Morgunblaðið - 22.07.1972, Page 7

Morgunblaðið - 22.07.1972, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚLl 1972 7 Smmútna krossgðta Lárétt: 1. með eiturlyfi, 6. borðandi, 8. ræktað land, (fomt) 10. á litinn, 12. rikiserf- ingjar, 14. á í Evrópu, 15. eign- ast, 16. hæða, 18. langan gang. Lóðrétt: 2. veiðarfæri, 3. borða, 4. bits, 5. þjóðflokkur, 7. iíkamshluta, 9. krubba, 11. smá ögn, 13. núningur, 16. fyrir ut- an, 17. tveir eins. Ráðning síðustu krossgátu: Lárétt: 1. áþekk, 6. u)l, 8. iæk, 10. ósk, 12. aflakló, 14. S.I., 15. ól, 16. aða, 18. allstór. Lóðrétt: 2. þukl, 3. el, 4. kló, 5. fiaska, 7. skólar, 9. ævi, 11. sló, 13. auðs, 16. ai, 17. at. Bridge Maingit skemmtilegt getur kom ið fyrir við spilaborðið þegar líða tekur á erfiða og langa keppni. Hér er spil frá leikmum milli Sviss.og Perú í opna fJoikkn um í Oiympi u k e ppn iroi i 1972, sem sýnir að spilararnir verða að vera vel á verði. Norður S: G-10-9-8 4 H: K-G-3 T: — . L: Á 10-7-3-2 Vestur Austuar S: K-D-7-6-3 S: Á H: 9-6 H: Á-10-7-5 T: K-7-3 T: Á-D 8-5-2 L: D-9-4 L: K-6-5 Suður S: 5-2 H: D-8-4-2 T: G-10-9 6-4 L: G 8 Spilaramir frá Perú sátu A-V og söigðu 3 grönd. Hinn kunni svissneski spilari, Jean Resse, sat 4 s'uðri og lét út spaða 5. Sagn- haiíi drap með ás, lét út laufa 5, drap í barði með drottningu, norður drap með ási og lét út hjarta gosa. Saiginhafi gaf, norð- ur lét næst út hjarta kóng, emn gaf sagnha.fi, en þegar norður lét út hjarta í þriðja sinin drap sagnhafi með ási. Sagnhafi sá nú, að hann átti aðeins 8 visa siagi, nema tígi- arnir féíiu. Hann á'kvað því að 'geí'a andstæðingnum einn slag á tígul til öryggis og taldi rétt að koma því þanniig fyrir, að norð ur fengi þann slag, þvi suður ætti sennilega hjarta drottningu. Sagnhafi lét því út tíigul 2 og Besse var ekki vel á verði og drap með tígul 4. Sagnhafi var haria ánægður og lét tigul 3 úr borði og taldi öi'uggt að norð'ur fengi siaginn. Undrun hans og Besse var jafn mikil þegar í ljós kom, að Besse fékk slaginn á tigul 4. Var nú Besse ekki seinn á sér að taka hjarta drottn ingu og þar með tapaðiist spiiið. Hefði sagnhafi borið gæfu til að láta tigul 7 úr borði í stað tigul 3, þá hefði spilið unnizt. GANGIÐ ÚTI í GÓÐA VEÐRINU DAGBOK R\R\A\\\.. Adane og Æjale í Eþíópíu Eftir í>óri S. Guðbergsson ógæfu yfir þorpið okkar, ef þetta heldur svona áfram. Andarnir magnast og reiði þeirra vex. Fyrr eða síðar kemur eitthvað ægilegt fyrir. Snúðu aftur til gömlu siðanna og vertu með okkur.“ Adane reyndi að vera fastur fyrir. Oft var það óskaplega erfitt. Stundum ætlaði hann alveg að gef- ast upp. Kvöld eitt var hann á leið heim til sín. Myrkur var skollið á og hann gekk hröðum skrefum. Allt í einu var ráðizt aftan að honum. Hann gat enga björg sér veitt. Hann var bundinn á höndum og fót- um og bindi sett fyrir augu hans. En hann þekkti radd- irnar. Þetta voru gömlu vinirnir hans. Þeir drógu hann eitthvað í burtu og sögðu: „Hér skaltu vera og hugsa þig vel um. Ef ein- hver finnur þig fljótt, held urðu lífi. En ef enginn skyldi finna þig strax, veiztu hvað bíður þín. Góða ferð inn í landið hin- um megin. Við erum hræddir og verðum enn hræddari, þegar þú vilt ekki vera með okkur.“ Adane heyrði fótatakið fjarlægjast. Hann varð einn eftir. Hann heyrði þyt trjánna, flaut bjalln- anna og rop froskanna. Hann heyrði í apaköttun- um og hýenunum og hon- um rann kalt vatn milli skinns og hörunds. Hann varð gífurlega hræddur. Eins og í leifturmynd sá hann líf sitt fyrir sér. Hann sá í fyrstu eftir að hafa farið til kristniboð- ans. Honum fannst skyndi- lega eins og allt væri unn- ið fyrir gýg — og svo mundi hann enda líf sitt á þennan hátt. Dauðinn var á næsta leiti. Hann titraði og skalf og velti sér til og frá á jörðinni. Smám sam- an tókst honum að hugsa skýrar. Hann róaðist og lá kyrr nokkra stund. Átti hann ekki að reyna að biðja? Var ekki reyn- andi að tala við Jesúm? Var hann ekki hjá honum? Mundi hann ekki líka leiða hann inn í himininn, ef dauðinn kæmi? Varirnar bærðust rólega. „Jesús. Ég er vinur þinn og þú ert vinur minn. Stundum vil ég fara til gömlu félaganna minna — en mig hefur lengi langað til þess að losna úr þess- um skuggafjötrum, sem hafa bundið mig. Ég veit nú, að þú getur leyst mig, ef þú vilt — ég veit ekki, hvernig ég á að koma orð- um að því — en þú mátt bara eiga mig — og ég skal vera lærisveinn þinn . . .