Morgunblaðið - 20.02.1973, Blaðsíða 20
20
MORGUNKLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. FEZBRÚAR 1973
Hraunlæna rann norður úr gig num í gær, en stöðvaðist áður en langt var komið. Jarðýtur voru
sendar á vettvang til að ryðja gegn hrauninu.
— Vestmanna-
eyjar
Framhald af bls. 32
sérllega mikill, og öskumyndun i
meðalJagi. 1 kvöld féllu á tveim-
ur tímum um fimm sentimetrar
gjalls i miðbænum. Haukur
sagði, að öskufallið væri mun
minna, en hægt væri að búast
við, þegar gigbarmur rifnaði.
í morgun kl. 11.20 brauzt smá
hraunlæna gegnum gigbarmií*!
ta norðvesturs, í átt til byggðar-
innar, en hún stöðvaðist fljót-
lega. Svipaðar hraunlænur hafa
yfirleitt runnið bent i norður.
Haukur fór með varðskipinu
Þór til að kanna hraunjaðarinn í
sjónum í dag og breytingar á
dýpi. Hraunið rann áfram til
austurs, og er maginið 1—2 millj-
ónir rúmmetra á sólarhring en
var um 10 mMljónir rúmmetra á
sólarhring fyrstu daga gossins.
Hraunkantvirinn er mjög bratt-
ur og 30 metra hár, þar af tíu
metrar upp úr sjó. Fyrir framan
hrautnkant'nn eru eldri gosefni,
og hefur sjórinn grynnkað þar
utn 30—40 metra. Hraunið hefur
ekkert færzt nær Heimflkletti i
innsiglingunni sl. viku en austur
af hreyfist hravmið í áttina að
Bjarnarey.
Blaðamaður Morgunblaðsins
spurði Hauk hvað hann vildi
segja um gosið nú þegar nær
mánuður er liðinn frá því það
hófst. Haukur sagðí, að gos
kBeimu yfirleitt i hrinum. Hann
sagðist telja, að gosið í Heima-
ey væri ein hrina enn sem kom-
ið væri, sem hefði smám saman
minnkað að heildanmagni, en þó
virtist öskuframleiðsla í mestu
hrinunum ekki hafa minrakað að
náði, — t.d. voru tvær mi'klar
bviðiur í sl. viku. „Stóra spurn-
ingin er, hvort önnur hrina kem
ur.“ Haukur sagði, að t.d. hefðu
verið fim'm hrinur í Surtsey,
tvær í síðasta Hekl.ugosi og tvær
í Öskugosinu 1961, þó aö þær
hefðu verið stuttar.
Haukur kvað vera farið að
draga úr gosinu, „en 1-2 milljón-
ir rúmmetra á sólarhring er
heilmikið gos“. Það gerðist i sl.
vi'ku að sprungan lokaði sér al-
veg með þvi að upp gaus úr
krinigllótituim gig, en nú hefuir
sprungan rifið sig til suðurs og
opnazt þannig aftur. Hraun-
rennsli úr þessum syðri gig get-
ur farúð annaðhvort á tíaf út
til suðurs eða hu.gsanlega til
norðurs að bygigð. En Haukur
sagði, að góður varnargarður
ætti að geta bjargað by'ggðinni,
ef tíraunið tæki norðlæga
stefnu. Verður byrjað á því á
morgun að byggja sMkan garð
— frá Helgafelii og niður að hin-
um vamargörðun.um, en Haukur
taldi að meiri tæki þyrfti til
verksins en nú eru fyrir hendi
í Eyjum. Er nú verið að kanna
þetta rr.ál nánar.
Morgunbiaðið ræddi í gær-
kvöldi við Svein Eiríksson,
slöklkviliðsistjóra og yfirmann
björgunar og varna í Eyjum, og
spurð’i hann að hverju helzt væri
veriið að vinna þessa stundina:
Sveinn sagði, að öll áherzla hefði
verið lögð á að sfyrkja þök á
rafstöð, simstöð og stærstu fisk-
verkunarstöðvunium og einnig
unnið miteið í vatasJeiðslum.
Styrkin.g á þalki rafstöðvarinnar
hefur verið fjórfölduð og er nú
talið að það geti þolað allt að
tveggja metra öskulag.
Þá hefur einnig verið unnið að
því alð viðhalda kyndingu í hús-
um í ve.sturbænuim en beðið er
eftir tækjum ti:l að mæla gas-
efnamagn í kyndiíkiefum húsa,
þar sem leiðslur sprungu i frost-
unum. Sveincn sagði, að frostið
hefðí reynzt minni skaðvaldur
en óttazt var i fyrstu. Hann sagði
að geysiSega mikið starf hefði
verið unnið í Eyjum og líklega
hefði aldrei öðru eins verið af-
kastað á jafnskömmum tíma á
íslandi. Hann taldi að 100 þúsund
tonnum hefði verið mokað af
húsþökum. 200 manns vinna
undir stjóm Sveins, þar af
eitt hundrað Bandaríkjamenn.
