Morgunblaðið - 17.03.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.03.1973, Blaðsíða 2
MORGUNBX.AÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1973 .................>■■■■■:• mm Vestmannaeyjum i g-ærkvöldi frá Sigurgeir Jónassyni. DJÚPMÆUNGARNAR á gas- inu hér í dag sýna að útstreymi hefur heidur minnkað í gær og i dag, en þó liefur gassvæðið í bænum stækkað heldur. Má segja að gas mælist í nær öll- um kjöllurum í bænum og er búið að flytja svefnstaði síðustu tvo daga ofar í bæinn. Er ná- kvæmlega fylgzt með mælingum á svefn- og vinnustöðum. Annars er gosið óbreytt mið- að við siðustu daga, og liraun- rennsli aðallega i austur. I>ó hef- ur verið svolítil hreyfing á hraunjaðrinum bæjarmegin aust ur af Grænuhlið og á móts við Urðaveg. Engin hreyfing er nú við hafnargarðinn og innsigling- una. Flakkarinn heldur áfram ferð sinni í stefnu á Klettsvíkina, fór hann um 20 metra síðasta sólar- hringinn, en þá eru 200 metrajr eftir í hraunjaðarinn við inn- siglinguna. Flakkarinn hefur farið um metra á klukkustund síðustu dagana. Flatarmál alls hraunsins ernú orðið 2,4 ferkílómetrar, en þar af er nýtt land um 1,7 ferkm. Rúmmál gosefna er nálægt því að vera 185 millj. ferkm. og hef- ur það aukizt síðan 26. febr. um 20 millj. ferkm. síðustu 16 daga að jafnaði og hefur framleiðsla gosefna til jafnaðar á sekúndu verið 10 rúmmebrar á þeim tíma. Er þetta minna heildargos- magn, en í siðasta Heklugosi Dómkirk j an; Prests- kosning á morgun Prestskosn iinig til Dómkirkj- nmar fer fraim á moirgun, summu igirm 18. marz. Hefst. hún kl. ) f. h. og stendur til kl. 22 e. h. 100 miajnns eru á kjörskrá, en msækjendur eru tiveir, þeir séra lalldór S. Grömdal og séra Þórir tephon'sen. 42°/o minni þorskafli ÞORSKAFLI bátaflotans fyrstu tvo mánuði ársins á svæðinu frá Hornafirði til Stykkishólms var liðlega 16 þúsund lestir á móti 30 þús. lestum sl. ár. Heildarþorskafl- inn í landinu á þessuni tíma var 1. marz sl. orðinn 30.894 lestir á móti 52.743 lestum á sama tírna í fyrra. Togaraaflinn var 1. marz sl. orðinn 4.476 lestir á móti 6.946 lestum í fyrra, loðnu- afliiMi var orðinn 219 þús. lest- ir á móti 227 þús. Iestum í fyrra, rækjuaflinn var svip- aður, um 1.000 lestir og hörpu diskaflinn einnig um 800 lest- ir- — Þessar tölur eru sam- kvæmt aflafréttum Ægis. Franski hljómsveitarstjórinn Antonio de Almeida. Á myndinni eru Sverrir Einarsson tannlæknir og kona hans að fara inn í hús sitt á 3. hæð með aðstoð lögreglunnar, Kalla pól, sem er einn af nýju Vestmannaeyjalögregluþjónunum. Hraunrennslið í Eyjum: 10 rúmm. á sek. síðustu 15 daga Háskólafyrir- lestur PRÓFESSOR Ake Malmström frá Uppsalaháskóla flytur fyrir lestur í boði Háskóla íslands þriðjudaginn 20. marz nk. kl. 17,30 í 1. kennslustofu Háskól- ans. Fyrirlesturinn verður flutt ur á sænsku og fjallar um: „Sam ar.burðarrannsóknir í lögfræði. Vandamál og aðferðir". (Jámför ande ráttsforskning. Promblem och metoder). öllum er heimiH aðgangur. Sinfónían: Upprennandi hlj ómlistar menn 1970, sem stóð í 2 mánuði og skilaði 200 millj. ferkm. á þeim