Morgunblaðið - 30.08.1972, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 30.08.1972, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1972 Brasilíu- fararnir hafa getið sér gott orð — viðtal við Tómas í*orvaldsson forstjóra, sem hitti einn af afkomendum Brasilíu- faranna frá árinu 1872 Á myndinnLer Unigus Gembarowski, aíkomandi Brasilíufaranna, en þeir hafa haft samband sín á milli og- getið sér gott orð. Með Unigus á myndinni eru Islendingarnir, sem hittu hann að máli á ferðalagi í Ríó de Janeiró. Frá vinstri: Helgi Þórarinsson, Tómas Þorvaldsson, Unigus Gembarowski, Pétur Thorsteinsson, þáverandi sendiherra í New York og Kári Ringseth, konsúll Islands i Ríó de Janeiro. I GREINUM niinum frá Brasilíu að undanförnu í Morgunblaðinu vék ég einu sinni að Brasilíuför- unum íslenseku, sem fóru tU BrasUíu á síðustu öld. Þar sem ekki var hægt að fá neinar upp- lýsingar um þá eftir þeim leið- um, sem ég reyndi hér heima og ytra, taldi ég þá „týnda og tröllum gefna“ eins og það var orðað í einni greininni. Nú er það hins vegar komið fram að svo er alls ekki komið fyrir afkomendum íslenzku BrasUíufaranna, samkvæmt upp- lýsingum Tómasar Þorvaldsson- ar forstjóra í Grindavík, því að hann hitti einn afkomanda ís- lenzku Brasilíufaranna fyrir nokkrum árum. Ræddi ég við Tómas fyrir nokkru um það sem hann vissi í sögu þessa fólks. Um langt bil hafði ekkert verið vitað um afdrif þess. „Þaiœig vildi til,“ sagði Tóm- as, „að fyrir nokkrum árum var Kári Ringseth, konsúll Islands í Ríó de Janeiro, að póstleggja bréf í pósthúsi og bréfin voru stíluð til íslands. Þá vatt maður sér að honum og spurði hvort hann væri Islendingur. Tóku þeir tal saman og þar var þá kominn einn afkomandi íslenzku BrasiMufaranna, Unigus Gemb- arowski, en hann hitti ég í Ríó fyrir fáum árum ásarnt nokkr- um öðrum íslendingum, sem þar voru á ferð. Unigus er verk- fræðingur að menntun og hefur járnateikningar að sérfagi. Fað- ir Unigusar var pólskur, en langalangamma hans var Jens- tna Ágústa Guðmundsdóttir frá Ytri-Neslöndum í Mývatnssveit. Unigus telur að fyrstu Islend- ingamir hafi komið tii Brasilíu 1863, tveir menn, sem undir- bjuggu komu fleiri íslendinga, en liðlega 30 manna hóp telur hann hafa komið til landsins ár- iS 1872—1873. Unigus er 4. ætt- liðurinn frá Jensínu Ágústu, en hún kom tll Ríó 1872, eins og fyrr segir, ásamt tveimur systk- inum sínum frá Ytri-Neslönd- um, þeim Ingibjörgu Maríu og Magnúsi. Jensina Ágústa var þá 8 ára gömul. Unigus sagði að langalang- amma sin hefði dáið 1927, en þá var hann 7 ára gamall. Sagðist hann vel muna eftir henni, en hún rak veitingaskála á Coba- cabana-ströndinni í Ríó frá 1914 —1918. Unigus sagði að systkin- in þrjú frá Ytri-Neslöndum, sem fóru til Brasiliu, hefðu aðeins ver ið annar hluti fjölskyldunnar, sem fór af landi brott, því að hinn hlutinn hafi farið til Kan- ada. Lengi vel var gott samband á mildi ættingjanna, en nú kvað Unigus það orðið strjált. Hann sagði ennfremur að hann þekkti til sumra af þeim fjöiskyldum, sem væru afkomendur íslenzku innflytjendanna og nefndi hann Magnús