Morgunblaðið - 22.07.1972, Side 32
Askriftarsímar:
15899 — 15543.
EINVÍGISBLAÐIÐ
KEMUR ÚT MORGUNINN
EFTIR HVERJA SKÁK.
Pósthólf 1179.
nucLvsmo
LAUGARDAGUR 22. JULÍ 1972
Ekið á móður
og tvö börn
Annað var í barnavagni
KONA og tvö böru hennar urðu
fyrir bifreið, er þau gengu yfir
Krinslumýrarbraut við gatna-
mót hennar og Háaleitisbrautar,
laust eftir hádegið í gær. Konan
og annað barnið hlutu talsverð
meiðsli, en hitt barnið, sem var
í barnavagni, slapp ómeitt.
Þriðja barn konunnar var með
henni, en varð ekki fyrir bif-
reiðinni.
Bifreiðirmi sem er fólksbifreið
af Volvo-gerð, var ekið upp
Kringlumýra: brautina, og er
bifreiðin var komin.n að
Háaleitisbraut, var hún kom-
in á 50—60 kílómetra
hraða, að dómi ökumarnnsins.
Bílar, sem staðnæmzt höfðu á
mdðjum gatnamótunum á leið
austur Háaleitisbraut, akyggðu
nokkuð á útsýni ökumannsina,
þaninig að hanm tók of seint eftir
konunni og bömumun, sem
gengið höfðu út á götuna á
gönguleiðinni, sem þar hefur
verið mörkuð í framhaldi af
gangstéttinni.
Hekla með
hæsta
tek j uskattinn
SAMKVÆMT nýjum upplýsing
um frá Skattstofu Reykjavíkur
ber Hekla h.f. hæsta tekjuskatt
félaga i ár eða 12.745 þús. kr.,
en samtals í opinber gjöld 20.198
þús. kr. Næsthæsta tekjuskatt
ber Olíufélagið h.f. eða 12.668
þús. kr.
Ástæðan til þess, að Hekla h.f.
féll niður í frásögn Morgunblaðs-
ins um hæstu tekjuskattsgreið-
endur sl. fimmtudag, er sú, að
reikningsheilamir slepptu
íremsta stafnum i tekjuskatti
Heklu h.f. í skattskránni.
Konan kastaðist upp á vélar-
hlíf bifreiðarinnar og dældaði
hana, en hlaut sjálf opið bein-
brot á hægra fæti og mar á
handlegg. Tveggja ára sonur
hennar kastaðist í götuna og
hlaut skurð á emni og heila-
hristing, en bifireiðin kastaði
bafftniavagniin.um á hliðina og ýtti
honum á undan sér eina fimm
metra. Bamið í vagminum slapp
þó ómeitt, að talið er. Þriðja
barnið, 5 ára gömul telpa, hafði
verið komin aðeins lengra út á
götuna og leniti bifreiðin ekki
á henni.
Fjöldi fólks staldrar við hjá Morgunblaðsglug-ganum um þessar mundir og kannar nýjustu stöð-
ur i einvígisskákum Spassky og Fischers, en lokastaðan er sett þar upp strax að lokinni hverri
skák.
Skaftá 700m3 á sek. i gær:
Högni Þórðarson.
Vegir farnir að
grafast sundur
Mjólk unnin heima
HLAUPXÐ í Skaftá óx jafnt og
þétt í gær, en þó sagði Oddsteinn
í Skaftárdal síðdegis í gær að
hlaupið væri ekki orðið eins mik
ið og 1970. Taldi hann þó lík-
ur á að flóðið yrði meira.
Nokkra hætta taldi hann vera
fyrir hina 25 metra löngu brú,
sem er yfir Skaftá við Skaftár-
dal, en í gærkvöldi vantaði einn
metra á að vatnaði upp á brúna.
Sagði Oddsteinn að ógurlegur
straumur væri við brúna og er
hún ófær þar sem vatn er far-
Hassbréf og LSD:
Málið til
saksóknara
KEFLVÍKINGURINN tvítugi,
sem handtekinn var í síðustu
viku með 40 LSD-töflur á sér og
einnig var viðriðinn hassbréfa-
málið i Keflavík, var látinn laus
á miðvikudaginn eftir viknlangt
gæzlnvarðhald.
Yfirheyrslum í máli hans, svo
og sex annarra, sem stóðu að
sendingu hassbréfa frá Dan-
mörku, er nú lokið og verða
málsgögnin send til saksóknara
einhvem næstu daga.
ið að grafa veginn báðum
megin við brúna. Flestir vegir
í Skaftárdal voru undir vatni í
gær og ófært að flytja mjólk
frá þeim þremur bæjum sem
þarna eru. Sagði Oddsteinn að
mjólkin væri nú unnin heima
við. 1 gær komust heimamenn
ekki á öll tún vegna vatnselgs
um vegi og taldi Oddsteinn að
ófært yrði þarna um í að minnsta
kosti viku eftir að farið væri
að sjatna. Liðlega 20 manns búa
í Skaftárdal.
