Morgunblaðið - 17.03.1973, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1973
3
EINS og fram kcmiir í blað-
Inu í daj;, hélt Húsmæðrafélag
Reykja-víkur fund á Hótel
Sójíu sl. fimmtudajískvökl til
að ræða verðbólguvandamálin
og mótjuæla sifelldum hækk-
uniim á naiiðsynjavöriim.
Fundinn sóttu um 200 hús-
mæður, bæði úr Reykjavík og
nágrenni, og fram fóru miklar
og snarpar umræður um,
hvað íielzt skyldi gert, til að
stemma stigu við auknum
verðhækkunum á næstunni.
Fundinn setti Margrét Ein-
arsdóttir, sem sæti á í stjóm
Húsmæðrafélagsins, en fyrst
tók til máls Dagrún Kristjáns
dóttir form. Húsmæðraféilags
ins og gat þess m.a., að nú
væri tímá til kooninn að ís-
lenzkar húsmæður mótmæltu
því, að hið opínbera leyfði sér
að seilast ofan i vasa okkar
eins oft og það vildi, þar til
ekkert væri eftir nema gatslit
Frá fundi Húsmæðraféíags Reykjavíkur sl. fimmtudagskvöld.
Húsmæðrafundurinn:
Tími til kominn að
láta til sín taka
(Ljósm. Mbl.: Kr. Ben.)
inn vasiinn. Dagrún gat þess,
einnig að liklega værw islenzk
ar húsrhæður þær þol nmóð-
ustu og þægustu húsmæður i
veraldarsögunni, vegna þess,
hve iítið þær væru gefnar fyr
ir samstöðu, og taldi að nú
væri kominn timi til að þær
létu til síin taka, þegar slíkt
stórmál væri i húfi.
í>egar Dagrún hafði lokið
má'li sínu tók Kristín Guð-
m'undsdótt’.r form. Kvenfélags
Alþýðuflokksins til máte, og
gat helztu hækkana, sem orð
ið hafa á nauðsynjavörwn, og
kvað hafa keyrt um þverbak,
er ríkisstjórnin hækkaði verð
á nauðsynjavörum 1. marz sl.
Ræðu sína endaði Kristín
með að hvetja húsmæður til
að sýna einhug og efna til rót
tækra mótmælaaðgerða.
Þá gaf fundarstjóri orðið
laust, og Helga Elnarsdóttir,
kennarl tók til máls. Helga
minntist á, að svo illa væri nú
komið ) verðlagsmálum þjóð
arinnar, að Mklega hvarflaði
að mörgum að taka það ráð
að neyta hundafæðu, eins og
maðurinn í Oklahoma . gerði
undir sömu kringumstæðum
einu sinni. Helga kom e nnig
að því, hve mikið ólaig væri á
umtoúðum mjólkuirafurða i
Reykjavik, og lagði fram þá
tiiiögu, að húsmæður skor-
Uðu á rikisstjórnina að selja
ailar mjólkurafurðir í femum
í stað silekandi og óhagstæðra
plastpoka.
Næst stóð upp Vilhelmína
Böðvarsdóttir og kom fram
með þá tillögu, að húsmæður
keyptu ekk kindakjöt í hállf
an mánuð samfleytt í mót-
mælaskyni við auknar verð-
hækkanir.
Ásthildur M'xa, húsmóðir,
kom fram með tillögur um að
húsmœður legðu algert bann
á kartöflur, þar sem þær
væru hvort eð er óætar á þess
um árstíma, og einnig að þær
hættu mjólkurkaupum í viku.
Laufey Agnarsdóttir, hús-
móðir utan Reykjavíkur iagði
til, að Húsmæðrafélagið lelt-
aði ti'l kvenfélaga úti um land
og fengi þau til að vinna sam
an að mótmælaaðgerðum hús-
mœðra. Einnig lagði hún til,
að dreg ð yrði verul'ega úr
mjólkurkaupum.
Margrét fundarstjóri ste'ig í
ræðustól þegar Laufey hafði
lokið máli sinu, og undirstrik
aði þá staðreynd, að húsmæð
ur væru stærsta stéttarfélag á
landinu, og bæri þvi þeim að
sýna einhug og sameininigu.
— Ég viill elndregið að hús
mæður sameinist á þingpöll
um Alþingis til að mótmæla
ríkisstjórninni, sagði Kristín
Karlsdóttir, húsmóðir og sex
barna móðir.
Sólrve'g Eyjólfsdóttir, urng
húsmóðir, benti á að sain-
kvæmt læknisráði nægir börn
um 1/4 úr mjólkurlítra á dag,
og kvað því vel framkvæman-
legt að draga mjög úr mjólk
urneyzlu heimilanna.
Aldís Benediktsdóttir, einn
ig umg húsmóðir, vildi ein-
dreglð efna til fundar með
stjórnvöldum og fá leiörétt-
ingu á verðlagsmólum hið
skjótasta.
