Morgunblaðið - 17.03.1973, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.03.1973, Blaðsíða 30
Keflvíkingar taka þátt í næstu UEFA-keppni Sigruðu ÍA 1—0 Akurnesing’ar ganga vonsviknir af leikvelli eftir ieikinn við Kefl- víkinga. Nafn ÍBK fer enn einu sinni í Evrópuhattinn. HINN marksækni knattspyrnu- maður Keflvíkinga, Steinar Jó- hannsson, sem sat á varamanna- bekknum í fyrri hálfleik, átti svo sannarlega erindi inn á vöU í s'ð »ri hálíleik, því hann skoraði dýrmætt mark fyrir lið sitt í leiknum við Akurnesinga á Mela veilinum á fimmtudagskvöldið. Mark Steinars veitir Keflvíldng- wm rétt til þátttöku í næstu EEFA-keppni, en i Evrópukeppn- nm hafa Keflvikingar ætíð verið sérlega heppnir með andstæð- inga, auk þess sem liðið ávann sér rétt til þátttöku í Meistara- lceppni KSf, sem hefst í næstu viku. Það voru erfið vallarskilyrði á gamla Melavellinum á fimimtu- dagskvöldið, þegar Akumesingar og Keflvíkingar mættust þar i þýftingarmikJum ieik. Eins og að framan hefur verið sagt, skar þessi leikur úr um þótttöku í næstu UEFA-keppni, en liðin Tirðu jöfn að stiigum í 1. deildar- keppninni í fyrra og þar sem markatala ræður ekki hjá okkur um röð liða, varð að koma til aukaleiks. Að vísu hefði verið eðiilegra, að slíkur leikur hefði farið fram sl. haust, en aí því varð ekki og er það önnur saga. Miðað við aðstæður og hve snemma árs hann fór fram, verð ur ieikurinn að teljast góður. Leikmenn beggja liða eru greini lega i góðri æfingu og þeir reyndu að legigja sig fram um að sýna góða knattspymu, en aur og poMar á vellinum komu því miður í veg fyrir að það tækist. FYRRI HÁEFLEIKUR Akurnesingar byrjuðu ieikinn vel og sóttu meira í byrjun, án þess þó að skapa nein veru'lega hættuteg tækifæri, en smám sam an fór að koima meira jaínvægi og leikurinn tók að jafnast. Greiniiegt var, að Jiðin voru mjög svipuð að styrkleika, þótt einhvern veginn hefði maður það á tilfinningunni, að KefJvíkinigar myndu hafa betur, áður en yfir lyki, þar sem lið þeirra var skip að JlikamJega sterkari mönnum, sem nutu sin betur við sJikar að stæður. Lið Akumesinga er létt ara Jið, skipað ungum og óreynd um mönnum að hluta. Fyrsta marktækifærið kom á 11. min., er Jón ÓJafur gaf góða sendingu til Ólafs Júlíussonar, sem komst i gott færi, en Hörð- ur naarkvörður Akumesinga kom út á móti honuim og tókst að bjarga í hom. Á 16. min. fengu Akurnesingar sitt fyrsta tækifæri, er Hörður Jóhannesson lék skemmtilega upp vinstra meigin og gaf góða sendingu yfir til KarJs Þórðar- sonar, sem skaut, en Jóni Sveins syni markverði KefJvíkinga tókst að verja. Næstu mín. skeði fátt mark- vert, eða þar til á 25. min. er Herði markverði lA tókst að ná til knattarins eftir vafasamt út- hiaup og var hann ekki nema rétt kominn í markið aftur eftir að hafa spymt fram á vöilinn, þegar hann mátti taka á slnum stóra við að verja langskot. Mín. síðar áttu Akurnesingar gott tækifæri til að taka fory- ystu í l'eiknuim, er Matthías sendi fallega sendingu innfyrir vörnina til Karls Þórðarsonar, en Jón markvörður iBK varð að- eins fyrri til og hlrti knöttinn af tánuim á honum. SfÐARI HÁLFLEIKUR Síðari hálfleikur var likur þeim