Morgunblaðið - 20.02.1973, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1973
Fa
*ri s
LKHnA \
'aiais;
22-0-22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
14444 S125555
mum
BlLALEIGA-HVEFISGÐIU 10]
14444 “2? 25555
HÓPFERÐIR
Til leigu í lengri og skemmri
ferðir 8—34 farþega bílar.
Kjartan Ingimarsson,
símar 86155 og 32716.
FERÐABlLAR HF.
Bílaleiga — sími 81260.
Tveggja manna Citroen Mehari.
Fimm manna Citroen C.S.
8—22 manna Mercedes Benz
hópfer3abílar (m. bílstjórum).
ALLTAF FJOLCAR
VOLKSWACEN
Volkswagen
varahlutir
tryggia
Volkswagen
gæði:
ðrugg og sérhæfð
viðgerðaþjónusto
STAKSTEINAR
Svara ekki
spurningum
þingmanna
I fræðiriti Ólafs Jóhannes-
sonar um íslenzka stjórnskip-
un eru nokkrir kaflar sér-
staklega helgaðir skyldum
ráðherra. Leggur prófessor-
inn þáverandi rika áherzlu á,
að ein brýnasta skylda ráð-
herra sé að mæta á þingfund-
um og svara þar fyrirspurn-
um þingmanna.
Nú er það út af fyrir sig
engin ný kenning, að ráðherr-
ar eigi að svara fyrirsptirnuin
þingmanna. Hingað til hefur
það þótt einn mikilvægasti
þáttur þingræðis. En svo neyð
arlega vili til, að það eru ein-
mitt ráðherrar i stjórn Ólafs
Jóhannessonar, sem hafa haft
sig mest í frammi um að neita
að svara fyrirspurnum þing-
manna, — hafa jafnvel neitað
að mæta á þingfundum, en
slíkt segir ólafur Jóhannesson
embættisbrot í nefndri bók.
Sá ráðherra, sem frægastur
hefur orðið fyrir að neita að
svara fyrirspurn þingmanns
er Magnús Kjartansson, þeg-
ar hann stóð upp i neðri deild
Alþingis í vetur og sagðist
ekki vera kominn á Alþingi
til þess að eyða tima í að
svara fyrirspurnum þing-
manna.
Óneitanlega minnir þetta at-
vik á það, þegar Göring neit-
aði að svara fyrirspurnum
Dimitroffs i réttarhöldunum
út af þingshúsbriinanum i
Berlín, — er þó sízt verið að
likja innræti þessara ráð-
herra saman.
Hin nýja stétt
En Magnús Kjartansson hef
ur ekki aðeins orðið frægur
af þvi að telja sig yfir það haf
inn að svara fyrirspurnum
þingmanna. Embættisveiting-
ar hans bera og á sér sérstak-
an gæðastimpil.
Fyrir nokkrimi mánuðum
reyndi ráðlterrann að troða
Guðrúnu Helgadóttur í stöðu
h,já Tryggingastofnun ríkis-
ins. En umrætt starf var veitt
af forstjóra stofnunarinnar
en ekki ráðherra. Fór því svo,
að ráðinn var í starfið maður
með þekkingu á viðkomandi
málaflokkum, en umsókn Guð
rúnar hafnað.
Menn skyldu nú halda, að
ráðherrann hefði Iátið sér
þetta nægja. En svo var ekld.
Til þess að koma frúnni i
starf, ákveður ráðherrann að
bæta deildarstjóra við starfs-
lið stofnunarinnar, og á þessi
deildarstjóri að annast þau
störf, sem Tryggingastofnun-
in var búin að ráða sér mann
til. En munurinn var hins veg-
ar sá, að ráðherra skipar deild
arstjóra. Aftur sækir Guðrún
um að fyrirlagi ráðherrans
og enn sækir sami maður á
móti og fær til þess stuðning
Tryggingaráðs, enda var í
raun um að ræða það starf,
sem hann var nýráðinn til.
Magnús Kjartansson er nú
búinn að skipa Guðrúnu Helga
dóttur deildarstjóra við Trygg
ingastofnun rikisins. Hann
hefur enn sýnt það, að póU-
tiskt siðgæði er honum álíka
framandi og skyldur ráð-
herra gagnvart þingmönnum.
