þessi samstarfshópur skilaði áliti til dómsmálaráðuneytisins síðla sumars 1970. Þar kom m.a. fram, að fíkniefnaneyzla væri sjáanlega verðandi vandamál hérlendis Qg því bæri að efla tollgæzlu og löggæzlu í þessum efnum. Ennfremur var lagt til að auka fræðslu um ávaha- og fikniefni í skólum og meðal al- mennings og beina þeim tilmæl- um til lækna að gæta fyllstu varúðar og aðgætni í ávísun lyfja, sem hafa ávanahættu i för með sér, en könnun hópsins hafði leitt í ljós, að sumir lækn ar sýna of litla gætni og jafnvel vítavert gáleysi i ávísun róandi lyf ja og svefnlyfja. Þá var einnig lagt til að senda löggæzlumenn og toll- gæzlumenn erlendis, til að kynna sér starfsaðferðir starfs- bræðra sinna i nágrannalönd- unum, svo og vandamál viðkom andi þjóða af völdum fíkniefna og ávanalyf ja. Seinni hluta ársins 1970 voru 3 menn sendir þessara erinda erlendis þ.e. til Norðurlanda, Bretlands og USA. Var þeim veitt mikil og margþætt fræðsla í þessum efnum, sem komið hef ur að verulegum notum siðan. 1 feb. 1971 voru i fyrsta skipti fengnir 4 menn frá lög- gæzlu og tolli, til að fram- kvæma athuganir og rannsókn- ir á neyzlu, dreifingu og smygli á ávana- og fíkniefnum. Hafa störf þeirra borið nokkurn ár- angur, eins og eftirfarandi skýrsla sýnir, en hún er gerð af þeim mönnum, sem annast hafa téðar rannsóknir: „Reykjavík 3. nóvember 1971. (skýrslan). Hafin voru störf við rann- sóknir á fikniefnum, ávana- og fíknilyfjarannsóknum þann 15. febrúar s.l., en okkur voru fal in þessi störf á fundi þann 9. sama mánaðar af Jóni Thors, deildarstjóra í dómsmálaráðu- neytinu. Á þeim fundi voru einnig Ólafur Jónsson, toll- gæzlustjóri og Kristinn Ólafs- son, fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavik. Við ákváðum þegar i upphafi að vinna úr þeim upplýsingum, sem fyrir lágu og safnað hafði verið saman frá lögreglu- og tollyfirvöldum á undanförnum mánuðum. Af þeim orsökum hafa umræddar rannsóknir mest beinzt að fortíðinni í þessum efnum, en minna verið hægt að sinna, sökum mannfæðar, að- kaliandi verkefnum, svo sem rannsóknum á innflutningsleið- um, eftirliti á ferðum grunaðra manna og húsum, þar sem neyzla fíkniefna og lyfja fer fram. Verulegur hluti rannsókn- anna hefur því verið fólginn í yfirheyrslum og skýrslutökum, en jafnframt verið unnið að upplýsingaöflun og úrvinnsiu þeirra. Meðal annars hafa þau störf verið í því fólgin, að leita hjá grunuðum aðilum, sem kom ið hafa erlendis frá, svo og í hibýlum manna, sem verið hafa undir eftirliti. Lokið er nú frumrannsóknum á um 90 málum, en alls hafa verið teknar um 510 skýrslur. Mestur hluti þessa skýrslu- fjölda byggist á samanburði þeirra aðila, sem fram hafa kom ið i frumskýrslu. Við þessar rannsóknir hefur m.a. komið í ljós, að langmest af þeim fíkniefnum, sem hing- að berst, kom i pósti. Önnur al- gengasta leiðin til að koma slík um efnum hingað er sú, að ís- lenzkir unglingar, sem dvalizt hafa erlendis koma með þau í farangri sínum, eða falin innan klæða. Þá hefur einnig upp- lýstst um nokkurt magn af fíkniefnum, sem unglingar hafa útvegað frá erlendum ferða- mönnum og varnarliðsmönnum á Keflavíkurflugvelli. Vitað er um a.m.k. 90 póstsendingar af Cannabisefnum erlendis frá og í nokkrum tilfellum um minnihátt ar magn af Lysergic (LSD). Útvegun þessara fíkniefna virðist i langflestum tilfellum vera hendingum háð, enda hef- ur ekki sannazt ennþá um sölu, nema i nokkrum tilfellum, á Cannabis og Lysergic (LSD). Ekki hefur unnizt timi til þess að kanna þær upplýsingar, sem lúta að notkun sterk