Morgunblaðið - 22.07.1972, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
162. tbl. 59. árg.
LAUGARDAGUR 22. JULÍ 1972
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reffinald Maudling: hefur nú fyrir fullt og allt yfirg:efið skrifstofu sina i innanríkisráðuneytinu
og: afhent Eiísabetu drottningu lausnarbeiðni sína vegna gjaldþrots fyrirtækis sem kona lians
átti í.
76 fórust og
100 slösuðust
í árekstri milli tveggja lesta á Spáni
Sevilla, 21. júli — AP
SJÖXÍU og sex manns biðu bana
og: rúmlega 100 slösuðust, þeg'ar
tvaer járnbrautarlestir, með sam-
tals 700 farþega innanborðs,
rákust sainan skammt fyrir
sunnan Sevilla á Spáni í dag.
Önnur lestin var hraðlest frá
Madrid á leið til Costa del Sol.
Björigiunarsveitir kom-u fljót-
lega á vettvang, en lestirnar
voru svo klesstar saman, að það
tók margar klukkustundir með
logsuðutækjum, sögurn og tjökk-
um að ná sumum farþegunum
út. Yfirvöld sögðu, að engir út-
lendingar hefðu verið með lest-
unuim.
Hinir slösuðu voru fluttir i
nærliggjandi sjúkrahús og bið-
raðir mynduðust við blóðbanka,
sem höfðu sent út neyðarkall.
Slysið mun hafa orðið vegna bil-
unar á aðvörunarljósabúnaði á
járnbrautarstöð, sem hraðlestin
fór fram hjá skömmu fyrir
áreksturinn. I>etta er mesta
lestaslys, sem orðið hefur á
Spáni sáðan tvær lestir rákust
saman í grennd við Bilbao fyr-
ir tveiimur árum. Þá fórust 30.
46% með Nixon
Princeton, New Jersey, 21. júlí
— AP
SAMKVÆMT Galhip-skoðana-
könnun, sem var birt í dag, er
165 þús.
dollara
skáksett
New York, 21. júld — AP
ÞA8 er líklega með dýrustn
skáksettum í heimi það sem
er til sýnis og sölu í Hilton
hótelinu í New York þessa
dagrana. Það kostar 165 þús-
und dollara og er smíðað í
Sviss.
Taflmennimir eru allir
handskornir af meistara og
þeir eru úr 22 karata gulli og
hvitagulli. Borðið sjálft er úr
hvitu og grænu jade og veg-
ur 20 kiló. Taflmennimir vega
tæplega pund hver.
Það var Valentine Piaget,
forstjóri Piaget-úraverksmiðj-
unnar, sem lét smíða þetta
listaverk, en hann er skák-
áhugamaður mikill. Því mið-
ur vitum við ekki hvað reit-
irnir eru stórir . . .
Sprengjuárás á miðbæinn:
Blóðugur föstu-
dagur í Belfast
Belfast, 21. júlí — AP
SKÆRULIÐAR írska lýð-
veldishersins (IRA) gerðu í
dag stórfellda sprengjuárás í
miðbæ Belfast og voru göt-
ur borgarinnar líkastar víg-
velli á eftir. Brezki herinn
segir, að að minnsta kosti 13
manns hafi beðið bana í 20
sprengjuárásum, sem skóku
borgina í rúma klukkustund
og vöktu almenna skelfingu.
Miðbærinn er á að líta eins
og eftir jarðskjálfta og göt-
urnar þaktar grjóti og rusli
Neyðarástand
höfnum Breta
Fimm menn fangelsaðir
London, 21. júlí — NTB-AP
NEYÐARÁSTAND er að skap-
ast í brezkum höfnum vegna
skipunar vinnudómstóls um
handtöku fimm hafnarverka-
manna, sem brutu fyrri úrskurði
dómstólsins. Horfur á beinum
árekstrum milli stjórnarinnar og
verkalýðsfélaga hafa því aukizt
verulega að dómi stjórnmála-
fréttaritara.
Fimmimenningarnir eru sakað-
ir um bro-t á vinnumálalöggjöf-
inni, mikiivægustu lagasetningu
stjórnar Edwards Heaths, for-
sætisráðherra. Þeir eru sakaðir
um að hafa hindrað vörubifreið
í að aka niður á bryggju vegna
ólöglegs verkfalls hafnarverka-
manna.
Atiburðurinn er siðasti kaflinn
í löngum deilum hafnarverka-
manna og vörubifreiðastjóra.
Vörubifreiðastjórar lokuðu í dag
hafnarsvæðinu í London með
því að leggja bifreiðum sínum
þvert yfir göturnar, sem liggja
til svæðisins og hóta að lama
hverja einustu höfn í Bretlandi.
