Morgunblaðið - 22.07.1972, Page 20

Morgunblaðið - 22.07.1972, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚLl 1972 --------------------------------------------t- Fóru héðan ánægðir GRÆNLENZKU f járei’gieod- umir frá Narsaq og Júlíane haab sem voru hér á ferðinni í vikunni héldu heimleiðis á fimmt'udaginn, — eftir mjög vel heppnaða kynnisför. Aðal áherzlati var lögð á að fræða Grænlendingana um íslenzk fjárbú, rekstur þeirra og þær stofnanir sem annast vinnslu á afurðum sauðfjár. Voru ýmis baandabýli heimsótt, bændaskólinn á Hvanneyri, ullarþvottastöð og sútunar- verksmiðja. Þeir Kristian Mos feld bóndi, sem er annar til vinstri, formaður féiags uingra fjárbænda og Kaj Egede frá Narsaq, sem voru helztu tals menn Grænlendinganna, söigðu Mbl. að hópurinn hefði séð hér margt og mikið sem hagnýta má heima fyrir við fjárbúin þar. >eir kváðust vilja færa þeim þakkir sem gert hefðu förina svo árang- ursríka sem raun ber vitni. Kváðu það skoðun Græmlend- inganna að reyna bæri að hafa áframhaidandi samstarf við íslendinga á sviði kvi'kfjár- ræktar. Á myndinni eru þeir talið frá hægri Ludvig Storr aðal- ræðismaður Dana, Kristian Mosfeld bóndi, Kaj Egede, aðaltúlkur hópsins, en hann leggur stund á nám við land- búnaðarháskólann danska og Gísli Kristjánsson ritstjóri. Var myndin tekin er Búnaðar félag íslands bauð hópnuim til skilnaðarhófs að Hótel Sögu á fimmtudaginn. Ljósm. Mbl. Brynj. Helgason. — Skekkja Framhald af bls. 3 stöðutölur yrðu færðar til bókar, hver einstök sundurliðun síðan færð í rétt horf, en prent- uð yrði leiðréttingaskrá við hvern lið í nánara samráði við borgarráð. Reikningar yrðu þannig samþykktir nú. Drógu minnihlutaflokkarnir sínar tillögur til baka og voru reikningar samþykktir. Samkvæmt reikningum eiga tekjur borgarsjóðs 1971 að vera kr. 1.912.659.731.00, rekstrarút- gjöld nema kr. 1.632.747.667.00, til eignabreytinga færast kr. 279.912.00, samkvæmt fyrrnefnd um leiðréttingum. Unnið hefur verið að endur- skipulagningu bókhaldsins á und anförnum árum og þvl verki ekki fullkomlega lokið. Hið nýja bókhaldskerfi gerir ráð fyrir þvi, að í framtíðinni verði unnt að sýna í ársreikningi vélunn- inn samanburð samþykktar fjár veitinga, reikningsútkomu árs- ins og ársreikning fyrra árs. Nú var allt bókhald borgarsjóðsins og þeirra fyrirtækja hans, sem borgarbókhaldið annast færslur fyrir, unnið í Skýrsluvélum frá 1. janúar 1971. — Belfast Framhald af bls. 1 þegar mikið fjöknenni var í verzlunum að kaupa tii helgar- innar. Aðeins var ráðizt á opin- bera staði, ekki herstöðvar, með- al annars bari og verzlanir, tvær jámbrautarstöðvar og umferðar- miðstöð. Allar nauðsynlegar neyðarráð- stafanir voru gerðar og hundr- uð brezkra hermanna voru í flýti sendir til miðbæjarins. Sprengjumar ollu viða miklum eldsvoðum. Hundruð óttasleg- inna borgara æddu fram og aft- flýti send til miðbæjarins. ur um miðbæinn, ringluð og án þess að vitað hvert ætti að flýja, því að enginn vissi hvar næsta sprengja spryngi. Sprengjuárásimar voru gerðar þrátt fyrir það að gripið hefur verið til strangs eftirlits með allri umferð til og frá miðbæn- um í þessari viku. Ein fyrsta sprengjan sprakk i umferðarmiðstöð steinsnar frá slökkvistöð og var þar fjöldi ferðamanna auk margra ann- arra, sem höfðu flúið þangað vegna sprengjuárásar á öðrum stað í miðbænum. Að minnsta kosti 20 sjúkrabiiar voru sendir til umferðarmiðstöðvarinnar og að minnsta kosti sex lík fundúst í rústunum. Þegar sprengingunum linnti tæmdist miðbærinn af fólki. Einn af talsmönnum félags öfga- fullra mótmælenda, Shankill- vamarsamtakanna, sagði, að árásin sýndi að eitthvað