Morgunblaðið - 17.04.1973, Side 20

Morgunblaðið - 17.04.1973, Side 20
20 MORG'UNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRlL 1973 75 ára í dag; BENEDIKT GRÍMSSON, HREPPSTJÓRI, KIRKJUBÓLI 1 dag, þann 17. april er Bene- dikt Grímsson hreppstjóri á Kirkjubóli í Strandasýsliu 75 áira. Af því tilefni langar mig að srtinga niður penna og færa honum þakkir, fyrir áratuga góða viðkynningu, samstaa-f og vináttu um íjölda ára, og jafn- framt minnast hins óvenjumikia félagsstarfs, sem hann hefir innt af hendi, sem sveitungar hans og héraðsbúar hafa notið góðs af. Benedikt er fæddur að Kirkju bóli 17. aprll 1898. Foreldrar hans voru Grimur Benediktsson bóndi á Kirkjubóli og kona hans Sigríður Guðmundsdóttir firá Vighólsstöðum á Fellsströnd í Daiasýslu, mikið vinsæJ heið- urshjón. Þau Grimur og Sigríður voru bæði af breiðfirzkuim ætt- um, Grímur af svokallaðri Orms- ætt, sem kennd var við Orm Sig urðsson, er hóf búskap i Fremri- Langey á Breiðafirði fyrir rúm- lega 200 árum. Er sú ætt afar fjölmenn. Benedikt er 5. maður frá Ormi í Fremri-Langey, og voru þessir forfeður hans í bein an karllegg taldir miklir greind- arkariar og voru allir frammá- menn i sinum sveitum og héruð- um. Og sjaldan fellur eplið langt írá eikinni, ekki fór Benedikt Gcímsson í felur, þegar sinna þurfti frarrufaramálum sveit- ar hans og héraðs. Á unglings- ánum Benedikts var aðstaða til náms svo til engin í sveitum þessa lands, nema léleg barna- fræðsla en sveit Benedikts var að þessu leyti betur sett en flest ar aðrar, því þar var byggður, og starfræktur fyrsti unglinga- skólinn i sveit á íslandi — Hey dalsárskólinn. Benedikt fór í bændaskólann á Hvanneyri og Jauk það- an prófi 1921. Halldór Vilhjálms son var þá skólastjóri, og sem kunnugt er hafði hann sérstakt, lag á því að glæða áhuga nem- enda sinna, á ræktun lands og lýðs, ásamt öðrum framfaramál- um sveitanna, sem ég ætía að flestir nemenda hans hafi búið að ævilangt. Benedikt Grímsson hóf búskap á Kirkjubóli 1925. Hann á þá einnig 48 ára afmæld sem bóndi. Hann kvæntist sama ár, Ragnheiði Lýðsdóttur hrepp stjóra á Skriðnesenni í Bitiru. Þau eiga 3 mannvænlega syni, Grím og Sigurð bændur á Kirkjubóli, og Lýð sem vinnur í Skipadeild S.Í.S. i Reykjavík. Einnig eiga þau kjördóttur sem búsett er í Reykjavík. Kirkjuból er falleg jörð, vel í sveit sett, með fagurt úsýni tll aHLra átta. Þar hefir Bene- dikt ræktað mjög mikið land, og þar eru miklar og góðar bygg- mgar. Að sjálfsögðu hafa synir hans þar unnið í samvinnu við foreldra sána. Snyrtimennska er þar í bezta lagi, eins og veg- farendur hljóta að hafa veitt at- hygli. 1 Kirkjubólshreppi hefir nú um langa hríð ríkt mikill og góður félagsandi, meiri en al- mennt gerist. Mér er kunnugt, að þar eiga margir hlut að máli, en ég held að ég geri engum rangt tii þó ég segi að þar hefur Bene dikt Grimsson staðið í fremstu víglínu, og átt sinn stóra og ómet anlega þátt í öllu félagslifi, og framfaramálum sinnar sveit- ar, um hálfrar aldar skeið enda hefur hann notið trausts sveit- ar sinnar og héraðsbúa í heild, að verðleikum. Ekki er þess nokkur kostur að telja upp öll þau félagsmáia- störf sem Benedikt hefir verið viðriðinn, því þau munu vera eins mörg og finnast í sveitum. Hér skal þó aðeins getið nokk- urra. Hreppstjóri Kirkju- bólshrepps hefir hann verið frá 1932, eða um 40 ára skeið. Sýslu nefndarmaður frá 1946 (aðalmað ur), sparisjóðsstjóri frá 1941 (eða fyrr). Ýmist sem formaður eða endurskoðandi Kaupfélags Steingrimsfjarðar i mörg ár, Búnaðarþingsfulltrúi, Búnaðar- sambands Strandamanna um 20 ára skeið, og formaður þess frá stofnun Búnaðarsambandsins, er Benedikt lét af störfum, sem Búnaðarþingsfulltrúi var hann kosinn heiðursfélagi Búnaðarfé lags Islands. Þá hefir hann ver- ið fulltrúi á aðalfundum Stétt- arsambands bænda flest árin frá stofnun Stéttarsambandsins til siðasta kjörtímabils. öll þessi störf vann Benedikt af mikiíli