Morgunblaðið - 22.07.1972, Síða 9
MORGU'NBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚLl 1972
9
vaegi landgræðslunnar og aukn-
uxn íjárveitingum til hennar.
Páll lagði jafnan mikla
áherzlu á það að fjármagnið,
sem veitt var til landgræðsl-
unnar nýttist sem bezt og varð
vel ágengt i þeim efnum.
Piáil átti gott samstarf við
bændur víða á landinu og við
áhugamenn um landgræðslumál,
sem var honurn hvatning í starfi.
Árangursrík störf og hvatn-
ingar brautryðjendanna Gunn
laugs, Runólfs og Páls um ára-
tugaskeið, kunna að hafa haft
meiri áhrif en annað til að
breyta áhugaleysi og tregðu í
fyrstu í áhugaöldu fyrir aukinni
landgræðslu, sem nú gengur yf-
ir og kmýr æ fleiri til athafna á
því sviði. Sú breyting sýnir
mikla viðurkenningu á gildi
þeirra verkefna, sem Páll helg-
aði iífsstarf sitt.
Eitt af áhugamálum Páls var
áburðardreifing úr flugvélum
til að auka afköst ræktunar-
starfsins. Það hefir reynzt veiga
mikið framfaraskref.
Auk aðalstarfs lamdgræðslu-
stjóra rak Páll stærsta bú lands-
ins — nauta- og fjárbú — og
framleiddi grasið fyrir heyköggla
verksmiðjuna í Gunnarsholti.
Sú tiiraun til fóðuröfiunar heíir
gefið góða raun.
Páil var starfssamur og hug-
maður. — Hann vænti árangurs
af starfi unditrmanna sinna, sem
jaÆnan virtu hann mikils. Hann
var hlédrægur — hugsaði meira
um árangur starfsins en að
kynna ha.nn.
Miinni Páls var viðbruigð-
ið. Hann var á vissum svið-
um dulur en átti mikla hjarta-
hJýju. Hann var að eðlisfari við
Ikvæmiur, en gat, ef því var að
skipta, sýnzt stórlyndur. — Um-
’bnot í skaphöifn — í einu formi
eða öðru — sýnast oft vera áber-
andi þáttur i mikilvirku sköpun
arstarfi, sem einkenndi líf Páis.
Hann naut þess að takast á við
auðnir og sanda og breyta þeim
í iðjagræn nytjalönd, — eins og
Skógasand, Þjórsárdal og mörg
svæði önnur víða á landinu. —
SJík skapandi írumverk tjá
jafnan hinn innra mann, þau
stækka sjónviddina og auka á
trú manna, þau verða nýjar við
miðanir og leiðarljós öðrum til
að iikja eftir og við mótun
markmiða í framfarasókn. —
Siík verk veita mikla lifsnautn
sem Páll naut í ríkum maali.
Ég ætla, að Páll hafi verið
þakklátur samfélaginu fyrir að
gera honum mögulegt að vinna
að hugsjónamáli sinu: upp-
græðsiu og ræktun landsins —
og þess vegna talið sig gæfu-
mann. — Einnig hitt að bændur
iandsins — og samíélagið í
heild — þakki honum mikið lífs
starf, sem mun koma óbornum
kynslóðum að notum.
Þegar starfssaga Páls Sveins-
sonar verður skráð og metin að
verðieikum verður hún merkur
kafli í framfarasöigu landbúnað-
arins og merk saga um lífræn
samiskipti mannsins og landsins
á okkar tíma.
Um ieið og fjöiskylda mdn og
éig kveðjum Pál Sveinsson land
igræðsiustjóra, með söknuði og
þakklæti fyrir langa og trygga
vináttu þá votíum við ástvinum
hans, Guðmundu Davíðsdóttur,
börnum hans oig ættingjum inni
lega samúð okkar.
Jóhannes G. Helgason.
Páll Sveinsson, iandgr#eðslu-
stjóri, andaðist að heimili sinu
Gunnarshoiti aöfaranótt 14. júlí
s.l. Mér sem mörgum öðirum var
brugðið að heyra þau tiðindi.
