Morgunblaðið - 05.01.1972, Side 27

Morgunblaðið - 05.01.1972, Side 27
MORGUNIBLAÐEÐ, MTÖVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1972 27 Smyglið: Nlu eigendur NfU niaims aí áhöfn Selfoss við- urkenndit við yfirheyrslur í gær að eigra áfengi það og tóbak, sent í fyrradag fannst í skipinu í Beykjavikurhöfn. Leit í skipinu var haldið áfram í gær, en meira hafði ekki ftmdizt í gærkvöldi. Rannsókn ntálsins heldur áfram. Grunur um smygl þetta vakn- aði, þegar skýrslum erlendis frá bar ekki saman við skýrslur þær, sem bryti skipsins gaf heima. Hingað kom Selfoss frá Randa- ríkjunum. Lin Piao. — Lin Piao Fra.mhald af bls. 2 f Sovétríkjunum telja sér- íræðingar í málum Kína, að Chou En-lai forssetisráðherra eigi vandræði framundan. — Er álitið að Mao muni áður en lýkur snúast gegn Chou og akella skuldinni á hann fyr- ir allt, sem aflaga hefur farið og mun fara í náirani framtíð. Á þetta sór í lagi við um hrak- farir stefnu Kínverja í Suður- Asíu, sem Chou hefur að mestu ráðið. Þá er einnig talið að Chou verði gerður ábyrgur ef vaentanleg heimsókn Nix- ons Bandarikjaforseta í febrú- ar ber ekiki þamm árangur, , »em Mao ætlast til. Þótt sovézikir sérfræðingar vari við því að leggja of mikia áherzlu á utainríkismálin þeg- ar rætt er um ágreining meðal leiðtoganma í Kínia, benda þeir jafniframi á að þar skipti utan- fíkismálin meira máli en í flestum löndum öðrum. Benda þeir í því sambandi á áberandi tengsl milli þesis þegar komm- únistar í Indónesáu gerðu með stuðnin.gi Kínverja, misheppn- aða byltingartilraun þar í landi í septemiber 1965, og menininigarbyltin/garinnar í • Peking, sem hófst þá strax á eftit. Tvö-af fyrstu fórnardýr- um þeirrar meniningarbylting- ar voru þáverandi borgar- stjóri í Pekiing og Liu Shao- chi, sem báðir voru tengdir byltmgartilraundrmi í Indó- ■ nesíu. Á uama hátt telja sovézkir Kínafræðingar að tvö utan- ríki'smál hafi átt sinin þátt. í að fella Lin Piao í ónáð. f fvrsta lagi stefnan gagnvart Víet- nam, sem leiddi til minnlkandi áhrífa Kína og aukinna áhrifa Sovétríkj amnia hjá yfirvcldum í Hanoi, og í öðru lagi sú á- kvörðun Maos að taka upp við ræður við Nixon, en Lin var algjörlega andvígur því. í Moskvu eru flestir sanin- færðir um að Chou sé na.’Stur á listanum. Fyrrverandi leið- togar Rauðu varðliðanmia gleyma því ekki hvernig her- inn snerist gegn þeim um það leyti sem menningarbyltÍTi'g- in var að renna út í sandirnn, og þá ekki heldur ákveðimni framlkomu yfirvaldanna undir forustu Chou. Þegar þeir rísa upp að nýju, eða fá Mao á sitt band, má búast við að hefjist í Kíma örlagaríkt tíimabil. Þannig lýkur grein Murarka í Obseiver, en annar fróttarit- ari blaðsirus, Neal Ascherson, bætir við: — Fregmin um að sjúkdómafræðirngar hafi stað- fest að lfk Lin Piaos væri íundið, staðfestir fyrri fregnir bandarísku leyniþjónustunnar um lát hane. (Sömu heimildir höfðu þó áður dregið úr trú manina á sannleiíksgiidi frétta þaðan með því að láta það ber- ast að Mao væri eimnig lát- inn). Ef Chou En-lai er í vefkri aðstöðu og hugsaniegt fórnair- dýr Maos, væri það