lipurð og samvizku- semi og frágangur á öllum hans skýrslum var svo hreinlegur og góður að til fyrirmyndar var. Það var sagt að Benedikt á Kirkjubóli þyrfti aldrei að flýta sér, störfin gengu samt fram, og voru aldrei leyst af hendi öðru- vísi en vel. Það segir sig sjálft að þegar menn eru kallaðir til starfa, á félagsmálasviðinu, eins og hér hefur verið lýst, þá verður hvort tveggja að ske, að leggja verður nótt við dag, til að geta komið störfunum af, og í annan stað verður ýmislegt annað að sitja á hakanum af heimilisstörf um. En þó í það færi, var því bjargað af hans ágætis- og dugn aðarkonu, Ragnheiði, sem sá um að halda öllu í horfinu, og vel það með börnum þeirra hjóna. Eins og að líkum lætur þurftu margir að leggja leið sína að Kirkjubóli, þar sem húsbóndinn hafði svo mörgum félagsmáium að gegna, og er ég þess fullviss, að hver sá er þar var kominn inn fyrir dyr, langaði ekkert til að flýta sér af stað aftur. Slík var gestrisnin þeirra hjóna og fjölskyldunnar allrar. Það var gott að vinna með Benedikt Grimssyni að félagsmálum. Fyrsta boðorðið var alltaf að gera rétt og gera það bezta, jafna ágreiningsmálin, sem af eðlilegum ástæðum kunna að rísa, vegna misjafnra sjónarmiða á vandamálum dagsins. Var þá oft af hálfu Benedikts viðhöfð góðlátleg glettni og gam anyrði, sem urðu til þess að vopnin voru slegin úr hendi deiluaðila. Ég sagði í upphafi þessarair greinar minnar að þessi orð ættu fyrst og fremst að vera þakkar- orð frá mér fyrir vináttu og sam starf um langt árabil. Ég vona Benedikt minn og frú Ragnheið ur að þið takið viljann fyrir verkið. Ég vil svo mega bera fram þá ósk ykkur til handa, að þið sem nú eruð að ná háum aldri, megið eiga rólega daga á þeim stað þar sem þdð hafið int lífsstarffið af hendi, og að ar- inn margra liðánna stunda vermi ytokui. Að siðustu vil ég einnig bera fram þá ósk að afkomendur ykk ar, Benedikts og Ragnheið ar, megi um langa framtíð halda uppi merki ykkar á Kirkjubóli. Lifið heil. Ólafur E. Einarsson frá Þórustöðum. Á þessum tímamóitum í ævi vinar míns, Benedikts, er hann á að baki þrjá aldarfjórðunga, bregður ýmsum myndum á loft. ! Það hefur verið hlutskipti hans í lífinu að vera mikið í sviðs- ljósinu í félags- og framfaramál um okkar Strandamanna um margra áratuga skeið, enda mað urinn vel til forystu fallinn. Ekki h’laut Benedikt langa skólagöngu, fremur en margir aóiir aldamótamenn. Ungur að árum hreifst hann af Ung meninafélagshreyfingunni og þedrri hvatnóngar- og framíara- öldu, sem þá fór um þjóð vora. Mér finnst að Benedikt hafi gert hugsjón Ungmennafélags- skaparins að sinni Mfsskoðun, þvi að öli hans störf á sviði fé- lags- og franmfaramála bera því glöggt vitni. Á yngri árum starf aði hann mikið innan Ungmenna félagsskaparins, var m.a. for- maður ungmennafélags sveitar siinnar um margra ára skeið og einnig formaður Ungmennasam- bands Strandasýslu um fjölda ára. Eins og áður hefur verið drep ið á, hefur Benedikt gegnt og gegnir enn fjölmörgum trúnaðar störfum. Umsvifamestur hefur hamn verið á sviði búnaðarmála, þar hefur hann verið í fylking- arbrjósti um áratugi. Búnaðar- samband Strandamanna var stofnað árið 1945 eftir alllanga baráttu um að fá samþykkt fyr- ir skiptingu Búnaðarsambands Vestfjarða í tvö sambönd, þann- ig að Strandasýsla yrði sérstakt búnaðarsamband. Andstaða gegn þessari skiptingu hygg ég að hafi aðallega byggzt á því, að stjóm búnaðarmála í land- inu hafi þótt Strandasýsla full fámenn til þess að vera sérstakt samband og þar af leiðandi van treyst þvi, að við gætum rekið það fjárhagslega. Þessi andstaða sem hér var drepið á, var í sjálfu sér ekki óeðlileg, og okk- ur Strandamönnum var vel Ijóst að í mikið var ráðizt. Þvi reið i okkur mjög á að fá hinu nýja sambandi sterka stjórn. Á stofn fundi sambandsins, sem var aD- fjölmennur, urðu allir sammáta um það að fa.ra þess á leit við Benedikt að taka að sér for- mennsku hins nýja búnaðarsam