Morgunblaðið - 02.02.1973, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.02.1973, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1973 GAIM að ég sagði við þig, að það væri rétt eins og leiksviðið hefði ver ið undirbúið. Kannski er nú verið að gera það sama — og giösin séu leiksviðsútbúnaður. Til að myrða mig? hvíslaði Jenny eftir andartak. Cal lagði arminm um axl- ir henni. —- í>að er nú einmitt það, sem við viljum hindra. En þú verður sjáif að hjálpa til þess, Jenny. Ég vil ekki gera þig dauðhrasdda, en þú verður að muna, að ef eitthvað þessu AU. SKIPTIBLYANTINN • þarf aldrei að ydda • alltaf jafn langur • ótrúlega ódýr! Fæst i næstu ritfanga og bókabúð líkt kemur fyrir aftur, að æpa þá á hjálp. En hérna kemur Parenti. Segðu honum frá öliu saman. Paranti kcm labbandi eft ir garðinum og skaut höfðinu fram undan álútum herðunum, augnlokin voru þung og hann skaut Mka neðrivörinni fram og líktist nú enn meir skjaldböku. Hann sagði ekkert, fyrr en hann kom til þeirra, og þá við Cal. — Þessi appelsínusafi var rann- sakaður. En það var ekkert at- hugavert við hann. Hreinn fyrsta flokks safi. Pillurnar voru skrifaðar fyrir hina myrtiu. Við náðum í lækninn hennar í morg- un, og hann sagðist hafei gefið henni lyfseðla öðru hverju í nokkur ár. Hann leit í skýrsl- urnar, og það gerði lyfjabúðin líka. Þetta var ekkert óhóflega mikið, og ekkert sem benti til þess, að hún tæki svona pillur að staðaldri. Læknirinn bætti því við, að hún hefði verið heilsu- hraust. Hann sagðist halda, að hún hefði bara viljað hafa þess- r pillur við höndina, ef hún kynni að þarfnast þeirra. Þann- ig sagði hann að margt fól'k hefði það. — En það eru ekki margir, sem geyma tóm glös, sagði Cal. — Ég hef talað við hr. Vlee- dam. Hann sagðist hafa ver ið þvi andvigur, að hún tæki þessar piiloir og hefði beðið hana að fleygja þeim. Og hún lofaði að gera það. — Gerði hún það? spurði Cal. Parenti yppti öxiium. — En það Mtur nú helzt út fyrir, að hún hafi ekki gert það. Hr. Vleedam kveðst hafa fundið eitt glas, sem hún hafði falið. Og ef eitt glas var falið, hefðu fleiri getað verið það. Funduð þér slík glös, frú . . . Vleedam? sagði hann snögglega við Jenny. — Nei, sagði Jenny. — Nei! Parenti kinkaði aðeins kolli, rétt eins og hann hefði búizt við Hfingt eftir miáncetti M.G.EBERHART þessu svari. Hann sagði við Cal: — Henry frændi yðar sagði lög- reglunni sömu söguna og hann sagði yður. Sagði, að einhver hefði hringt og sagt, að það væri landsíminn og spurði um ein- hverja frú. Drengurinn kvaðst ekki hafa heyrt nafnið alimenni- lega. Svo sneri hann sér aftur að Jenny: — Landsiminn segir, að ekkert skeyti hafi verið sent til yðar. Cai sagði: — En hvað þá um lyklana, sem týndust? Parenti nuggaði á sér nefið og andvarpaði. — Ef ég tæki all an mannskapinn í virmu, gætum við fundið nál i heysátu — ef við hefðum nógan tima. En það er annað mál að finna lykla- hring á leiðinni héðan og til New York. — Þér getið spurzt fyrir. Þér get ið látið leita í húsinu. — Ef einhver hefði stolið þess- um lyklum, haldið þér þá, að hann færi að meðganga það? — En þér haldið, að þeim hafi verið stoidð. —- Þér segið það. En bíðið nú við, hr. Calendar, það er engin ástæða til að þjóta upp. Ég verð að hafa eitthvað fast undir fót- um. — Henry litli segir satt, sagði Cal eftir litla þögn. Parenti sagði þurrlega: — Mér var nú sagt, að hann hefði ver- ið afskaplega spenntur fyrir að tala við iögregluna. Naut þess, var mér