Morgunblaðið - 02.02.1973, Side 17

Morgunblaðið - 02.02.1973, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1973 GAMLI CARLSBERG HAFNARHRIP V________^ Kaupmannahöfn. — Nei, hér gerist eiginlega ekkert. Allt það sama. Alls staðar. Menn geta dáið rólegir þess vegna, þeir missa ekki af neinu. Og enginn segir hönum hér í borg, ekki lengur. Hér koma varla út neinar bækur sem maður nennir að lesa. Ég er búinn að minnast á Starcke, Eriksen og Krag: Rifbjerg er víst líka með einhverja bók, auðvitað. Liklega heldur hann að Danmörk mundi farast, ef það kæmi ekkert frá honum. Ætli við séum eitthvað líkir? Þetta hlýtur að vera vond bók, því að kápumyndin er af nakinni konu (séð aftan frá) sem stendur við fallbyssu. Kannski hann fái verðiaun íyrir kápuna. Skáldið skemmtilega Schade varð sjötugur um daginn. Einu sinni hélt hann að timinn mundi stöðvast á ein hverri Kaupmannahafnarkránni, méðan hann hafði orðið. Auðvitað. Tíminn nemur staðar við ljóð- in hans, en sjálfur hverfur hann inn í þokudísina, eins og klukkan sem er gulihringur á vísifingri ráðhúss- ins hér á Friðriksbergi. Ég ætla að minnast á þetta danska skáld seinna, þennan skógarþröst í næturlifslaufi borgarinnar. Sú grein verður ekki fyrir sérfræðinga í ljóðlist, sem hafa aldrei heyrt hans getið, heldur fólk sem þekkir hann að góðu einu. Ung- ur var hann í Paris, en honum datt ekki i hug að koma með Paris til Kaupmannahafnar, guði sé lof. Kannski er þetta skýringin á breyt- ingunni sem hefur orðið á Kaup- mannahöfn. Nú sækja menn aðrar borgiir og flytja þær hingað. Áður fluttu menn Kaupmannahöfn til ann arra borga. Jafnvel Parísar. XXX Heinesen menntamálaráðherra ætl ar að leggja fram nýtt frumvarp fyr- ir þingið í skólamálum. Ég hef minnzt á hándleiðslu í þessu hripi, það hef ég gert í mörgum tugum greina á undanförnum árum um skóla- og menntamál, sem engum datt í hug að lesa. Samt voru þær betri en grein- ar Braga Jósefssonar, sem þá hafði allt á hornum sér, þessum líka horn- um — en nú hefur vist einhver sag- að þau af honum. Og nú styður koll- óttur Bragi svonefnda vinstristjórn. Lengi skal manninn reyna, er gam- alt máltæki. En hvað um það. í frum- varpi Heinesens er lögð höfuð áherzla á handleiðslu, að fylgzt sé með börnunum og þeim komið til nokkurs þroska. Helveg Pedersen, sú kempa, sem studdi okkur betur i handritamálinu, þegar hann fór með mennta- og skólamál í dönsku ríkis- stjórninni en flestir aðrir, hefur lýst yfir því að hann óttist ekki þetta nýja frumvarp, þótt i því sé gert ráð fyrir afnámi prófa að verulegu leyti. Þessi fíngerða kempa er einn þeirra fáu sem alltaf eru samtima sjálfum sér. Tómas hefur bent okkur góðfús- lega á að það er ekki öllum lagið. XXX 1 Konunglega leikhúsinu er verið að sýna Falstaff, Fljúgandi Hollend- inginn (til að forðast misskilning: samt ekki undir stjórn Wagners), Leiðina iöngu með O’Neills inn í nóttina, í kvikmyndahúsum er ver- ið að sýna „Nútímann" eftir tengda- son hans Chaplin (eins og nútíminn sé til), á Allé Scenen eru þeir önn- um kafnir við að sýna Einkalíf Noel Cowards, nei engir hugleysingj- ar þar. Fyrir mörgum árum sá ég þar Villifuglinn eftir Anouilh með Helle Virkner i aðalhlutverkinu. Síð an hefur þessi „villifugl“ leitað nýrra ævintýra, í list