tíma. Von er á 3 stórvirkum vatns- dælum með Laxá hingað á morg un til þess að auka dælinguna á hraunið og dæluskipið Vest- mannaey mun hefja dælingu í nótt. Dælurnar 3 eru frá Keflavík- urflugvelli og munu aðrar 3 koma næstu daga. Einnig er í athugun með enn frekari dælu- kerfi m.a.frá Hollandi og slökkvi bát frá Skandinavíu. Loðnulöndun heldur áfram og er von á nokkrum bátum í nótt, en í dag og í morgun fóru loðnu bátar út sem þá luku við lönd- un. Búið er að bræða um 13 þús. lestir og óunnin eru um 5000 tonn. Laxá lestar 500 tonn af mjöli á morgun og eru þá 500 tonn eftir. Um 400 manns eru nú við björgunarstörf í Eyjum, en 28 manns komu og 57 fóru í dag. 200 millj. króna tap LÁTA mium nærri að um 200 millj. kr. hafi tapazt í gjald- eyrisvei-ðmæt uim vegna tog- anavorkfallsins og er þá miðað við aflamagnið sl. ár. Togara- verkfallið hefur nú sitaðið í 55 daga. TVEIR erlendir gestir verða á næstu reglulegu tónleikum Sin- fóníuhljómsveitar fslands hinn 22. marz næstk. Eru það franski hljómsveitarstjórinn Antonio de Almeida og bandariski einleikar- inn Garrick Ohlsson, sem báðir ern taldir í fremstu röð ungra tónlistarmanna um þessar mund ir. Á efnisskrá tónleikanna næst- komandi fimmtudag er Faust forleikur eftir Wagner, píanókon sert eftir Liszt og Sinfónía nr. 2 eftir Rachmaninoff, en hún verð ur flutt hér í fyrsta sinn. Hljómsveitarstjórnn Antonio de Almeida fæddist í París 1928 og stundaði hljómlistamám fyrst í Argentinu og síðar i Bandaríkj- unuxn, þar sem kennarar hauis voru m.a. Serge Koussevitsky og Paul Hindemith. Almeida hefur stjórnað öllum helztu hljómsveit um Evrópu, og þykir hann einn eftirtektarverðasti hljómsveitar- stjóri sin.nar kynslóðar, enda á stöðugum ferðalögum víða um heim. Píanóleikarinn Garrick Ohls- son er Bandaríkjamaður, 24 ára að aldri Qg margfaid'ur verðlauna hafi. Hann vann Busoni-keppnina á Ítalíu, alþjóðakeppni píanóleik ara í Montreal, árið 1970 vann hann fyrstu verðlaun í Alþjóða- keppni í Varsjá, en þar þurfti hann að spreyta sig í keppni með 80 píanóle kurum. Eftir þann sig ur hefur hann ferðazt viða um hekn, og er nú almennt talinn í fremstu röð ungra píanóleikara í veröldinni. 32 stjórnmálafundir Sjálf- stæðisflokksins um næstu helgi UM NÆSTU helgi laugardaginn og sunnudaginn 24.—25. marz, efnir Sjálfstæðisflokkurinn til þrjátíu og tveggja stjórnmála- funda víðs vegar um landið og taka m.a. allir alþingismenn flokksins þátt í þessum fund- um. Fundirnir hefjast allir kl. HJALPARBEIÐNI EINKENNI dagsins er lýsing á hinu stóra, mikla, fjöl- menna. Eyru og augu fyllast af því, sem í efsta stigi er tjáð. Heimurinn færist líka allur inn fyrir dyr svo til hvers heimilis, og því er hið stóra, sem í útlöndum ger- ist, daglegt brauð hjá flest- um, hvort heldur jákvætt er eða neikvætt. Þess vegna ber það líka oft fyrir, sem ofviða er venjulegum skilningi. Þessar línur eru þó fram settar til þess að minna á ein- stakling. Hann liggur á sjúkra beði, hefur orðið fyrir slysi, og væri hann ekki gæddur þeirri lífstrú og dug, sem neit ar að viðurkenna