bands. Það var vel valiið. Byrj- unarörðugleikar voru tölu- verðir, einkum hvað fjármálin snerti og reyndi þá mikið á Bemedilkt, einkuim fyrstu árin. En með hyggindum og lagni tókst að yfirstíga alla örðugleika og það er langt síðan, að samband- ið varð traust stofnun fjárhags- lega. Fyrir um tuttugu árum beitti Benedikt sér fyrir þvi, að sambandið réð til sín héraðs- ráðunaut, og það hefur haft hann síðan. Upp úr því færðist mikil gróska í starfsemi sam- bandsins og búskapinn almennt og hefur sú framþróun haldið áíram og farið vaxandi. Þó að Strandamienn væru hart leilknir ! á kalárunum eins og margir aðr ir, voru þeir efcki á því að gef- ast upp. f örugigri trú á byggð ina, sem hafði fóstrað þá, héldu þeir velli og í vissunni um að öll él birtir um siðir. Ég hef nokkuð unnið með Benedikt að félagsmálum, einkum búnaðar- málum og minnist ég þess sam- starfs með mikilli ánægju og tel mér það til tekna að hafa átt þess kost að kynnast Benedikt og starfa með honum. Benedikt hefur mikinn persónuleika, hann er með afbrigðum traust- ur, dreniglyndur, gætinin, lag- inn að setja niður deilur, sam- vinnuþýður, en þó fastur fyrir. Hann hefur verið sérstaklega farsæll í störfum og ég held, að það sé ekki ofmælt, að hann hafi leyst öll him fjölþættu störf sem honum hafa verið falin með hinni mestu prýði. Það var ekki ætlunin, a8 þetta greinarkorn yrði nokkur æviminning, heldur aðeins nokk ur fátækleg orð í tilefni dags- ins. Á þessum merku tímamót- um í ævi Benedikts vil ég flytja honum innilegar þakkir fyrtr drengilegt samstarf og vináttu á liðnuan árum. Jafnframt vil ég flytja honum og fjölskyldu hans beztu ósðrir um giftu og far- sæld á ókomnum árum. Þú getur nú Benedikt minn litið yfir farinn veg, með nokkru stolti, þó að það sé ekki þér eiginlegt. Þú hefur séð margar hugsjóna þinma rætast og það er erfitt að benda á nokkur framfaramál norðúr þar sem þú hefur ekki átt einhvern hlut að. Nú þegar halla tekur undan faeti, liður senn að því, að þú farir að kveðja þin fé- lagsmálastörf og hverfa á vit minninganna. Minninga um vel- heppnað forystuhlutverk fyrur beiimabyggð þina. Við þann arin eld er gott að orna sér. Jón Kristjánssoii. Kirkjutónleikar TÓNVERKIÐ STABAT MATER eftir ítalska tónskáldið Giovanni Pergolesi er án efa eitt ástsæl asta tónverk tónbókmenntana. Sennilega hafa fá verk náð til jafn margra áheyrenda sem þetta aðgengilega tónverk Pergo lesi, enda hefur það verið upp- fært oft. Hér á landi hefur það Matvælakynning í Chicago ÁKVEÐIÐ hefur verið, að þú- vörudeild S.Í.S. takí þátt 1 kynhingu á íslenzkum matvæl- um, sem fram fer i Chicago í maí n.k., ásamt Loftleiðum og Sölustofnun lagmetisiðnaðarins. Stendur hún í sambandi við það, að hinn 2. maí hefja Loftleiðir flugferðir tíl borgarinnar, og verða aí þvi tiiefni kymnit í Palm er House þar I borg íslenzkt lam.hakjöt og íslenzkar niður- suðuvörur á matvælakynningu, sern stendur yfir í eina viku. tvivegis verið flutt, fyrir all- mörgum árum undir stjórn dr. Victors Urbancic' og síðar undir stjórn Hauks Guðlaugssonar. Þriðja uppfærslan er nú í und- irbúningi. Er það stúlknakór Hliðaskólans í Reykjavík, undir stjóm Guðmundar Emilssonar, sern færzt hefúr þetta verkefni í fang með aðstoð þekktra lista- manna. Einsöngvarar eru þær Svala Nielsen og Sólveig M. Björling, en undirleik annast Gústaf Jóhannesson orgelleikari og félagar úr Sinfóníuhljómsveit Islands, þeir Konstantin Krechl- er, Vladimir Dedek, Allan Willi- ams og Pétui Þorvaldsson. Æf- ingar hafa staðið yfir síðastliðna tvo mánuði. Tónverkið var flutt tvívegis í kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg. Fyrri tónleikarnir verða miðvikudaginn 18. apríl kl. 21.00 en allir aðgöngumiðar á þá tónleika eru uppseldir. Síðari tón leikarnir verða fimmtudagínn 19. april kl. 17.00 (skírdag) og verða aðgöngumiðar seldir við inngang inn frá kl. 16.30.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.