fyrri, þvi fátt var um góð marktækifæri og einkenndist leikurinn af baráttu oig reyndust poiiarn r á vellinum Jeikmönnum oft erfiðari en andstæðingurinn. Grétar Magnússon og Jón Óíafur áttu þokkaleg tækifæri á 53. og 63. mín., sem þeim tókst ekki að nýta. Á 65. mín. varð það að Steinari Jóhannssyni tókst að skora mark og reyndist það sigurmarkið i leiknum. Háði hann harða har- áttu við varnanmenn Akuraes- inga, og að lokum við Hörð mark vörð, sem va rkominn langt út í vítateiginn. Vippaði Steinar knettinum yfir hann og náði sið- an að skalla í mannlaust markið. Eftir markið sóttu Akumesing ar nokkuð í sig veðrið og reyndu alJt hvað þeir gátu til að jatfna og rétt fyrir Jeikslok munaði minnstu að það tækist. Matthías skaut jarðarskoti að markinu, en Jóni markverði ÍBK tókst að koma fæti fyrir knöttinn þannig að hann hrökk ofan á þversló og aftur fyrir markið. Leiknum lauk með naumum sigri Keflvikinga, sem eftir at- vikum var sanngjam, en kannski hefði jafntefli þó gefið réttari mynd af leiknum. Erfitt er að dæma um getu ein stakra leikmanna eftir þessum leik, sem fór fram eins og áður er sagt, við erfiðar aðstæður. Liðin voru að mestu skipuð sömu ieikmönnum og á sl. ári og því flestir gamlir kunningjar. Að vísu lék í marki Keflvíkinga nýliði, Jón Sveinsson, sem þrátt fyrir æfingaleysi átti þokkalegan leik og hélt markinu hreinu. Ein- ar og Guðni voru sterkir sem fyrr og sömuJejðis Gísii Torfa- son. Hjá Akurneslngum söknuðu menn Eyieifs Hafsteinssonar, sem að sögn hefur lagt skóna á h'Jluna, en hann er að draga auð i þjóðarbúið, sem háseti á loðnubátnum Skirni frá Akra- nesi. Vonandi endurskoðar hann fyrri afstöðu sína, að lókinni ioðuvertíð og dustar rykið af skónum. Það munar míkið um hann fyrir liðið og óvíst er hvem Lg hefði farið, ef hans hefði mot- ið við i þessum leik. Matthias er liklegur til afreka í sumar eftir því sem hann sýndi í þess- um leik og sömuleiðis ungu mónnimir Karl og Hörður. Andr- és ÓJafsson kom einna mest á óvart, en hann lék nú sem tenigi- liður, með góðum árangri og var bezti maður liðs'ns. Dómari í þessum leik var Hin- rik Lárusson og skal það sagt honum til hróss, að hann var ekki að eltast við smámuni og stóð sig vel. Hdan. Haraldur lagði grunninn að sigri Vestmannaeyinga í leiknum við Kópavog VESTMANNAEY.TAR og Kópa- vogur léku í bæjakeppni kaup- staðanna á fimmtudagskvöldið og var leikið á malarvellinum í Kópavogi. Mikill áhugi var fyrir leiknnm og um 1500 manns fylgdust með leiknum. Engin að- staða er fyrir áhorfendur við völiinn og þurfti nokkur fjöldi áhorfenda að standa inni á veU- inum allan leikinn. Nokkuð fuU- Ásgeir Sigurvinsson komin flóðljós eru nú komin upp á vellinnm og var þessi leikur vígsluleikur fyrir viðbótarljós, sem Lionsklúbburinn í Kópavogi gaf. Vestmannaeyingar báru sigur úr býtum í þessari viðureign kaupstaðanna, unnu Iieikinn með tveimiur mörkum gegin engu og skoraði Haraldur Júlíusson bæði mörkin. í fyrri hálfleiknum léku Vestmannaeyingar á móti vindi og brá þá oft fyrir ágætu spili hjá báðum liðum, en ekkert mark var skorað í hálfleiknum. 