Morgunblaðið - 30.01.1972, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNINUDAGUR. 30. JANÚAR 1972
31
Skyldi tekinn af lífi
daginn sem Bengal féllij
Mujibur Rahman lýsir fangelsis
dvöl sinni í Vestur-Pakistan
— VERST af öllu var að
vera haldið svo lengi einum í
fangelsisklefa. Ég hafði ekk-
ert samiband við umheiminn,
engin blöð, engar bækur og
ég fékk engin bréf frá fjöl-
skyldu minni. Fangaklefamir
voru alltaf dimmir og þröngir
og ég sá engan 1 alla þá 9
mánuði, sem ég var í fangelsi,
nema liðsforingjana, sem
gættu mín og fölkið, sem við-
statt var gerviréttarhöldin yf-
ir mér. Ég sá aldrei Yahya
Khan (fyrrverandi forseta
Pakistans) og hitti Ali Bhutto
ekki fyrr en ég hafði verið
látinn laus.
Þannig lýsir Mujibur Rah-
man, forsætisráðherra Bangla
desh, dvöl sinni i fangelsdnu
í Vestur-Pakistan í viðtali við
bandaróska blaðið Newsweek.
Rahman segir þar ennfremur,
að það hafi verið tUgangs-
laust að halda uppd vömum
fyrir herrétti þeim, sem átti
að dæma í máli hans, þar sem
Yahya Khan var yfirboðari
réttarins og samtámis sá aðili,
sem fyrirskipaði réttarhöldin.
Yahya Khan hafði sagt, að
hann (Rahman) hefði framið
Xandráð og það yrði að refsa
honum, en Rahman svaraði:
-— Það kemur ekki til mála
fyrir mig að verja mig, sagði
ég við dómarana. — Segið
Yahya að gera hvað sem hon-
um sýnist.
Mujibur Rahman kveðst
brátt hafa komizt að raun
um, að réttarhöldin hafi verið
yfirskin eitt til þess að geta
hengt hann og hafi átt að
fara fram rétt tii þess að sýn-
ast gagnvart almenningsálit-
inu 1 heiminum. Því sagði
hann við kúgara sína: — Far-
ið til fjandans. Ég hirði ekk-
ert um þessi réttarhöld. Síðan
var réttarhöldunum lokið í
skyndingu og Rahman sagt,
að hann væri fundinn sekur
og að það ætti að hengja
hann.
En það var ekki fyrr en her
Pakistans hafði tapað Bengal,
að örðugleikarnir hófust fyr-
ir alvöru. Þá var stríðinu rétt
að ljúka við Indland og
Bhutto í þann veginn að kom-
ast tíl valda. En Yahya Khan
tilkynnti, að hann vildi láta
hengja Rahman sama dag og
Bengal féili. Bhutto sagði, að
sllíkt væri útilokað, þar sem
svo margir hermenn Pakist-
ans væru fangar Indverja.
Rahman tekur það síðan
fram, að Bhutto hafi þannig
reynt að vemda hann.
— Nótt eina, segir Rahman,
— voru ráðstafanir gerðar til
þess að drepa mdig í fangels-
inu þrátt fyrir aðgerðir Bhutt-
os til þess að hindra Yahya i
að framkvæma það áfórm
sitrt. Þess vegna fól Bhutto
yfirmanni lögreglumannanna,
sem áttu að gæta öryggis
míns, að ná mér út. Hann lét
flytja mig úr fangelsinu kl.
þrjú að nóttu og geymdi mig
m-i 'v. pnili
Mujibur Kahman
síðan í húsi sínu í tvo sólar-
hringa, unz hann lét flytja
mig með leynd á annan stað.
Þar var ég síðan hafður i þrjá
eða fjóra daga. Hinn 26. des
ernber var ég síðan fluttur i
hús nokkurt skammt frá
Rawalpindi. Þar hitti ég Ali
Bhutto, nýorðinn forseta, sem
tilkynnti mér, að ég væri
frjáls maður og eftir það hóf-
um við viðræður okkar.
— Ég grét ekki í fangels-
inu, ég grét ekki þegar rétt-
arhöldin hófust yfir mér, en
ég grét, þegar ég snéri heim
aftur og sá mitrt dásamlega
gullna Bangladesh.
(Þýtt og endursagt
úr Newsweek)
DRAGA UR SAKKA
RÍNNEYZLU
Washington, 29. jan. NTB
STJÓRN stofnunar þeirrar i
Bandarikjimiun, sem hefur eftir-
lit með matvælum og eiturefn-
um, hefur nú sett hömlur á sölu
og neyzlu sakkarins, sökum þess
að gruntir leikur á að það gett
valdið lírabbameinl.
Rannsókn hefur verið gerð á
rottum, sem fengu fæðu, er að
fimrn hundraðshlurtum var sakka
rín. Komu þá í Ijós blöðruæxli á
dýrunum og eru vttsindamenn um
þessar mundir að kanna hvoirt
þau eru iltkynja.
Stjórn stofnunarinnar bendir
á, að sakkarín hefur verið notað
í matvörur í meira en 80 ár án
Fargjalda-
hækkun
— á S-Atlants-
hafsleiðum
Genf, 25. jan. AP—NTB.