hrein tímaeyðsla fyrir Nixon að heimisækja Peking nú. í stað þess að vera maðurinn með stjórnasrtaumana, reyndist Chou þá brotið hálmstrá fyrir Bandaríkjamenn að styðjast við. Félli hann tækju róttæk öfl fljótlega við stjórninni, sem gætu steypt Kína út í nýja byltingarólgu. Vestrænir Kínafræðingar eru hins vegar sammála um að áhrif þeinra, sem stóðu að menningarbylt- ingunni haíi farið minnkandi ár frá ári að undanförnu, og aðstaða Chou En-lais sé nú mjög sterk. — Malta Framhald af bls. 1. Fundur var haldinn í dag í að- alstöðvum Atlantshafsbandalags- ins í Brússel, þar sem fulltrúi Breta gerði grein fyrir viðræð- unum við Mintoff. NATO hefur látið Breta um allar samninga- viðræður, frá því að bandalagið flutti stöðvar sínar frá Möltu í sumar, að kröifu Mintoffs. Vitað er að Bandaríkjamenn hafa mikl ar áhyggjur af þessu máli vegna 6. flota Bandaríkjanna, sem er á Miðjarðarhafi og af ótta við að sovézki flotinn fái aðstöðu á Möltu. — Bukovsky Framhald af bls. 1. hafa dreift óhróðri um Sovét- ríkin á erlendri grund. Bukovsky er þekktUr á Vestur löndum fyrir að hafa haldið því fram að Sovétstjómin setti póli- tíska andstæðinga sína á geð- veikrahæli. Hann var handtekimn 29. marz sl. 10. nóvember sl. lýsti nefnd lækna því yfir að hanin væri heill á geðsmunum og gæti mætt fyrir rétti. Fann bjarg í bóli sínu ÞAÐ gerðist helzt til tiðinda á Bíldudal um áramótin, að 4 lesta bjarg gerði sig heima- komið í bóli Páls Kristjáns- sonar að Ási. PáU var stadd- ur í eldhúsinu þegar þennan óvænta gest bar að garði. Þess ber að geta að engin slys urðu á mönnum. Það var um hálf tiu leytið að kvöldi 30. desember, að bjarg þetta kom æðandi niður hlíð Bildudalsfjéills og stefndi ’ á Ás. Hélt það rakleiðis gegn um útidyr hússins, gegnum svefnherbergisdyrnar og hopp aði upp í rúm Páls. Ekki er hægt að fullyrða um hvernig Páli leið þegar hann kom að þar sem bjargið lá í rúmi hans, og hafði að auki brotið gólfið, en vafalaust hefur hann þakkað æðri máttarvöld- um fyrir að hafa kennt svengdar. I Tíðindamaður Mbl. á Bíldu- dal tjáði okkur í gær, að ráð- gert væri að mylja grjótið með loftpressu inni i svefn- herberginu, þar sem óhægt væri um vik að koma þvi út sömu leið og það kóm inn. — Stríðs- yfirlýsing Framhald af bls. 28 þjóðfélaginu og veita opinberum starfsmonnum laun á borð við almenna Launþega. Upphaflega byrjaði mismunarins að gæta, er Kjaradómur synjaði um hækk- un á árinu 1964. Tvisvair hefur fengizt leiðrétting á kjörum op- inberra starfsmanna og hefur þá hækkun orðið allmikil i prósentu tölu. Með siðustu samningum frá í desember 1970 tókst að ná sam- ræmi í launum og til þess að halda jafnvæginu er nauðsyn á að opiinberir starfsmenn fái sömu kjarabót og hinn almenni launþegi. „Allar stökkbreytingar eru óheppilegar," sagði Kristján Thorlacius, „en nauðsynlegt hef- ur verið að laga misræmið með miklum prósentuhækkunum, svo að ríkið yrði samkeppnisfært um vinnuafl." 