Morgunblaðið - 30.01.1972, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 30. JANUAR 1972
SKATTFRAMTÖL
Pantið tímanlega í síma 16941
Friðrik Sigurbjörnsson, lög-
fræðingur, Harrastöðum,
Fáfnisnesi 4, Skerjafirði.
SKATTFRAMTÖL
Sigfinnur S'gurðsson, hagfr.,
Barmahlið 32, simi 21826,
eftir kl. 18.
INNRÖMMUM
alls konar myndir. Rammalist-
ar frá Hollandi, Þýzkalandi,
Kína og ItaMu. Matt gler.
Rammagerðin,
Hafnarstræti 17.
SKATTAFRAMTÖL
og reikningsuppgjör. Fyrir-
greiðsluskrifstofan Austur-
stræti 14, 4. hæð, sími 16223.
Þorleifur Guðmundsson, —
heima 12469.
SKATTFRAMTÖL — BÓKHALD
Þorvarður Elíasson
Hagverk sf.
Bankastræti 11,
símar 26011, 38291.
UNG PORTÚGÖLSK STÚLKA
, óskar eftir að komast í sam-
band við íslenzkan karlmann
fneð hjónaband fyrir augum.
Tilboð sendist Mbl. sem
fyrst merkt 521.
VERZLUNARHÚSNÆÐI til leigu
Vel innréttuð búð með sýn-
ingarskápum. Sérhiti og raf-
lögn. Sanngjörn leiga. Laus
strax. Uppl. í síma 13960 kl.
1—6 e. h.
STÚLKUR — KONUR
Menn á öl'lum aldri með
mikla möguleika, menntun,
íbúðir, fyrirtaeki, óska kunn-
tngsskapar yðar. Pósthóif
4062 Rvk.
SVÚLKA ÓSKAST
Áreiðanleg stúlka óskast —
bæði til heimHs- og annarra
starfa. Herbergi getur fylgt.
Uppl. að Háteigsvegi 26.
POSTULÍNS LniR
Postulíns Btir, franskir, ný-
komnir ásamt fjölbreyttu úr-
vali af margs konar efni fyrir
tómstundaiðju.
Kirkjumunir Kirkjustræti 10.
VEFSTÓLL
12 skafta, til sölu
í Verzl. Kirkjumunir
Ktrkjustræti 10.
SKATTFRAMTÖL — BÓKHALD
Herbert Marinósson
Bergþórugötu 1
sími 26286 og 20032 á kvöld-
m og um helgar.
TRÉSMIÐIR
Ungur maður óskar eftir að
komast í nám hjá húsasmiða-
meistara. Upp4. í síma 43275
1 á sunnudag.
SILFURHÚÐUN
Siffurhúðum gamla muni. —
Upplýsingar í síma 16839 og
I 85254.
]--------------------------
IBÚÐ ÓSKAST
Ungur reglusamur maður
óskar eftir að taka á leigu
j herbergi eða IHIa íbúð. Upþl.
í símum, 15581 og 21863.
DAGBOK
Vér vitum að þeim sem Guð elska, samverkar alit til gfóðs.
(Róm. 8.28).
í dag er sunnudagtir 30. janúar og er það 30. dagur ársins
1972. Níu vikna fasta. Tunglmyrkvi. Almyrkvi & tungli 30. janúar
Tungi er lágt í vestri í Reykjavík, þegar hálfskngginn (daufur)
byrjar að færast yfir það id. 08.02. Alskugginn fylgir á eftir
ld. 09.11, en hyiur ekki allt tunglið fyrr en kl. 10.35, stundar-
fjórðungi eftir tunglsetur í Reykjavík. Árdegisiiáflæði kl. 6.30.
ÁltNAD HIjIIiLA
80 ára er mánudaginn 31.
janúar Ragnar Thorarensen.
Hann tekur á móti gestum á
heimili dóttur sinnar og téngda
sonar Safamýri 91.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Hóliiifríður Ge-
orgsdóttir, verzlunarmær og
Guðmundur Ingi Pétursson, sjó-
maður, Hjallavegi 52, Rvik.
FRÉTTIR
Kvenfélag Hallgrímskirkju
heldur fund mánudaginn 31. jan
kl. 8.30 í Félagsheimili kirkjunn
ar. Sýndar verða myndir með
skýringum. Félagskonur mega
bjóða roeð sér gestum. Kaffi-
veitingar.
