Morgunblaðið - 21.02.1973, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1973
BÍULEIGA
CAR RENTAL
n 21190 21188
14444 “S“ 25555
14444®25555
BÍLAR
VÖRUBÍLAR:
Ar«. '70 MAN 9186 m/fram-
drifi og 2j tor»na Foco-
krana.
— ’69 IMAN 13230 m/milti-
kassa og splittuðu drifi.
— '65 MAN 635.
— ’62MAN 770 m/framdrifi.
— ’67 Volvo NB 88 (boggie)
í toppstandi.
— ’67 Volvo NB 88 (boggie)
nýinnfl.
— '66 Volvo N 88 m/tandem
(drifhnsing).
— '68 M-Benz 1413
— '67 M-Benz 1618.
— ’66 M-Benz 1920.
— '66 M-Benz 1418.
— ’65 Vi-Benz 1418
— ’62 M-Benz 327.
— ’61 M-Benz 322.
FÓLKSBlLAR:
Arg. ’69 Chevrolet Nova 8 cyl.
beinsk. 2ja dyra, á króm-
felgu, mjög fatlegur bíH.
—'68 Chrysler, 8 cyl. sjálfsk.
2ja dyra.
— ’72 Mazda 1600 de luxe.
— ’71 Toyota MK II.
— ’71 Voíkswagen 1300.
— ’71 Cltroen ID19 super.
— '71 Peugeot 404 station.
— '70 Toyota Crown.
— ’72 Fiat 600. Góð kjör.
Bílar með góðum kjörum:
— '70 Fiat Berlina 125.
— ’70 Fiat Special 124.
— '70 Daf.
— ’6/ Ford Fairlaine.
— ’67 Jeepster, blæja.
— '63 Vauxhall Victor.
— ’65 Saab.
Höfum kaupendur að Cortinu
'67—’70 og Bronco '68 sport,
8 cyl.
BlLASAUN
^ÐS/OÐ
BorgartCmi 1.
SIMAR
19615
18065
Samúðar-
kveðjur
Nýverið kom út blaðið Kynd
ill, málgragn Félags ungra jafn
aðarmanna. Ungir jafnaðar-
menn hafa undanfarið vakið
nokkra athygli á sér, þar sem
talið var að þeir væru ákveðn-
ari í ölliim grundvallarstefnu
máliiin Alþýðuflokksins en
gömlu foringjarnir. Og vissu
lega eru þeir á sinn hátt hrein
skilnari.
I forustugrein blaðsins er
fjallað á hreinskilinn liátt um
skoðitn ungra jafnaðarmanna
á vinstri stjórninni: „Alþýðu-
flokkurinn hefur á allan hátt
reynt að hafa samúð með nú-
verandi ríkisstjórn. Bæði er,
að sumir flokkar stjórnarinn-
ar vilja kenna sig við jafnaðar
stefnu og líka hitt, að ýmsir
Alþýðuflokksmenn töldu
flokk sinn beittan ójöfnuði af
vissum hluta Sjálfstæðis-
flokksins í síðustu rikisstjórn.
Kom það meðal annars fram
í því að staðið var gegn þeirri
sjálfsögðu ósk Alþýðuflokks-
ins, að tryggingabætur yrðu
hækkaðar í góðærinu á sið-
aSta misseri Viðreisnarinnar,
en sú neitun átti sinn mikla
þátt i slæmri útkomu flokks-
ins í kosningunum það ár.“
Ekki er nánar lýst af hverju
þessi samúð er sprottin, — en
sjálfsagt er hún vegna með-
fæddrar mildi Alþýðuflokks-
manna gagnvart öllu því sem
íninni máttar er, — og ungir
jafnaðarmenn telja réttilega,
að núverandi ríkisstjórn eigi
miklu fremur samúð skilda en
nokkurn stuðning.