1 síðustu samningum voru hækkanirnar samþykktar í áföngum og er einn áfanginn þegar eftir. Vitnar ríkisstjómin raunar til þess áfanga i bréfi sínu ti'l B.S.R.B. „Ef þvi er haldið fram nú af rikisstjórnirmi," sagði Haraldur Steinþórsson, „að við eigum ekki rétt á þeim 14%, sem samið var um i áföngum á hinum almenna launamarkaði, þá er það um leið mjög alvarleg ásökun til fyrrver- andi fjármálaráðherra um það að hann hafi samið af ríkisvald- inu og veitt opinberum starfs- mönnum 14% kjarabót umfram það, sem þeir áttu rétt á.“ Aðspurðir um það, hvort stjórn B.S.R.B. hefði ekki mátt eiga von á öðrum viðbrögðum ríkisistjórnarinnar við beiðni bandálagsins um viðræður, sv£ir- aði Kristján Thorlacius: „Við- brögð ríkisstjórnarinnar hafa valdið okkur mikium vonbrigð- um. Skömmu eftir stjómar skiptin ritaði forsætisráðherra B.S.R.B. bréf, þar sem hann ósk- aði eftir sem vinsamlegustu og nánustú samstarfi við bandalag- ið. Okkur finnst þetta harla ein- kennilegt handtak til vináttu," sagði Kristján, og bætti við: „Aldrei fyrr hefur ríkisváldið synjað B.S.R.B. um viðræður, en við vonum í lengstu lög að ríkis stjórnin átti sig á réttlátum kröf um, þó að framkoman gefí raunar ekki tilefni til þess“ . „1 bréfi ríkisstjómarinnar er bæði rætt um það að veita opin- berum starfsmönnum aukinn samningsrétt og neitað að tala við okkur. Þetta hljómar nsest- um eins og skrýtla," sagði Krist- ján. 1 B.S.R.B. eru nú um 9 þúgund meðlimir. 1 svoköiluðum B- flokki, þ.e. flokkunum sem hæst laun eru í, eru aðeins 185 opin- berir starfsmenn, sem bandalag- ið semur við. Þar að auki eru þar 60 alþingismenn, 7 ráðherr- ar og 5 hæstaréttardómarar, Yf- ir 57% allra opinberra starfs- manna eru í 13. launaflokki og neðar, sem þiggja laun á bilinu 21 þúsund til 26 þúsund krónur án vísitölu. Sem dæmi um starfs- menn Pósts og síma má nefna, að 80% allra starfsmannanna, sem eru 1296, eru í 16. launa- flokki og neðar. 8 starfsmenn símans eru í svokölluðum B- flokki. Aliir opinberir starfs- menn, sem eru í 10. launaflokki og neðar, myndu teljast til lág- launaflokka og mikiil meirihluti opinberra starfsmanna er á sama launasvæði og Alþýðusam- band Islands hefur samið um. „Við viljum gera samninga," sögðu þeir félagar, „og losna við Kjaradóm." Á fundinum afhentu fulltrúar stjórnar B.S.R.B. blaðamönnum eftirfarandi greinargerð um þetta deilumál bandalagsins við ríkisstjórnina: Síðdegis hinn 30. desember 1971 móttók stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja bréf frá fjármálaráðherra, þar sem birt er svofelid ályktun rikis- stjórnarinnar: „Ríkisstjórnin telur ekki grundvöll til endurskoðunar á kjarasamningum opinberra starfsmanna frá 19. desember 1970, enda koma (11 áfangahækk-1 a*tir skv. þeim á árinu 1972. ' Rikisstjórnin ákvað í málefna saimningi sinum að sei n> .: löggjöf um réttind ol sk\ iuui opiniberra starfsmanna. so: . : þeim samningsrétt og niun hún i þegar upp ur næstu árainótum skipa nefnd til þess að undirbúa þá löggjöf.