yrði að gera. Spremgjuárásin er talin munu enn auka erfiðleika stjórn- ar Edwards Heaths, forsætisráð- herra, enda hafa þær kröfur komið fram innan Ihaldsflokks- ins að gripið verði tii strang- ari aðgerða gegn IRA. Auk þess má búast við aukmum mótmæl- um mótmælenda gegn brezku stjóminni og hemum. Talsmaður brezku stjórnarinnar á Norður- Irlandi sagði: „Öllum sprengjun- um var vísvitandi komið fyrir á biðstöðvum strætisvagna og í járnbrautarstöðinni í þeirn eina tilgangi að valda dauða og eyði- leggingum, enda eru þetta að- íerðir IRA.“ Óstaðfestar fregnir herma, að íélagar i Varnarsamtökum Úlst- ers (UDA) hafi gripið til gagnráð stafana, og leiti að skæruliðum IRA og reisi götuvígi. UDA hef- ur hótað slikum aðgerðum ef brezkir hermenn grípi ekki til róttækra ráða gegn IRA. Mót- mælendur kalla atburðina í dag „blóðföstudag“. Kaþólskir menn kölluðu árekstrana í vetur í Londonderry, er kostuðu 13 kaþólikka Hfið, „blóðsunnudag". - E1 Grillo Framhald af bls. 32 markaðan tima á svo miklu dýpi. Mjög slæmt skyggni var til köfunar í gærkvöldi og erfitt að átta sig á aðstæðum við flak- ið. Stefnt er að þvi að taka upp sprengjur og annað á þilfari á morgun. Duflin, sem fyrri kaf- arar voru búnir að leggja út til þess að vinna eftir höfðu slitn- að upp þannig að Landhelgis- gæzlan varð að byrja að leggja línu að nýju til þess að kafa eftir. Brezki sprengjusérfræðingur- inn sagði I viðtali við Morgun- blaðið að hann hefði það eftir Gower skipstjóra, sem var með E1 Grilló, að engar djúpsprengj- ur eða tundurskeyti hefðu verið um borð i E1 Grilló þegar það sökk. Drannall heldur því einn- ig fram að skotfærin fyrir loft- vama-_ og fallbyssur, séu örugg- lega ónýt eftir þennan tíma í sjó. Drannall sagðist fyrst og fremst vera kominn til þess að kanna hvað það væri sem er á þilfari skipsins og álitið hefur verið að væru djúpsprengjur. Hann sagðist bíða spenntur eft- ir að sjá hvað kærni í Ijós þeg- ar kafararnir kæmu með eitt- hvað úr kafinu væntanlega í fyrramálið. Drannall taldi að svartolían í skipinu hefði skilið sig á þessum langa tíma þann- ig að asfaltið hefði botnfallið, en léttari efni olíunnar flotið upp. Drannall segir að skipið hafí get að tekið 8500 tonn af olíu, en ekki sé vitað hvað var búið að tæma mikið úr því þegar það sökk. Hins vegar dældi Bene- dikt Gröndal 4500 tonnum úr því. — Sveinn. — S-Vietnam Framhald af bls. 1 suður-víetnömsku herstjómar- innar. Tíu þúsund suður-vietnamskir hermenn taka þátt í sókninni í Binh Dinih, og tilgangur aðgerð- anna er að taka þrjár héraðshöf- uð'borgir í norðurhiuta fylkisins og svæði með 200.000 íbúum og mikilli hrisgrjónauppskeru. Bong Son er við þjóðveg 1 miðja vegu milli hinna liéraðanna, Tam Quan og Hoai An. LOFTÁRÁSIR Samtímis haía bandarískar sprengjuflugvélar haldið uppi hörðum loftárásum, bæði yfir Norður-Víetnam, norður-vígstöðv unum við Quang Tri og vigstöðv- unum í Binh Dinh. Stór elds- neytisgeymsla, tengd við oliu- leiðslu frá Kína, norður af Han- oi var sprengd I loft upp og stóðu eldsúlumar 20.000 fet í loft upp. 300 lestum af sprengjum var varpað á sföðvar Norður-Víet- nama og Víet Conig hjá Bong Son. Á norðurvígstöðvunum geis- uðu í dag harðir bardagar annan daginn í röð skammt frá gömlu varnarlínunni vi'ð ána My Chanh um 16 km suður af Quang Tri. Þar hafa Norður-Vietnamar kom ið stjómarhemum í opna skjöldu og ógna aðtflutningum til Quang Tri eftir þjóðvegi 1. Suður-víetnömsku hermennirn- ir, sem sækja inn í borgina Quanig Tri, mæta enn harðri stórskotahríð Norður-Víetnama, en framsveitir Suður-Vietnama eru enn um 50 metra frá víg- girta hlutanum, og lítil breyting hefur orðið á ástandinu. — Samstarf Framhald af bls. 32 samstarfi Sjálfstæðisflokksins og Sósialistaflokks, sem hófst árið 1946. Frá 1951 til 1954 voru Al- þýðuflokkur og Sósíalistaflokkur í meirihluta. 