Kvöidið áður var ég hjá hon-
um um stund, og datt þá sizt í
hug feiigð hans, og handtak hans
var þétt og hlýtt er við kvödd-
umst.
Nú er ég leiði huigann að 8
ára kynnum mínum af Páli
Sveinssyni kemur fram sú
mynd af honum, að hanm haíi
verið maður íjós yfiriitum, i með
allagi hár, svipurinn ákveðinn
en hreinn og drengilyndur. Á
þessum árum áttum við mikil og
góð samskipti. Vistheimilið í
Gunnarsholti tók að sér mörg
verk fyrir Landgræðsluna svo
sem húsabyggimgar, girðingar-
vinnu inni á afréttarlandi og
margt fieira oig veigna þessara
framlkvæmda hófust kynni okk-
ar.
Það leyndi sér aldrei hvern
hug Páll bar til þess starfs er
hann var ráðimn til, landgræðsl
unnar, og trú hans á iandið var
mikil, og ákafur var hann í að
láta verkin tala, og hikaði
aldrei við framkvæmdir sem
hann hafði trú á að bæru árang
ur 'til uppgræðslu landsins.
Eftir því sem éig kynntist Páli
betur mat ég hann meir, bæði
fyrir duignað hans sem kom
fram á svo margan hátt, einnig
mannkostamanninn sem stund-
um virtist svo hrjúfur en er á
reyndi var drenglyndur og
hjálpsamur.
Báðir vorum við féiagar í Rot
aryklúbbi Rangæinga og störf-
uðum þar saman, en Páll var for
seti klúbbsins sl. starfsár. —
Klúbburinn naut dugnaða'r
hans og fra-msýni, og undir hans
stjórn tók klúbburinn að sér
uppgræðslu Kirkjuhóls og
lands þar í kring, sem er
skammt frá Keidum á Rangár-
völlum. — Páll var mjög ágfet-
ur Rotaryfélagi og umhugað um
velgengni klúbbsins.
Ég veit að aðrir verða til
þess að skrifa um störf Páls oig
mun ég ekki gera það hér frek-
ar, en ég vil þakka honurn fyrir
sérstaklega gott sams'tarf og
kynni, og ekki hika ég við að
segja að Rangárveilir verði
svipminni við fráfall hans, og
svo mun fleirum þykja. — Guð-
mundu, bömunum og öðrum ætt-
inigjum sendi ég og fjölskylda
min inmilegar samúðarkveðjur á
sorgarstundu.
Minningin um góðam mann
gleymist aldrei.
Skúti Þórðarstm.
Föðurbróðir minn, Páll
Sveinsson landgræðslustjóri,
andaðist að heimiii sinu Gumn-
arsholti Rangárvöllum 14. júlí
s.l. aðeins 52 ára að aldri.
1 dag fylgja ættingjar og vin-
ir honum síðasta áfangann, þvi
enn hefur dauðinn höggvið
skarð í ástvinahópinn. Og þrátt
fyrir þau sannindi að fæðast og
deyja sé lífsins saga, stöndum
við jafn óviðbúinn hverju sinni.
Mikill er missir litlu drengj-
anna hans og okkar eldri
dren.gjanna hans, því Páll vafði
okkur syni Runólfs umhygigju
og hafði mikinn áhuga á námi
okkar og störfum, sem veeri
hann okkar eiigin faðir og börn
um okkar afi, og verður þáttur
hans aldrei að fullu þakkaður.
Fyrir allt þetta flyt ég þér inni-
legar þakkir móður minnar og
okkar bræðra.
Páll frændi var blíðlyndur og
tilfinninganæmur að eðlisfari,
en gat verið hvatskeytlegur í til
svörum, því hann var fljóthuga.
