Morgunblaðið - 11.03.1973, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1973
220»*
RAUOARÁRSTÍG 31
BILALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
14444 "3 25555
N
^JILAI
mwoiR
BILALEIGA-HVíflSGOTU 103
]
14444 "2 25555
/tAGNAR JÓNSSON,
hæstaréttarlögmaöur,
GÚSTAF Þ. TRYGGVASON,
lögfræðingur,
Hverfisgötu 14 — sí;ni 17752.
Lögfræðistörf og e.gnaumsýsla.
QPLASTEINANGRUN
GLERULL
BYGGINGARVÖRUR
SiM
1W
KÓPAVOGI
Sími: 40990
Einangrun
Gó’ olasteinangrun hefur hita-
leiðnistaðal 0,028 til 0,030
Kcai/mh. °C, sem er verulega
minni hitaleiðni, en flest önn-
ur einangrunarefni hafa, þar á
meðal glerull, auk þess sem
plasteinangrun tekur nálega eng-
an raka eða vatn I sig. Vatns-
drægni margra annarra einangr-
unarefna gerir þau, ef svo ber
undir, að mjög lélegri einangrun.
Vér hófum fyrstir allra, hér á
tandi, framleiðslu á einangrun
úr plasti (Polystyrene) og fram-
leiðum góða vöru með hag-
stæðu verði.
REYPLAST HF.
Armúla 44 — sími 30971
Séra Páll Pálsson:
HUGVEKJA
UNGA FÓLKÍÐ
„Á okkar dögum eru bömin harðstjór
ar á heimilunum. Þau rfsa ekki lengur
úr sætum, þótt einhver fullorðinn komi
inn i stofuna. Þau andmæla foreldrum
sínum fullum hálsi. Þau ryðja I sig
matnum við matborðið. Og þau eru
miskunnarlausir harðstjórar gagn-
vart kennurum sínum."
Stundum koma þau tímabil eða jafn-
vel tilteknir dagar, sem fólk talar og
ritar um æskulýðsmál. Ef til vill held-
ur einhver, að lýsingin hér að framan á
unga fólkinu, sé tekin úr kvörtunar-
bréfum til Velvakanda Moggans eða
Landfara Tímans, en svo er ekki. Sókra
tes lét þessi orð falla fyrir meira en
2500 árum!
Ef allt væri tekið of alvarlega, sem
sagt hefur verið og ritað um ungt fólk,
ætti í rauninni lítið að standa eftir af
heimsmenningunni í dag. Það spyrja
ýmsir: Hvað á að gera við unga fólkið?
Engu er líkara en hvers kyns böl og
ófarnaður stafi frá æskunni. Þetta er
þó ekki trúverðugra en svo, að fyllsta
ástæða er til þess að snúa spurningunni
við: Hvað á að gera við fullorðna fólk-
ið?
Auðvitað má alltaf segja ýmislegt já-
kvætt og neikvætt um æskulýðinn al-
veg eins og um þá, sem eldri eru. En
ég vil bera fram nokkrar spurningar,
sem gætu leiðrétt margan misskilning-
inn og leitt til jákvæðari afstöðu.
Er það unga fólkið, sem er að af-
henda eldri kynslóðinni heiminn eins og
hann er í dag? Er það unga fólkið, sem
bjó til þau kjör og þær aðstæður, sem
það ólst upp við? Var það unga fólkið,
sem demdi tveimur heimsstyrjöldum yf-
ir mannkynið? Var það unga fólkið,
sem framdi alla stærstu glæpi mann-
kynssögunnar? Svar mitt og margra
annarra við öllum þessum spurningum
er nei.