Sóldal, kunnan prófess- Framhald á bls. 19. „Bráðnauðsynlegt að færa út landhelgina“ — ÞAÐ er bráðnauðsyn- legt að færa út landhelg- ina og auka rannsóknir á hvað fiskistofninn þolir mikla veiði, segir skipstjórinn á tog aranum Narfa, Gunnar Auð- unsson. — Það er mjög greinilegt að fiskistofninn er að minnka, og því veldur ofveiði. Afli hefur verið lítill undanfarið og enginn grundvöllur fyrir sölu erlendis. Veiði á karfa hefur minnkað og þeir á rann sóknarskipinu Bjarna Sæ- mundssvni. telja að hitastig- ið í sjónum hafi hækkað og karfinn þvi dreift sér. Kg hallast nersónulega að þeirri kenningu. Undanfarið hafa togaira,rm'r verið á veiðum vestur og norðvestur af landimu og fengið lítinn afla. Sumir hafa jafnvei leitað á miðim við Austur-Græmiand i von um betri afla. Togarinm Narfi leitaði á þær slóðir, em Mtið fiskaðist og tap varð á þeirri ferð. — Afli i síðustu veiðiferð var 150—160 tomn og er það mjög lltið. Sömu sögu er að segja frá hinum togurunum. Og nú lokast brezki markað- urinm og lítið hefur verið um söliu erlendis i sumar vegna þess hve fiskverð er lágt. Itlt ástand hefur skapazt Uppskipun úr togaranum Narfa. hjá togarafflotamum og telja útgerðarmenn að grumdvöllur togaraútgerðarinmar sé brost- inn. Afli hefu.r minmkað um 40% á tveimur árum, og að- eims um 10 tonm af kiarfa veiðast á dag. Lítið af þorski finmst og ýsam sem er fyrir sumnarn land er aðeims 2—3 ára. — Ég vona og held að grundvöliiur togaraútgerðair- inniar sé ekiki brostinn, að vísu er mairgt tiíl í þessu, því fis'kverð er ekki nógu hátt erlendís, iítið hefur veiðzt, karfakaupverð hækkar i landi og viinnsila er dýr. Þá getur verið að viðgerðarkostn aður aufcist meira em fi.sk- verð. En nútímaþjóðfélag á íslamdi bygmst á togurumum og gerði það strax eftiir alda- mótin. — Margir segja mýju sikut- togarana ónauðsymilega, em ég hef allt gott um þá að segja, því þeir komia til með að vega upp á móti þeim gömilu tog- urum, sem faillia út á næstu árum. Það er þó nokkuð óheppileg þróum að fá þá alla strax, það hefði verið heppi- le.gra að kaupa færri í eimu. Mikið hefur verið rætt og ritað um lamdheiigismálið og telja flestir að nú sé síð- asita tækifærið að færa út lamdhelgina vegna þess að Gunnar Auðnnsson. fiskstofninn. hafi minmikað til muna vegnia ofveiði. — Sjómenn eru alliir á einu máli að til skjótra aðgerða þurfi að koma ti.l þess að stofninn deyi ekki út. Nú höif- um við fen'gið be'tri ranm- sóknarskip og ég vonast ti.l að betur verði fyligzt með stofninum á næstu árum. — Og með landhel'gismálið, ég hef ekki trú á því að Bret- ar gebi verið að veiðum í skammdegimiu við Vestfirði án þess að koma niokkuim tíma í land, allavega ná þeir ekki góðum áramgri. Það bitrnair mjög á Bretum að lamdhelg- in verður færð út, etn aftur á móti ekki nema að litlu ieyti á Þjóðverjum, því þeir veiða yfirleitt utam 50 mílna og sækjast aðeins eftir ufsa og karfa, em Bretimn vill ýsu, þorsk, kola og flatfisk. Við sigruim í landhelgisdeilium!ni, en það tjáir ekki amnað em að bíða og sjá hvað setur. — masi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.