verkjadeyfandi eða örvandi lyfja. Augljóst er þö, að notk- un örvandi lyfja í samneyzlu við áfengi er verulegt vanda- mál hérlendis, en útvegun þeirra lyfja virðist nær ein- göngu koma frá læknum. Sama gildir um misnotkun svefn- og róandi lyfja. Þessar rannsóknir og athug- anir okkar hafa þegar leitt i ljós, að notkun á Cannabis er mun algengari, en almennt var taiið í fyrstu. Vitað er um fjöl- menna hópa, sérstaklega skóla- fólks, sem neytir þessara efna í verulegum mæli, eða a.m.k. vikuiega. Efni þessi virðast vera notuð að staðaldri hjá fjölda unglinga, en vitað er um hundruð þeirra, sem neytt hafa þess að meira eða minna leyti. Notkun á Lysergic (LSD) er fremur sjaldgæf og ekki er vit- að um samfellda neyzlu á slíku efni, en aðalorsakir þess virð- ast vera að útvegun efnisins er erfiðleikum háð og jafnframt gætir nokkurrar hræðslu um af leiðingar neyzlunnar. Ekki hefur orðið vart við telj andi neyzlu á öðrum skynvillu- efnum. Augljóst er þegar, að þau verkefni, sem hér er við að glíma, eru alltof umfangsmikil, til þess að f jórir menn geti ann að þeim. Eins og fram kemur í upphafi þessarar skýrslu, hafa ýmsir veigamiklir þættir litla sem enga afgreiðslu fengið af þeim orsökum, en á því verð- ur ekki ráðin bót, nema veru leg fjölgun komi til á starfs- mönnum og aðstaða bætt, bæði er tekur til húsnæðis og tækja- búnaðar. Með hliðsjón af framangreind- um niðurstöðum leyfum við okk ur að gera svohljóðandi tillögur: 1. Öllum lögreglu- og tollgæzlu mönnum verði látin í té al- menn fræðsla um fíkniefni og ávana- og fíknilyf. Sér- staklega séu yifirlögreglu- þjónar, yfirtoliverðir, varð- Kristján Pétursson stjórar og valinn hópur ann- arra löggæzlumanna sérþjálf aður í þessum efnum. 2. Stofnuð verði sérstök deild, sem sjái um rannsóknir og at huganir á ávana- og fíkni- lyfjum og efnum. Sé sú deild það fjölmenn, að hægt sé að fela henni að annast slík verkefni fyrir landið allt i samráði við viðkomandi yfir- völd. 3. Starfsmönnum þeirrar deild- ar sé séð fyrir nauðsynlegri menntun. 4. Húsnæði deildarinnar og all- ur tækjabúnaður sé þannig, að hægt sé að koma á full- komnu skipulagi og hagnýt- ingu vinnuafls. 5. Fíkniefna- og ávana- og fiknilyfjasjúklingum verði séð fyrir nauðsynlegri læknis aðstoð og sjúkrahúsvist með stuttum fyrirvara. Rúnar Sigurðsson, lögreglum. Hrafnkell S. Steinþórsson, lögreglum. Birgir Vigfússon, tollv. Kristján Pétursson, deildarstj." Síðan núverandi ríkisstjórn tók við völdum, hef ég bæði átt viðræður við fjármála- og dóms málaráðherra um þessi mál og lagt fyrir þá skýrslur þar að lútandi, ennfremur við nokkra þingmenn. Allir virtust þessir aðilar hafa áhuga á að eitthvað þyrfti að gera til úrbóta, en við afgreíðslu fjárlaganna kom hins vegar í ljós hvaða hugur fylgdi máli, því þar var sam- þykkt að veita til þessara mála 700.000.00 kr., en ég hafði lagt fram tillögu um 4,9 millj. kr. til þessarar starfsemi, sem þó væri algjört lágmark. Þessar 700.000. oo kr. myndu því væntanlega nægja fyrir mat handa hass- hundinum og kaupi þess manns, sem annaðist hann. Má þvi með sanni segja, að hundurinn hafi étið upp fjárveitingu Alþingis til þessara mála. Mér er það fulljóst, að fjár þörfin til hinna ýmsu greina þjóðfélagsins eru mikil, en ég er þess fullviss, að engin ríkis- stjórn í V-Evrópu hefði af- greitt þessi mál á þann hátt, sem hér var gert. Ég hef heim- sótt ýmsar lögreglurannsóknar- deildir erlendis, sem annast ávana- og fíkniefnarannsóknir, þar hefur mér verið skýrt frá því að langauðveldast sé að fá peninga til