Morgunblaðið - 03.12.1972, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.12.1972, Blaðsíða 15
MOBGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1972 47 — Bruninn Framhald af bls. 41 vart um eldinn fór hann strax að klæða sig. Var hann fljótur að því, en þegar hann ætlaði út á ganginn var þar ógurlegt eldhaf og ekki viðlit að komast eftir ganginum. Brá hann þá á það ráð að nota björgunarkaðalinn. Gekk það að óskum og komst Guðmundur ómeiddur til jarðar. TJÓNIÐ 1 BRUNANUM Tjónið við bruna Hótel íslands var svo gífuriegt, að erf itt er að gera nákvæmlega grein fyrir því. Hótelið sjálft með öll um búnaði var vátryggt fyrir tæpa eina milljón króna, voru byrgðir og vistir þá ekki með- taldar. Var tryggingarfjárhæð- in því langt undir raunvirði. Innbú eigandans, Alfreðs Rós- enberg, var mjög dýrmætt, en BLAÐBURÐARFOLK: Sími 16801. VESTURBÆR Túngata. AUSTURBÆR Bogahiíð - Þingholtsstræti - Miðbær. Stúlka óskast til sendiferða í skrifstofu blaðs- ins. Vinnutimí kl. 9-12 fyrir hádegi. Upplýsingar í skrifstofu blaðsins. Sími 42747. 439 tegundir af jólakortum GBEIEfr- það var aðeins tryggt fyrir 25 þúsund krónur. Meðal muna hans var skrif- borð eitt frægt, af maghoney smíðað og jafnan kennt til Krist jáns konungs tíunda, því það var gert til brúks fyrir kóng, þegar hann kom hér 1921 og und irritaði fyrsta sinni islenzk lög hérlendis við skrifborð þetta. Hafði Rósenberg ákveðið að gefa islenzka rikinu borðið. Tvær verzlanir voru i húsinu. Vöruhúsið missti allar vörubirgð ir sinar og tæki, mörg hundruð þúsund krónur að verðmæti. Verzlun Gefjunar iiafði nýfeng ið vörur fyrir þrjú hundruð þús- und krónur, sem tryggðar voru fyrir 75 þúsund. Allt brann þetta til ösku og varð engu bjargað nema peningaskáp hót- elsins, sem stóðst eldraunina og peningaskáp Vöruhússins, sem var litt eyðilagður. Magnús Andrésson útgerðar- maður missti eilefu þúsund krón ur i peningum, sem höfðu vegna ófyrirsjáanlegra atvika ekki komizt i peningahirzlu hótelsins. Einn gesta, sem hafði skömmu áð ur misst mikið af eignum sínum, er Laxfoss strandaði, varð við brunann fyrir frekara tjóni á eignum sinum. Auk þess er ótalið tjón hinna 45—50 gesta og annarra ibúa hótelsins, sem margir höfðu dvalið þar langtím um saman og höfðu þar heimili sin. Hótelið hafði trygg- ingu vegna farangurs gesta og bættist því mesta tjón þeirra. 1 næsta nágrenni varð líka margvíslegt tjón á mannvirkjum og lausafé vegna hita og bruna. Er varlegt að áætla, að tjónið hafi samtals numið í bein- um verðmætum um 4—5 milljón- um króna — miðað við núver- andi verðlag er það nærri 80—rlOO milljónir króna. KONAN SEM LÁ ÚTI - frásöguþœttir eftir Guðmund Böðvarsson, skáld á Kirkjubóli. Sá þáttur, sem bókin dreg- ur nafn sitt af, er frásögn af slysför Kristínar Kjartansdóttur, sem á áttug- asta ári sínu lá í fimm dœgur stór- slösuð á bersvœði, í rysjóttu veðri á þorranum 1949. Þar segir frá ótrúlegu viðnámsþreki og því jafnvœgi hug- ans, sem ekkert fœr raskað. HÖRPUÚTGÁFAN ® Reglstreret veremærke fer ENKA GLANZSTOFF GmbH (Biolenl on MICHELANGLI SKYRTUR * Nýjar gerðir • Nýjir litir " Ný mynstur anglí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.