Morgunblaðið - 06.02.1973, Síða 21

Morgunblaðið - 06.02.1973, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1973 21 Séra Jón Pétursson prófastur frá Kálfafellsstað Fæddur 1. marz 189fi. Dáinn 23. janiiar 1973. Nokkur niinninffar- og kveðju- orð. Þar með er fallinn í valinn eftir langa og erfiða vanheilsu einn af sérstæðum persónuleik um þessa bæjarfélags. Maður gæddur góðum gáfum, skoðana festu og frásagnarlist, sem átti rætur i hinu bezta í menningar- arfleifð kjarnmestu ætta lands ins í föður- og móðurætt. Ræt- ur þeirra ættarstofna lágu djúpt í menntamannaætt Víði- valla í Skagafirði oig stórbænda ætit Suður-Þingeyjarsýsl'u að ógleymdum Boga á Staðarfl. Aðrir munu verða til að rekja hinn merka embættisferil séra Jóns og verður það þvi ekki gert hér. Séra Jón fæddist og ólst upp I hinni fögru Suðursveit sunnan jökla og á milli sanda og jökul- vatna á prestssetrinu Kálfafells stað í Borgarhafnanhreppi í skjóli foreldra sinna séra Pét- urs Jónssonar, Péturssonar háyf irdómara og frú Helgu Skúla- dóttur, Kristjánssonar óðals bónda á einni stærstu jörð í Þingeyjarsýslum, Siigriðarstöð- um í Ljósavatnsskarði, alnöfnu ömmu sinnar Helgu dóttur séra Skúl'a í Múla. Systurnar þrjár Jóhanna, Jarþrúður og Elísabet, sem all- ar áttu eftir að giftast merk- um mennta- og framkvæmda- mönnum og standa fyrir stórum gestrisnum heimilum áttu einn- ig þarna gæfuríka æsku. Nú lifir Elisaibet í Hilleröd á Norður- Sjálandi ein eftir þeirra merku systkina, en marg- ir hafa talið hana einn bezta fulltrúa íslands á þeim slóðum, sendiherra ígildi, sökum gest- risnii, hjálpfýsi og höfðingsskap ar eins og hún á kyn til. Sá sem þessar línur ritar átti þvi láni að fagna að fá að dveija mörg unaðsleg sumur á heimili séra Jóns, fyrst hjá föð ur hans séra Pétri þá háöldruð- um og hinni góðu konu hans frú Helgu. sem allir Suðursveit ungar dáðu. Þá var pestssonur- inn i prestaskólanum, þvi að Suðursveitungar vildu ekki ann að heyra en að hann tæki við af föður sínum, svo vinsæl og mikilsmetin var ættin i heima- byggð sinni. Til þess að svo mætti verða þurfti ungi maður- inn að hætta við fyrra starf, setjast í menntaskóla, eftir að hafa hætt þar námi vegna veik- inda löngu fyrr og ljúka síðan prestaskólanámi á skemmsta tíima. Þar réð skyl'duræknin við vini og venzlamenn, enda kenni mannsblóðið ríkt í afsprengi Víðivallafeðganna og prestanna séra Skúla í Múla og séra Sig- fúsar á Höfða. Séra Jón varð fljótt viður- kenndur góður prestur og kenni maður og jafnframt bóndi á stærstu jörð í sveitinni, en fyrstu 10 búskaparárin bjó hann með móður sinni frú Helgu. Séra Jóni var sérstak- lega annt um gripina sína og jörðina, sem honum var trúað fyrir. 1 þeirri stóru landareign, sem var paradis náttúruunn- enda mátti ekkert kvikt deyða, alls ekki fugla, og lengi vel ekki fisk. Þar ríkti friðhelgi undir stjóm prestsins, sem var fróðleikssjór um menn og mál- efni, sögu og iandafræði, fjær og nær. Hinar hugljúfustu minningar unglingsára minna eru tengd- ar menningarsetrinu Kálfafells- stað, sem lengi var miðstöð sveit ar þar sem ríkti bændamenning af rammíslenzkum toga spunn- in. Mér eru sérstaklega minnis- stæðar göngur okkar séra Jóns um hin viðlendu tún og engjar Kálfafellsstaðar, sem öll sveit- in naut góðs af vegna velvilja húsbændanna á staðnum. Við gengum á vordaginn og snetnma sumars fyrir slátt um túnið, Leltin og Grundina, engiin, Veit- una með hnéhárri gulstör, vall lendisbakkana við fljótið, Efra Stykki og Magnúsarstykki og Slétturnar, með sínum sérkenni- lega