Morgunblaðið - 19.04.1972, Síða 31
r~
■]
MORG'ONBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 19. APRÍL 1972 31
Bláklukkukvöld
á Egilsstöðum
KVENFÉLAGIÐ Bláklukka á
Egitetöðum gengst fyrir
skemmtiikvöldi og tízkusýn-
ingu I Valaskjálf á sumardaig
inn fyrsta. Sýndur verður
kventizkufatnaður frá Verð-
listanum í Reykjavík og Kjóla
búðinnii Mey, táningafafnaðuir
frá Karnabæ og Pophúsinu og
herrafatnaður frá Herradeild
P.Ó. — Kaffi er innifalið f
verði aðgöngumiða.
LÚÐRASVEIX Reykjavíkur hygg
ur á ferðalag til Kanada í ágúst
n.k., en sveitin á 50 ára afmæli
7. júlí n.k.
Kanadaferðin hefst 3. ágúst og
koma lúðrasveitarmenn heim aft
ur 23. ágúst. Lúðrasveitarmenn
munu heimsaekja byggðir V-ís-
lendinga ög spila þar; m.a. verða
þeir á íslendingadeginum á Gimli
Þetta er fynsta tízkusýning
á Auisturlandi og er vel til
hennar vamdað.
Um miðjan daginn heldur
Kvenfélagið skemmtun fyrir
börn. Verður þar ýmislegt til
skemmtunar ma. táninga-
tízkusýning og danssýning og
unglingahljómsveit staðarins
leikur fyrir dansi.
7. ágúst. Björn R. Einarsison, for
maður sveitarinnar, tjáði Mbl. í
gær, að þeir lúðrasveitarmenn
myndu óspart hvetja Vestur-ís-
lendinga til að heimsækja ísland
á þjóðhátíðarárimu 1974.
í tile-flni 50 ára afimælisins 7.
júlí verður gefin út 12 laga plata
sem Lúðraisveit Reykjavíkur hef
ur leikið íslenzk lög inn á.
Aldarminning
ÞESSI mynd af sr. Böðvari
Bjarnasyni, prófasti á Hrafnseyri
átti að fylgja aldarminningu
hans i blaðinu í gær — en því mið
ur féll hún niður. Viðkomandi
eru beðnir afsökunar á þeim mia
tökum.
- Smygl
Framhald af bls. 32.
Smyglgóss þetta, ef grumir
reyniist réttur, hefur aldrei kom-
ið frain og yfirmenn akipsins ve-
fenigja skýraluimar frá Banda-
ríkjumum og hafa við yfirheyrsl-
ur ekki viðurkennt smygMð.
Yfiinmenm imir hafa — sam-
fcvæmt frásiögn Jóns Abrahaims,
tvívegis verið yfirheyrðir, en
það eru þeir, sem hafa með
höndum aígreiðsiliu toMskj'aia um
borð og hafa tök á því að kaupa
í tollvöruigeymsilium i f,rihöfmum
ertlendis svo miikið magn áfengis.
Gagnasöímin heldur áfram i
málimu og búizt er við frekari
yfirheyrsliuim, en skipið er nú
erlendis.
— Togaraaflinn
Framhald af bls. 32.
til 1971 um 14,2% og 1971 minnk-
aði aflinn um 16,5% miðað við
1969.
Fyrstu þrjá mánuði ársins,
var tpgaraafilinn mjög rýr mið-
að við það, sem var t. d. 1970, en
þá var afilinn 16.600 tonn og
hefur þvi minnkað um 36%.
Togtímafjöldinn vax svo til hinn
sami. Aflabrögðin voru að visu
óvenjulega góð fyrri hluta árs
1970, en ekki er hægt að gera
samanburð við síðastliðið ár, því
að þá var verkfall á togaraflot-
anum frá 6. janúar til 1. marz.
Aflarýmunin hefir komið [
mjög hart niður á afkomu tog-1
araútgerðarinnar, enda "í ! ■ ð
ætíð aflabrögðin. sem f.iestu
ráða um hana. Þegar afli mimli
ar, segir það ótrúleg5. .
alvarieTa til sín.