Lítil von er um samkomulag
þrátt fyrir viðræður deiluaðila i
dag, og þetta umsátursástand
getur ieitt til mikiliar hækkunar
á verði matvæla, þar sem inn-
fluttar birgðir hrannast upp í
höfnunum.
Um það er deilt, hverjir eigi að
ferma og afferma vörur, sem eru
pakkaðir í gámium. Hafnar-
verkamenn segja, að vörubif-
reiðastjórar hafi farið inn á
Fi'amhald á bls. 20
eftir sprengingarnar. Að ið gerð, síðan átökin á Norður-
írlandi hófust fyrir þremur ár-
minnsta kosti 96 særðust, þar
af 56 konur á aldrinum 4 til
72 ára. 20 börn slösuðust.
Sprengjuárásin í dag er ein
sú alvarlegasta, sem hefur ver-
um. Þykkt reykský lá yfir mið-
bænum og sjúkrabílar æddu um
göturnar með vælandi sirenum.
Sprengjuárásin var gerð einmitt
Framhald á bls. 20
meiri iniinur á fylgi George Mc
Governs og Nixons forseta nú
en á fylgi Hubert Humphreys
og Nixons í upphafi baráttunn-
ar fyrir siðustu forsetakosning-
ar.
Skoðanakönnunin var gerð
strax eftir flokksþing demókrata
á Miami Beach og sýnir, að 46%
þeirra, sem spurðir voru, fylgdu
Nixon að málum, 32% McGov-
ern, en 18% George Wallace, rík-
isstjóra í Alabamá.
Ef Walllace yrði ekki í fram-
boði sögðust 56% þeirra, sem
spurðir voru, að þeir mundu
styðja Nixon, en 37% að þeir
mundu styðja McGovem.
Fyrir fjórum árum hafði Nix-
on stuðning 43% kjósenda,
Humphrey 31% og Walilace 19%
samkvæmt skoðanakönnun, sem
var gerð skömmu eftir flokks-
þing demókrata þá. 1 kosning-
unum 1968 var fylgi Humphreys
aðeíns 1% minna en fylgi Nixons
en Wallace hlaut 13%.
Sókn í Binh Dinh:
S-víetnamskir sigrar
á nýjum vígstöðvum
Fullyrt að bærinn Bong
Son hafi verið tekinn
Saigon, 21. júlí — AP
IIERSTJÓRNIN í Saigon hélt
því fram í dag, að herlið
stjórnarinnar hefði náð á sitt
vald héraðshöfuðborginni
Bong Son í strandfylkinu
Binh Dinh í miðhluta Suður-
Víetnams, en fréttum ber
ekki saman. Samkvæmt sum-
um heimildum eru stjórnar-
hersveitirnar enn í rúmlega
500 metra fjarlægð frá borg-
inni, sem virðist hafa verið
yfirgefin að mestu.
Aðrar heimildir herma að 200
suður-víetnamskir hermenn hafi
sótt inn í herbúðirnar í borginni,
en aðrar sveitir eru sagðar vera
í tæplega eins kHómetra fjar-
lægð frá borginni að norðan og
sunnan. Ein heimildin hermir,
að norður-víetnömsku hermenn-
irnir veiti aðeins „málamynda-
viðnám", og á þessu stigi sé
ekki hægt að fullyrða hvort
norður-vietnöms'ku hermennirn-
ir hafi hörfað eða búizt til varn-
ar. Flestir íbúarnir flýðu hins
vegar borgina, þegar herlið
stjórnarinnar hörfaði þaðan 29.
apríl.
Samkvæmt frásögn suður-víet-
nömsku herstjórnarinnar tóku
um 1.000 suður-víetnamskir fót-
gönguliðar Bong Son án þess að
mæta mótspymu I bænum, og
500 til viðbótar voru fluttir í
þyrlum til norðvesturmarka borg
arinnar. Sveitirnar, sem tóku
borgina, sóttu yfir ána Lai
Giang úr suðri og leita í hverju
húsi að leyniskyttum að sögn
Framhalð á bls. 20
Sex í viðbót
dæmdir í Prag
Prag, 21. júlí. AP—NTB.
DÓMSTÓLL í Prag dænidi í dag
sex menntamenn í eins til sex
ára fangelsi fyrir a<5 dreifa flug
rituni gegn tilranmim stjórnar
Gustavs Husaks til þess að festa
sig í sessi á árnnnm 1969 til 1971.
Sjónarvottar segja að sagin-
fræðingurinn Jan Tesar hafi ver
ið dæmdur í sex ára fangelsi,
stúdentaleiðtoginn Jiri Múiler i
fimm og háifs árs fan.gelsi, þjóð-
félagsfiræðinigurinn Rudolf Batt-
ek í þriggja og háifs árs fangelsi.
og verkfræðingurinn Jarosiav
Framhald á bls. 13