“ Að kvöldi þess dags var hald- inn sameiginlegur fundur stjóm- ar B.S.R.B. og Kjararáðs, þar sem einnig voru mættir vara- menn. Samþykkti fundurinn einróma að mótmæla þessari synjun rikis- stjórnarinnar og því lagabroti að taka ekki upp viðræður við bandalagið. Jafnframt samþykkti fundur- inn að kalla saman aukaþing B.S.R.B. síðar í þessum mánuði vegna þessa máls. LAGABROT 1 lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanma er ákveð- ið að~krefjast megi endurskoðun- tir kjarasamnings, ef almennar og verulegar kaupbreytingar verði á samnángstimabili. Náist ekki samkomulag aðila með samningaviðræðum innan mánaðar frá kröfugerð, þá skal sáttasemjari taka kjaradeiluna til meðferðar. Beri sáttastarf ekki árangur, skal Kjaradómur hafa lagt dóm á ágreiningsefni áður en 3 mánuðir eru liðnir frá upphafi uppsagnarfrests. B.S.R.B. hefur frá því það öðl- aðist samningsrétt mörgum sinn- um gert sams konar kröfur og nú. Hefur af beggja hálfu jafn- an verið fylgt ákvæðum kjara- samningalaganna um fram- kvæmd viðræðna. Stundum hef- ur náðst samkomulag á viðræðu- stigi, en i önnur skipti hefur málið gengið til Kjaradóms. Nú hefur það hins vegar gerzt, að ríkisstjórn hafnar með sér- stakri ályktun í upphafí kröfum samtakanna, án nokkurra við- ræðna eðá rökstuðnings og frem- ur þannig lagabrot. B.S.R.B. viil leggja áherzlu á það, að enginn getur fyrirfram vitað hvort þær samningaviðræð- ur, sem lögin gera ráð fyrir, leiða til samninga eða ekki. Hefði þó sérstaklega mátt vænta þess að samniingar gætu tekizt nú, þar sem fyrir ári tókst í fyrsta skipti að gera heildarsamninga, án þess að dómstólar væru til kvaddir. Hafði stjórn B.S.R.B. auk þess ærna ástæðu til að ætla, að rikisstjórnin tæki upp samningaviðræður, eins og lög gera ráð fyrir, þar sem forsætis- ráðherra hafði skömmu eftir stjórnarskiptin ritað bandalaginu bréf, þar sem óskað var eftir sem vinsamlegustu og nánustu samstarfi. ÁSTÆÐUR FYRIR KRÖFUNNI UM ENDURSKOÐUN SAMNINGA Á árinu 1962 fengu opinberir starfsmenn lögfestan takmarkað an samningsrétt, og er beinlínis tekið fram i lögunum að hafa beri hliðsjón af kjörum laun- þega, er vinna við sambærileg störf hjá öðrum en rikinu. Þetta leiddi til þess, að í fyrstu samningum 1963 fengust fram verulegar leiðréttingar á kjörum opinberra starfsmanna. En sú leiðrétting stóð aðeins skamman tíma, þvi að á árinu 1964 synj- aði Kjaradómur um 15% kaup- hækkun, sem þá hafði orðið á almennum launamarkaði. Við gerð siðustu kjarasamn- Inga opinberra starfsmanna var þessi staðreynd viðurkennd af fjármálaráðherra i sameigin- legri yfflrlýsingu samningsaðila, en þar segir svo: „Þá er það forsenda fyrir gerð þessa samnings, að laun ríkisstarfsmanna hafa farið si- lækkandi í samanburði við laun á almennum markaði frá árinu 1964, þegar Kjaradómur treyst- ist ekki til að dæma ríkisstarfs- mönnum 15% kauphækkun, sem á því ári varð á almennum launamaLrkaði.