Ingimar sagði, að þegar væri
vitað, að mikill taprekstui hafi
orðið á togaraútgerðinni á síðast- ;
iiðnu ári og eins og 'aJ al'i' - . ,
hetfðu verið á þessu ár' hov r
mjög uggvænlega um rekstur
togaranna. Óhjákvæmilegt sé að
gtúpa til skjótra, sérstakra ráð-
stafana til að koma í veg fyrir
rekstrarstöðvun. Hann sagði, að
þegar sæjust nokkur merki um
það, hversu alvarlegt átstandið
væri, aif því að þegar hefði þrem-
ur togurum verið lagt, Hafiliða
frá Siglufirði, Marz frá Reykja-
vík og Hamranesi frá Hafnar-
firði.
Ekki kvaðst Ingimar vilja spá
um það, hvort framhald á
þessu yrði nú á næstunni, en
það leyndi sér ekki, að allir tog-
araeigendur ættu í miklum f jár-
hagserfiðleikum.
Bernadetta Devlin
— Bernadetta
Framhald af bls. 1.
úr hópi 12 þingmanna, sem
standa í nánum tengslum við
Sinn Fein, stjómmálahreyf-
ingu Irska lýðveldishersins,
sem berst fyrir sameiningu
írlands.
Engin skipun hefur enn
verið gefin um handtöku
Bemadettu og McManus,
enda tekur afgreiðsla slíkra
mála nokkra daga á Norður-
Irlandi. Stjórnlagafræðingar
eru ekki vissir um hvort
handtaka sé lögleg innan
veggja þinghússins, og segja
sumir að þingheligi nái aðeins
til borgaralegra mála, til
licmLs skulda. Hvorki urngfirú
Ilevlin né McManus voru við-
• ödd réttarhöldin í EnniskilL-
begar dómur var upp kveð.
inn i gær og kveðst ungfrö
J V->vl.in ekkert mark taika S
d mnum, þar sem oít hafl
vcrið efnt til svipaðra mót-
madaaðgerða án þess að mál
hefi verið höfðað. ,
— Barnadagur
Fnunliaki af Ids. 3.
sölubarna frá Melaskólanum.'l
Vesturbæjarskóla við Öldugötu*
Austurbæjar-, Hliða-, ÁlftamýrV
ar-, Hvassaleitis-, Breiðagerðis,
Voga-, Langholts-, Laugalækjar-,
Árbæjar- og ísaksskóla, auk leik
vailaskýlisins við Sæviðarsmd
og Breiðholtsskóla. Aðgöngumið
ar að inniskemmturvum kosta kr.
100, en merkin kr. 30.
Forráðamenn Sumargjafiat
sögðu að hugsanlegur ágóði rynni
til fyrirhugaðs leiksvæðis við Ell
iðaár, sem þó væri óákveðið enn-
þá vegna ýmissa annmarka, en
sannast sagna ættu þeir fiullt í
fangi með að láta endana ná sam
an, og stundum hefði enginn á-
góði orðið.
Lögreglan minnir foreldra á að
fylgja börnum sínum í göngurn-
ar og fólk á að klæða börnin vel.
Full ástæða er til að brýna fyrir
fólki að sýna tillitssemi í umferð
inni, því að vanda verða liklega
margir á ferli á þessum degi.
— Bréf f rá Haag
Framhald af bls. 1.
stóllimn gæti tekið málið til með
fierðar ef ,,of löng“ bið yrði á
svari. Talsmaðurinn neitaði að
tilgreina þetta nánar.
Heimildir herma að ef íslend-
ingar vilji bera brigður á laga-
legt umboð dómistólsíis til þess
að fjalla um málið ættu þeir að
gera það við undirbúningsyfir-
heyrslur fyrir dómistólnum. —
Bretar yrðu þá að láta bóka
bráðabirgðamótmasíli og dómur-
inn yrði að úrskurða hvort hann
er hæfur til að fjalla um deiluna.