Laun heimsins
og ríkis-
stjórnarinnar
Hinir ungu hugsjónaríku
jafnaðarmenn hafa vissulega
átt von á því, að einhverjar
þakkir bærust frá ríkisstjórn
inn vegna samúðarinnar, en
því var ekki að heilsa:
„En laun heinisins og ríkis
stjórnarinnar eru vanþakk-
læti. Sést það bezt með Fram
kvæmdastofnun rikisins, sem
Alþýðuflokkurinn studdi á all
an hátt. Greiddi m.a. frum-
varpinu um hana atkvæði á
Alþingi, enda var haldið, að
hún ætti að starfa i anda
skipulagshyggju jafnaðar-
stefnunnar.“
Nú hafa ungir jafnaðar-
menn hins vegar séð, að þessi
margfræga stofnun starfar
alls ekki í anda þessarar skipu
lagshyggju og er það nánar
skýrt:
„Með tilkomu stofnunarinn-
ar skapaðist að sjálfsögðu
það vandamál, hverjir ættu að
bera uppi framkvæmd stefn-
unnar, þ.e. hverjir skyldu
starfa við hina nýju stofnun.
Þá gekk maður undir manns
hönd, (sic) að bjarga sjálf-
stæðismönnum i Efnahags-
stofnuninni, sem voru margir,
um áframhaldandi embætti
við hina nýju stofnun, og
tókst það. En hver voru við-
brögð ríkisstjórnarflokkanna
gagnvart Alþýðuflokknum,
flokki jafnaðarstefnunnar á
íslandi. Hjá Efnahagsstofnun
inni var einn Alþýðuflokks-
maður. Afstaða stjórnar Fram
kvæmdastofnunarinnar gagn-
vart honum var einföld. Hann
var rekinn.“
Hinn
minnsti bróðir
•ttg fyrst þannig er farið að,
er ekki von, að Alþýðuflokk
urinn hafi lengur samúð með
rí kisstj ór ninni:
„Rikisstjórnin reynir nú
mjög að viðra sig upp við
þingmenn Alþýðuflokksins.
Hún skilur samt ekkert í þvi,
að Alþýðuflokkurinn skuli
ekki hlaupa upp til handa og
fóta og þiggja öll tilboð henn
ar um stjórnarþátttöku. Jafn
aðai-stefnan, forsvar hins
vinnandi manns og lítilmagn-
ans i þjóðfélaginu, ristir nefni
lega ekki dýpra hjá ríkis-
stjórninni en það, að hún fær
ómögulega skilið, að Alþýðu
flokkurinn hefur þá afstöðu til
svona vinnubragða, að það
sem þið gerið einum af mín
um minnstu bræðrtmi, það
gjörið þið mér einnig."
Hugsjónaríkir eru ungir
jafnaðarmenn: Einn maður
rekinn — og þá er allt búið!
spurt og svarað
Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS
Hringið í síma 10100 kl.
10—11 frá mánudegi til
föstudags og biðjið um
Lesendaþjónustu Morg-
unblaðsins.
SPARIMERKI NÁMS-
MANNA
Guðjón Jónsson, Jörva-
bakka 20 ,spyr:
„Mig laingar að beina þeirri
fyrirspurn til ríkisskattstjóra,
á hvaða forsendum námsmönn
um, sem ekki leysa út spari-
merki sín, er óheimilt að telja
þau til frádráttar við gerð
skattskýrslu, eins og skatta-
og útsvarslögin virðast kveða
á um.“
Ríkisskattstjóri svarar:
„Skv. b-lið 12. gr. laga nr.
30/1970 um Húsnæðismála-
stofnun ríkisins er „Skólafólk,
sem stundar nám í skóla 6
mánuði eða meira á ári . . .“
undanþegið sparnaðarskyldu.
Skv. 2. mgr. 11. gr. sömu laga
er fé það, sem skylt er að
spara, undanþegið tekjuskatti
og útsvari. Sparnaður án
skyldu er ekki undanþeginn
tekjuskatti og útsvari og spari
merkjakaup þeirra, sem
spara án skyldu, eru því ekki
frádráttarbær frá tekjum.“
ÁRAMÓTAUPPGJÖR
FRÁ BÖNKUM
Ingvi Hrafn JónsSon,
Mávahlíð 34, spyr:
„Hvenær má vænta þess að
ísienzkar peningastofnanir,
bankar og sparisjóðir sendi
viðskiptamönnum sínum
um áramót uppgjör um vaxta
tekjur og vaxtagjöld og auð-
veldi þeim m.a. mjög gerð
skattaskýrslu?"