og lífi. Hvenær finnur hún þau? Og Krag kominn til Árósa gegn vilja stúdenta og kennir þar einhver fræði. Mátulegt á stúdentana. Hann hefur alltaf bor- ið góðan hug til íslendinga og hon- um fylgja hlýjar óskir. Annars var hann í sjónvarpinu um daginn, i ein- hverjum spurningaþætti, og lék á als oddi. Það var eins og hann væri laus úr einhverjum álögum. Danir sjálfir hafa orð á þessu. Það skyldi enginn sækjast eftir að verða forsæt isráðherra og kvæntur prímadonnu. Og nú eru þau skilin. Forsætisráð- herrar eru „opinber eign“ og allir vita hvernig fólk fer með eignina sina nú á dögum. Ef Ólafur Jóhann- esson hugsaði um það, hefði hann betri ráðgjafa við hlið sér en sam- starfsmennina í rikisstjórninni og þá sem lifa á þeim. Af hverju er hann ekki búinn að tala við Brandt um landhelgismálið? Fyrst Brandt vildi tala við mig í Bonn er ég viss um að hann hefði viljað tala við Ólaf, sem er miklu geðugri og kurteisari maður en ég. En kannski þarf ekki að tala við Brandt lengur fyrst Alls- herjarþingið er búið að setja Al- þjóðadómstólnum lög um landgrunn- ið. Þegar Bjarni Benediktsson sagði um landhelgissamninginn við Breta að hann væri okkar mesti stjórnmála sigur um árabil, vissi hann að hægt væri að treysta þvi að þjóðir heims settu lög i samræmi við þær breyttu aðstæður sem ör þróun krefst. Auð- vitað vissi hann af framsýni sinni, sem var með eindæmum, að við næstu útfærslu væri hægt að byggja á alþjóðalögum. Nú er það komið á daginn. Einkunnarorð islenzka rik- isins eru, að mér skilst: Með lögum skal land byggja. Auðvitað eigum við að verja mál okkar fyrir dóm- stólnum í Haag. Við eigum ekki að verja rétt okkar þar — heldur sækja hann þangað. Ef við ekki gerum það er allt tal okkar um lög og rétt hræsni ein og hártoganir. Réttur okkar til landgrunnsins er nú óve- fengjanlegur og viðurkenndur af Allsherjarþingi S.Þ., löggjafarþingi þessarar einú allsherjarstofnunar, sem lögum ræður. Ríkisstjórn sem ætlar að láta tilviljanakennda ákvörð un (gerða í hita kosningabaráttu, sinni Ástríði. enda kosningabeita) um 50 sjómíl- ur koma í veg fyrir að við séum rétt- arríki í augum heimsins er samkoma þar sem: blindur leiðir blindan. Og svo ekki meira um það. Við er- um i Kaupmannahöfn. En þar var stundum áður fyrr hugsað íslenzkar en annars staðar. Það hefur enginn einkaleyfi á „íslenzkum málstað“. Og allra sízt eiga menn að lifa á hon- um. Þá er betra að skrifa skólastila um ágæti jafnaðarmennskunnar — eins og Magnús Kjartansson, þegar hann var upp á sitt bezta. XXX Ég minntist á hesta áðan og af einhverjum ástæðum koma þeir aft- ur í huga minn á þessum stað í hrip- inu. Á jólunum sýndi danska sjón- varpið myndir sem prins Hinrik hafði tekið á árinu. Þar kom íslend- ingur við sögú: brúðkaupsgjöf Is- lendinga til Danadrottningar og manns hennar. Brúðkaupsgjöfin heit ir Perla og er hvít og falleg hryssa, ef marka má sjónvarpið. Hún kom oft við sögu. Drottningarbörnin elska þennan Islending sinn, enda er þann góður fulltrúi vorrar „gömlu menn- ingar“. Hún setur svip á hirðlifið. Hún er eini íslendingurinn sem þar lætur til sín taka nú um stundir. Hún er hreinasta perla. XXX Hér er eitthvað ódýrara að lifa en i „Evrópu“. Sumt er þó dýrara en heima. Með síendurteknum gengis- fellingum