Ef fslendingar skjóta sér und
an að svara bréfi dómstólsins og
hafa að engu þá málsmeðferð að
bráðabirgðamótmæli séu borin
fram geta Bretar samt borið upp
málið fyrir dómstóin'um og hann
getur þá fellt dóm á grundveili
sönnunargagna sem Bretar og ó-
háðir sérfræðingar leggja fram,
að því er heimildirnar í Ilaag
herma.
Lúðrasveit
til Kanada
— N-Vietnam
Fraimhald af bls. 1.
hershöfðingi, sagði í dag að Norð
ur-Vietnamar og Vietcong norð-
an höfnðborgarinnar mundu
senniiega reyna að sækja til
Saigon í smáhópum næsta sól-
arhring. Hann segir að loftárás-
ir Bandarikjamanna á 3000 norð-
urvietnamska hermenn, sem
hafa umkringt héraðshöfuðlKirg-
ina An Loe, hafi borið góðan
árangur. Risaflugvélar af gerð-
Inni B-52 hafa útrýmt heilli her-
deild 1400 norður-vietnamskra
hermanna 1.6 km frá bænum,
samkvæmt heimildum í Saigon.
Vietcong segist hafa náð An Loc
á sitt vaid en Suður-Vietnamar
segja að enn sé barizt í lithverf-
unnm.
• LAIRD MITAR
I Washington sagði Melvin
Laird, landvarnaráðherra, að ekk
ert væri hæft í fréttum um að
Nixon forseti hefði fyrirskipað
að hætt skyldi loftárásum á
Hanoi og Ilaiphong. Hann sagði
þetta á fundi utanríkismálanefnd
ar öldungadeildarinnar, sem hef-
ur samþykkkt að hætta öllum
fjárveitingum til striðsreksturs-
ins í Indókína fyrir áramót ef
Norður-Vietnamar sleppa úr
haldi bandariskum striðsföng-
um. Laird kallaði það „hámark
ábyrgðarleysis" að semja um
frið við Norður-Vietnama með-
an þeir stæðu að innrás í Suður-
Vietnam og ítrekaði að Banda-
ríkjamenn mundu beita flug-
véla- og flotastyrk sinum í Indó-
kína þar sem það reyndist nauð-
synlegt. Xalsmaður Hvíta húss-
ins vildi ekkert segja um frétt-
irnar um stöðvun loftárása á
Hanoi.
Loftárásirnar virðast nú tak-
markast við skotmörk sunnan
við 20. breiddarbaug, 100 km suð-
ur atf Hanoi og Haiphong. Um-
mæli Lairds í Washington og
yfirlýsing talsmanns Hvíta húss-
ins þess efhis að þau túlki hina
opinberu stefnu breyta ekki því
áliti heimildarmanna í Saigon að
Nixon hafi fyrirskipað takmörk-
un loftárása. Laird neitaði þvi
síðar að segja skýrt og ákveðið
hvort loftárásum á Haiphong og
Hanoi væri haldið áfram.
• PÓLITÍSKT RÁÐ?
Hugsanlegt er talið að hin
opinbera afstaða eigi að leyna
ráðstöfunum á bak við tjöldin.
Einn imöguleiikinn er talinin sá að
opimber hótun um að hefja að
nýju algerar loftárásir ef Norð-
ur-Vietnamar hætta ekki sókn-
inni eigi að gera Norður-Viet-
nömum kleift að láta undan án
þess að tapa áliti. Bandaríska
herstjómin í Saigon vill ekkert
um það segja, hvort loftárásim-
ar hafi verið takmarkaðar, en
þar sem veður er mjög gott og
þar sem um fjölda mikilvægra
skotmarka er að velja virðast
heimildarmennirnir í Saigon
hatfa á réttu að standa. Hingað
til hafa bandariskir flugmenn
hatft takmarkaða möguleika til
að hitta skotmörk sem eru talin
mikilvæg vegna sóknar Norður-
Vietnama og árásarferðimar
Hanoi og Haiphomg á sunnudag
skiptu hundmðum en eru nú að-
eins um tíu á dag.