Reynir Jónasson, skrifstofu
stjóri Útvegsbankans,
svarar:
„Bankar og sparisjóðir hafa
í áraraðir sent viðskiptamönn
um sínum reikningsyfirl.it af
viðskiptareikningum og koma
þar meðal annars fram bæði
vaxtatekjur og vaxtagjöld eft
ir því hvers konar viðskipti
er um að ræða. Vextir eru að
sjálfsögðu færðir í sparlsjóðs
bækur í byrjun hvers árs, og
enginn, sem fær víxil í banka,
fer út án vaxtanótu. Mér er
ekki kunnugt um breytingar
á þessu formi, en þeir við-
skiptamenn, sem þess óska,
hafa fengið heildaryfiriit við
skipta s nna við banka eða
sparisjóði.”
REGLUR UM ÁVÍSANIR
Eiín Torfadóttir,
Fremristekk 2, spyr:
„Hver setur reglur um, að
mjólkurbúðir megi ekki taka
við hærri ávisunum en 1000
kr., fiskverzlanir ekki hærri
ávísunum en 200 kr. og apó-
tek ekki hærri en 2000 kr.? Ég
kom á dögunum í apótek og
hafði ekki annað fé en 4.500
kr. ávísun. Fékk ég þá áður
nefndar upplýsingar og mér
var þannig svarað í viðurvist
margra í aígreiðslusal, að lit-
ið gat út fyrir að hér væri al
ræmdur ávísanafalsari á
ferð.“
Reynir Jónasson, skrifstofu-
stjóri Útvegsbankans,
svarar:
Hér eru þvi miður rótgróin
vandkvæði á að selja tékka-
ávísanir, þótt menn eigi vel fyr
ir þeim í banka sínum. Þrátt
fyrir margra ára baráttu bank
anna fyrir því að gera tékka
ávísanir áreiðanlegan gjald-
miðil, hefur það ekki tekizt
sem skyldi enn. Flest fyrir
tæki taka þó tékka sem
greiðslu, sé fjárhæðin sú sama
og keypt er fyrir. RegLur þær,
sem mjólkurbúðir, fiskverzl-
anir og apótek hafa sett þessu
viðvíkjandi, eru bönkum og
sparisjóðum ókunnar, og eru
settar einhliða af forráða-
mönnum þessara fyrirtækja.
Til sölu plastverksmiðja í fullum gangi. Verksmiðjan selst með vélum, húsum og öðru tilheyrandi. Nánari upplýsingar gefur Óskar Sveinbjörnsson c/o Korkiðjan hf., Skúlagötu 57. Jörðin Miðdolnr í Lnugardnl hefur verið auglýst laus til ábúðar frá næstu fardög- um. Allar umsóknir skulu hafa borizt til skrifstofu Hins íslenzka prentarafélags, Hverfisgötu 21, fyrir 28. febrúar næstkomandi. Fasteignanefnd H.Í.P.
Til sölu Mellor Bromley hringvél nr. 14. Vélin er sem ný. Mellor Bromley nr. 20 fyrir fataefni. Boraz Sjekkord nr. 5, prjónar mynstur, og 1 stk. Overlokk saumavél Special. 2 stk. Union Special, 3ja nála. 2 skurðar- hnífar 6" og 40”. — Góð greiðslukjör. Upplýsingar í síma 1996 á Akranesi. Vesturbœr i nágrenni Landakotsspítala er til sölu 6 herbergja íbúð i 2ja ibúða húsi. Stærð hæðarinnar er 153 fm. Ibúðin er 2 samliggj- andi stofur, stórt eldhús með fullkomnum vélum, 4 svefnher- bergi, bað, skáli, ytri forstofa og fleira. I kjallara fylgír frágeng- inn bílskúr. Getur verið laus 1. mai n.k. Sérinngangur. Sérhiti, Sugurhvalir. Lóð frágengin. Nýleg íbúð. IVIikil útborgun nauð- synleg. Teikning til sýnis í skrifstofunni. FASTEIGNASALAN, SUÐURGÖTU 4, Árni Stefánsson, hrl., Úlafur Eggertsson, sölumaður. Símar: 14314 og 14525.