Morgunblaðið - 17.03.1973, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.03.1973, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1973 MORRIS MARINA OG NÝR FIAT Það eru um þrjú ár síðan stærsta bílasamsteypa Bret- lands, BLMC verksmiðjurnar sendi Morris Marina fyrst á markaðinn. Sumum þóttu tæknimenn þessa fyrirtækis hafa flýtt sér einum um of við hönnun bílsins og gert allt til að koma honum sem fyrst I fjöldaframleiðslu. Flestir eru hins vegar sam- Morris Marina. mála uim að miðað við verð sé þetta ágætur bíll og mjög samkeppnisfær við Ford Cort inuna. Mestu kostir Marinunn ar eru vafalítið mjög lipur vél, sem fáanleg er í mismun andi stærðum og mjög góður fjögurra gíra gírkassi, sem vitanlega er alsamhæfður. Hér verður um að velja tvær vélar: 1300 rúmsm 60 hestafla og 1800 rúmsm 82 hestafla. Út lit bílanna með 1300 og 1800 vélinni er mjög svipað. Stati- on bíllinn verður einungis seldur hér með stærri vélinni. Báðar vélamar eru fjögurra strokka. Stærri vélin hefur hámarkshraða yfir 150 km/ klst og viðbragð 0—100 km/ klst. tæpl. 14 sekúndur. Bens- íneyðslan með 2800 vélinni er um 10 1/100 km. Diskabremsur eru að fram an en borðar að aftan. Sjálf stæð gormaf jöðrun er að fram an og hálf-ellipsulaga blað- fjaðir að aftan. Stýringin er góð en hins vegar liggur bíll- inn fremur illa á slæmum veg um á nokkurri ferð. Morris Marina fjögurra eða tveggja dyra býður upp á gott rúm fyrir farþega og hefur stóra farangurs- geymslu. Afturhlutinn hallar það mikið niður að illa sést aftur fyrir t.d. þegar bakkað er inn í stæði. Hitakerfið er gott. Mælarn ir eru vel staðsettir í mæla- borðinu og auðveldir aflestr- ar. Snúningshraðamælir er í bílunum með 1800 vélinni, Stýrislæsing er eins og nú þykir sjálfsagt á nýjum bxl- um. Bretar telja bílinn einmitt réttan fyrir markaðinn, í>jóð- verjum finnst of lítið í hann lagt og Danir eru ánægðir með hann. Hvað finnst íslend ingum? Morris Marina er ekki mjög nýtízkulegur í útliti en smekklegur og með „hreinar" línur. Verðið verður frá um 400 þúsund krónur. Umboð: P. Stefánsson, Hverfisgötu 103. Vélin er staðsett í miðjunni þ.e. fyrir framan afturhjólin) í nýjum bíl frá Fiat, er kall- ast Fiat X 1/9. ítalinn Bert- one er ábyrgur fyrir útliti bílsins. Vélin er i grundvall- aratriðum sú sama og í 128 Coupé en í þessum nýja bíl næst úr henni meiri kraftur eftir smávægilegar breyting- ar. Sjálfstæð fjöðrun er á hverju hjóli. Enn er óvíst um sölu þessarar gerðar utan Italíu. Fiat X 1/9. Marina station. Morris Marina. „Glataði son- urinn“ aftur til Roof Tops ÖÐRUM megin götunnar er söluturn, þar sem unglingar hanga oft lang- tímum saman og eyða tím- anum, eins og þeir eigi hann í milljarðavís; hinum megin götunnar er bílskúr, sem ekki hýsir lengur bíla, heldur bítla: Hljómsveitina Roof Tops. Komi maður þar að á dimmu kvöldi, heyrir maður fyrst þungan nið bassagítars- ins og trommanna, en eftir því sem nær skúrnum dreg- ur, bætast skærari tónar við, og þegar upp að skúrnum er komið, heyrir maður greini- lega hvers konar