slíkra mála, vegna þess að viðkomandi rikisstjórn- ir og stofnanir skilja þar, hvers konar ógnarvandamálum fíkni- efnin valda. Ég er þess fullviss, ef tekið hefði verið til greina aðvaran ir mínar 1969 og þá reynt að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að fyrirbyggja áframhald- andi útbreiðslu neyzlunnar, að þá stæðum við mun betur að vigi í dag. Áframhaldandi aðgerðaleysi stjórnvalda stefnir þessum mál um í algjöran voða, þvi út- breiðsla þessara efna vex með slíkum hraða, því verða að koma til strax kraftmiklar og raunhæfar aðgerðir, sem ekki verða metnar í krónum. Það er skoðun mín, að eftir 2 -3 ár verði ávana- og fíkni- efnaneyzla orðið verulegt vandamál hérlendis, ef ekkert raunhæft verður að gert og þá mun lítið þýða að tala um 5 millj. til þessarar starfsemi, jafnvel 20—30 millj. nægja þá ekki. Mér hefur stundum dottið í hug, hvort ekki væri hægt að fá þingmenn eða ráðherra á sín um sífelldu ferðalögum erlendis til að koma við á einhverju sjúkra húsi, þar sem fíkniefna- og fíkni- lyfjasjúklingar dveljast. Ég er viss um, að það væri þeim lær- dómsrik og holl ráðning og myndi jafnframt kenna þeim, að þessi mál eru okkur öDvnn við- koniandi, en ekki aðeins þeiin, sem við vandainálin eiga að st.ríða hverju sinni. Það er óhugnanleg staðreynd þegar við komandi aðilar vilja ekki eða gera engar úrbætur, nema helzt í þeim tilvikum, að vandamálið þrengi sér inn á þá sjálfa. Ann ars á ég enga skýringu á þvi að gerðaleysi sem einkennt hefur dóms- og lögregluýfirvöld í þessum málum frá upphafi. Ég hef eftir fremsta megni reynt að vekja athygli á þess- um málum, bæði með viðtölum við ýmsa ráðamenn, fyrirlestr- um og blaðaskrifum. Sáralitið hefur áunnizt. enda virðast ým- is aukaatriði ráða ferðinni, sem beinlínis þoka framvindu þess- ara mála í öfuga átt. Kg hef því ákveðið eftir 2Vt árs liaráttu við stjórnvöldin að liætta frekari tilraununi til að ná frani þeim grundvallarað- gerðuni, seni lifsnatiðsynlegar eru í þessum máliim, jafnframt mun ég ekki starfa að ávana- og fíkniefnarannsóknum við nú verandi aðstæðnr, enda óhugs- andi með öllu. Ég vil í þessu sambandi taka það fram, að ég hef að lang- mestu leyti fengizt við þessi fikniefnamál sem áhugamaður i mínum frítíma. Þá vil ég sér- staklega þakka lögreglustj. á Keflav.flugv. Birni Ingvarssyni fyrir þann tima, sem hann hef- ur veitt mér frá mínu starfi við tollgæzluna á Keflav.flugv., til að sinna þessum málum. Eftirleiðis mun ég vísa því fólki, sem þarf á aðstoð að halda, til dóms- og heilbrigðis- málaráðuneytisins eftir því sem við á hverju sinni, en von- andi verða þeir ekki í erfiðleik um að leysa vandamál þessa fólks. ÖIlu því fólki, sem til min hefur leitað með sín vandamál varðandi neyzlu ávana- og fíkniefna og jafnframt hinum, sem veitt hafa mér ómetanlega aðstoð við rannsóknir þessara mála vil ég sérstaklega þakka drenglyndi þess og ósérhlífni. Eins og framangreindar tillög ur til dómsmálaráðuneytisins bera með sér, varðandi skipu- lag og uppsetningu rannsókn- ardeildar á fíkniefnum og ávana- og fiknilyfjum, sést greini- lega hversu langt er í land að við getum sinnt lág- markskröfum í þessum efnum. Þess vegna verða allir að taka saman höndum og knýja strax fram nauðsynlegar aðkallandi aðgerðir og láta stjórnvöldin skilja það afdráttarlaust, að þau eru fyrir fólkið í landinu. Hestamenn Hef flutt vinnustað minn frá Faxatúni 9, Garðahreppi, að Kirkjustræti 8, Reykjavík, sími 26745. Stefán R. Pálsson, söðlasmiður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.