Morgunblaðið - 12.08.1972, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.08.1972, Blaðsíða 8
8 MORGUiNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUK. 12. ÁGÚST 1972 „Sonur okkar er f ar- inn að tefla“ Krogius ásamt komi siimi. Geller og kena iiaos, sem er ballettdansari. llniar og farfneg- ar á iUiirf 1 ugieili fylg dust nieð nióUöku kv«u*anna fjög nrra. Stutt rabb vi5 Larissu Spasskayu við komuna * til Islands I.ARISSA Spasskaya, kona Spasskys kom til landsins í fyrrinótt ásamt konum Gell- ers, Nei og Krogiusar aðstoð- armanna Spasskys. Allir eig- inmennimir nema Spassky vom mættir á veilinum með biémviendi handa þeim fjór- um, en Spassky hvíldi sig liius vegar fyrir biðskákina úr 13. umferð. Larissa kvað þær mundu dvelja hér í 10— 14 daga. Morgunblaðið ræddi stuttlega við Larissu á fhig- veliinum, en ferðalag þelrra var orðið langt, 25 klukkutím ar siðan þær lögðu upp frá Moskvu. Fer rabbið hér á eft- ir: — Velkomin til Islands, hverni.g gekk ferSin? — Ferðin gekk svona og svona, það urðu tafir fyrst i Moskvu vegna veðurs þann- ig að við höfum verið ails 25 klukkusfcundir á leiðinni frá Mí>skvu með nokkurra klukku stunda bið á Kaupmannahafn arflugvelii, en við misstum af vél til Islands vegna seink- unarinnar frá M-oskvu. Ann- ars gekk ferðin vei. — Hvað er sonur ykkar hjóna gamall? — Hann er 5 ára gamall og er nú í sumarbústað skammt frá Leningrad þann tíma sem Islandsdvölin stend ur. — Er almennur skáká’nugi í fjölskyldunni? — Ekki get ég nú sagt að ég hafi mikinn áhuga á að tefla skák, enda þýddi vist litið fyrir mig að reyna að máta Boris, sagði Larissa og hrosti, en sonur okkar er far- inn að tefla. Hann hefur tefit þrjár skákir við pabba sinn, en þótti það vist ekki sérlega skenimtliegt, því að hann vii heldur tefla við jafnaldra vini sina. — Það hefði verið ánægju- legt að sjá son Spasskys hér. — Það var ekki fasagt. Hann er bara heima. Larissa sagðist hafa hlakk að mikið til þess að koma og þær állar. Timann hér ætla þær að nota til þess að fýlgj- ast með skáikinni og skoða landið. .„Nota þá mögttíeika vel, sem geíast," sagði Lar- issa. Annars kváðust þær vera þreyttar eftir langa ferð og langaði til að hvilast. Lar- issa er verkfræðingur, kona Neiis er læknir, .korta GeUers er balletdansari og kona Krog iusar er stærðfræðingur. Þeg ar við spurðum Larissu um það hvers vegna þær hefðu ekki komið fyrr eins og reikn að hafði verið með, vildi hún engu svara, en nú var ekki til setunar boðið, bilarnir biðu og það voru þreyttar en glaðlegar konur sem héldu til borgarinnar eftir strembna ferð. Nei ásanit konu sinni. Larissa var auðsjáanlega þreytt eftir Ianga ferð, en það var ekki langt i brosið lijá henni. Nei, aðstoðarmaður Spasskys tekur á móti Larissu á Keflav ikurflugvelU og afhendir henni blóm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.