“ Sú hækkun, sem gerð var með samningum opinberra starfs- manna fyrir ári, var við það miðuð að ná þeim launum, sent: raunverulega voru greidd á hiíH am svökaiiaða frjálsa launa-i aarkaði. Vegna þess hve kjörin höfðu dregizt langt aiftur úr, var ekkl talið fært að koma á leiðréttingu öðru visi en i fjórum áföngurtl og ekki að fuilu fyrr en 1. júlí j 1972. Þegar nýi launastiginn væii kominn til framkvæmda, áttá hann að endurspegla það launa- kerfi og þá samsetningu launa, sem rikti á frjálsum launamark- aði, en um það háfði fjármála- ráðuneytið sjálft aflað sérstakra upplýsinga. Þetta var viðurkennt af rikisstjórninni í yfirlýsingu fjármálaráðherra frá 19. desem- ber 1970, en þar segir orðrétt: „1 samræmi við stefnu áður* greindira laga um kjarasamninga (lög nr. 55/1962) er leitazt við I þessum samningum að ná sem mestu samræmi mUli launa fyrir störf hjá ríkinu og þeirra launa, sem nú eru greidd á almennum virinumarkaði fyrir sambærUeg störf.“ * 1 ályktun rikisstjórnarinnaf frá 30. desember sl. er það fært fram sem eina ástæðan fyrir synjuninni, að opinberir starfs- menn eigi eftir að fá áfanga- hækkanir á árinu 1972. Er þannig reynt að gefa ti) kynna, að leiðréttingar í samn- ingum opinberra starfsmanna hafi verið fyrirmynd hinna nýjú samninga verkalýðsfélaganna. Þetta er byggt á þeim regin- misskilninigi, að opinberir starfs- menn haffl. með fyrsta áfanga verið búnir að fá fullar leiðrétt- ingar saman borið við aðra. Synj un ríkisstjómarinnar yrði hins vegar þess valdandi, að launa- kjör opinberra starfsmanna færu á ný að dragast aftur úr, og það áður en fuUri leiðréttingu frá fyrri tíð væri náð, og stæðu op- inberir starfsmenn þá í sömu sporum og eftir synjun Kjara- dóms 1964. Kjarabætur þær, sem verka- lýðsfélögin sömdu um i nýgerð- um samningum, veita meðlim- um þeirra hlutdeild í aukinni þjóðarframleiðslu og bættri af- komu atvinnulífsins. Eru þær þannig í samræmi við loforð rik- isstjórnarinnar í stjórnarsáttmál anum. Á sama hátt er nú eftir að semja um hlutdeild opinberra starfsmanna í aukinni þjóðar- framleiðslu. 1 samningaviðræðum við opin- bera starfsmenn nú um endur- skoðun kjarasamninganna hefði að sjálfsögðu verið athugað, hver hlutur þeirra ætti að vera í almennum launahækkunum og hvernig hann ætti að skiptast á milli hinna lægra launuðu og þeirra, sem við betri launakjör búa. Krafa B.S.R.B. um endurskoð- un launakjara. þeirra 8—9 þús- und starfsmanna, er vinna hjá rifki og sveitarfélögum, er þann- ig ekki ósk um að skapa meiri! forréttindi fámenins hóps há- launamanna, heldur krafa um réttlátan samanburð við þau launakjör, sem greidd eru hjá öðrum. MÓTSAGNAKENND VINNUBRÖGÐ Á sama tíma, sem ríkisstjórn- in fremur brot á gildandi lögum um takmarkaðan samningsrétt opinberra starfsmanna og synjar um eðlilegar samningaviðræður, þá er því hampað að hún hygg- ist setja nýja löggjöf, sem veiti opinberum starfsmönnum fullan samningsrétt. Samtök opinberra starfsmannA hafa oft gert ályktanir, þar sem krafizt er fulis samningsréttar og þar með verkfallsréttar. Samningsréttarmálið hefur vei> ið mjög rætt að undanförnu inn- an B.S.R.B. og er þess að vænta að innan skamrns verði settar fram húgmyndir samtakanna í þessu efni. Það hefði verið eðlilegra og heppilegra, að viðræður ríkis- valdsins og samtakanna i þessu þýðingarmikla máli hefðu ekki verið tengdar þeim sérkennilegu vinnubrögðum, sem ríkisstjóm ( in hefur viðhaft nú.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.