Dröfn Faresveit, sem dval-
izt hefur i Noregi tii skammns
tíma, sagði að norskar hús-
mæður væru mjög iðmar vifi
að mótmæia verfihækkunum,
og þyrfti ekki annað en að utm
smiáhækkun á einni vöru væri
að ræða til að húsmæfiur
fylktu sér i mótmælagöngur.
Drofn kvað einniig að minnka
mætti mjólkurdrykkju til
muna.
Margar lleiri konur tó'ku tiJ
máls, og auk verfiiagsmála
var e'nnig mikið rætt um
nauðsyn þess að styrkja sam-
stöðu meðal reykvískra hús-
mæðra og raunar út um aílt
land. Ýmsar fyrirspurnir oig
athugasemdir komu fram I
fundarumræðum, en að ilok-
um fór svo, að þrjár megin-
mótmælatillögur voru sam-
þykktar með yfirgnæfandi
meirihluta fundarkvonna.
Þess mó og geta að iokum,
aö nánar verður au,glýst sífiar
um hvenær tid mótmæiaað-
gerða verður gripið og hvern-
ig-
Dagrún Kristjánsdóttir í ræðnstóli.
Sýning Kvenfélagasambandsins:
Fjölskyldan á
rökstólum
„FJÖLSKYLDAN á rökstólum"
nefnir Kvenfélagasamband ls-
lands sýningu um heimilishag-
ræðingn, sem haldin verðnr í
Norræna húsinu dagana 17.—
28. mara frá kl. 14 —19 alla virka
daga, en 14 — 22 um helgar.
Þátttaka giftra kvenna í at-
vinnulífinu fer stöðugt vaxandi
og er tilgangur sýningarinnar
að vekja athygli á heimilisstörf-
unum og mildlvægl þeirra, um
leið og bent er á, að fjölskyldan
verður að vinna að þeim störf-
um sameiginlega, þegar hús-
móðirin vinnur úti, og hentugar
leiðir til að gera það.
Sýningin er sænsk og fengm
að láni hjá Konsumient Institutet,
sem er ríkisrekin rannsókna-
og upplýsingamiðstöð í þágu
neytenda, en i nágrannalöndun-
twn er lögð mikil áherzla á að
fræða almenning um heimilis-
hald, svo að heimilin megi
gegna hlutverki sínu á sem
beztan hátt.
Sýningn fjallar um mál, sem
snerta alla fjölskylduna, og
mega allir koma og sjá hana.
Um helgar verður sýnikennsla.
Laugardaginn 17. marz sýnir
Hrönn Hiimarsdóttir tilbúnin-g
hrásalata, sunnudaginn 18. marz
fjallar hún um morg’jnverðinn
og lauigardaginn 24. marz sýnir
hún matreiðslu á fljótlegum
fiskréttum. Sýn'kennslan fer
fram kl. 14, kl. 16 og kl. 17 í
sýningarsalnum niðri í Norræna
húsinu, en réttirnir verða á boð-
stólum í kaffistofu hússins öðru
hvoru á meðan á sýningu stend-
ur.
Á sýningunni hefur verið kom-
ið fyrir upplýsingum um viku-
matseðil, og það, sem þarf að
kauipa inn til hans, ásamt upp-
lýsingum um kostnað (miðast
þetta við fjögurra roanna fjöl-
skyldu). Frú Sigríður Haralds-
dóttir heimilishagfræðinigur, sem
starfar hjá léiðbeiningastöð
Kvenfélagasambandsins, hefur
séð um uppsetningu sýningar-
innar, en að henni lokinni, eða
í aprílmámiði gefst héraðssam-
böndum K. 1. kostur á að fá
hana að láni.
í tilefni af sýningunni verður
umræðujfundur um fjölskylduna
og framtíðina þriðjudaginn 21.
marz kl. 21.00. Framsöguerindi
flytja Hólmfriður Gunnarsdóttir,
kennari og félagsráðgjafi, Pét-
ur Þorsteinsson, menntaskóla-
nemi, Rósa Björk Þorbjarnar-
dóttir, kennari og dr. Bjöm
Björnsson, prófessor, en Sig-
riður Thorlacius, formaður Kven
félagasambands íslands stjómar
umræðum. Er öllum heimill að-
gangur að fundinum, sem hald-
inn verður í samkom'usai Norr-
æna hússins.
HADEGI
rouörótúmo^!
isoönum
i Ólllrórfum
licítum lort
óHumhutiD
ncó dk'cgiliti
örkxfániúsú1
dt ojostur.
miolkob-tc
.ippclsíiiur
*nusui
í
Einfaldur mat.seðill settur upp af heimilisil'ræðingi sýningar-
innar. Maturinn hjá þessari fjölskyldu kostar rúmar 4000 kr.
& viku.