“ Adane fannst allt hljóðna í kringum sig. Hann tók ekki lengur eft- ir þyti vindsinis. Hann heyrði ekki lengur í páfa- gaukum og fuglum trjánna. Honum fannst hann vera að sofna. Hann var þreytt- ur — og enn var hann ekki alveg viss um, hvort Jesús mundi bjarga hon- um eða taka hann til sín. Allt í einu hrökk hann við. Bindið var leyst frá augum hans og böndin tekin. Hann nuddaði aug- un og starði á hávaxinn mann fyrir framan sig. Barrisja var á leið heim til sín. Hann hafði verið í heimsókn hjá gömlum vini sínum, töframanni. Hann var að segja honum frá Jesú, frelsaranum eina. HÁTÍÐIN mikla Dagarnir liðu. Lífið gekk að mestu sinn vanagang í Konsó. Adane vildi verða Guðs bam og læra meira um hann. Barrisja vitnaði um trú sina, sagði frá fyrra líferni sínu og bað menn í einlægni að snúa sér frá valdi hins illa, frá valdi myrkurs til ljóssins. Stundum komu töfra- menn til Barrisja á laun, læddust til hans, þegar engir sáu. Þeir þrábáðu hann að snúa sér aftur að sínu fyrra starfi. En þegar það dugði ekki, hótuðu þeir honum öllu illu. Allt kom fyrir ekki, Barrisja sat fastur við sinn keip. Hann vildi alls ekki skipta aftur. Hann langaði áfram til þess að lifa í ljósinu. Verst þótti honum þó með gömlu, heiðnu siðina og venjurnar, Satanshátíðir og aðrar venjur, sem hon- um fundust brjóta í bága við það, sem kristniboðinn sagði um Guð og vilja hans. En ef hann sleppti þessum siðum, yrði honum útskúfað úr samfélagi hér- aðsbúa. Það var stundum \ir mjög vöndu að ráða. Þegar svo stóð á, gekk hann gjarnan til Gandó gamla, sem einnig var orð- inn kristinn og ræddi vandamálin við hann. Gandó var mjög vitur og greindur maður, kominn á efri ár. Ekkert virtist koma honum úr jafnvægi, ekkert virtist koma honum á óvart. Alltaf var hann jafn rólegur á hverju, sem gekk. Hann var aldrei að flýta sér, hann flanaði aldrei að neinu. Það var gott að ræða við hann. Einu sinni fengu þeir Adane og Garíde, hjálpar- maður kristniboðshjón- anna, að fara með kristni- boðanum í bílferð. Þeim þótti það mikill fengur. Það var ekki á hverjum degi, sem þeim hlotnaðist slíkur heiður. Rigningartíminn var að hefjast og kristniboðinn vildi hafa þá með sér, ef þeir festust á leiðinni. Allt gekk vel í fyrstu og bifreiðin brunaði áfram. Aldrei höfðu þeir Adane og Garíde farið svona hratt. Þeim fundust þeir FRHMHflbÐS SflErfl BflRNflNNfl SMAFOLK PEANUTS X 57000 IN FKONTOF THAT LITTLE KEP-HAtKEO 6IKLANPI 5AW HOW fRETTV^HÉ WAð, 6-ZZ — Ég stóð íyrir íraman litlu, rauðhærðu stúlkuna og sá hvað hún var falleg. — Skyndiiega varð mér Ijóst, hvers vegna Kaiii kall- 5UPPENLV, I REALIZEP UIHV CHUCK HA6 ALWAV5 LOVEP m, ANPI REALIZEPTHAT N0 ONE WOULP EVER LOVE ME THAT WAV„ I 5TARTEP10 CRV, ANP I COULDN'T 6TöP.uI MAPE A FOOL OUT OF NHæJr. WTI PlPNt CAREÍ I JU6T LOOKEP AT HER AHPI CRlEP ANP CRlEP ANP CRlEP... I HAVE A B!G N05B AND /W 5PLIT-ENPÍ HAVE 6PLIT-ENP5, ANí l'LL AUUAVé dí FUNNV-LOOKINö, ANPITHINK l‘M 60INGTO CRV A6AIN inn hefur alltaf elskað hana. Og ég \4ssi að, engtnn mun nokkurn tíma elska mig á sanm hátt. — Ég- byrjaði að gráta og ég gat ekki hætt. Ég gerði mig að fifli, en mér var alveg sama. Ég horfði bara á hana og ég grét og grét og grét. — Ég er með stórt nef og hárið á niér verður alltaf tjásulegt og ég beid að ég sé að fara að gráta aftur. FERDINAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.