Sveinn sagðí, að nú lægi fyrir
mikið verkefni í að vatnsþétta
öll hús í bænum. Þá hefur einnig
verið unnið að því að leggja
leiðsluna frá hafnargarðinum
og meðfram hrauinkamtinum en
Sveinn sagðd, að hann væri
óánægður með þær dælur og
kraft sem þær hafa gefið. Vatni
hefur verið hleypt í leiðsSumar
í tilreiunaskyni og tekizt sæmi-
lega. Sveinn sagði, að þegar kerfi
þetta væri fullfrágengið væri von
til þess að mikill árangur gæti
náðst við að hindra framrás
hraunsins. Búið er að finna lek-
ann á vatnsveitu bæjarins, og
hefur vatnið í vatnstankinum
hækkað um 10 sm á klukkustund
síðan kl. 10 í morgun. Að lokum
sagði Sveinn, að allir hefðu lagt
mikið af mörkum og ekki dregið
af sér við þau margþættu björg-
unarstörf sem um er að ræða.
Frá Vestmannaeyjum fóru i
kvöld 52 menn áleiðis til lands,
en fleiri munu fara með varð-
skipi, sem kemur hingað seinna
í kvöld. Flugvöllurinn hér var op
inn fram undir klukkan tvö í
dag og lentu 15 fiugvélar á flug
vellinum, þar á meðal Fokker
Friendship Flugfélagsins. Flutti
hún rúmlega 40 manns til Eyja
og sömu tölu til lands. Þá voru
um 50 tonn af vélum og tækjum
flutt héðan með flugvélum i dag.
— Handritin
Framhald af bls. 32
og Jónas Kristjánsson, en af
hálfu Dana þeir Ole Widding
og Ch. Westergárd-Nielsen. 1
dag birtist eftirfarandi frétta-
tilkynning um efni fundarins
í Reykjavik I báðum löndun-
um:
„Nefndin sem skipta skal
hinum íslenzku handritum í
Árnasafni og Konunglega
bókasafninu í Kaupmanna-
höfn hélt fjórða fund sinn dag
ana 7.—15 febrúar 1973. Fund
urinn fór fram í Reykjavík,
og fundarstjóri var að þessu
sinni dr. Magnús Már Lárus-
son háskóiarektor.
Uanfamgsmiklu starfi mefind-
arinnar að tiUögum um skipt-
ingu handritanna var haldið
áfram með sama hætti og á
fyrri fundum, og var að þessu
sinni einkum fjallað um hand-
rit Islendingasagna, biskupa-
sagna og konungasagna.
Fyrirhugað er að halda
næsta fund nefndarinnar í Ár
ósum kringum 1. maí næst-
komanidi."
- Eyðilegging
FramliaJd af bls. 1
lauk ræðu siinni á þessum orðum:
„í Færeyjum höfúm við ekki
ennþá telkið kxkaákvörðun í
fi.skveiðilögsögumálin u. Ég hefi
þvií ekki mánnzft á þetta mál
nema af því að komið var inn
á Færeyjar í sambandi við 50
mílna mörkLn við ísland. Þar
sem það gerðisit, taldi ég rétt að
veikja athygli á, að það sem mun
verða íslandi til hagsbóta við
að lausn máisins verði almenin, þá
muni það geta leitt til eyðilegg-
ingar hins færeyaka samfélags.“
Erlenidur Patuirsson sagði m.a.
um landheligismálið, í ræðu
sinni:
„Það verður að harma, að hin
Norðurlöndin hafa ekki stutt þá
baráttu upp á Mf og dauða sem
íslendingar og Færeyingar eiga
í fisíkveiðum sinum.
Innan sikamims verður haldin
ný alþjóðaráðstefna um land-
helgismál og ég leyfi mér að
skora á finnsiku, dönsku, sænsku
og norsfeu rJkisstjómina að
endurslkoða afstöðu sína 1 þessu
miáli.
Fyrir Færeymga og ísSendinga
þýðir haglkvæm lausn fiskveiði-
málsins, þ.e.a.s. fyrst og fremst
fisikveiðilögsögumálsins, hver
Mfsafboima okkar verður og
síðast en ek:ki «ízt er það spurn-
ing um stjórn.málalegt frelsi
þjóða okkar.“
Gjallar-
horn
GJALLARHORN, málgagn Heim
dallar, er komið út.
