Morgunblaðið - 17.04.1973, Page 3

Morgunblaðið - 17.04.1973, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1973 3 Rússar verja allt að 50% til landvarna KÚSSAR verja 40 til 50% þjöð- artekna sinna til landvama, eða fjórnm tii fimm sinnum hærri upphæð en opinberar tölur segja til um, samkvæmt óopinberri rannsókn tveggja ónafngreindra sovézkra hagfræðinga og anciófs manna, sem hafa aðeins stuðzt við opinberar skýrslur. Þótt vestrænir sérfræðingar hafi tekið lítið mark á opinber- iim tölum sovézkra stjómvalda, hafa fáir gert ráð fyrir að svona háum upphæðum væri varið til varnarmála. t>ó nefndi Andrei Sakharov, faðir sovézku vetnis- sprengjunnar, töluna 40% í opnu bréfi til Leonid Brezhnevs í fyrra. Samkvæmt útreikningum hag- fræðinganna eru herútgjöidin á bilinu 54 milljarðar dollara til 97 milljarðar dollara. Þeir segja að ekki sé hægt að nefna nákvæma tölu þar sem erfitt sé að áætla verðmæti sovézku þjóðarfram- leiðsiunnar í dollurum. Samkvæmt opinberum tölum hafa Rússar varið 17,9 milljörð- um rúbina til landvama á ári undanfarin fimm ár, eða um 24 milljörðum dollara samkvæmt núverandi gengi. Árið 1969 voru herútgjöldin 7% þjóðarteknanna samkvæmt hinum opinberu töl- um, en rannsókn hagfræðinganna miðaðist við það ár. Aðferð hagfræðinganna var í aðalatriðum á þá leið, að þeir drógu öll útgjöld, sem vitað var um, frá heildarútgjöldum ríkis- ins og drógu þá ályktun að megn ið af afganginum, sem var um 87 milljarðar rúblna, færi til landvarna. Raunverulegra út- gjalda til landvarna er ekki get- ið í opinberum tölum. Kissinger og Palme hittast á leynifundi Stokkhólmi, 16. apríl. NTB. HENRY Kissinger, ráðiinautiir Nixons forseta í öryggismálum, hittir Olof Palme, forsætisráð- herra Svíþjóðar, að máii um niiðjan næsta mánuð. Kissinger og Palme hittast á ráðstefnu Bilderberg-hópsins svo kallaða sem> verður haldinn i Saltsjöbaden skammt frá Stokk- hólmi. Bilderberg-hópurinn er skipað- ur stjórnmálamönnum og fjár- málamönnum frá mörgum lönd- um og kemur saman til funda öðru hverju til þesis að ræða sameiginleg áhugamál. Bilderberg fundirnir eru haldn- ir fyrir luktum dyrum og það er leyndarmál hverjir eru í sam- tökunum og fyrir hverju þau berjast. Fyrir 11 árum héldu Bilder- berg-samtökin fund í Svíþjóð, meðal annars með þáttöku Tage Erlanders þáverandi forsætisráð herra, Arne Geijer, forseta verka lýðssambandsins og Gunnars Lange, fyrrverandi viðskiptaráð- herra. Wmm **'"''*S Eíjui Kinverjimi málar rautt veggspjald til skreytingar Kjarvalsstaða. (Ljósm. MbJ. Ó1.K.M.) Kínverjar undirbúa sýningu ÞEGAR að iokinni Kjarvais- sýmingunmi í Kja rvalsstöð»m á siimnndagskvöWið var hafizt handa iun að taka nlður mál- veirkim í sýnimgasölunum og jafnframt hófust kinverskir memgn handa um að undirbúa uppsetningu kínverskrar list- munasýningar, sem opmuð verður í næstu viku. Sýningin mun stamda í 11 daga, og verða þa.r munir úr postulíni, málmi, tré, silki og fleiru. Sýningin kom hingað til Iands frá Noregi, og fer héðan til Kanada og víðar. í tengslum við hana er ráð- gert að sýna kínverskar kvik- myndir og selja smámuni til minja. Það er kínverska sendiráðið í Reykjavík, sem Kínverjarnir bera kassa með listmunum inn í Kjarvalsstaði. gengst fyrir þessari sýningu. Kassarnir með sýningargripun Um vógu aamtals um 50 lestir. TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS # KARNABÆR LAUGAVEGI20A OG LAUGAVEGI 66 HREINT ALVEG ÓTRÚLEGT Úrval af nýjum vörum teknar upp í dag: OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD — Blússur — Kvenpeysur — Herra- og dömuvesti — Bolir — Kjólar — Pils — Gallabuxur — „Baggy“- buvur úr alls konar efnum — Smekkbuxur — Föt með vesti — Stakir „Dumgal“ tweed jakkar — Kvenjakkkar — Bindi, skyrtur, slaufur — Leðurstuttjakkar — Led Zeppelin V, „Oh, La, La“ með Faces og margar aðrar plötur — Allt nýjar og glæsilegar vörur. Við auglýsum einnig á bls. 11, 13, 15, 19, 21 og 25.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.