Loftárásir Bandarikjamanna
beinast nú í þess stað fyrst og
fremst gegn skotmörkum í Suð-
ur-Vietnam og samkvæmt heim-
ildum í Saigon voru farnar 500
árásarferðir í dag og jafn marg-
ar í gær gegn stöðvum kommún-
ista á sivæðinu frá An Loc að
hlutlausa svæðinu á landamær-
unum. Þetta eru umfangsmestu
loftárásir Bandarikjamanna í
Suður-Vietnam síðart á árunum
1965 til 1968.
0 NÝTT tonkin-mál?
Tvö bandarisk herskip, frei-
gátan Worden og tundurspillir-
inn Buchanan, löskuðust I
sprengingum á Tonkin-flóa í gær
og á sunnudag, og samkvæmt
áreiðanlegum heimildum í Saig-
on reyndi yfirmaður Kyrrahafs-
flota Bandaríkjanna að þagga
niður nýtt Tonkin-mál. Einn sjó-
liði beið bana og sjö særðust á
Buchanan. Annar sjóliði beið
bana og níu særðust á Worden.
Heimildir 1 Washington herma
að Worden virðist hafa orðið
fyrir árás norður-vietnamsks
fallbyssubáts, en herstjórrfin í
Saigon segir að ekki sé nákvæm-
lega vitað um orsök sprenging-
arinnar og að svo virðist sem
Worden hafi ekki verið í skot-
færi stöðva Norður-Vietnama á
ströndinni.
Áreiðanlegar heimildir í Saig-
on herma að yfirmaður Kyrra-
hafstflotans, Bernard A. Clarey,
aðmíráll, hafi neitað að gefa
hernaðaryfirvöldum i Saigon
uppliýsingar um málið þrátt flyrir
ítrekaðar fyrirspurnir. Frétta-
menn komust þó á snoðir um
málið eftir eigin leiðum, og ein-
um sólarhring eftir að atburður-
inn 'gerðist, birti bandarfeka her-
stjórnin stuttorða tilkynningu.
Góðar heimildir herma að engin
norður vietnömsk skip hafi verið
í námunda við Worden og Buch-
hanan en fjöldi bandarískra og
því er bollalagt hvort skip úr 7.
flotanum hafi skotið á Worden
áf mi'Sgáningi. Meint árás Norð-
ur-Vietnama á tvo bandaríska
tundurspilla á Tonkinflóa 1964
varð tilefni hefndarárása sem
Johnson forseti skipaði að gerð-
ar yrðu á Norður-Vietnam.
• LAIRD B.IARTSÝNN
í umræðum utanrikismála-
nefndar öldungadeildarinnar i
dag, sætti Laird landvamaráð-
herra harðri gagnrýni formanns-
ins, J. William Fulbright, sem
sagði að Nixon virtist halda að
hann gæti náð þeim árangri
með flugvélum einum saman,
sem Johnson forseta hefði ekki
tekizt að ná með flugvélum og
500.000 hermönnum, og að for-
setinn vildi hemaðarsigur en
ekki samningalausn. Hann sagði
að Bandaríkjamenn yrðu að
hætta stríðinu eins og Frakkar
á sínum tíma og kvað það ekki
í þágu bandariskra hagsmuna að
Thieu forseti yrði áfram við
völd. Frakkar hefðu varla glat-
að áhrifum og varla beðið álits-
hnekki er þeir horfðust í auga
við raunveruleikann i Indókina.
„Þeir skildu einfaldlega að tíma
þeirra sem nýlenduveldis var
lokið," sagði Fulbright.
Laird ítrekaði að ekki yrðu
hafnar að nýju samningaviðrasð-
ur fyrr en Norður-Vietnamar
hörfuðu með innrásarlið sitt
norður fyrir hlutlausa svæðið.
Lalrd lýsti mi'killi bjartsýnl
vegna frammistöðu Suður-Viet-
nama í bardögunum siðustu vik-
ur og kvað þetta sýna greini-
lega að svokölluð vietnamvæðing
hefði heppnazt vel. Laird ítrek-
aði þau ummæli Rogers utan-
ríkisráðherra að Norður-Viet-
namar hefðu gert víðtæka irm-
rás í Suður-Vietnam. „Það brýt-
ur í bága við samkomulagið sem
þeir gerðu við Johnson forseta
1968,“ sagði Laird.