1 síðari hálfleik varð leikurinn mun þófkenndari, en Vestmanna eyingar höfðu sem fyrr frum- kvæðið i leiknum. Fyrra markið í lieiknum kom á 67. mínútu. Ás- geir Sigurvinsson einlék upp kantinn og gaf góðan bolta fyrir markið, þar var Haraldur vel staðsettur og átti ekki í erfiðleik um með að renna knettinum í netið. Á næstu mínútum áttu bæði lið sín tækifæri, t.d. skaut Þór Hreiðarsson yfir af stuttu færi og Kristján Sigurgeirsson átti hörkuskot í stöng af löngu færi. Harsldur Júlíusson — byrjaði keppnistímabilið á tveimur mörkum, en í fyrra end- aði hann það á sama hátt, En minútu fyrir leikslok kom siðara markið og var það sann- kalliað draumamark. Ásgeir brun aði upp kantinn, eins og við fyrra markið, og sendi síðan góða fyrirgjöf fyrir mark Breiða biiks. Haraldur Júlíussom kom aðvífandi á fullri ferð og sendi knöttinn í netið með glæsile'gum goillskalla svo söng í netinu. Ekki voru fleiri mörk skoruð í leikn- um því skömmu síðar flautaði Magnús Pétursson, góður dóm- arí leiksins, leikinn af. Vestmannaeyingar verðskuld- uðu sigur í þessum leik, þeir voru betri þrátt fyrir að fjórir af fastamönnum iBV frá því í fyrra lékju ekki með að þessu sinni, þeir Ólafur Sigurvinsson, óm óskarsson, Friðfinnur Finn- bogason og Páll Pálmason, en þeir eru allir við störf í Vest- mannaeyjum.. Ásgeir Si gur- vinsson og Haraldur Júlíusson voru beztir í framlínu Vest- mannaeyiinga, báðir mjög hreyf- anJegir og friskir. Kristján Sig- urgeirsson gerði margt mjöig lag lega í íeiknum, en hvarf svo á miili. 1 liði Breiðabliks saknaði mað- ur tveggja fastamanna frá síð- uistu knattspyrnuvertíð, þeirra Guðmundar Þórðarsonar og Guðmundar Jónssonar. Einar Þórhallsson bar af í Breiðabliks- liðinu, sem virtist ekki finna sig í leiknum. — áij. ÍBV í Reykja- víkurmótið NÚ MUN vera ákveðið að meistaraflokkur ÍBV tald þátt í Reykjavíkurmótinii í knatt- spymu, sem hefst um miðjan apríl. Vestmannaeyingum hafði áður verið boðið að taka þátt í litiu bikarkeppninni, en þeir kusu frekar að vera með sem gestir í Reykjavíkurmót- inu, þar sem flestir leikmenn liðsins búa í Reykjavík. Meist arakeppni KSl ætti að vera hafin nú, en þar sem ekki var hægt að setja leik ÍBK og ÍA á fyrr en í þessari viku hefur hún dregizt. Komið hefur til tals að felia meistarakeppnina niður að þessu sinni og munu Framarar vera því fylgjandi, en Vestmannaeyingar vilja að keppnin fari fram. Munu linurnar varðandi meistara- keppnina væntanlega skýrast nú um helgina. Verðlaunin afhent í dag Ýmissa orsaka vegna hefur dregizt úr hömlu að afhenda verðlaun fyriir Reykjavík urmótin í handknattieik, en þeim er lokið fyrir nokkrum mánuðum. 1 dag verður þess- um málum þó kippt i lag en verSlaunaafhending til allra sigurvegara í hinum ýmsu flokkum Reykjavíkurmótsins fer fram á Hótel Esju í dag og hefst kl. 15. Einn leikur í körfunni Fjórir leikir áttu að fara fram í 1. deildimni í körfukmÁtleik um helgina, en vegna sýningar í iþrótta- húsinu á Seltjarnarnesi hef ur orðið að fresta þremur þeirra. Aðeins leikur Þórs og stúdenta mun fara fram og hefst hann Mukkan 16 í dag í Iþróttaskemmunni á Akur- eyri. Hinir leikirnir þrir fara fram á þriðjudaginn á Sel- tjamarnesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.