Morgunblaðið - 03.12.1972, Side 16
^SSU
i- ~m
MOHGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DÉSEMBER 1972
Jimi Hendrix.
Bandarískur náungi Chris
Welch að nafni hefur nýlokið
við að skrifa œvisögu Jimi
Hendrix, gitarleikarans fraega,
sem lézt árið 1970, og mun bók
In vsentanlega koma út nú um
mánaðamótin i Bandaríkjun-
um.
1 formála bókarinnar segir
m.a.:
Jimi Hendrix, sem hét réttu
nafni James Narshall Hendrix,
fæddist í Seattle, Washington,
þann 27. nóvember 1942. Was-
hington féll Jimi aldrei reglu
lega i geð og þangað fór hann
örsjaldan eftir að hann fluttist
þaðan, nema í f jölskylduheim-
sóknir. Hann var sonur fátæks
bónda, James Allen Hendrix.
Hann ólst upp á með-
al hvítra og gekk í skóla þar
sem hönundslitur skipti engu
máli.
Móðir hans Lucille, dó
snemma, en hún var af indíána
ættum. 1 æsku heimsótti Jimi
oft ömmu sína í Vancouver,
sem var hreinræktaður indí
áni af Cherokee ættbálknum,
og af henni lærði hann margt
um sögu indíána, sem Jimi
hafði samúð með alla ævi.
Jimi gekk í Garfield mennta
skólann í Seattle, en hætti
námi 16 ára gamall. Sjálfur
hélt Jimi því fram, að hann
hefði verið rekinn fyrir að
leiða hvíta stúlku i frímínútun
um.
Það var þó ekki eina ástæð-
an fyrir því að Jimi hætti
námi, heldur peningaskortur.
Eftir 16 ára aldur byrjar líf
Jimi fyrir alvöru og áhugi
hans á gítarleik vaknaði
skömmu eftir að hann yfirgaf
skólann.
Að sögn útgefenda er mjög
til bókar þessarar vandað og er
henni spáð miklum vinsældum.
Jimi Hendrix naut gífuriegra
vinsælda í lifanda lífi og var
álitinn einn bezti gítarieikari
heims. Jimi á ennþá fjölda að-
dáenda í Bandaríkjunum og
víðar og plötur hans seljast í
milljónatali enn þann dag í dag.
Jimi var langt leiddur af eit-
uriyfjum síðustu árin áður en
hann dó, sem að lokum drógu
hann til dauða aðeins 28 ára
gamlan.
Miek, John og Yoko í Plant h IjómplötufjTÍrtaekinu í New
York. Myndin var tekin í siðustu viku.
MICK, JOHN OG YOKO
Á NÝRRIPLÖTU
Ný plata með þeim John og
Yoko mun væntanlega koma á
markaðinn innan skamms. Plat
an verður gefin út af Plant
h'ljómplötufyTÍrtæk'n'u í New
York, en nafn plötunnar hefur
ekki verið ákveðið ennþá.
Undanfarinn mánuð hefur
Yoko unnið að útsetningu lag-
anna með hjálp hljómsveitar-
innar Elephant Memory, sem
mun annast undirleikinn. Yoko
hefur samið flest lögin og eru
þau þjóðfélagsleg ádeila eins
og áður.
Yoko mun einnig leika
á píanó auk þess að annast
sönginn að mestu leyti. Þá
munu þeir John og Micsk Jagg-
er spiila á pianó og gítar. ÖQl eru
lögin rokklög. Gagnirýnendur
segja að textar laganna séu
eins og þeir voru 1958 en út-
setningin eins og búast má við
að verði hvað vinsælust eftir
10 ár. Plötunni er spáð mikl-
um vinsældum.
Þessi mynd er af kanadísku
flugfreyjunni Margit Sommer,
sem haldið var í gíslingu um
borð i farþegaþotu á Fnamkfurt
flugveiii í heilan sólarhring i
síðustu viku. Margit var bjarg-
að af þýzku lögreglunni, er hún
réðist um borð og dnap flug-
vélarræningjann, sem talinn
var geðveiikur.
Margit, sem er 31 árs, hefur
nú náð sér að fullu eftir atburð-
inn og hefur tekið til starfa á
ný.
>f
MUSSOLINI 1 NEW YORK
Jasspíanistinn Romano
Mussolini, sonur ítalska fasista
foriingjans Mussolinis, kom op-
inberlega fram í New York s.l.
laugardagskvöld i fyrsta sinn.
Romano er þátttakandi í 18
daga hljómleikaferð um Banda
rikin á vegum Sameinuðu þjóð
anna, en fyrstu tónleikarnir
voru eimmiitt haildnir í New
York.
Romano Mussolini er nú 45 ána
gamall og hefur starfað seim
píanóleikari frá því árið 1956
og fara vinsældir hans sívax-
andi. Að sögn forráðamanna í
Town Hall, þar sem hljómleik-
amir voru haldnir í New York
sóttu þá rúmlega 1000 manns.
Mussolini hefur einnig sam-
ið mörg lög og í seinni heims-
styrjöldinni samdi hann undir
nafninu Roberto Full. En eftir
að stríðinu lauk, notaði hann
ætíð Mussolininafnið og kvað
það hafa hjálpað sér mikið á
framabrautinni.
Romano Mussoliini er kvæmt
ur systur Soffíu Lorein.
ÁHUGALJÓSMYNDARINN
GINA
ftalska leikkonan Gina
Lollobrigida hefur mikinn
áhuga á ljósmyndun og síðast-
liðin 3 ár hefur hún tekið
mörg þúsund mymdir. Á næst-
unni mun koma út bók með 20
svarthvítum myndum leikkon-
unnar og ber bókin titilinn —
Italia Mia —.
Gina hefur mest megnis tek-
ið myndirnar í ftaliu og til að
geta gengið óáreitt um götur
Rómar, klæddist hún dular-
gervi og bar ósjálega horkoilhi
á höfði.
Að sögn leikkonunnar hefur
hún eytt offjár í þetta tóm-
stundagaman sitt, einnig sagði
hún að það hefði kostað sig
HÆTTA Á NÆSTA LEITI — Eftir Johrt Saunders og: Alden McWiUiams
Gina Lollobrigida með mynda-
vélina.
r I*D MUCH PREFER
THAT TOAPOORLy
WRITTEM DRAMA,
\ HOPE./. „X'LU SEE
\ you AT EIQHT
O'CLOCK' V
AT THAT
MOMENT/
I DON'T FEEL UP
TO THE THEATRE,
TONIGHT, BRADy/
WOULD you SETTLE
FOR A QUIET
DINNER HERE? W'.
IN THE GLOBAL
NEWS 'MORSUE'
DANNY FINDSTRO/
POURINS OVER AN
OLD SíTORy FH_E !
einn bíl og tvær dýrmætar
myndavélar. — Ljósmyndar-
ar mega búast við öllu,
— sagði hún. — Þegar ég leik
í kvikmyndum, ræð ég engu,
en ljósmynóari er sjálfs sin
herra, — sagði Gina Lollo-
brigida.
Bókin — Italia Mia — mun
væntanlega koma út fyrir ára-
mótin, en hún hefur aðallega
upp á myndir af fólki að bjóða,
þó eru einnig örfáar landslags-
myndir.
Gina hefur lengi haft áhuga
á ljósmyndun og áður en hún
hóf kvikmyndal eik, stundiaðí
hún nám í myndlistar.skóla
einum i Róm, en hún þykir
mála allvel.