Morgunblaðið - 22.07.1972, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.07.1972, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚLl 1972 Heimsmeistaraeinvígiö i skák; Fyrirspurn til yfir- dómara Lothar Schmid Fyrir nokkrum árum sá ég leikritið „Nashyrningarnir“ í Þjóðleikhú^inu. Því nefni ég þetta leikrtt að nú síðustu vik- urnar, þegar ég hefi horft á sjónspil fréttamanna, þar sem þeir tryllast að Fischer, kemur baul „Nashyrninganna" æ ofan í æ upp í huga mér. Löngu iærð saga kemur fram úr móðu gleymskunnar. Þar segir frá því, þegar Meistarinn mikli kom þar, sem stór hópur manna var að berja konu grjóti, vegna þess að hún var of örlát á blíðu sína. Þeir þóttust hins vegar svo heilagir að eigin mati, að slíkt væri dauðasynd. Það var þá sem Herrann sagði: „Sá sem er syndlaus kasti fyrsta steininum." Einhvern veginn hefir mér alltaf geðjazt betur að vændis- konunni í þessari sögu, þó syndug væri, en heilaga grjót- kastslýðnum. Ég hef fylgzt með öllum skákunum i einvíginu frá byrj- un og á þriðjudaginn, þegar 4. einvígisskákin var tefld hitti ég þar einn vin minn ásamt tveim öðrum mönnum. Tókum við tal saman, vorum við allir á einu máli um að hér væri í óefni komið. Og sagði þá einn þeirra við mig: „Reis þú rönd.“ Nú væri það í sjálfu sér heimskulegt að blanda sér i eða koma nálægt því grjótkasti sem hér fer fram. Því nálega heil stétt manna grýtir af full- komnu miskunnarleysi varnar- lausan mann í framandi landi. Og svo níðingslega lágt er lagzt að jafnvel ritstjóri dag- blaðs, í leiðara í blaði sínu, Hvenær fáum við fullkominn leiklistarskóla? MEÐ bréfi dagsettu þann 20. sept. 1968 fór Félag íslenzkra leikara þess á leit við þáverandi menntamálaráðherra, dr. Gyifa Þ. Gíslason, að þegar yrði sam- in löggjöf um leiklistarnám hér á landi og stofnaður einn leik- listarskóli fyrir allt landið, rek- inn af rikinu. Hugmynd Félags íslenzkra leikara hefur frá upp- hafi verið að þessi fyrirhugaði leiklistarskóli ætti að vera sjálf- stæð stofnun, óháð leikhúsum höfuðstaðarins. Stjóm Félags ís- lenzkra leikara hefur auk þess margoft rætt við menntamálaráð herra um þetta aðkallandi vanda mál islenzkra leikara og bent á nauðsyn þess, að þar yrði ráð- in bót á, én að öðrum kosti mundi það hafa hinar alvarleg- ustu afleiðingar fyrir leiklistina í landinu í náinni framtíð. 1 júlímánuði árið 1969 skipaði menntamálaráðherra nefnd til að kanna þetta mál og skilaði nefnd in áliti til ráðuneytisins þann 9. febrúar 1970. Megintillöigur nefndarinnar voru, að rikið ræki leiklistárskóla í Reykjavík, óháð- an leikhúsunum og undir yfir- stjórn menntamálaráðuneytisins. Töldu nefndarmenn, að skóiinn ætti að vera í nánu samræmi við evrópiska — og einkum norr æna leiklistarskóla um skipulag og námskröfur. Tilgangur skól- ans yrði sá, að veita nauðsyn- lega undirbúningsmenntun á eins víðtækum grundvelli og unnt er, þeim er stunda vilja leiklist á íslandi. Þjóðleikhúsið hefur starfrækt leiklistarskóla í 21 ár og voru siðustu nemendurnir úr honum brautskráðir á liðnu vori. Við skólauppsögn var því lýst yfir, að þetta væri síðasti árgangur- inn, sem útskrifaðist frá skölan- um. Leikfélag Reykjavíkur rak leiklistarskóla í mörg ár, eða allt til ársins 1969. Þá var hætt við rekstur skólans og lýstu þá for- ráðamenn þvi yfir, að það væri gert til að ýta á eftir þeirri hug- mynd, að nýr og fullkominn leik listarskóli yrði stofnaður sem fyrst og væri hann rekinn af rík- inu. Islenzkir leikarar verða á því herrans ári 1972, að horfast i augu við þá bitru staðreynd að engir leiklistarskólar verði starf andi í höfuðborginni ef undan eru skildir einkaskólar ein- stakra leikara. Það er á allra vitorði, sem til þekkja, að leiklistarkennsla hér á landi hefur frá öndverðu staðið langt að baki sambæri- legu námi hjá nærliggjandi menningarþjóðum. íslenzkir leik listarskólar hafa alla tíð búið Klemenz Jónsson. við mikinn fjárskort og hefur lengd námstímans að sjálfsögðu mótazt af því. Námstíminn var áður tvö ár, en hin síðari ár hafa nemendur verið í skólun- um í 3 ár. Kennslustundir á dag hafa að jafnaði verið 2—4 og kennt í 8 mánuði. 