Morgunblaðið - 14.10.1972, Qupperneq 15
MOR.GUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGOR 14. OKTÓBER 1972 lo
Hvað segia þinffmenn?
Efnahagsmál helzta
verkefni Alþingis
Þingrstörf eru nú hafin á A1
þingi og ljóst er a<5 verkefni
þess í vetur verða ekki af
skornum skammti. Við hittum
að máii nokkra þingmenn
skönunu eftir þingsetningu og
lögðum fyrir þá 3 spurning-
ar svohljóðandi:
1. Hver verða helztu verk-
efni Alþingis til áramóta auk
fjárlagafrumvarpsins?
2. Hvernig lítur þú á stöðu
landhelgismálsins?
3. Hvernig á að taka á
þeim efnahagsvanda, sem við
blasir?
Hér fara á eftir svör þing-
mannanna, eins frá hverjum
flokki:
Karvel Pálmason.
„Ákaflega óljóst um
efnahagsvandann“
Karvel Pálmason þingmað-
ur fyrir Frjálsiynda og
vinstri svaraði:
1. Efnahagsmálin verða
þar ugglaust efst á baugi al-
mennt.
2. Mér sýnist staðan í land
helgismálinu vera góð hvað
okkur áhrœrir. Ekki þykir
mér þó líklegt, að það verði
samið.
Mér sýnist, að sá háttur,
sem Bretar hafa haldið uppi,
sé búinn að koma í veg fyrir
samninga. Eiginlega finnst
manni tómt mál að tala um að
hef ja samninga við aðila, sem
eru að fremja lögbrot á sama
tima og þeir eru að setjast að
samningaborðinu. Þ>að er að
mínu áliti lágmarkskrafa, að
þeir haldi sig fyrir utan 50
milurnar á meðan samninga-
umleitanir standa yfir.
3. Þetta mál er ákaflega
óljóst ennþá vegna þess, að
nefndin sem ríkisstjórnin
skipaði til þess að vinna að
úrlausn þessa máls hefur
ekki ennþá skilað áliti. Það
er því erfitt að segja nokk-
uð um þetta mál á þessu
stigi.
„Skattamálin hljóta
aö koma til“
Helgi Seljan þingmnður A1
þýðubandalagsins svaraðl:
1. Ég reikna með, að það
verði efnahagsmálin almennt
séð. Nátengd þeim eru
skattamálin og þau hljóta að
koma til verka einnig. Auk
þess er vitað um mörg
stórmál, sem stjómin mun
leggja fram, grunnskólafrum
varpið, heilbrigðismálafrum-
varpið síðan í fyrra og raf-
orkumálatillögur ríkisstjórn-
arinnar. Þá hlýtur að koma
ti’l umræðu vandi útgerðar-
innar eftir áramót.
2. Ég tel okkar stöðu góða
eins og er. Það er greinilegt,
að það er ekki nema ein þjóð,
Bretar, sem halda uppi
sömu yfirtroðslunum og þeir
hafa áður gert. Mér virðist,
að erfitt verði að ná sam-
komulagi við Breta nema
þeir gahgi verulega til móts
við Islendinga. Annars álít ég
að það sé ekki hægt að tala
um samkomulag nema til
komi mikil hugarfarsbreyting
hjá Bretum í þessu máli.
3. Ég er nú hreinlega ekki
tilbúinn til að svara þessari
spurningu. Það er verið að
vinna að þessu máli á vegum
rikisstjómarinnar og þar eru
ugglaust færari menn til þess
að úttala sig um málið. Þó
er málið ekki komið það upp
á yfirborðið ennþá, að nokk-
uð liggi ljóst fyrir hvað þar
muni verða gert. Ég er sann
færður um, að það verður
gripið á þessum efnahags-
vanda með tilliti til þess að
ekki verði gengið á rétt vinn
andi fólks í landinu. Ég hef
fulla trú á því.
Helgi Seljan.
„Eyðlustefna stjórn-
arinnar ástæða
vandræðanna“
Matthias Bjarnason þing-
maður Sjálfstæðisflokksins
svaraði eftirfarandi:
1. Tvímælalaust tel ég, að
það verði að ráðast í að leysa
efnahagsmálin almennt með
tiiliti til þess alvarlega
ástands, sem rikir í fjármál-
um landsins og sérstaklega
þó hjá atvinnuvegunum. Það
er á allra vitorði, að útflutn-
ingsatvinnuvegirnir eru
reknir með miklum halla.
Þær ráðstafanir sem nú
hafa verið gerðar eru aðeins
bráðabirgðaiausn í nokkrar
vikur og ef útgerð og fiskiðn
aður á að halda uppi eðlileg-
um rekstri frá áramótum þá
verða ráðstafanir í þeim efn-
um að afgreiðast í síðasta
iagi á alþingi áður en þing-
menn fara í jólaleyfi. Þá
gilda verðstöðvunarlög ríkis-
stjórnarinnar aðeins til ára-
móta og það hlýtur þvi að
liggja fyrir alþingi að móta
stefnu í verðlagsmálum al-
mennt. Til dæmis liggur það
fyrir að koma verður í veg
fyrir, að flóð dýrtiðar renni
yfir, þegar verðstöðvunarlög
in ganga úr gildi um næstu
áramót.
2. Því er ekki að neita, að
þótt landhelgin hafi verið
færð út í 50 mílur 1. sept,
þá er það engin endanleg
lausn, þvi fjöldi veiðiskipa
veiðir innan þessara fiskveiði
marka. Það er þvi nauð-
synlegt að hraða eftir föng-
um að ná lausn á þeim ágrein
ingi, sem er um framkvæmd
málsins án þess þó að hvika
frá þeim grundvallarásetn-
ingi að færa landhelgina út í
þessum áfanga í 50 mílur.