Eðvarð sendur
reikningur
Þjóðvil.jinn, málgagn verka
lýðshreyfingarinnar, liefur nú
hafið mikla herferð fyrir þvi,
að „rjúfa kjarasamninga
verkalýðsins“ með því að
breyta umsömdum vísitölu-
grundveUi. Á þetta blað eng-
in orð til þess að lýsa hneyksl
un sinni yfir því að áfengi og
tóbak sé i vísitölugrundvellin-
um, — létu þó ritstjórar þess
blaðs það verða sitt fyrsta
verk í ríkisstjórn að fá for-
seta íslands til þess að gefa
út bráðabirgðalög til þess að
koma þessum óhollu munaðar-
vörum inn í visitöIugrundvöU
inn.
Sl. sunnudag er langur leið-
ari í ÞjóðvUjanum um það,
hvert eigi að senda reikning-
inn fyrir öilum hækkunum á
áfengi og tóbaki, sem núver-
andi rikisstjórn hefur staðið
að. Kemst blaðið að þeirri nið-
urstöðu, að þeir, sem viiji
halda áfengi og tóbaki i visi-
tölunni eigi að fá þann reikn-
ing.
Það ættu að vera hæg heima
tökin fyrir ritstjóra Þjóð-
viljans að senda þann reikn-
ing, — þeir geta sent reikn-
inginn á skrifstofur Dags-
brúnar, — til Eðvarðs Sig-
urðssonar, alþingismanns AI-
þýðubandalagsins og for-
manns Dagsbrúnar.
1 spurt og svarað Hringið í síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biGjið um Lesendaþjónustu Morg- unbiaðsins.
Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS
BÓKHALDSSKYLDA HÚS-
FÉLAGA OG VEXTIR AF
ÁVÍSANAREIKNINGUM
Auður Guðmundsdóttir,
Hlíðarveg'. 29, Kópavogi,
spyr:
„1. Eru húsfélög bókhalds-
skyld og hvaða bækur þurfa
þau að færa?
2. Hvers vegna reiknar Út-
vegsbanki íslands ekki vexti
af ávísamareikningi, nema upp
hæðin sé 2500 kr. eða meira?
Er það löglegt?“
1. Skattrannsóknastjóri
svarar:
„Ef fyrirspyrjandi á við hús
félög og rekstur fjölbýlishúsa
eru þau bókhaldsskyld sam-
kvæmt A-lið 2. gr. laga nr.
51/1968 um bókhald.
Um færslu bókhaldsins og
tilhögun þess, leyfi ég mér að
vísa til II. kafla bókhaldslag-
anna en þau eru til sérpremtuð
í fjármáliaráðuneytiimi og hjá
skattstjórum."
2. Reynir Jónasson, skrif-
stofustjóri útvegsbankans,
svarar:
„Samkvæmt reglum bank-
ans nr. 31, 1962, 11. gr. tekur
sparisjóðsdeild fé til ávöxtun
ar á ávisanareikning sem
stofnaður er með að minnsta
kosti kr. 2.000,00 innborgum.
Þessi lágmarksfjárhæð hefur
síðan verið hækkuð smám
saman, en er nú rneð sam-
komulagi banka og sparisjóða
kr. 10.000,00. Þess skal getið,
að vextir af ávísanareikningi
eru reiknaðir af lægstu inn-
stæðu á hverjum tiu dögum,
þó ekki af lægri meðalfjár-
hæð en kr. 2.500,00 á ári.“
DAGLAUN TIL VEST-
MANNAEYJAAÐSTOÐAR
SKATTSKYLD?
Sigurjón Jónsson, Hrísa-
teigi 34, spyr:
„1 sambandi við söfnun
vegna gossins í Vestmasnna-
eyjum, langar mig að spyrja:
Þarf atvinnuveitandi að gefa
upp til skatts tekjur þess
fólks, sem hefur látið daglauin
sin renna til Vestmannaeyja-
söfnunarinnar, og ef svo er,
eru þær þá skattskyldar?"
Rikisskattstjóri svarar:
„Svar við báðum spurnirug-
unum er já.