1954 til 1958 Alþýðu flokkur og Framsóknarflokkur og 1958 til 1970 Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur og Alþýðu- bandalag, en haustið 1970 slitn- aði upp úr því samstarfi vegna ágreinings milli flokkanna. Nýr meirihluti var þá ekki myndað- ur, enda var þá í undirbúningi sameining ísafjarðar og Eyrar- hrepps og biðu því flokkarnir átekta um það, hvernig flokka- skipan yrði þá í bæjarstjórn. 3. október 1971 tók samein- ingin gildi og fóru þá fram bæj- arstjómarkosningar. Kom þá fram nýr flokkur, Samtök frjáls lyndra og vinstri manna og breyttist flokksskipanin við það. Sjálfstæðisflokkur hefur fjóra bæjarfulltrúa, SFV tvo, en Al- þýðuflokkur, Framsóknarflokk- ur og Alþýðubandalag einn mann hver. Vinstri flokkarnir reyndu meirihlutamyndun að kosning- um loknum án árangurs, og bæj arfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks ræddust þá einn- ig við án þess að samningar tækj ust. 1 vor hófust aftur viðræður milli vinstri flokkanna, sem fóru út um þúfur, en nú hefur hins vegar t.d. tekizt samstarf með Sjá'lfstæðisflokki, Alþýðuflokki og SFV eins og áður segir. Þessi timi sem liðinn er án þess að ábyrgur meirihluti starf aði í bæjarstjórn hefur ekki gef- ið góða raun. Afgreiðsla mála hefur verið of tilviljanakennd og alla festu vantað við stjórn fjár mála og verklegar framkvæmd- ir, þar sem enginn flokkurinn hefur talið sig bera ábyrgð um- fram annan við afgreiðslu mála. Oftast hefur þó tekizt samstarf um einstök mál milli Sjálfstæð- isflokks og SFV, þar á meðal afgreiðsla fjárhagsáætlunar fyr ir árið 1972. Það er von mín, að meiri festa komist nú á við afgreiðslu mála og meira eftirlit með fjármál- um og verklegum framkvæmd- um. Meirihlutinn mun beita sér fyrir gerð heildarskipulags fyrir kaupstaðinn og fjögurra ára áætlun um helztu framkvæmdir, fjármögnun þeirra og forgangs- röðun. Hér eru fjölmörg mál ó- leyst. Bygging nýs sjúkrahúss og læknamiðstöðvar í samvinnu við nærliggjandi byggðarlög verður að hafa þar forgang, því að ann- ars höldum við ekki læknum hér. Auk þess eru aðkallandi verkefni í hafnarmálum, dýpk- un Sundanna, malbikun gatna, sorpeyðingarstöð, elliheimili, stækkun gagnfræðaskólans, bygging íbúðarhúsnæðis og margt fleira. Ekki verður þó allt gert í einu og því er nauðsyn- legt, að gerð verði framkvæmda áætlun, eins og fyrr segir. Það verður þó að hafa í huga, að aðeins eru eftir tvö ár af þessu kjörtímabili. — Neyðarástand Framhald af bls. 1 verksvið sitt, og hafa sett vörð um hafnir tiil að halda bílstjór- unum í burtu. Nýstofnuðum vinnudómstóli hefur ekiki tekizt að leysa deiluna, og fangelsanim- ar í dag hafa gert ástandið hættulegt. Ekkert virðist geta komið í veg fyrir verkfall, sem hatfnarverkamenn hafa boðað um all't Bretiland frá og með næstu helgi. — Sálin hans ... Framhald af bls. 10 er afugljóst mál að hávaðinn skiptiir Fischer ekki svo miklrj máli. Hann hefur verið að spila póker. Það sanna við- brögð hans v:ð tilboði Slaters t.d. Við sem stöndum utan við þetta, getum ekki annað en fórnað höndum til himins." En Kooi er samt „Fischer- maður“. „Stíll hans og vald á skákinni er einstök. Ef ég ætti að veðja, þá veðjaði ég á Fischer. Mér þótt gott að hann vann þriðju skákina. Ég held að ímynd hans sem skákmanns þurfi ekki að bíða varanlegan hnekki, sérstak- lega ef hann sigrar í einvíg- inu. Standi hann sig vel mun andúð'n hverfa.