sagt. Parenti varð allt í einu mannlegur og þreytuleg- ur. — Ég á sjálfur ttu ára strák. Síðustu vilkuna hefur hann þótzt eiga heima á tunglinu. Það er þreytandi. — Henry skrökvaði hvorki né sagði sögur að minni fyrirsögn. Og frú Vleedam sá manninn í íbúðinni sinni. Og talaði við hann. — Ég er ekki að segja, að ég trúi henni ekki. — Kannski þér viljið þá trúa þessu, sagði Cal. — Hér er ann að glas . . . Parenti lyfti ekkert brúnun- um, en rétti höndina til þess að gripa tóma piHuglasið. — Hvar funduð þið þetta? — Segðu honum það, Jenny, sagði Cal, og Jenny sagðd það, sem hún vissi, sem sýndist held ur litilfjörlegt, eftir svipnum á Parenti að dæma. Hann kom ekki með nein ar spurningar hann horfði á glasið, stakk þvi síðan i vasa sinn, leit út um gluggann og sagði ólundarlega: — Piltarnir mínir eru allir svo ungir. Þeir eru góðir l'ögreglumenn. Ágætir til að elta uppi ökufanta og standa á verði og hirða drukkna menn — en þeir kunna ekki mik ið á morð. Hann andvarpaði og bætti við: — Og ég hef svo sem heidur ekki haft neina teljandi æfingu í slíku. Cal sagði varlega: — Þér eig- ið við, að lögregluþjónninn i hús inu kynni að hafa sofnað? Parenti teygði enn fram vör- ina. — Það er hugsaniegt, sagði hann eftir nokkra þögm. — Hins vegar gæti glasið verið búið að vera lengi þarna í herberginu. Gæti verið eitt glasið, sem frú Vleedam faidi. — Eða einhver hefur fundið, sagði Cal hvasst. Parenti horfði lengi á hann. — Þér eruð ekki vel sjál'fum yð- ur samkvæmur, hr. Calendar. Annað veifið eruð þér að reyna að sannfæra mig um, að enginn í húsiniu hefði getað myrt — frú Vleedam. Hina stundina er- uð þér að reyna að sanmfæra mig um að aðeins eimhver í húsinu gæti hafa fundið þessi tvö glös og stolið lyklunum. — Það kann að vera, að það sé ekki rökrétt, en það vill bara svo til, að það er satt. — Hins vegar gettð þið tvö verið að skálda upp sögu, sem ég gæti átt erfitt með að sanna í þýðingu Páls Skúlasonar. eða afsanna, og gæti einmitt ver ið sögð í þeiim tilgangi. Til þess að leiða mig á viliigötur og verrnda vin yðar og fyrrverandi mann, frú Vleedam. Segið mér, frú Vleedam hversu oft hringdi maðurinn yðar fyrrverandi til yðar? Hjartað í Jenny tók slíkt við- bragð, að hún hélt helzt, að Par enti hefði heyrt það. Hún þorði ekki að Mta á Cal ti'l þess að biðja hann hjálpar. Parenti var nýbúinn að tala við Pétur. Pétur gæti hafa viðurkennt þessi simtöl. Og að minnsta kosti var auðvelt að sannprófa þau. Hún sagði því: — Ekki sér iega oft. — Það eru mörg simtöl við númerið yðar á reikningnum hérna, sagði Parentt og horfði enn út. — Og hann viðurkenn- ir að hafa talað við yður, hvað eftir annað. — Já, en ekki nýlega, sagði Jenn.y og greip í síðasta hálm- stráið. — Hvers vegna var hann yfir leitt að hringja til yðar, þegar þið voruð skilin? — Af því að hann vildi vita, hvemig mér liði. Við voruma bezbu vinir. ... Parenti sagði nú ekkert, en varir hans hreyfðust með efa- velvakandi • Blöð eru góður undir- burður J. Kon. skrifar: „Alls staðar fellur til mikið af dagblöðum, umbúðapappír og pappakössum. Á það hefur verið bent, að fól'k ætti að halda þessu til haga og setja í rotþró eða hrúgu með öðrum lifrænum efnum, sem til faila og bera svo í matjurtagarða. Þess var getið að prentsvertan skaðar ekki. Annað er lika hægt að gera við þetta blaðarusl, það er að hafa það fyrir unddrburð undir búfénað. Þetta hefi ég og fleiri gert. Var skiturinn bor- inn á strax um vorið með góð- um árangri. Það er mjög leiðinlegt, hvað sauðkindin á við mikinn sóða- skap að búa hjá sumum. Sauðfé er mjög hreinleg dýr, sem þola illa óloft og blaut hús. ,1. Kon.