uppgjöf, væri dimmt fyrir augum hans í dag. Því hann hefur mikið misst, vinstri fótinn fyrir neð an hné, hægri handlegg fyrir ofan olnboga, og að auki er hægri fóturinn mjög illa far- Kunnugir munu átta sig á því, að hér er verið að lýsa Hilmari Sigurbjartssyni, Hólm garði 19, sem lenti í slysi í grjótnámu fyrir mánuði. Hin ir minnast þess e.t.v. að hafa heyrt um þetta, fyllzt sam- úð, en síðan kom eitthvað annað, sem ýtti til hliðar. Það er erfitt fyrir ungan mann, rétt liðlega tvítugan, með lítið barn og unnustu til forsjár, að verða fyrir slíku áfalli, og enginn getur til fulls bætt honum það. En vissri tegund af áhyggjum má létta af honum með sam- stilltu átaki, og því eru þeir beðnir, sem línur þessar lesa með skilningi að tjá samúð sírna með því að láta eitthvað af hendi rakna til unga mannsins. Dagblöðin hafa góð fúslega heitið móttöku. Ólafur Skúlason, prestur í Bústaðasókn. 16:00 nema þar sem annað verð- ur auglýst. Fundirnir verða á eftirtöldum stöðum: Laugardaginn 24. marz: Akranesi, Hótel Akranesii Stykkishólmi, Lions-húsinu Grundarfirði, samkomuhúsinu Patreksfirði, Skjaldborg Isafirði, Sjáifstæðishúsinu Blönduósi, Hótel Blönduósi Sauðárkróki, Sæborg Ólafsfirði, Tjarnarborg Akureyri, Sjálfstæðishúsinu Raufarhöfn, félagsheimilinu Hellu, Hellubíói Selfossi, Tryggvaskála Keflavik/Njarðvik, Stapa Hafnarfirði, Sjálfstæðishúsinu Seltjarnarnesi, félagsheimilinu Sunnudaginn 25. marz: Borgarnesi, Hótel Borgarnes Búðardal, Dalabúð Ólafsvík, samkomuhúsin’U Bíldudal, félagsheimilinu Bolungarvík, félagsheimilinu Hvammstainga, félagsheimilinu Skagaströnd, Fellsborg Siglufirði, Hótel Höfn Dalvík, Víkurröst Húsavik, Hlöðufelli Þórshöfn, félagsheimilinu Eyrarbakki/Stokkseyri, samkomuh. Stað Hveragerði, Hótel Hveragerði Þorlákshöfn, barnaskólanum Grindavík, Festi Gerðahreppur, samkomuhúsinu Mosfellssveit, Hlégarði Fundi sem vera átti í Vík í Mýrdal er frestað þar .til síðar. Allir fundirnir verða nánar auglýstir. Skákstarf í Breiðholti ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykjavikur og Taflfélag Reykjavíkur hafa á- kveðið að hefja sérstakt skák- starf í Breiðholti. Skákæfingar verða í anddyr'. Breiðholtsskóla á laugardögum kl. 13—16. Þær eru ætlaðar ungu fólki á aldrinuni 10 til 16 ára. Leiðbeinandi verður Svavar Svavarsson. Fyrsta æfing in verður laugardaginn 17. marz. Þá kemur Jón Kristinsson og tefl ir fjöltefiíi við þá, sem koma. — Þátttakendur eru hvattir t'.l þess að taka með sér töfl. Villandi fyrirsögn FYRIRSÖGN á baksíðu Morgun- biaðsins í gær kann að hafa gef ið villandi mynd af afstöðu Ein ars Ágústssonar, utanríkisráð- herra til sjónarmiða félagsmála- ráðherra varðandi alþjóðadóm- stólinn í Haag. Fyrirsögnin var svohljóðandi: Einar Ágústsson, utanrík' sráðherra: Ekkert við skoðamr Hannibals að athuga. Ráðherrann kvaðst, I samtali við biað ð ekkert hafa við það að at- huga hvaða skoðanir Hannibal hefði á þessu máli, hins vegar kvaðst hanti vera andvigúr því að við mættum í Haag. Þéttá 'léið réttist hér með. i1 ’

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.