Hvað er þá að? Hvers vegna þarf
að benda á æskulýðinn til merkis um
að allt sé að farast? Unglingarnir eru
nú sem óðast að neyta ávaxtanna af
verkum þeirra eldri, sem brugðust og
gáfu steina i stað brauðs. Ég á hér við
áberandi uppeldisleysi, agaleysi og trú-
leysi. Það er alvarlegt mál að velta af
sér allri ábyrgð og bjóða upp á stjóm-
laust og rotið umhverfi að því er snert-
ir heimili, kirkju og skóla. En þetta er
einmitt það, sem margir hinna eldri hafa
ástundað. Siðan er rekið upp rama-
kvein, ef eitthvað fer úrskeiðis hjá ungl
ingunum.
Það er fjarri mér að bera oflof á
æskulýðinn eins og ýmsir gera. En hitt
gerist ekki heldur, að ég saki ungt fólk
um það, sem unga fólkið á engan eða
minnstan þátt í.
Kjarni málsins er að mínu viti þessi:
Þeir, sem sofa á þessum málum og hafa
sofið allt of lengi, þurfa að vakna. Setj-
ið ekki á stofn endalausar skrifstofur
til þess eins að tæla börnin burt af
heimilunum út í tilgangslausan þvæling.
Við skulum gefa börnunum í tæka tið
það bezta, sem viS getum boðið þeim:
Traust og heilbrigð heimili, menntandi
og mannbætandi skóla, heiðarlegt,
ákveðið og kristið uppeldi og vakandi
og starfandi kirkju. Töbum nú einn
sinni kristindóminn æriega í notknn í
stað þess að hafa hann bara upp á punt
og látum á reyna, hvort Guðs Orðið og
Guðstrúin standi fyrir sínn.
Bridgefélag Kópavogs
Að fyirstu umferð lokinni i
firmakeppninmi er ataðan
þessi:
Blómahöllin
(Bjami Pétursson) 116
ÚlThna H.F.,
(Karen Gestsdóttir) 115
Biðskýli Kópavogsbraut
(Guðjón Sigurðsson) 114
Hafskip H.F.,
(Guðm. Gunnlaugss.) 112
Verk H.F.,
(Þorsteinn Guðlaugsson) 111
Kæli- og frystivélaverkst.
(Gróa Jónatansdóttir) 107
Brunabótafélag fsiands
(Haukur Hannesson) 104
Sigurður Eiíasson
(Jón G. Pálsson) 103
Borgarsmiðjan
(Bjarni Sveinsson) 103
Hurðaiðjan H.F.
(Kristinm Gústafsson) 103
Skagfjörð H.F.,
(Gunnár Sigurbjömsson) 101
A V ♦ *
Frá Bridgedeild UMF
Aftureldingar, Mosfeilssveit
Sveitakeppni deildarinnar
lauk nýlega. 6 sveitir tóku
þátt í keppninni og urðu úrslit
þessi:
Efst varð sveit Birgis Thor-
bergs með 82 stig. Auk hana
eru í sveitinini Sigurjón Hólm,
Pétur Ingólfsson og Þórarinn
Andrewsson. f öðru sæti varð
sveit Egils Sigurðssonar með
6 stig. Auk Egila eru í sveit-
inni Ingóifur Sigurðsson, Ein-
ar Kristinsson, Jón H. Magn-
ússom og Meyvant Meyvants-
son. í þriðja sæti varð sveit
Davíðs Sigurðssonar með 65
stig, en auk hans eru í sveit-
inni Bernhard Linin, Sveinn E.
Sigurðsson, Pétur Már Jóns-
son, Árdís Þórðardóttir og
Bjöm Bjaraason.
Næst verður spiluð 2 — 3
kvölda tvímenningskeppnl og
verður ^pilað eins og fyrr í
gömlu símstöðinni á Brúar-
Landi á fimmtudagskvöldum
klukikan og eru aiiir bridge-
áhugamenn í Mosfelissveit
velkomnir.
A V ♦ *
Sveit Amar Arnþórssonar
hefur nú telkið forystu í
meistarakeppni Bridgefélags
Reykjavíkur, en lokið er við
að spila níu umferðir.