ALÞJÓÐASAMBAND flugfélaga
— IATA — tilkynnti í dag, að
flugféiögin sem héldu uppl
ferðum yfir Suður-Atlanshafið,
hefðu orðið ásátt um að hækka
fargjöld og flutningsgjöld á leið-
inni milli Suður-Ameriku og
Evrópu, Mið-Austurlanda og Af-
ríku. Verður hækkunin 7% á far-
gjöldum, sem reiknast í dolliir-
um og gengur í gildi 1. apríl nk.
Ráðstöfimin er gerð til að mæta
gengislækkun dollarans.
Þá fengu fimm suður-amerísk
flugfélög leyfi til að selja far-
miða báðar Ieiðir á nokkru Iægra
verði.
þess að sýnt yrði, að efnið væri
skaðlegt. Og það magn saikka-
rins, sem rottunum var gefið,
var geysimikið — eða sem svar-
aði til þess að maður hefði drukk
ið 875 flöskur af svaladrykik með
gervisykri.
Þær hömliir, sem stofnunin set
ur á sakkarínsneyzlu miðast við,
að enginn noti meira en eitt
gramm af sakkaríni á dag — en
það jafngildir 60 stykkjiun af
minnstu sakkaríntöflum, sem
framleiddar eru.
Verð á loðnu til
f rystingar og
í beitu
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt svohljóðandi fréttatilkynning
frá Verðlagsráði sjávarútvegsins:
Á fundi Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins i gær varð samkomulag
um eftirfarandi lágmarksverð á
loðnu frá byrjun loðnuvertíðar
til 15. maí 1972.
Fersk loðna til frystingar og í
beitn: Hvert kg. kr. 4.00. Óheim-
ilt er að dæla framangreindrí
loðnu úr skipi. Verð á loðnu til
frystingar miðast við það magn,
sem fer til frystingar. Vinnslu-
magn telst innvegin loðna að frá
dregnu því magni, er vinnslu-
stöðvamar skila í verksmiðjur.
Vinnslustöðvarnar skuli skila úr-
gangsloðnu í verksmiðjur selj-
endum að kostnaðarlausu.
Verð á ferskri loðnu í beitu
miðast við loðnuna upp til hópa.
Verðið er miðað við loðnuna
komna á flutningstæki við hlið
veiðiskipsins.
Reykjavík, 28. janúar 1972.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
Húsavík:
Trilla
slitnaði
upp
Húsavík, 29. jan.
HÉR var mikill stormiur í gær
og í nótt, eins og víða ainnars
staðar. Ein trilla slitnaði upp og
rak á land. Einhverjair skiemmd-
ir urðu á henni og líkliega þarf
aið taka upp í henni vélina, þar
sem sjór komst í hana. Ekki var
mikil kvika, þegar þetta gerðist,
hieldur fyrst og fremist stormur.
Snjó befur miikið tókið upp og
er greiðfært um næi'sveitir. í dag
er hér útlent skip að lesta salt-
fisk til Evrópulainda og von er á
Fjallfossi í dag til að taka kíail-
gúr. — Fréttaritari.
A
— Ohappið
Framhald af bls. 32
Gissur hvíti er ekki nema 3ja
ára. Tryggingiaupphæðin er á
að gizka andvirði 105 rúmlesta
báts, fif sikipið yrði greitt út,
en það er 270 rúmlestir sam-
kvæmt nýju mælingunni.
— Hvert er álit þitt á tjón-
inu?
— Ég álít persónulega að
tjónið sé algjöirt — án þess að
ég sé þess fullviss — og t'el
óvíst sé hvort tryggin gaupp-
hæðin nái yfir viðgerðarkostn
að. 1 Gissur hvita var upp-
haflega ekkiert til sparað og
allt hið bezta fáanlegia keypt i
hann.
— Skinney og Gissur hvíti
voru einu bátamir, sem
veiddu fyrir bræðsluna í Höfn.
— Það voru ekki fleiri
heimabártar, sem lögðu upp
fyrir bræðsluna og báðir áttu
þeir að fara á netaveiðar og
í landi var búið að miða allt
við fullan rekstur þeirra. Ég
tel víst að Skinney náist ekki
niður í lyftunni á þessari ver-
tið, en möguleikar eru á að
ná henni niður með öðrum
hætti. Það er hins vegar mik-
il íyrirhöfn og kostar mfkið
fé.
— Hvers vegna er trygg-
ing Gissurar hvíta svo lág?
— Það er hið mesta vand-
ræðamál og segir þá sögu að
öll skip eru undirtryggð. Eins
og kunnugt er greiðir Útfluvn
ingssjóður iðgjöld af trygg-
ingunum — og útgerðarmenn
irnir auðvirtað I sjóðina, en
Skip'tin eru metin af nefnd og
mér liggur við að halda að
hún ákveði tryggdngaupphæð-
irnar eftir greiðslugetu sjóðs-
ins, en ekki verðmæti skip-
anna. Afkoma útgerðarinnar
er svo þannig að hún hefur
ekki haft tök á þvi að kaupa
sér tryggingar og lártið þetta
duga. Nærtækt dæmi um
þetta er Armfirðingur, sem ný
lega strandaði í Grindavík.