Heiðagæsin í Þjörsárvenim
nefnist erindi, sem Arnþór Garð
arsson flytur á samkomu hjá
Hinu islenzka náttúrufræðafé-
lagi í L kennslustofu Háskól-
ans, mánudagskvöldið 31. janú-
ar ld. 8.30. Um fátt hefur meira
verið rætt en heiðagæsar-
stofninn í Þjórsárvemm og ör-
lög hans í sambandi við virkj-
anir. Arnþór hefur rannsakað
þennan stofn sérstaklega, og
mun víst marga fýsa að heyra
frá hans hendi skýringar á
þessu vandamáli. Samkoman er
ölliim opin, en þess má geta, að
á samkomum félagsins geta
menn gerzt féiagar. Samkomur
eru haldnar síðasta mánudag
hvers mánaðar, og hafa þær ver
ið mjög vel sóttar, enda fjallað
um efni, sem mörgum er hugleik
ið um þessar mundir, þegar allt
snýst um varnir gegn mengun
og leiðir til heilbrigðara lífs
með náttúruskoðun. — Fr. S.
GAMALT
OG GOTT
Varúð
Ef hrafn flýgur á móti þér,
þá þú ferð að heiman, eða hátt
uppi í loftinu, það merítír, að
þér mun illa ganga og þér er
bezt að snúa heim aftur og lesa
góðar bænir og fara svo fram
þinn veg í nafni drottins. —
(Hndr. i Lbs.)
(Úr íslandsalmanakinu).
Aimennar jpplýsingar um lækna
þjónustu í Reykjavík
eru gefnar í símsvara 18888.
Lækningastofur eru lokaðar á
laugardögum, nema á Klappar-
stíg 27 frá 9--12, simar 31360 og
11680.
Vestmannaeyjar.
Neyðarvaktir lækna: Símsvarí
2525.
Munið frímerkjasöfnun
Geðvemdarfélagsins.
Pósthólf 1308, Reykjavik.
Næturlæknir í Keflavík
28., 29. og 30.1., Guðjón Klem-
enzson.
31.1. Jón K. Jóhannsson
; , I,
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74
w opið sunnudaga, þriðjudaga ,
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur ókeypis.
Náttúrugrrlpasafnið Hverfisgötu llfiw.
Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og
sunnud. kl. 13.30—16,00.
Ráðgjafarþjðnusta Gcðverndarfólas*-
Ins er opin þriðjudaga kl. 4.30—6.30
síBdegis að Veltusundi 3, stmi 12139.
ÞJónusta er ókeypis og öllum heimil.
SÁ NÆST BEZTI
Ung stúlka kom til geðlælknis.
„Ég er í miklum vandræðum," sagði hún. „Ég tala látlaust við , ,
sjiálfa mig.“
„Það er ekki hættulegt/' sagði læknirinn, „þetta gera margir."
„Veit ég það, en þér ættuð að heyra orðbragðið!"
ÞVÍ ÆTTIRÐU EKKI AÐ SYNGJA, SÁL MÍN LÍKA?“
99
Leið mín lá á dögnnum út
Grandann, alla leið út í Ör-
firisey, eða Effersey, eins og
hún var líka nefnd hér áður
fyrri. Það var bjart veður,
sást vel til fjalla. Allur er nú
Grandinn orðinn öðruvísi en
áður var, þegar hann stóð
tæpast uppúr á háflóði, all-
ur þakinn þara og þangi, og
það gat stundum verið sleipt,
þegar við smápollamir í
henni Reykjavík millistriðsár
anna vomm að fikra okkur
út í Eyju á sunnudögum, til
þess fyrst og fremst að leita
ævintýra, og ekki siður til að
leika okkur saman, eins og
stráka var þá siðnr.
Venjulega fórum við út í
Eyju um nónbil, eftir að hafa
verið á yngri-deildarfundum
hjá séra Friðrik í KFUM á
Amtmannsstígnum, en það
þótti enginn sunnudagur, ef
ekki var sóttur fundur, og sá
ekki maður með mönnum,
sem þar var elcki.
Annars var Grandinn m.a.s
í eina tíð notaður, sem
geymslustaður fyrir krækling
sem útvegsbændur i Reykja-
vík sóttu í beitu upp í Hval-
fjörð. Var svo kræklingurinn
geymdur á Grandanum, og
hlóð hver útvegsbóndi smá-
steinum utan um sinn krækl-
ing, og það þótti hinn versti
þjófnaður að stela kræklingi
úr svona friðuðum reit.
★
Utan við Effersey eru sker
in, þar sem Hólmakaupstaður
stóð. Þar voru hús, ailt til
þau voru flutt í Effersey á
18. öld. Sagt var, að úti í
skerinu mætti finna jám-
hringa, sem skip hefðu verið
fest við, en aldrei hafa þeir
fundizt, þrátt fyrir leit mja.
Klemenzar landritara, sem
skráði sögu Reykjavíkur.