1 erlendum leiklistarskólum stendur kennsl- an yfir í 7—8 klukkustundir á dag. Kennslutíminn á ári eru 9 mánuðir og er námstíminn 3—4 ár og sums staðar 5 ár. Þessi samanburður ætti að sýna að mikil þörf er á, að þegar verði bætt úr þessu vandræðaástandi. Islenzk leiklist er ung list- grein, sem hefur á örfáum ár- um þróazt úr tómstundaiðju nokkurra dugandi áhugamanna, í ört vaxandi listgrein. Leikhúsað- sókn er hér betri en í flestum löndum heims og fer vaxandi með hverju ári. Leikhúsferðir eru orðnar snar þáttur í lifi fólks. Þörfin fyrir unga leikara, sem hafa hæfileika og þjálfun hefur aldrei verið brýnni en nú. Með þvi að hætta rekstri leik- listarskólanna missir íslenzk leikarastétt örugglega af stórum hópi ungs hæfileikafólks, sem sérhver listgrein, má sizt af öllu vera án. Slíkt hlýtur að hafa i för með sér hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir listalífið i land- inu í náinni framtíð. íslenzkir leikarar líta á þetta mál að sjálfsögðu mjög alvar- legum augum og telja að við siíkt ástand verði ekki unað öllu lengur. Það er því skilyrðislaus krafa leikarastéttarinnar, að þegar verði hafizt handa i þessu máli. Löggjöf um leiklistarnám verði lögð fyrir alþingi til sam- þykktar. Nýr og fullkominn leik listarskóli rísi af grunni til þroska og velferðar fyrir listalíf ið i landinu. Lothar Schmid nefnir hann í sömu andrá og mesta þjóðfélagsglæpamann og morðingja sögunnar. En nóg um það, sný ég mér þá að þætti FIDE og yfirdóm arans í þessu máli. Allir vita að Bobby Fischer var neyddur til að biðjast opinberlega af- sökunar á einhverjum „móðg- unum“ sem þeir höfðu orðið fyr ir þessir herrar og réttur hans til að tefla um titilinn af hon- um te'kinn, ef hann ekki gerði svo. Löngu áður en einvígið byrj- aði voru nokkur atriði, sem keppendur komu sér saman um. Og settar voru reglur sem giltu afdráttarlaust fyrir báða aðila. Um þessar reglur hefir aldrei verið neinn ágreiningur, og i rauninni standa þær ofan og ut an við það þras og taugastríð, sem um einvígið hefir verið. En þar kveður á um m.a. að ekki má reykja á sviðinu og ekki má trufla þann sem sit- ur og hugsar með því að ganga fram og aftur um sviðið. Enda hafa keppendur herbergi til hliðar, þar sem þeir geta fram ið slikt án þess að truflun valdi. Nú víkur sögunni til 4. ein- vigisskákarinnar, þar sem Fisch her átti mjög í vök að verjast. Og er þá komið að ástæðu þessarar greinar: Spurning- unni, eru báðir keppendur jafn ir fyrir dóminum? Á mjög viðkvæmu augna- bliki í skákinni hékk líf ,,hvíts“ á bláþræði og minnsta óná- kvæmni af Fischers hálfu hefði haft glötun í för með sér. Fisc- her sökkvir sér niður í stöð- una. Þá gerizt það, að Spassky gengur að borðinu tekur glas eða könnu, sem hann hefur undir drykk, handleikur það um stund fyrir framan Bobby og gengur síðan út undir vegg, þar sem dómarinn er. Spassky snýr siðan við aftur, og leggur glasið á borðið til hliðar við Fischer. Og nú gerist það sem ég og þau hundruð manna sem í saln- um voru urðu vitni að. Spassky tekur að þramma fram og aftur við hlið Fisch- ers og fram fyrir hann og gekk svo um stund, án þess, að dóm- arinn sæi nokkra ástæðu til að koma i veg fyrir þessa truflun. Mestar líkur eru til að Spassky hafi gert þetta í hita og spennu augnabliksins. En bar ekki dómara að vara hann við og er sá hæfur í slíka ábyrgðarstöðu sem lok- ar augunum fyrir svo augljósu broti. Og nú er spurningin þetta hr. Lothar Schmid, ætlar þú að sýna manndóm og sanna okkur áhorfendum að þú sért hlutlaus, með þvi að gera báða keppendur jafna fyr ir dóminum og krefjast þess að Spassky biðjist afsökunar á að hafa brotið settar reglur. Ég vil biðja þann sómamann Guð- mund Amlaugsson, aðstoðar- dómara um að L. Schmid fái þessa fyrirspurn. Virðingarfyllst, Magnús Sigurjónsson. I qk **■ ALHLÍÐA TRYGGINGAÞJÓNUSTA YFIR 50 ÁRA REYNZLA TRYGGIR ÖRUGGA ÞJONUSTU SJOVA INGÓLFSSTRÆTI 5 REYKJAVÍK S(MI 11700 Klemenz Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.