Morgunblaðið - 03.12.1972, Síða 14

Morgunblaðið - 03.12.1972, Síða 14
46 MORGUNBLAÐIEk, SUJNNUDAÍiUR 3. DESEMBER 1972 í Asíu, Suður-Ameríku og Miö-Austurlöndum og einnig sums stadar í Suður-Evrópu eru 40 milljón börn í nauðungarvinnu EFTIR MAX WIL.DE. Það eru meira en 43 milljónir barna, sem vinna erfiðisvinnu í heim inum, að því er segir í skýrslu frá Alþjóðavinnumálastofnuninni í Genf. Það eru 3,9% allra drengja, 14 ára eða yngri, og 2,7% stúlkna. Meira en 90% heildarfjöldans voru árið 1970 á hinum vanþróuðu heimssvæðum. Á Filippseyjum voru þau yfir 500.000, í íran yfir 750.000, í Thailandi yfir ein milljón, í Indó- nesíu yfir 1,500,000, í Pakistan meira en 2,500.000 og í Indlandi meira en 14 milljónir. Börn eru nú sjaldan ráðin til vinnu í stórum og nýtízkulegum iðn aðarfyrirtækjum, en barnavinna í verksmiðjum er ekki með öllu horf- in. Komið hefur í ljós, að I litlum verksmiðjum, sem byggja tilvist sina á því að halda kostnaði sem lægst- um, vinnur talsvert af börnurh und ir hinu löglega aldursmarki. Mest er af slíkum verksmiðjum í Asíu, Suð- " ur-Ameríku og Mið-Austurlöndum, en þær eru einnig til sums staðar í Suður-Evrópu, og jafnvel í hinum vanþróaðri landshlutum iðnvæddari svæða. Verksmiðjur þessar virðast bein- ast sérstaklega að ákveðnum iðn- greinum, svo sem vefnaðarvörufram- leiðslu, fatagerð, matvæla- og niður suðuiðnaði. - ' 1 verksmiðjum í Thailandi, sem framleiða eða pakka inn vörum eins og til dæmis flöskum, sígarettum, vefnaðarvörum, sælgæti, kexi og sjávarafurðum, fundu þeir, sem að rannsóknum stóðu, að mörg börn, sér staklega stúlkur, 10-15 ára gamlar, og sumar ekki eldri en 6 ára. Unnu börn þessi átta til fjórtán klukkustundir á dag, sjö daga viku, fyrir hlægilega lítið kaup, 1 allt of þröngum, illa upplýstum, illa loftræstum og óheil- brigðum húsakynnum. Einn rannsóknarmannanna lýsir ástandinu svo: „Algengt var að heilar fjöskyldur gengju þarna að störfum, og var þá foreldri eða annar eldri fjölskyldu- meðlimur einn skráður á launaskrá og tók greiðslu fyrir alla fjölskyld- una. 1 sígarettuverksmiðju einni réð fullorðið fólk sér börn sem svonefnt „aðstoðarfólk" og lét þau aðeins hafa brot af þvl, sem þau raunveru- lega unnu sér inn, eða greiddi þeim með öðrum hætti aðeins smávægilegt kaup.“ Önnur athugun, sem var eingöngu bundin við vefnaðarvöruverksmiðj- ur og verkstæði í Thailandi, leiddi í ljós, að næstum helmingur vinn- andi barna undir 16 ára aldri hafði aldrei verið I skóla. Staðhæft er í skýrslunni, að i Asíu, Afríku, Suður-Ameríku og Mið Austurlöndum vinni börn á litlum verkstæðum, einnig við húsagerð og aðra erfiðisvinnu. Þar og einnig á Iandsvæðum í Norður- og Suður- Evrópu vinna börn í heimahúsum, vefa, spinna, sauma, sauma út, auk málmiðnaðar og leðurvinnu, vinna við skógarhögg, leirkerasmíði, teppa gerð, fatagerð, skósmíði, leikfanga- gerð, körfugerð og flugeldasmíði. Undirbúningsþjálfun bamanna er oft lítil, störf þeirra erfið, þau með- höndluð sem þrælar og launin langt undir því, sem venjulegt er. Lýsing, loftræsting og heilbrigðisaðstæður á slíkum vinnustöðum eru venjulega slæmar. Öryggisútbúnaður er sára- lítill, og börn sjást stúndum vinna með logsuðutækjum, nota ' beitt áhöld eða oddhvöss, vinna nærri málmbræðsluofnum og önnur hættu leg störf. Teppahandiðnaður er rikur þátt- ur í vinnu barna. 