“ HÁSKÓLABÍÓ - TÓNLEIKAR FYRIR ALLA LÚÐRASVEITIN SVANUR LEIKUR I HASKÓLABÍÓI AMORGUN 3. FEBRÚAR KLUKKAN 3 E.H. Stjórnandi Jón Sigurðsson. Ellert Karlsson, stjórnandi lúðrasveitar Vestmanna- Einleikari Björn Leifsson. eyja stjórnar eigin útsetningu á lögum eftir Árna Kynnir Borgar Garðarsson. Thorsteinsson. Miðar hjá Eymundsson, Lárusi Blöndal og við innganginn. — Verð 100 krónur. ALLUR AGÓÐI RENNUR TIL RAUÐA KROSS ÍSLANDS VEGNA ELDGOSSINS I VESTMANNAEYJUM. Velvakandi svarar í síma 1010C frá mánudegi til föstudags kl. 14—15. • Rangfærslur Jakob Ó. Pétursson skrifar: „Velvakandi sæll. Einn af prestum þjóðkirkj- unnar ritar nýlega i helgarút- gáfu eins dagblaðanna þátt nokkum, þar sem hann m.a. ■vitnar í ijóð Davíðs Stefánsson ar frá Fagraskógi á þenna hátt: „En ég veit hvað fgesta grunar, sem fellur þyngst að hverfa, hve fljótt það er að gleymast, þeir hafa verið til." 1 Kvæðasafni Davíðs III. bindi Ak. 1943 eru ljóðlínurn- ar þannig tilfærðar: „Og fæsta þeirra grunar, sem felliur þyngst að hverfa, hve fáir leggja á minnið, að þeir hafi verið tii.“ Hér ber of mikið á milli, og upphafið, skv. minni prestsins hálfgerð (eða aiger) lokleysa. Menn gera alltiaif mikið af þvi, að vi'tna í ljóð skáldanna okkar, ekki sízt kennimennim ir, en þá kröfu verður að gera, að það sem birt er innan til- vitnunarmerkja, sé orðrétt eft- ir haft, en ekki treyst lauslega á minni. En því bendi ég á þetta, að það gerist nú æ tíð- ara, að rangt sé vitnað í ljóð okkar beztu skálda. Akureyri, 27. janúar, 1973. Með beztu kveðju, Jakob Ó. Pétursson." • Útrás fyrir byssuglaða þingmenn K.S. skrifar: „Velvakandi góður. Þar sem þú ert farvegur fyr- ir íslenzkt mannvit, bið ég þig að koma á framfæri góðri hug- mynd. Það er talið æskilegt að sprengja farveg fyrir hraun- strauminn i Vestmannaeyjum út í sjó, en ekki þorandi að varpa sprengjum úr flugvél. En það hefi ég lært af Sjálf- stæðu fólki hans Haldórs, að „Bretar eiga mörg myndarleg herskip, sem væru hverri þjóð til sóma, jafnvel þótt þau væru notuð til einhvers gagns." Nú á stjómin okkar að semja við Breta um, að stærsta orrustu- skip þeirra sé velkomið til ís- lands um stund, skal það leggj- ast við ankeri á Vestanannaeyja sundi og bombardera gígbarm- inn með sínum stænstu fall- stykkjum. Þetta gæti orðið Vest mannaeyjum til vemdar og Bretum sjáifum til blessunar. Byssuglaðir þingmenn frá Hull og Grimsby fengju hér útrás, svo þeir gætu hætt að skamma hann Douglas-Home, sem er maður skynsamur og varfær- inn, enda af kyni, sem hefir verið forvigisætt í Skotlandi frá því á tímum Snorra Sturlu sonar. í þriðja lagi gæti Palm- erstone lávarður sparað sér það ómak að ganga aftur á hverri nóttu í Westminster Abbey og gæti áfram sofið ró- legur í sinni dýru kistu. K.S.“ • Við varpann bíður vorið og hrekur vetur frá Jón Amfinnsson skrifar: „Svo innan skaimims er kom- in sól og bMða. Ykkur sem eigið trjágarða minni ég á, að láta ekki dragast að klippa og snyrta trén og rannana. Það hefur svo mikið að segja fyrir útlit garðsins. Fegurðina þráum við og óskum þess að hún tjaldi allt umhverfið við húsið með listrænum lindum sínum. Sumarið er stutt. Því er bezt að undirbúningi öllum verði lokið fyrir vorið. Verjið tima og kröftum rétt. Jón Arnfinnsson.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.