tón- list hljómsveitin er að æfa. Svo tekur maður í hurðar- húninn — og það er læst. Það þýðir ekkert að banka, þeir heyra það ekki þarna inni. Þá gengur maður fram með skúrnum og að glugga, sem ekki er ætlaður áhorf- endum, því að stórt teppi hef ur verið hengt fyrir hann að innanverðu. En maður get- ur grillt í hljómsveitina þarna fyrir innan og þegar vel stendur á, bankar maður fast og mynduglega í rúðuna og sjá: Útidyrnar eru opnaðar og manni er boðið inn fyrir. Heimsóknin nægir til að setja Roof Tops svo gersam- lega úr jafnvægi, að ekki er æft meira það kvöldið. En þeir eru fúsir til viðræðna og áður en margar mínútur eru liðnar, hefur manni orð- ið ljóst, að mikil bjartsýni rík ir meðal þeirra nú. Og þó er bjartsýni ekki mest áberandi, heldur er það lítt beizl- uð gleði, sem streymir út frá þeim félögum. Og yfir hverju gleðjast þeir? Jú, glataði son urinn er kominn heim. Ekki blaðamaðurinn, sem kom í heimsókn, heldur Ari Jóns- son, sem var trommuleikari hljómsveitarinnar frá upp hafi og fram á mitt síðasta ár, er hann söðlaði um og gerðist liðsmaður Trúbrots. Það timabil, er Ari var í her- leiðingunni, varð fremur ódrjúgt fyrir Roof Tops, því að mestallur tíminn fór I að æfa nýja lagadagskrá, þar sem stöðugt var verið að skipta um trommuleikara. En með endurheimt Ara er eins og hljómsveitin hafi feng ið vítamínspraxxtu og nú halda henni engin bönd: Roof Tops ætla að vinna sinn fyrri sess sem vinsæl og virt dans- hljómsveit. „Það verður ein- göngu kraftmikil dansmúsík á okkar efnisskrá,“ segir Guð- mundur Haukur, söngvari Roof Tops — Jón Pétur Jónsson, bassaleikari, Gunnar Guðjónsson, gítarleikari, Guðmundur Haukur, söngvari, Tom Lansdown, gítarleikari, og Ari Jónsson, trommuleikari. Tom er frá Bandaríkjunum, en búsettur hér á landi og kvæntur íslenzk ri stúlku. (Ljósm. E. Sig.) hljómsveitarinnar, „við höf- um engan áhuga á að vera að spila eitthvað, sem fólk inu leiðist að hlxxsta á. Roof Tops hafa alltaf verið þekkt- ir fyrir að vera traust dans- hljómsveit og við sjáum enga ástæðu til að fara allt í einu að birta nýja stefnuskrá." Eins og fyrr er Ari Jóns- son lykilmaðurinn í þessari stefnu; trommuleikur hans heldur taktinum stöðugt gang andi, þannig að helzt minnir á stóra vöruflutniingabifreið á fullri ferð á þjóðvegi — og fölk kemst varla hjá því að taka eftir. Roof Tops hafa þó aldrei verið þekktir fyrir að hafa sérstaka stjörnu í sín- um röðum, helduir hefur vel- gengni hlj óms veita rinnar fyrst og fremst byggzt á samvinnu og samstöðu — sem áheyrendur hafa notið góðs af. Og nú um helgina byrjar hljómsveitin að nýju að leika á dansleikjum, eftir nokkurt hlé vegna æfinga. Engar fregnir verða biirtar í bili um utanferðaráform, hljómplötu- upptökur eða önnur stórtíð- indi; Roof Tops hafa ekki gert neinar áætlanir um slikt, haldur verður það baira að koma i Ijós með tíma/n um. Fyrst um sinn er að eins eitt mál á dagskrá: Að vinna aftur gamla sessinn — og heldur meira, ef rúm leyf- ir. — sh.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.