Morgunblaðið - 21.03.1972, Page 10
10
MORGUNIBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2.L. MARZ 1972
David Ashton —
„örgeðja kjáni“
segir Colin Campbell,
sein fer með hlutverk hans
(Eftlr Patn Flay).
„David er í ratm og veru örgeðja
kjáni. Hann lærir ekki — en eina leið-
in til þess að kommst áfram í lif-
inu er að horfast í augu við mistök
sín og læra af þeim.“
Svo segir Colin Campbell, — sá sem
Ieikur David Ashton, i sjónvarps-
þáttunum „Ashton fjölskyidan“.
Colin lætur mjög vel að leika David,
því hann á sjálfur að baki sér dá-
litið hnökróttan lífsferii, þó ekki sé
hann ýkja gamall, 34 ára aðeins,
Hann fékk snemma kynni af her-
þjónustu eins og aðrir ungir brezk-
ir piltar en þau kynni segir liujin,
að hafi hreint ekki verið svo slæm
— hann hafi til dæmis getað stnnd-
að af kappi eitt helzta áhugamál sitt,
hnefaleika.
David Ashton líkar líka vel lífið
í hernum eftir atvinnuleysið og von
brigðin síðustu árin fyrijr striðið,
býr hann nú við góð kjör á þeirra
tima mælikvarða, hann getur lokað
augunum fyrir þvi að mestu,
að hanin á konu og tvö börn heima,
sinnlr starfi sínu af kappi og
skemmtir sér á kvöldin.
Colin Campbell var átján ára,
þegar hann lauk herþjónustu og
næstu fimm árin urðu honum erfið..
Hann hafði byrjað að leika aðeins
tólf ára að aldri og fengið góða skól
un í einkaskóla — en það dugði hon-
um skammt, — hann var kominn úr
sambandi við leikhúsin. Hann reyndi
hvað eftir annað að fá hlutverk, en
án árangurs, — hann var of óþrosk-
aður til þess að leika hlutverk ungra
manna og jafnframt ot gamall
til þess að leika unglinga.
Hann fór að virana í bilaverk-
smiðju oig síðar gerðist hann vöru-
bílstjóri — en notaði hvert tækifæri,
sem gafst, tii þess að koma fram í út
varpi. Alltaf leitaði hugur hans til
leiklistarinnar — „mig langaði ekki
til neins frekar en að leika,“ segir
hanin.
Árið 1962 fékk hann sitt
stóra tækifæri — og notaði það vel.
Arniold Wesker bauð honum
að leika jChaxlie Wingate í leikrit-
inu „Chips with Everything", sem
fékk mjög góða dóma og gekk lengi.
Þar með höfðu dymar opnazt. Hann
fékk hlutverk í kvikmyndum, m.a.
„The Leather Boyis“ með Ritu Tush-
ingham, „Saturday Night Out“ og
„A High, Bright Sun“ — og sjón-
varpið opnaði einnig dyr sínar fyr-
ir honum.
Síðan hefur Colin Campbell ekki
þurft að hafa áhyggjur — og hlut-
verk Davids Ashtons hefuir orðið
honum iyiftiistöng táil frekari fraima.
David Ashton og Slieila kona iians.
4
Iðnaðarhúsnæði oskosl
Óska aftir að taka á leigu húsnæði fyrir þjónustu og sölu
á skrifstofuvélum. Þarf að vera á fyrstu hæð.
Æskiiegt að útstillingargluggi sé fyrír hendi.
Þeir sem hefðu áhuga á þessu eru vinsamlegast beðnir að
leggja tilboð sín inn á auglýsingadeild Morgunblaðsins fyrir
fimmtudagskvöld merkt: „1. júní — 562".
fRwgtttdrlf&ifr
nucivsincnR
^-»22480
Kvemstúdentafélag íslands
ÁRSHÁTÍÐ
félagsins verður haldin miðvikudaginn 22.
marz í Þjóðleikhúskjallaranum og hefst með
borðhaldi kl. 19,30.
Árgamgur kvenstúdenta frá 1947 sér um
skemmtiatriði.
Stjórnin.
óskar ef tir starfsf ólki
í eftirtalin
störf<
flmerísknr nolaðnr inníluttar jeppnkerrur
Gott hemlakerfi, þ. e. handhernili og sjálfhemlun.
Ljósaútbúnaður.
Lokuð kerra, þ. e. grind og yfirbreiðsla.
Mjög hagstætt verð.
Císli Jónsson & Co. hf.
Skúlagötu 26, sími 11740.
BLAÐB URÐARFÓLK
ÓSKAST
Álfheimar I — Suðurlandsbraut
Höfðahverfi — Garðasfrœti
Sími 10100
BINGÓ
að Hótel Borg
Málfumdafélagið Óðinm heldur BIXGÓ að Hótel Borg annað kvöld (miðvikudag) kl. 9
stundvíslega. — 12 umferðir. — Aðalvinmimgar eru eigulegir munir.
Aðalvinnimgur UTANLANDSFERÐ. — Allir velkomnir. Stjórnin.