“ Hann segist ekki fara oft á slíkar keppnir, a.m.k. ekki ut- an heimalands síns. „En mér datt i hug að gaman væri að fara þetta í fríinu. Konan mín tók vel í það og við fórum strax að afla okk- tir upplýsinga um ís- and. söigu og tungu. Okkur Mkar alveg ágætlega, en verð- um þó að fara heim í næstu viku. Hitt er svo annað mál, að veðrið e,r ekki sérleiga haig- stætt. Ég var að senda syni mínum kort, og sagði sem var að sólin sæist á fslandi aðeins á sunnudöguim og póstkort- um.“ Svo fór Sicco Kooi að ræða um heimspeki. „FISCHER ER SKÁKMASKÍNA“ Larry Evans er lítill, dökk- ur maður og svífur um sali fyrirferðarlítill eins og bú- álfur. Hann er meðal þekkt- ustu skákmanna Bandaríkj- anna, stórmeistari, og þrefald ur Bandarikjameistari. Hann er hér önnnm kafinn frétta- maður, skrifar fréttir og skýr- ingar fyrir TIME og daigblaða- keðjuna King Features Syndi- cate. Auk þessa flýgur hann um hverja helgi vestur um haf ti'l að skýra frá gangi ein- vígisins hjá ABC-sjónvarps- stöðinni. Hann rabbaði stutt- lega við bliaðamenn í sér- stöku herbengi sem hann hef- ur baksviðs í Laugardalshöll- inni, þar sem hann hefur tvö sjónvarpstæki til afnota, og fyligist með því sem gerist. „Spas.sky byrjaði mjög vel. í þriðju skákinni varð Fischer að koma með eitthvað nýtt, en Spassky tók allt bit úr byrjun- imni hjá honum. Það er mjög mikil'vægt fyrir Spassky að vinna með svörtu, — þótt það komi sér auðvitað vel að vinna á hvítu lika,“ bætti Ev- ans við glottandi. „Það sern hefur verið að gerast fjarri skákborðinu hef- ur í rauninni verið áhugaverð- ara en það sem hefur gerzt við það,“ hélt Evans áfram. „Ég tel kvartanir Fischers ekki réttmætar, en kanmiski helzt þær siem varða kvik- myndavélarnar. En hann hefði átt að vera viðbúinn þeim og hafa þjálfað sig fyr- ir þær.“ Og Evans er býsna ánægð- ur með undirbúninig í.slend- imga. „íslendingar hafa gert betur en nokkur önnur þjóð í þessum efnum, t.d. við að halda áhorfienduím í skefjum. Ef þetta væri í Buienos Aires væru áhorendur löngu búnir að jafna miðasöliuna við jörðu.“ Larry Evans hefur þekkt Bobby Fischer siðan hanm var 13 ára. „Fischeir er sérstök teg- und af snMingi. Ef hann væri ekki svona duttlungaflullur og næmur þá væri hann kannski ekki heldur svona góður skák- maður. En nú er kominn timi til að Bobby fari að gera öðr- um til geðs til tilbreytingar. — Hann er skákmaskína, og fátt annað en skák hefur gildi fyrir hann. Hanm ein- beitir sér nú eingöngu að því að verða heimsmeistari i skák. Á meðan hefur hann engan áhaga á öðru.“ Vill hann nokkru spá? „Ég veit það ekki. Spassky er sá fyrsti sem hefur veitt Bobby raunveruloga mótspyrnu. Hann hefur haft fjölda mögu- leika á að hætta við einvígið, en hann vill greinilega sýna að hamin sé heimsmeistarinn. Ég hef líka þekkt Spassky lengi persóniullega. Þessir tveir menn eru mjög ó'líkir eins og gefur að skilja. Spassky er mannlegri; Fis- cher er meira upptekinn af sjálfuim sér. SkákUstarinnair vegna vona ég að einvígið verði jafnt.“ Og Larry Evans lætur þess gietið að skák sé orðin á hvers manns vörum i Ameríkiu. „Jafnvel leigubílllstjórar í New York eru að velta vöngum yf- ir sikák. Þetta er ótrúlegt." Síð an heldur hann áfram að skrifa og stúdera stöðuna. Það kom í ljós að sálin hans Bobby, þrátt fyrir allar bolla- l'eggingar, var enn þá á sinum stað. Hún hafði hvorki farið inn i mynd-avélina hjá Sveirai ljósmyndara né annað, en spakir menn telja að sálin hljóti að vera staðsett í botn- langanium. Hvað sem þvi líð- ur þá var sálargreyið hans Bobby nógu góð til að burista Boris Spassky í skákimni þenn an dag. — Á. Þ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.