kemur að því að Islending ar verða þjónar erlendra ferða- manna, stórauðugra sem geta látið þá snúast í kringum sig fyrir ekki neitt. Við erum önnum kafin að breyta Islandi í Costa del Sol eða hvað hann nú heitir þessi eini Spánn, Majorka? Ég held ekki að ísiend- ingar verði hrifnir af þjónshlutverk inu. Það er ófyrirgefanlegt að lækka gengi krónunnar í góðæri. Tove Ditlevsen, skáldkonan sem allir þekkja, segir í B.T. fyrir skömmu að móðir sín hafi alltaf sagt, enda var hún fátæk kona og ekkja í þokka- bót ef ég man rétt (og fór aldrei á útsölur): „Það er eitthvað að öllu sem kostar ekkert.“ Tove hefur skrifað bók með bezta titli sem ég man í svipinn: „Flóttinn frá uppvaskinu". Þessi flótti henn- ar stendur enn yfir: á leið inn i nótt- ina. Blöðin eru afar dauf. Og danska sjónvarpið er við frostmark, ef mið- að er við Mið-Evrópu. Það er kannski þess vegna sem við sækj- um efni og fyrirmyndir einkum i þetta danska sjónvarp og önn- ur Norðurlandasjónvörp, sem svo senda heim einhverjar niður- suðudósir: opnið eina dós og ameriskir slagarar koma í Ijós. Það er ekki undarlegt, þótt Palme þoli ekki Bandaríkin. Það mundi ég ekki heldur gera, ef ég væri í hans spor- um. Nú síðast var sýnt hér í sjónvarp- inu Erasmus Montanus eftir Holberg, sem var auðvitað danskur i aðra ættina. Ég sá í Morgunblaðinu að þessi danska útgáfa var sýnd í sjón- varpinu heima, svo að hún færi nú ekki fram hjá neinum. Myndin er i holbergskum stíl, það var kostur. En ég var satt að segja búinn að gleyma hvað þetta er ómerkilegt leik- rit, enda heimsfrægt. Við Jón prófessor Helgason sögð- um marga vitleysu á gamlárskvöld. Allt var það nú samt skárri della en skólastikin i Erasmusi. Okkur Jóni datt t.a.m. ekki í hug að rífast um það, hvort jörðin væri hnöttótt eða flöt. Og ekki erum við Jón svo ómerkilegir að reyna að bjarga okkur á skólastísku hundasundi og latínurugli um að panis sé brauð (ég vona það verði ekki prentvilla í latneska orðinu), eins og Holberg í Erasmusi. Holberg má eiginlega þakka guði fyrir að vera löngu dauð ur. Fyrst íslenzka sjónvarpið fær allt þetta efni héðan, væri ekki úr vegi að fá Odysseif, skemmtilegan og ótrúlega vel gerðan myndaflokk eftir söguljóðum Hómers (já, alveg rétt, hann vaf einnig viðstaddur sýninguna á Medeu í Glyptotekinu), enda brezk-italskur. Engir leika betur en Bretar. Engir gera betri sjónvarpsmyndir. Og nú er Kenneth Clark byrjaður á nýjum myndaflokki og ætlar að taka fyrir frumherja svokallaðrar nútimalistar. Fyrsti þátturinn vár ágætur, upphaf im- pressjónistanna: Manet, Monet. Bendi aðeins á þetta i skammdeg- inu. Kannski er hægt að fá þessa þætti með dönskum texta. XXX Loks: Eitt dönsku blaðanna, ef blöð skyldi kalla, spurði fólk ný- lega hver væri alþýðlegur og hvað það væri. Per Hækkerup, sem kom á Pressubailið sællar minningar (ég hef nú aldrei skilið hvers vegna), svaraði því til að Anker Jörgensen væri alþýðlegur „fordi han mener hvad han siger hvad han mener“. Gamli Carlsberg hefur gert marga Dani vitrari en efni standa til, enda stjórnar Hækkerup fjár- málum danska ríkisins um þessar mundir. Storm Petersen vissi allt um ágæti Gamla Carlsberg. Við skulum hitta þá á Friðriksbergi á morgun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.