Og við vesturhluta eyjunn
ar var hinn víðfræga Hohn-
ens Havn, og aldrei fer ég
svo um Effersey, að ég minn
ist ekki kvæðis sjálfs Nóbels
skáldsins, Halldórs Laxness,
ÚTI
Á
VÍÐAVANGI
sem samnefnt er og hljóðar
svo:
★
„Hví gengur þú í Effersey
svo stúrinn ?
Auminginn, munar þig í
hinsta lúrinn?
Trúirðu á lokakrít í Holmens
Havn,
iieldurðu að dauðinn sé það
tyrkjarán
sem veki hr jáða önd i
Algeirsborg
við óm frá minarettu, sólhvit
torg?
Nei ekki þessa
einokunarvegu'.
Óttastu hina fomu skipalegu,
láttu ekki fifiin finna lík
þitt hér!
Komdu að skoða kvikmyndir
hjá mér!
Yertu ekki bam að flana
þennan f janda,
það flæðir bráðum hvort sem
er á Granda.
Lát huggast bam, þvi hér
mun batna í ári
og hér mun iétta vinnuskorti
og fári;
katipgjaldið hækkar, sál mín,
senn að mun:
fimmkall á tímann fyrir
uppskipun.
Hiustaðu á útvarpsóma
timans nýja
og unn þeim góðs sem
kolahegrann vígja.
Yíxill þinn kaupist — kannski
— i stofum bánkans.
Króna Jnn stígur þrátt fyrir
lækkun fránkans.
Barninu skánar af
brjósthryglunni þúngu.
Sérðu ekki blómgast
útgerðina úngu,
aiþingi gefa hefðartóninn
rika?
Því ættirðu ekki að syngja,
sál mín, líka.“
★
Örfirisey, Effersey, hefur
verið sorglega skemmd af
mannavöldum, eins og hún
var þó tilvalinn þjóðgarður
Reykvíkinga, sem engan hefði
átt sinn líka. Sjálfsagt reyn-
ist það of dýrt, að rífa þessi
„mannvirki", sem þarna hafa
verið reist, til grunna. Það er
eins og fyrri- daginn sann-
leikur, að betra er að byrgja
brunninn, áður en barnið er
dottið ofan i hann. Og það er
’ ^ " Sc-Q&SjP-.y
Bátarnir á fjörukambinum í Örfirisey. (Ljósm. Sv. Þorm.).
sjálfsagt hægast að vera vit-
ur eftir á. En óvíQa í heimin-
um held ég megi finna ann-
an eins glæsistað og Effers-
ey til þess bæði að byggja
á hóflega veitingastaði, jafn-
vel notaleg hótel, og jafn-
framt yrði hún dýrmæt perla
þeim, sem útivist og náttúru-
skoðun unna.
Þegar ég tyllti mér á malar
kambinn, norðanmegin, þar
sem allir bátamir standa, lit-
skrúðugir og fínir, sá ég 7
hrafna stinga saman nefjum
niðri í fjörunni, og auðvitað
var umræðufcfnið illa farinn
og sjálfsagt úldinn hrúts-
haus, en það er eitt mesta
hnossgæti krumma, samanber
það sem stendur í gamla hús
ganginam: „ég fium höfuð af
hrúti, hrygg og gæruskinn".
Alveg er ég viss um, að
hrafninn er okkar vitrasti
fugl, enda hefði Óðinn alfað-
ir aldrei verið bendlaður við
krumma, ef hrafninn hefði
ekki manneskjuvit. Og gam-
an er að sjá þá hoppa, stóra,
svarta, og það slær á þá fjólu
blárri slikju, mjög dökkri.
En áfram geng ég um Bff-
ersey. Spurningin er þessi:
Má efcki banna allar frekari
byggingarframíkvæmdir í eyj
unni, þar til menn eru á eitt
sáttir um, hvemig hægt er að
bjarga þvi af henni sem bjarg
að verður? Ennþá er fjaran
tiltölulega hrein, ennþá má
finna skemmtilegar gönguleið
ir á éyjunni, innan um bát-
ana, en þá vil ég ekki missa
úr eyjunni. Yzt í norðri er
mikið um alls kyns ristur á
grágrýtishellum. Þær má til
með að varðveita, jafnvel
þótt sumar séu frá síðustu
styrjöld. Svo má gera smekk
leg skjól fyrir norðangarran
um, reisa bekki, snyrta það
til af eyjunni, sem ennþá er
laust við byggingar. Þá er ég
viss um, að margur leggur
leið sína í Effersey, og að ég
nú ekki tali um, hve róman-
tíkin mun verða þar í mikl-
um blóma hjá ungum serri
öldnum. Ég legg tií, að stofn
uð verði samtök Effersey tií
verndar. Mörg samtökin yit*
lausari hafá séð dagsins ljós,
Og nóg um Eyjuna í bili.
— Fr.S.
Stofnum Örfiriseyjarsamtök!