1 ríkisreknum verksmiðjum í Iran hefur að vísu komið í ljós, að menn halda sig þar við hinn löglega lágmarksaldur sem er 12 ár, þeim er allvel borgað, og vinnutími og vinnuaðstæður eru dágóð. En hins vegar kemur mest- ur hluti framleiðslunnar þar frá litl- um verksmiðjum í einkaeign, og sér í lagi frá heimilisiðnaði. Vinnuaðstæð- ur í slíkum verksmiðjum eru venju- lega sérstaklega slæmar og ekkert talið athugavert við, þótt mjög ung- ar telpur vinni þar. í mestallri Asíu, Suður-Ameriku, í Mið-Austurlöndum, og svæðum í Suður-Evrópu vinna drengir undir hinum löglega lágmarksaldri, sem óreglulegir, óskráðir verkamenn, við byggingavinnu, hreinsun húsarústa, flutning vinnutækja og önnur ótrú- leg störf, gegn lágu kaupi, en oft við alvarlega slysahættu. Heimilisstörf mjög ungra barna, aðallega stúlkna, í Mið-Amer- íku, Mið-Austurlöndum og sumum svæðum Asíu eru oft í rauninni ógreinanleg frá þrælahaldi. Börnin eru flutt til borganna úr sveitum af foreldrum sínum, eða fólki sem seg- ist vera foreldrar þeirra og raun- verulega seld til heimilisstarfa. Þau fá venjulega ekkert kaup, og er hið mikla orðalag „ættleiðing" venju lega notað um athæfi þetta. En flest vinnandi börn á hverju svæði heims, sem athugað var, störf uðu að akuryrkju, sérstaklega í Ind- landi og Pakistan og öðrum Asíu- löndum. 1 Brasiliu vinna börn erfið störf, svo sem plægingu, plöntun baðmullar, hrlsgrjóna og sykurreyrs og einnig vinna þau að uppskeru þessara jarðargæða. Að þvi er fram kemur í skýrsl- unni, þá geta börn á öllum aldrl unnið að akuryrkju á vissum tímum i flestum rikjum Banckiríkjanna án þess það sé lagabrot. Fram til 1966 voru í sameiginlegri vinnulöggjöf Bandaríkjanná („Fed- eral Fair Labour Standards Act.** þýð.) ekki einu sinni ákvæði sem kváðu á um unglingavinnu utan skólatíma, og svo er enn, nema þeg- ar um er að ræða áhættusama vinnu og i sérlögum fárra ríkjanna eru ákvæði gegn siíkri vinnu. 1967 komust menn að þvi, að 4201 bam, undir 16 ára aldri stundaði vinnu á skólatíma og braut þar með hina sameiginlegu vinnulöggjöf Bandaríkjanna. 2086 þessara bama voru á milli 10 og 13 ára að aldri, en 861 níu ára eða yngra. Frá stofnun sinni, 1919, hefur Al- þjóðavinnumálastofnunin stuðlað að 10 alþjóðasamþykktum um unglinga vinnu, en að því er skýrslan herm- ir, með mjög mismunandi árangri. — Meðal einstakra þjóða er unglinga vinnuiöggjöfin mjög mismunandi. 1 54 löndum er lágmarksaldur barna, sem iðnaðarvinnu stunda, 14 ár. Lægstur, eða 12 ár er hann í iran, Libyu, Marocco, Súdan, Sýr- landi, Egyptalandi, Brasiliu, Costa Rica, Portúgal, og Tyrklandi. í Libanon gildir 13 ára lágmarkslald- ur aðeins um vélavinnu og aðrar sér stakar vinnugreinar, en hinn al- menni lágmarksaldur er 8 ára. — Hin sextíu og tvö aðildarríki Al- þjóðavinnumálastofnunarinnar ILO hafa staðfest, að alþjóðasamþykkt, sem ákveði lágmarksaldur þeirra, sem vinnu mega stunda, sé nauðsyn leg, og fjallað mun verða um drög að slíkri samþykkt á alþjóðavinnu málaráðstefnunni í júni. Sjálfsagt verður samþykkt gerð, en i ljósi fyrri reynslu, á það ennþá langt 1 land, að verulegur hluti aðildarríkjanna fylgi henni, ef því marki verður þá nokkru sinni náð. (Observer — einkaréttur Morgun blaðið). Kynnsð yður Hádegisverðarfundur Hádegisverðarfundur með Niels Hartmann, ind- ustriel og grafisk designer I.D.D., verður haldinn að Hótel Loftleiðum (Kristalsal) mánudaginn 4. des- ember nk. kl. 12:15. Stjórn Dansk-íslenzka félagsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.