starargróðri og sefsíkjum með ál í kýl og sauðlauk á bakka. Á þeim björtu vordögum var gaman að vega og meta jarðargróðann, væntanlegan hey- feng og ásetning að hausti. Fram undan var „állinn“ spegil sléttur með vakandi silung og lúru við botn. Síðan sandfjaran löng eins og eilífðin og loks haf- ið blátt í fullu suðri, silfurmerl að undir sól að sjá en að baki tignarlegir pýramídar Staðar- fjallts. Það var góð undirstaða og uppbygging hugsandi frjáls- lyndum presti fyrir prédikun næsta sunnudags, og af þeim nægtabrunni kunni séra Jón að teyga. Jón kvæntist 14. apríl 1936 myndarkonunni Þóru Einars- dóttur Jónssonar vegaverk- stjóra, einni af 9 mannkostasystr um. Þóra ól manni sínum 3 mann vænleg börn. Pétur viðskipta- fræðing, Helgu Jarþrúði og Ein ar, sem nú hefur fetað í fótspor föður síns og langfeðga og ný- l'ega gerzt prestur að Söðul- holti á Mýrum. Þegar prests hjónin vegna vanheilsu séra Jóns höfðu flutzt til Reykjavik- ur fann prestskonan hér ný við- fangsefni í félagsmálum og líkn armálum höfiuiðstaðarins og stofnaði og stýrði m.a. félaga- samtökunum „Vernd“, sem hún nú hefir hlotið verðskuld- aðan heiður fyrir. Jón minn, ég kveð þig nú um sinn. En um leið verður mér hugsað til hinna viðsjálu jökul- vatna, sem hvarvetna töfðu för ferðalangs i Skaftafellssýslum á þeim árum. Mér verður hugsað til þess, hve örugglega Bleikur Sóti og Laufa báru okkur yfiir vötnin sem þú kenndir mér að velja rétt vöð yfir, þótt hvergi sæi i botn. Ég veit, að á meðan þú þurft- ir að dvelja hér á mölinni og asfaltinu í Reykjavík var hug ur þinn alltaf fyrir austan. En þegar þú nú ert orðinn laus við hrörlegan líkama ertu aftur frjáls eins og fuglinn að vitja æskustöðva og kirkju þar sem um tima var bezti vettvangur starfs þíns. Guð veri með þér og öllum þínum, sem sakna vinar í stað. Eftirlifandi eiginkonu, börnum og barnabörnum og aldraðri systur á Sjálandi votta ég mína innilegustu samúð. Reykjavik 1. febrúar 1973. Baldur Johnsen. Útsala Karlmannaföt ... frá kr. 2975 Stakir jakkar . frá kr. 1500 Stakar buxur .... frá kr. 875 Terylenefrakkar kr. 1850 ANDRÉS, Aðalstræti 16, sími 18250. Kvenstúdentar Opið hús að Hallveigarstöðum í dag, þriðjudag, frá kr. 3—6. Kaffiveitingar. Stjórnin. Þrastalundur Veitingaskálinn Þrastalundur við Sog er til leigu næsta sumar. Tilboð óskast send á skrifstofu UMFl að Klappar- stíg 16 eða í pósthólf 406, Reykjavík, fyrir 20. þ.m. Ungmennafélag Islands. Framholdsaðalfundur Verzlunarrdðs íslands verður haldinn þann 8. febrúar 1973 kl. 12:15 í Súlnasal Hótel Sögu. DAGSKRA: 1. Sameiginlegt borðhald. 2. Prófesisor Ölafur Bjömsson ræðir um efnahags- málin. 3. Fjárhagsáætlun V.í. 4. Tillögur stjórnar til lagabreytinga. Hef til sölu Mjög skemmtilega 4ra herb. íbúð í Fossvogi. Jr Hef traustan kaupanda að einbýlishúsi, raðhúsi eða góðri sérhæð í Kópavogskaupstað eða ná- grenni. Upplýsingar á skrifstofu SIGTTRÐAR HEUGASONAR, HRE., Digranesvegi 18, Kópavogi, sími 42390. Kvöldsími 40587. TUsölu ------------------------- TUsölu A SELTJARNARNESI erum við með til sölu GÓÐA 5 herbergja 10 ára, um 120 fm ibúð á annarri hæð i parhúsi, stór bílskúr, gott útsýrvi, verð 3—3,5 millj. Otb. um 2 milljónir. í VESTURBÆ, 4ra herbergja tbúð á 1. hæð í jámvörðu timbur- húsi. ibúðin er öll ný standsett, verð 1,9 millj., sem má skipta. iBÚÐIN GETUR ORÐIÐ LAUS FLJÓTLEGA. FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN, símar 20424 — 14120. HEKLA HF. Laugavegi 170—172 — Sími 21240.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.