Hilmar Gunnarsson í Ásum
taldi þetta hlaup með meiri
hlaupum úr Skaftá og áréttaði
hann að ófært væri orðið um
brúna yfir Skaftá hjá Skaftár-
dal. Heimamenn í Ásum voru í
heyönnum í gær.
Siggeir í Holti sagði í stuttu
viðtali að vatnið í ánni hjá
brúnni á Eldvatni hjá Ásum
hækkaði stöðugt og síðan í fyrra
dag hefði það hækkað um 180
sentimetra. Sagði Siggeir að tal-
ið væri að vatnsmagnið i gær-
kvöldi hefði verið um 700 rúmm.
á sek., en venjulega er það um
150 rúmm. á sek.
E1 Grillo:
Engar djúpsprengjur
eða tundurskeyti
— segir Gower, síðasti skip-
stjóri skipsins — kafarar
Landhelgisgæzlimnajr reyna
að ná fyrstu hlutum upp í dag
Seyðisfirði, 21. júlí.
1 GÆRKVÖLDI kom varðskip-
ið Óðinn hingað til Seyðisfjarð-
ar til að athuga með olíuna og
sprengjurnar í E1 Grilló. Um
borð í Óðni er nú brezkur
sprengjusérfræðingur, R. T.
Drannall, en hann vinnur á veg-
um brezka flotamálaráðuneytis-
ins og hefur hann unnið sl. 30
ár á vegum hersins.
Bjarni Helgason skipherra
sagði að í morgun og aftur í
kvöld hefðu verið undirbúnings-
kafanir til þess að kafararnir
gætu áttað sig betur á aðstæð-
um og hvar djúpsprengjurnar
væru staðsettar, ef þær eru til
staðar. Kafararnir eru Kristinn
Árnason 1. stýrimaður á Óðni
og Þorvaldur Axelsson yfirkaf-
ari landhelgisgæzlunnar. Þor-
valdur er nýkominn heim frá
Danmörku þar sem hann hefur
verið við nám í djúpköfun.
1 kvöld merktu kafararnir
staði við flakið með línum og
duflum til þess að geta unnið
skipulegar og fljótar við köfun
þar sem þeir hafa mjög tak-
Framhald á bls. 20
Myndun melrihluta á ísafiröi:
Samstarf Sjálfstæðisflokks, SFV
og Alþýðuflokks
Högni I>órðarson kjörinn
forseti bæjarstjórnar
S.IALFSTÆDISFLOKKUR, Sam
tök frjálslyndra og vinstri
manna og Alþýðnflokknr hafa
myndað meirihluta í bæjarst.jórn
Isnfjarðar með sjö atkvæði af
níu á bak við sig. Á bæjarstjórn-
arfundi á fimmtudagskvöldið var
kosið í eins árs nefndir og trún-
aðarstöðnr. Högni Þórðarson
(S) var kjörinn forseti bæjar-
stjórnar, Jón Baldvin Hannibals
son (SFV) 1. varaforseti og Sig-
urður J. Jóhannsson 2. varafor-
seti. Sömu menn voru kjörnir
í bæjarráð.
Högni Þórðarson hafði eftir-
farandi að segja í viðtali við
Morgunblaðið í gær.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekki átt þátt í myndun meiri-
hluta á Isafirði í 21 ár, eða frá
árinu 1951, er slitnaði upp úr
Framhald á bls. 20
Meinleysisveður um helgina:
Spáð sólskins-
tipli í skýjum
VIÐ töluðum við Jónas Jakobs
son veðurfræðing á Veður-
stofu Islands í gærkvöldi og
inntum frétta af veðurspá
næstu daga. Hann kvað útlit
fyrir hægláta vestlæga átt, úr
komuvott vestantil, en létt-
skýjað á daginn. Taldi hann
að það yrði mein 1 eysisveður
um helgina, að vísu væri
möguleiki á súldarvotti undir
nætur, en iikur á að sólin
skiní gegnum skýjakápuna
með hægum suðvestan and-
vara eins og víða á landinu í
gaer, en einstaka siký taldi
hann geta rekið frá hafi til
lands.
Þegar við spurðum Jónas
um hæglátu norðanáttina, sem
átti að vera víða um land í
gær, sagði hann að sú hug-
mynd hefði dáið fyrir löngu
og ósamkomulag hæða og
laagða á Islands'svæðinu hefði
ráðið þar úrslitum.