Á forsiðu er grein, sem nefnist
„Frumlegt fóik eða nashyrning-
ar“. Inni í blaðinu er grein um
„réttláta kjördæmaskipan", Ás-
m-undur Eimrsson skrifar
„Margt er líkt með skyld-um“,
þar sem hann fjallar um fasískar
tilhne'gingar meðal un.gra
Marxista, greinarstúfur er um
.yefnaha-gslegt þroskaleysi hins
islenzka samfélags, að hér er
m-eðiferð áfengis og tóbaks á al-
gjöru nýlendustigi". Haukur
Hjaltason skrifar um „Korpúlfs-
staði og náttúruvemd" og efni er
um „alvörukomima", og ,,-glæpa-
verk kommúnista í útvarpinu".
Gjallarhorn er átta síður. 1 rit-
nefnd eru: Árni B. E ríksson og
Geir Waage.
Hér fannst m
gumbaturinn ^
— Sjjöstjaman
Framhald af bls. 32
næsta nágrenni. Þegar Morgun-
blaðið hafði síðast fregnir hafði
sú eftirgrennslan ekki borið ár-
an-gur.
Sjöstjarnan sökk um 100 mil-
ur austsuðaustur af Dyrhólaey
sl. sunn-udag, og hefur gúmbát-
an-na tvegigja verið leitað allt sdð-
an, ein neyðarkall heyrðist þegar
10 manns af Sjöstjörnuirmi voru
að fara í bátana.
Eldur
í risíbúð
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavik
var kvatt út um kvö-ldmatarleyt-
ið á lauigardagskvöld að Ljós-
vallagötu 12, og stóðu þá eld-
tumgur upp úr kvisti á þaki húss
ins. Greiðlega gekk að ráða nið-
urlöigum eldsins, en miklar
skem-mid'r u-rðu á herbergi því,
sem eld-urinn kom upp i og einn
ig nokkrar skemmdir á öðrum
herbergjum í risinu. Hins vegar
urðu engar skemmdir á neðri
hæðum hússins. íbúðin, sem eld-
uriinn kom upp í, var mannlaus
og eldsupptök eru ókunn.
Síbrota-
menn játa
16 ÁRA pilt-ur játaði um helg-
ina á sig irwnbrot í verzlun And-
ersens & Lautih við Laugaveg að-
faranótt laug-ardags, þar sem
han-n sta-1 skiptimiyn-t, og þrir
men-n voru ha-ndteknir með stolið
ávís-anahefti í fóru-m sínum, eftir
að þeir höfðu selt falsaða ávísun
úr því í Umferðarmiðsitöðiinni.
Bæði pilturinn og mennirnir hafa
oft áður kcwnið við sögu hjá lög-
reglumni vegna afbrota.
LESIÐ
DflCLECR
HOBARTI
raf suðuspennar
fyrirliggjandi
[Uuvegum einnig
rafsuðuvélar fyrir mikró
vír aluminium og fleira.
HAUKUR & ÓLAFUR
Ármúla 32 Reykjavík Slmi 37700
— New York Times
Fram af bls. 6
ingahjóna og miðstéttarfólks í
bernsku lifði hann niðurlægingu
Weimarlýðveldisins og uppgang nas-
ismans. Kissinger og yngri bróðir
hans, Walter voru neyddir til að
sækja skóla, sem var eingöngu ætl-
aður Gyðingum. Faðir þeirra var
prófessor en var flæmdur úr skóla-
kerfinu.
Hann man lítið eftir bernskuárun-
um og í samræðum við fréttamenn í
fyrra lagði hann áherzlu á að
bernska sín væri enginn „lykill að
einhverju af því pólitískar ofsókn-
ir í bernsku minni stjórna ekki lífi
mínu,“ eins og hann komst að orði.
Hvert er framlag Kissingers til
stefnu Nixons í einstökum atriðum?
Þetta er erfið spurning. Hann vill
ekki tala um aðra stefnu en þá, sem
forsetinn fylgir, og ver stefnu forset
ans undantekningarlítið, og þess
vegna verður að treysta á sagnfræð
inga, sjónarvotta og þátttakendur til
þess að hægt sé að skilgreina ágrein-
ing þeirra, framlag hvors um sig og
sameiginlegt framlag þeirra beggja.
En eitt er vist: þvi verður varla
trúað að árangur Nixons í utanrik
ismálum hefði orðið eins mikill og
raun ber vitni, ef hann hefði ekki
notið hjálpar Kissingers til þess að
framfylgja stefnunni, tryggja áþreif-
anlega samninga að tjaldabaki og
skilgreina hana fyrir opnum tjöld-
um.