Hann var tryggður á 25 millj-
ónir króna, en lílklega kostar
smíði sliks báts nú um 35
milljónir króna, Þar var um
að ræða nýtrt skip.
— Nei, — það er Ijóst —
sagði Óskar Valdimarsson —
að geysilegt tjón hefur orðið
af þessu óhappi umfram
eignatjón. Tíminn hefur einn-
ig tapazt og ef kaupa ættd
nýtt skip þá væri ekki unnt
að fá það í tíma til þess að
unnt sé að firra verstöðina
geysilegu áfalli. Að lokum
sagði Óskar: — Einn gleði-
punktur er þó í þessu mikla
óhappi — og það er að engdn
alvarleg slys urðu á mönnum.
— Peking
Framhald af bls. 1
af Bandaríkjamönnum (Vietmam-
ization).
Pekinigstjómin lét í fyrsta sirin
í dag í ljóa álit sitt á áætlun Nix-
ona Bamdartíkjaforseta uim að
Ný sjúkraflugvél
fyrir Vestfirði
kom.a á friði í Víetnam, Var til-
lögum forsetams lýsrt sem nýjum
svikum.
Dagblað alþýðunnar, aem er
aðalmálgagn kammúnistaflokks-
inis og gefið út í Peking, segir,
að áætlunin sé klaufalegt bragð
af hálfu Nixons foriseta. Hanm
hafi borið tillögur sínar fram
vegnia ítrekaðra ósigra í árásar-
stríðinu í Indökíma og vegna
þrýstings frá almemningsálitinu í
Bandarikjunum og öðrum lönd-
um. Tillögur forsetanis séu í
raun og veru árásaráætlun, sem
stefni að þvr að lengja styrjöld-
ina og styðja leppstjómina í Sai-
gon, segir Dagblað alþýðumnar.
Þegar Nixon kunngerði áætlun
síma, heldur blaðið áfram, sagði
hanin, að Bandaríkin myndu
flytja allt herlið sitt á brott frá
Víetnam með vissum skilyrðum.
Þetta þýðir einunigis, að hanm
vill, að þjóðirnar í Indókína
leggi niður vopn og hætti styrj-
aldaTrekstrinum gegn Bandaríkja
mönmum. Þetta er hlægilegt. Ef
Bandaríkjamenn hyggjast leyaa
Víetnam-málið, þá verða þeir að
flytja allt herlið sitt á brott án
Skilyrða. Bandaríkjamenn hafa
engan rétt til þess að koma fram
með neimar tillögur sem skilyrði
fyrir brottflutnimgi herliðs síns,
segir Dagblað alþýðunniar.
- til ARNA hf.
Ný sjúkrafluigvél fyrir Vestfirði
komin til flugfélagsins Arna hf.
FLUGFÉLAGIÐ Emir hf. á Isa-
firði befur fest kaup á tveggja
hreyfla flugvél af gerðinni Piper
Aztec, og kom vélin tdl landsins
í fyrrakvöld frá Bandaríkjunum.
Hún verður eintoum notuð sem
sjúkraflugvél fyrir Vestfirði og
einnig til póstflu.gs frá ísafirði.
Hörður Guðmundsson, flug-
maður, sagði í gær í viðtali við
Mbl., að þetta væri önnur flug-
vél Ama, sem er um ársgamalt
fluigfélag. Fyrsta vélin var af
gerðinni Cessna 180 og hafði
Hörður sjálfur keypt hana fyrir
þremur árum og rekið, en flug-
félagið tók síðan yfir rekstur
hennar, þegar það var stofnað.
Hafði hún verið mikið notuð til
sjúkrafluigs á Vestfjörðum, em
eimnig ti-1 leiguflugs með farþega
og vörur.
Nýja vélin er simiðuð árið 1965
og keyprt frá Oklahoma í Banda-
ríikjumum. Þaðan ér alls um 30
stunda fflug heim til íslands og
flaug vélinni þá leið Helgi Jóms-
son, sem refcur Flugstoóla Helga
Jómssonar í Reykjavík. Húm er
mjög vel úthúin siglinga- og ís-
varnarrtækjum, og á næstummi
verða sett í hana nauðsynleg
tæki vegna sjúkraflugsims. Vélin
verður einnig notuð til póstfl'ugs
tvisvar í viku frá ísafirði til Flat-
eyrar, Þingeyrar, Bíldudals og
Patrekstfjarðar. Talsverrt hefur
verið um sjúkraflug frá ísafirði,
þar sem ýmis byggðarlög á Vest-
fjörðum eru lækmislaus. Hafa
sjúiklinigar verið sóttir á þessa
srtaði, eða þá fflogið þangað með
lækni og lyf.
„Við vomum, að með þessari
véi getum við auikið til rmuna þá
þjómustu, sem við höfurn veitt
Vestfirðingum tii þessa,“ sagði
Hörður að lokum.
Hin nýja sjúkraílugvél Arna. (Ljósni. Sv. Þorm.)