Hann var kvikur á velli og
snerpumaður mikill. Hann var
margra manna maki í hugsun og
verkum, það vita þeir, sem
þekktu Pál Sveinsson. Hugsjón
hans og starf, var að græða
upp landið, og það veitti hon-
um mi'kla hamingju og gleði að
sjá svarta sanda breytast í ið-
græn tún. Hann trúði þvi af al-
huig, að hægt væri að gera
kraftaverk í uppgræðslu hér á
íslandi, og ég held að það sé
ekki ofmæit þó að fullyrt sé, að
hann hafi verið sá maður, sem
átti mestan þátt í þvi að sanna
það fyrir þjóðinni að það er
hægt. Alla ævi hafði hann mest
dálæti á því, sem var að vaxa
og þroskast. Hann var mjög
barngóður og hjartahlýja hans
og hjálpsemi var einstök. Ég
mun aldrei gieyma tillitssemi og
umhyggju Páls við afa og ömmu
meðan þau lifðu.
Páll minn, það fylgja þér
margir þakklátir huigir yíir
landamærin mikiu. Ég bið al-
mœttið að styðja og styrkja þig
Guðtmunda mín, og litlu dreng-
ina ykkar, og ástvinina sem eft
ir lifa.
Við bræður munum alltaf
minnast Páls, sem ástriks
frænda.
Þórhallnr Riinólfsson.
Keeri vinur
Fregnin um, að þú hefðir
kvatt okkur fyrir fullt og allt,
kom eins og þruma úr heiðskíru
l'Ofti. Það var ekki langt siðan
við höfðum ræðzt við siðast
viegna ræktunarframkvæmda
ökktir Sverris bróður míns, að
Sigriðarstöðum til að njóta leið-
beininga þinna.
Ailtaf varst þú boðinn og bú
inn að aðstoða okkur, og skipti
þá en.gu máli, hvort það var á
helgum eða rúmhelgum degi.
Þær voru ekki svo fáar ferð-
imar, sem við hjónin komum á
heimili ykkar, venjulega á
sunnudögum, og jafnan var gest
risnin frábær og ráðleggingarn-
ar af heilum hug.
Oklkar litla land hefur misst
ótviriæðain dugnaðanmann og
frumikvöðlul, sem hafði allan huig
ann við ræíktun örfoka lands, og
er skarðið vandfyllt. Það var
svo margt, sem þú áttir eftir
ólokið. Við stöndum í miki'JIi
þakkarskuld við þi'g, sem aldxei
verður endurgoldin.
Við vottum kionu þinni og
sonunum ungu innilega samúð.
Megi góður Guð styrkja þau í
sinum mikia harmi. Guð blessi
minningu þiina.
Ingimunður Sigfússon.
Síil ER 24300
Höfum
kuupendur
að öllum stœrðum
íbúða f borginni
Sérsfaklega er
óskað etfir nýtízku
4ra, 5 og 6 herb.
sérhœðum. Miklar
útborganir
lilýja fasteipasalan
Laugavegi 12
Sérverzlun lil sölu
Lítil sérverzlun í miðborginni til sölu.
Tilboð sendist afgr. Morgunbl. fyrir næstu
mánaðamót merkt: „Snyrtivörur — 2206“.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Hýjung í ruskinnshreinsun
Höfum fengið ný efni, sem mýkja og vatns-
þétta skinnið og hreinsum einnig krump-
lakkskápur og önnur gerviefni.
EFNALAUG VESTUIIBÆJAR,
Vesturgötu 53 — Sími 18353.
ÚTIBÚIÐ Arnarbakka 2
við Breiðholtskjör, sími 86070.
Sími 24300.
Utan skrifstofutíma 18546.
Til hamingju
með nýju búðina
Ásgeir
Viö munum aö sjálfsögöu halda
áfram að veita góða þjcnustu
á Langholtsvegi 174.
Þess vegna höfum við opið
í hádeginu alla virka daga,
til kl. 20 á föstudögum, og
til hádegis á laugardögum.
NAFNIÐ ER NÝTT - ANNAÐ ÞEKKJA
VIÐSKIPTAVINIRNIR AF GÖÐU.
Langholtsval sf.
KJÖT- OG NÝLENDUVÖRUVERZLUN
LANGHOLTSVEGI 174
SÍMI: 34320.