Staða efstu sveitanna er nú
þessi:
Amar Amþórssonar 158
Gylfa Baldurssonar 151
Hjalta Elíassonar 133
Braga Erlendssonar 112
Óla M. Guðmundssonar 110
Jóns Bjömssonar 104
ísaks Ólafssonar 86
Viðars Jónssonar 85
Áma G uðmun dssonar 85
Næsta umferð verður spiluð
í Dorous Medica n.k. miðviku-
dagskvöld H. 20.
A V ♦ *
Tvímennings- og barometer-
keppnin er nú hafin hjá TBK
og voru 46 pör sfcráð til
keppni. Spiluð eru 10 spil við
hvert par og er áætlað að ailir
spili við alla.
Röð efstu para:
Ólafía Jónsd. —
Iniga Nielsen 226
Birgir ísleifsson —
Gunnlaugur ÞórhaWsson 161
Gestur Jónsson — Gísili 152
Gunmar Vagnsson —
Pétur Pálsson 149
Jón H. Gunnlaugsson —
Si'gurður Tómasson 140
Högni Torfason —
Þorvaldur Valdimarsson 139
Baldur Ásgeirssom —
Zophonias Benediktsson 99
Einar Guðjohnsen —
Jón Baldursson 93
Hermanm Sigurðsson —
Reynir Pálsson 88
Kristinn Sölvason —
Michael Gabrielsson 82
Þess skal getið að röð para
getur breytzt mjög mikið, þar
sem um langa keppni verður
að ræða.
A ¥ ♦ +
Reykjanesundankeppninni
fyrir íslandsmótið er fyrir
nokkru lokið. 3 efstu sveiitirn-
ar keppa í 16 sveita undan-
keppni íslandsmótsins. Sveit-
in, sem lenti í 4. sæti verður
önnur varasveit.
Úrslit í mótinu urðu þessi
— efstu sveitir:
Sævars Magnússonar 213
Skúla Thorarensens 193
Óla M. Andreassonar 188
Ármanns J. Lárussonar 158
Gests Auðunssonar 152
Marons Bjömssonar 141
Sveitir Sævars, Óla og
Skúla eru þær fyrstu, sem
vinna sér þátttökurétt í fs-
lamdsmótinu.
A V ♦ *
Unglingalandsliðseinvíginu
var fram haldið sil. mámudag
og voru þá spiluð 32 spil.
Lauk lotunni sem þekri fyrri
með sigri sveitar Páls Hjalta-
sonar sem hlaut 137 stig, en
sveilt Guðbrands Sigurberga-
sonar hlaut 56 stig. Staða
sveitanna er nú þessi:
Sveit Páls 241
Sveit Guðbrands 124
A V ♦ *
Frá Bridgefélagi Kefia-
víkur og nágrennis
Munið tvímenningskeppinina
sem á að hefjast 15. marz.
Spilað verður á Víkingi ef
naeg þátttaka faest. Tilkynnið
þátttöku strax.
A V ♦ +
Hjá Bridgedeild Breiðfirð-
inga stendur yfir níu kvölda
barometerskeppni og er lokið
sex umferðum.
Staða efstu para er þessi:
Þorvaldur — Guðjón 424
Magnús — Magnús 364
Jóh. Jóns. — Sigrfður 339
Halldór Ólafur 286
Bergsveinn — Tómas 281
Hans N. — Þorsteinn 249
Björn — Jón Stef. 232
Ámundi — Ólafur 226
Jón — Stefán Stefáns. 223
Þórarinn — Þorsteinn 190
7. umferðin verður spiluS
nk. fimmtudag. Keppnisstjórl
er Jakob Bjarnason.
A.G.R.
Raðhusolóð í Breiðholti
á góðum stað til sölu.
Tilboð sendist Mbl. merkt:
fyrir 17. þ.m.
„2095 - 965‘
KARLMANNAFÖT 3850,00
TERYLENEBUXUR 1775,00
Úrval af stórum stærðum.
ANDRÉS, ANDRÉS,
ASalstræti 16. Skólavörðustíg 22.