Morgunblaðið - 03.12.1972, Síða 3

Morgunblaðið - 03.12.1972, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1972 gp r „Eg og þú: Við erum og sami maðurinn“ — spjallað við Árna Larsson — í tilefni fyrstu bókar hans „Ég og þú: Við emm einn «g sanii niaðiu-inn“ spjallað við Árna Larsson í tilefni fyrstu bókar hans. „Mig langar til að brjóta upp fagurfræðilega, póli- tiska og bókmenntalega hjá- trú íslendinga. Veiztu, að það er til fnllt af fólki, sem er að sligast undir stöðluð- um bugniynduin og viðbrögð- um. Það er eins og þetta fólk gangi fyrir slagorðum og sé með upptrekkjara á bakinu, sem einstaka óprúttnir menn herða alltaf á öðru hverju? Ég skrifaði þessa bók til að reyna að ljúka upp augum fólksins. Það er hennar er- indi á markaðinn. Það yrði nefnilega áreiðanlega gott, ef okkur tækist að sjá hvert annað.“ Sá sem vill fylgja fyrstu bók sinni úr lilaði með þessum orðum, heitir Árni I.arsson. Hann er 29 ára og Almenna iMrkafélagið hefur nú gefið út „Uppreisnina í grasinu“ eftir hann. „Þessi bók er mitt svar við að lifa í þessum heimi," segir Árni. Og hann heldur áfram. „Ég hef alltaf verið haldinn siköpunarástríðu án þess þó að ég hafi gert mér neinar áhyggjur af því, hver® vegna.“ - Hver er þtn afstaða til heimsins? Ert þú ungur reið- ur maður? Eða ert þú í sátt við 'heiminn? — Við lifuim í rauninni á skrambi merkilegum tímum; þeiim tíimurn, þegar maður- iinn sýnir náungamum meiri grimmd en nokkurn tímann áður hefur verið. — Er það ekki frekar stigs munur en eðlismunur? — Nei. Sjáðu til. Maðurinn í dag drepur náunga sinn vit andi vits. Þetta eru ekki söguleg slys og þetta er ekki dýrslegt, þvi dýrin þekkja ekki þessa grimmd. Og þetta er á engan hátt brjál- æðislegt, því maðurinn beitir til þessa hugviti sínu. Það sýnist mér vera það skelfi- legasta af því öllu. — Þú lætur þau orð fylgja bókinni, að hún sé „heim spekilegt landnám í umhverfi þar sem engin menningarleg hefð er fyrir hendi“. Hvað — Sjáðu til. 1 Evrópu til dæmis eru til ýmsir menn, sem útskýra þetta grimmdar- athæfi mannsins. Þetta er orðin viss heimspeki úti i heimi. En við Islendingar höf- um elíki þennan þankagang. Við bara horfum á. Við hugsum ekkert út í þessa hluti að lífið eigi sér skiilyrð- islausan og ótvíræðan rétt. — Er þá ekkert sem getur réttlætt það, að einu iífi sé eytt? —■ Það þykir mér vera af og fi'á. Sú réttlæting væri að minnsta kosti ákaflega lítils virði. Lífiö sjáift hefur sitt giidi og það er ekkert til, sem tekur því fram. - Ekki annað líf? Þitt eig- ið? — Nei. Það held ég ekki. Það er ekki hægt að drepa annan mann án þess að drepa um leið hluta af sjáifum sér. Eða þannig ætti það að minnsta kosti að vera Og ég get ekki hugsað mér neitt, sem réttlætir þann verknað. Ekki einu sinni það, sem eft- ir yrði af mínu eigin lifi. — Bendir þú í bók þinni á einhverja lausn fyrir okk- ur? Það verður hver kyn- slóð að bjarga heiminum. Það er gefið mál. Og nú er það aðeins virðing fyrir lífinu, sem getur bjargað okkur, því tækniilega séð er nú orðið mögulegt að tortíma öllu mannkyninu á einu bretti. — Og auðvitað hlýtur virð ingunni fyrir lifinu að fylgja virðing fyrir sjálfum sér. ég og þú: Við erum nefnilaga einn og sami maðurinn, Við erum óaðskiljanlegir. — Svo við minnumst að- eins á framsetningu efnis bókarinnar. einn Árni Larsson. — Já. Ég vi'l fyrst og freimst leiða hluti og atburði fram til að lesandinn megi sjá með eigin augum. Kvik- myndin er framisetriingarmáti, sem mér er að skapi. Mér hef ur alltaf þótt sjón vera sögu rikari. Aðall nútímafrásagnarlist- ar er nefnilega ekki bara það að segja söguna — heldur fyrst og fremst að sýna hlut- inn. — fj- átt þú við með þ"ví? Ungir listamenn: TIMBURVERZLUNIN VOLUNDUR HF. KLAPPARSTÍG1 ® 18430 - SKEIFAN19 ® 85244 Wð höfum nú tekiö í notkun nýja huröar- verksmiöju aö Skeifunni 19, og getum því boöiö yöur innihuröir á hagstæöu veröi og meö stuttum afgreiöslufresti. Fullkomnar vélar tryggja 1. flokks framleiöslu!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.