Það er mjög alvarlegt hvað
afli hefur minnkað á fiskimið
um okkar og samhliða þess-
um ráðstöfunum verður að
auka friðun á tilteknum
veiðisvæðum, en því er ekki
að neita, að við Islendingar
höfum ekki gætt þess sem
skyldi á liðnum árum.
3. Það er erfitt að svara
þessari spurningu í stuttu
máli, en ég tel, að núverandi
ríkisstjóm hafi sérstöðu með
al allra rikisstjórna í þeim
löndum, sem við eigum skipti
við, með því háttalagi, að þeg
ar hún tekur við völdum set-
ur hún sjálf fram þær kröf-
ur, sem ýtt hafa undir vax-
andi tilkostnað við fram-
leiðslu og alla þjónustu í
landinu með þeim afleiðing-
um að dýrtíðarskriðan hefur
aldrei verið meiri. Stjórnin
tók við blómlegu búi, en hef-
ur verið fljót að eyða þeim
sjóðum, sem fyrir hendi voru
og nú síðast er ráðizt á verð-
Matthías Bjarnason.
jöfnunarsjóð fiskiðnaðarins
og úr honum greitt til þess að
halda fiskiskipaflotanum og
fiskiðnaðinum gangandi í
nokkurn tíma. Ég tel, að tví-
mælalaust eigi að horfast í
augu við þann vanda, sem
ríkisstjórnin hefur komið
efnahagslifinu i og að það sé
bezt og skynsamlegast gert
með því að draga verulega
úr útgjöldum rikisins og
koma í veg fyrir frekari
hækkanir kaupgjalds og
verðlags, en til þess að svo
megi verða verður rikis-
stjómin og stjórnarliðið að
hverfa frá eyðslustefnu sinni.
„Stjórnarstefna
án allrar skynsemi"
Eggert G. Þorsteinsson,
þingmaður Alþýðuflokksins
svaraði eftirfarandi:
1. Undirbúningur þeirra
efnahagsráðstafana, sem allir
telja að verði að gera fyrir
næstu áramót verður ugg-
laust efst á baugi. Stór hluti
þar er að vísu fjárlögin sjálf,
en þau hnýta þó ekki fyrir
alla enda, sem þarf að hnýta
fyrir til þess að atvinnuveg-
irnir geti gengið.
2. Það er ákaflega erfitt að
Eggert G. Þorsteinsson.
úttala sig um stöðuna í land-
helgismálinu. Svör ráðherra
eru mjög ósamhljóða og í sið-
ustu viðræðum hafði Alþýðu
flokkurinn enga fulltrúa.
Skýrsla um málið hefur ekki
verið lögð fram og því er
hreinlega ekki ljóst hvernig
málið stendur í raun og veru.
3. Til þess að hægt sé að
svara þessu með einurð verð-
ur maður að hafa vandann
fyrir sér og hinum almenna
þingmanni utan stjórnarliðs-
ins hefur ekki boðizt það. Að
sögn stjómarherranna er
vandinn geysilegur, en það
eru ósköp litlar fréttir, þvi að
með eyðslu úr opinberum
sjóðum og varasjóðum hefur
verið stefnt frá allri skyn-
semi.
„Hugsa skólamálin
upp á nýtt“
Ingvar Gíslason þingmað-
ur Framsóknarflokksins svar
aði:
1. Það er ekki gott að segja
álit sitt að svo stöddu um
þetta atriði, fjárlögin verða
að sjálfsögðu aðalmálið fyrir
jól. Það er brýnt, að þau
verði afgreidd fyrir þann
tima ásamt framkvæmdaáætl
uninni, en það hefur verið
rætt af ríkisstjórninni að
þetta fylgist að. Ugglaust
koma þá ýmis merk mál einn
ig upp fyrir áramót. Til dæm
is tel ég, að við verðum að
Ingvar Gislason.
taka menntamálin verulega til
endurskoðunar og hugsa þau
upp á nýtt. Ekki tel ég þó
unnt að stanza eingöngu við
afgreiðslu skólamála, heldur
tel ég einnig að almenn menn
ingarmál megi ekki sitja á
hakanum. Það er nauðsyn, að
alþingi og rikisstjóm geti gef
ið sem flestu fólki í landinu
kost á því að njóta hinna fjöl
þættu menningarverðmæta.
Einnig kemur mér í hug
það mál að efla Akureyri,
sem skólabæ og menntamið-
stöð. Þar er hugmynd, sem
ekki má lognast út af. Þá tel
ég brýnt, að alþingi fjalli um
það í vetur að setja fram
nýja löggjöf um veiðar í
landhelginni. Þar er mál sem
verður að framkvæma hið
fyrsta.
2. Ég tel, að staðan i land-
helgisdeilunni sé góð. Það
mál hefur leystst nokkuð far
sællega og samstaða hefur
skapazt með þjóðinni. Mér
finnst, að ríkisstjómin hafi í
meginatriðum traust hjá
þjóðinni í því máli, en það
mál er þó ekki fullunnið og
ótal margt sem þarf að gera
til þess að koma því í höfn.
Það er örðugt að segja um
samninga við Breta eins og
málin standa nú.
3. Ég treysti mér ekki til
þess að svara þessari spum-
ingu, sem einstakur þingmað
ur, því að þama verður að
koma til samráð. Hins vegar
held ég að efnahagsvandinn
sé ekki það mikiM að ástæða
sé til þess að örvænta um
einhver stórbrotin vand-
ræði. Gengislækkun tel ég
fjarlæga.