Hins vegar skal á það bent,
að einstakar gjafir til viður-
kenndrar liknarstarfsemi eru
frádráttarbærar til tekju-
skatts, þó ekki yfir 10% af
skattskyldum tekjum gefanda,
enda sé hver gjöf ekki undir
300 krónum. Skilyrði fyrdr frá
drætti umræddra gjafa til
tekjuskatts er, að gefandi
leggi fram móttökukvittun
frá stofnun, sjóði eða félagi,
sem rikisskattstjóri hefur v'.ð
urkennt."
Sex umferðum er nú lokið
i sveitakeppni Bridgefélags
Reykjavíkur og er staða
efstu sveitanna þessi:
Sveit stig
Gylfa Baldurssonar 108
Arnar Arnþórssonar 98
Hjaita Eliassonar 91
Jóns Bjömssonar 81
Óla M. Guðmundssonar 76
Braga Erlendssanar 71
Áma Guðmundssonar 64
ísaks Ólafssonar 63
Næsta umferð verður spil-
uð í Domus Medica kl. 20 n.k.
miðvikudagskvöld.
Á ¥ ♦ +
Hjá Bridgefélagi Kópavogs
er nú lokið aðal-sveitakeppni
félagsins með sigri hinna bráð
efnilegu ungu spilara í sveit
Bjarna Sveinissonar. Höfðu
þeir haft forystu lengst af í
keppminni og voru því vel að
sigrinum komnir. 1 sveitinni
eru ásamt Bjarna: Sæmundur
Rögnvaldsson, Jón G. Pálsson,
Sigmumdur Stefánsson, Erling
Sigurðsson og Jóhamn G. Jó-
hannsson.
Röð sveitanna varð þessi:
Bjama Svemssonar 221
Óla Andreassonar 219
Ármanns J. Lárussonar 209
Guðm. Jakobssonar 188
Guðjóms Sigurðssonar 181
Helga Benónýssonar 166
Arnar Guðmundssonar 136
Matthíasar Auðunss. 117
Þorsteins Þórðarsonar 110
Gunnars Sigurbjörnss. 97
Kristm. Halldórssonar 82
Margrétar Ámadóttur 57
Guðjóns Sigurjónssonar 27
Amþórs Sigtryggss. 10
Aðalfundur félagsins verð-
ur haldinn nk. fimmtudag og
fer þá fram stjórnarkjör o.fJ.
V Á ♦ *
Nú eru aðeins tveim uimferð
um ólokið í undankeppni ís-
landsmótsins á Reykjanes-
skaga en þær verða spilaðar
sunnudaginn 25. febrúar n.k.
og verður spilað í Sk'phól.
Fátt nema kraftarverk get
ur komið í veg fyrir að sveit
ir Sævars, Óla og Skúla fari
áfram, en hörkubardagi er um
varasætið og eru það einkum
3 sveitir sem berjast um það.
Staða efstu sveita:
Sævars Magnússonar 192
Skúla Thorarensens 179
Óla M. Andreassonar 163
Gests Auðuinssonar 135
Marons Björnssonar 133
Ármanns J. Lárussonar 124
¥ ♦ ♦ *
Einhver dráttur mun enn
verða á að úrslit úrtökumóts
BSl geti farið fram. Ýmsar
ástæður eru fyrir þvi að
keppni þessi hefir enn ekkl
hafizt m.a. slasaðist Hjalti Elí
asson í Englandsferðinni. —
Framkvæmdastjórar keppnd
þessarar eru þeir Tryggvi
Gíslason og Alfreð Alfreðs-
son. Ástæða er til að ætla að
eitthvað skýrist línur í máli
þessu strax eftir helginia.
♦ ♦ ♦ *
Síðastliðinn suinnudag hófst
tvimennimgskeppni Hins ísl.
prentarafélags. 9 pör mættu
til leiks og voru spiluð 27 spi'l.
Röð paranna er þessi:
Baldur — Þór 123
Jón — Karl 113
Helgi — Haraldur 112
Halldór — Arnór 109
Bragi — Stefán 108
Brynjar — Steinar 105
Sigurður — Amar 104
Guðmundur — Hafsteinn 99
Jóhanmes — Trausti 99
Næst verður spilað næstk.
sunnudag og hefst keppnin kl.
13,30 stundvísleSa.
— A.G.R.